Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1988, Side 2
2
MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 1988.
Fréttir
Fiskiþing:
Launasamningar við verka-
fólk ekki örlagavaldarnir
- sagði Einar Oddur Kristjánsson framkvæmdastjóri
„Eg er sannfærður um þá staö-
reynd að þeir launasamningar viö
verkafólk í framieiðslugreinum,
sem gerðir hafa verið á undanfórn-
um árum, hafa ekki veriö þeir ör-
lagavaldar um verðlagsþróun hér
á landi sem margir vilja vera að
láta. Þær ákvaröanir, sem mestu
máli skipta, og hafa ráöið úrslitum
um þróunina, var alltaf búið að
taka löngu áður en skrifað var und-
ir samninga. Þeir samningar, sem
fiskvinnslan í landinu hefur á und-
anfomum áram gert við verkalýðs-
félögin, hafa í reynd aðeins verið
viöurkenning á kaupgjaldinu 1
landinu, viðurkenning á því verði
sem borgað er fyrir vinnuna. Og
verkafólkiö í framleiðslugreinun-
um hefur í reynd aldrei verið að fá
aðrar kauphækkanir en þær sem
launaskriðshópamir voru löngu
búnir að fá áður,“ sagði Einar Odd-
ur Kristjánsson framkvæmdastjóri
í ræðu sem hann flutti á fiskiþingi
í gær.
Einar Oddur ræddi um byggða-
þróun, atvinnuskiptingu lands-
hluta og afkomu sjávarútvegsfyrir-
tækja. Hann fullyrti að þróunin
væri sú að fólksfækkunin væri
mest á þeim landsvæðum sem eiga
mest undir sjávarútvegi. Sagði
hann byggðina standa þeim mun
veikar sem hlutfall mannaflans í
sjávarútvegi væri hærra. Fólks-
fjölgunin væri mest þar sem versl-
unar og þjónustustörf væru flest.
Þá benti hann á að á sama tíma
og sjávarútvegurinn ætti undir
högg að sækja, annaðhvort veið-
amar eða vinnslan, eða hvort
tveggja, væri stöðug umframeyðsla
í þjóðfélaginu. Sagði Einar að þau
ár væm teljandi á fingmm annarr-
ar handar þegar ekki hefði verið
bullandi viðskiptahalli og þjóðfé-
lagið safnað skuldum.
Loks sagði Einar Oddur að í gegn-
um tíðina hefðu stjómvöld og
stjórnmálamenn reynt að styrkja
veikar byggðir landsins með ýmsu
móti. Sú viðleitni hefði fyrst og
fremst beinst aö afleiðingum en
ekki orsökum. Hann sagði að þrátt
fyrir góðan vilja þeirra væri þessi
viðleitni tilgangslaus meðan sífellt
væri verið að grafa undan sjávarút-
veginum. Meðan svo væri myndu
þeir stjómmálamenn, sem berðust
fyrir hag landsbyggðarinnar, aldr-
ei vinna nokkra sigra, í hæsta máta
einhverja vamarsigra. Mönnum
yrði að skiljast að sjávarútvegur-
inn gæti ekki þrifist í verðbólgu
eins og hér hefur veriö. Lífsspurs-
mál væri að draga úr umfra-
meyðslu og þenslu í þjóðfélaginu.
-S.dór
Fyrsti fundur hinnar nýkjörnu stjórnar Bandalags starfsmanna rfkis og bæja var haldinn í gær. Þar var Einar
Ólafsson frá Starfsmannafélagi ríkisstofnana kjörinn gjaldkeri bandalagsins en Elín Björg Jónsdóttir úr Þorláks-
höfn ritari. Á fundinum var samþykkt að leita eftir samstarfi við önnur launþegasamtök í landinu um samvinnu
við mótun komandi kjarabaráttu. DV-mynd KAE
Biskupskosningar á næsta ári:
Tveir prestar
gefa kost á sér
Biskupskosningar verða á næsta
ári. Herra Pétur Sigurgeirsson bisk-
up verður sjötugur snemma í júni
næsta ár og mun því láta af embætti
fýrir aldurs sakir. Ekki er víst hvort
biskup situr út árið eins og honum
er heimilt en heimildir DV segja lík-
legt að biskup láti af embætti eftir
prestastefnu síðast í júní og muni til-
kynna þá fyrirætlun í lok kirkju-
þings á morgun. í samtah við DV í
gær vildi biskup ekki tjá sig um
hvenær á næsta ári hann léti af emb-
ætti en það skýrðist fljótlega.
