Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1988, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 1988.
9
Utlönd
Stóru flokkamir í ísrael fengu
hvorugur hreinan meirihluta 1 kosn-
ingunum sem fram fóru í landinu í
gær. Flokkar heittrúarmanna
styrktu stöðu sína og nú verður vart
híegt að mynda stjóm í landinú án
þátttöku þeirra. Endanleg úrslit í
kosningunum munu þó tæpast liggja
fyrir fyrr en undir helgi.
Yitzhak Shamir forsætisráðherra,
sem er leiðtogi Lákud bandalagsins,
og Shimon Peres utanríkisráðherra,
sem er leiðtogi Verkamannaflokks-
ins, sögðu báðir í gær að mjög ólík-
legt væri aö þeir héldu áfram stjóm-
arsamstarfi þessara tveggja flokka,
sem hefur staðið frá því eftir kosn-
ingamar 1984.
Shamir boðar hægri stjórn
Shamir sagði að Likud bandalagið