Hvað eftirmann biskups varðar
hafa séra Ólafur Skúlason dómpró-
fastur og séra Heimir Steinsson,
prestur á Þingvöllum, lýst því yfir
við DV að þeir gefi kost á sér í bisk-
upskosningum. Formlega séð er eng-
inn í framboði þar sem allir guð-
fræðingar og prestar em kjörgengir,
en að sögn þeirra Ólafs og Heimis
hefur fjöldi fólks hvatt þá til aö gefa
kost á sér eða - „farið fram á leyfi
til að nefna nafn mitt,“ eins og Heim-
ir Steinsson orðaði það. Ólafur
Skúlason sagði að ekki þýddi að loka
augunum fyrir því að þetta væru
kosningar með öllu því sem kosning-
um fylgdi þó að ekki væru um eigin-
leg framboð í hefðbundnum skilningi
að ræða.
í síðasta biskupskjöri, 1980, var
kosið á milli Ólafs Skúlasonar og
Péturs Sigurgeirssonar þar sem Pét-
ur sigraði með eins atkvæðis mun.
Þá var séra Arngrímur Jónsson,
prestur í Háteigssókn, einnig í fram-
boði en dró sig til baka. Hann mun
ekki gefa kost á sér á næsta ári. DV
hefur frétt af þriðja aðila sem gefa
mun kost á sér í biskupskosningum
en er ekki kunnugt um nafn hans.
-hlh
Landsbankinn hefur misst
þolinniæðina gagnvart Olís
Landsbanki Jslands hefur misst
þolinmæðina gagnvart Olís og að-
aleiganda þess, Óla Kr. Sigurðs-
syni. Bankinn hefur gefiö Óla
ákveðinn frest til að grípa til nauö-
synlegra aðgerða til aö treysta fjár-
hag fyrirtækisins. Þórður Gunn-
arsson, stjórnarformaöur Olís, er
hættur og Síraon Gunnarsson,
löggiltur endurskoöandi fyrirtæk-
isins, er einnig hættur. Skuldir Olís
viö Landsbankann nema mörg
hundmð miUjónum króna og eru
tugir milljóna í vanskilum.
„Yður er hér með tilkynnt aö
bankinn mun ekki veita yður nýjar
bankatryggingar né hafa milli-
göngu um útvegun erlendra lána
vegna innfiutnings á fljótandi elds-
neyti, nema gerðar verði ráðstafan-
ir sem treysta fjárliag og stjórnun
félagstns þannig að staða þess geti
orðið viðunandi,“ segja þeir Sverr-
ir Hermannsson og Helgi Bergs,
Landsbankastjórar í bréfi sem stfl-
að er á Olís þann 21. október.
„Ég ræði ekki um einstaka við-
skiptaaöila bankans/' sagði Sverrir
Hermannsson, bankastjóri Lands-
bankans, í morgun um viðskipti
bankans við Olís.
„Ég hef ekki séð þetta bréf frá
bankastjórum Landsbankans.
Þetta bréf var ekki sent til mín
heldur Þórðar Gunnarssonar, fyrr-
um stjómarformanns,“ sagði Óli
Kr. Sigurðsson í morgun.
Enginn stjómarformaður er nú
hjá OLis. -JGH
Gámaútflutningurmn:
Þetta er auðvitað
skýlaust lagabrot
- segir Stefán Gurmlaugsson hjá utanríkisráöuneytinu
„Við emm að rannsaka þetta mál
og munum leita leiða til að reyna að
koma í veg fyrir að svona lagaö end-
urtaki sig. Þetta er auðvitað skýlaust
brot á lögum um útflutning sem get-
ur varðaö sektum, varðhaldi, fang-
elsi og sviptingu atvinnuleyfis, sam-
kvæmt laganna hljóðan," sagði Stef-
án Gunnlaugsson í utanríkisráöu-
neytinu um það sem DV skýrði frá í
gær að um 40 gámar af fiski vora
fluttir út um helgina án leyfis.
Svo virðist sem eina leiðin til að
koma í veg fyrir atburð eins og þenn-
an sé að fara um borð í skipin, sem
safna gámunum saman, í lokahöfn
og telja gámana.
Eins og skýrt var frá í DV í gær
orsakaði þessi aukaútflutningur það
að offramboð verður á fiskmörkuð-
um á Humbersvæöinu þessa vikuna
með þeim afleiðingum að um umtals-
verða verðlækkun á fiskinum verður
aö ræða. -S.dór
Dagens Nyheter:
Skuggi hrafnsins þunglamalegur
Enn bæfisl við aðstoðarmennina
Einar Baldvin SteönssonJOV, Helsingborg
Svíum virðist ekki falla nýjasta
mynd Hrafns Gunnlaugssonar, í
skugga hrafnsins, eins vel í geð og
Hrafninn flýgur, ef marka má um-
sögn Dagens Nyheter daginn eftir
frumsýningu myndarinnar hér í Sví-
þjóð. Myndin er sögð byija vel, en
síðan sé söguþráðurinn flókinn og
með hinum miklu fjölskylduátökum
og íslensku valkyijum sé Hrafn
Gunnlaugsson að færast of mikið í
fang.
Myndin sé þunglamaleg og ekki í
sömu tengslum við íslenska náttúra
og Hrafninn flýgur. Ef til vill megi
skýra þetta með því að sögulegir og
sálfræðilegir þættir myndarinnar
falli ekki að „villta vesturs-stflnum"
sem tókst svo vel í Hrafninn flýgur.
í Skugga hrafnsins séu þó góðir
sprettir og það sé helst í ofbeldisat-
riðunum sem Hrafni Gunnlaugssyni
tekst vel upp, í ástaratriðunum sé
hann síðri. Að lokum gagnrýna þeir
Hrafn fyrir það að í stað þess að fjalla
um tilfinningaátök söguhetjanna
virðist hann einbeita sér helst til
mikið að því að reyna að komast á
bekk með bestu spennuleikstjórum
heimsins og að það sé reyndar orðin
vafasöm stefna skandinavískra leik-
stjóra.
Atlantshafebandalagiö:
Aðatframkvæmda-
sflóri kemur í dag
Aöalframkvæmdastjóri Atl-
antshafsbandalagsins, Manfred
Wömer, er væntanlegur í opin-
bera hfiimsókn til íslands í dag.
Kemur hann hingað í boði Jóns
Baldvins Hannibalssonar utan-
ríkisráðherra.
Auk þess aö eiga viðræöur við
utanrlkisráðherra mun aðal-
framkvæmdastjórinn ganga á
ftmd forseta íslands og hitta for-
sætisráðherra að máli. Jafnftamt
mun aðalframkvæmdastjórinn
heimsækja Keflavíkurflugvöll.
-JSS
Jón Sveinsson héraðsdómslög-
maður hefur verið ráðinn aðstoöar-
maður Steingríms Hermannssonar
forsætisráðherra. Helga Jónsdóttir,
sem verið hefur aðstoðarmaður
Steingríms undanfarin fimm ár, mun
verða skipuð deildarstjóri í utanrík-
isráðuneytinu.
Fyrstu umræðu um bráðabirgða-
lögin lauk í gær eftir að fresta hafði
orðið umræðu þrisvar sinnum. Það
vora reyndar bráðabirgðalög tveggja
ríkisstjóma sem send vora í nefnd
því Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra mælti fyrir bráða-
birgðalögum þeim sem ríkisstjóm
Jón Sveinsson er varaþingmaður
Framsóknar á Vesturlandi og hefur
setið í bæjarstjóm og bæjarráði
Akraness fyrir flokkinn. Jón hefur
rekiö lögfræðistofu á Akranesi síðan
Þorsteins Pálssonar setti samkvæmt
venju. Ekki er ljóst hvað máhð verð-
ur lengi í fjárhags- og viðskiptanefnd
efri deildar en ætlunin mun vera að
taka málið fyrir þegar í þessari viku.
Bendir því margt tfl þess að lögin
komi til neðri defldar 1 lok nóvember.
-SMJ
1980 en var áður dómarafulltrúi við
bæjarfógetaembættið þar.
-gse
Bráðabirgðalögin komin í nefnd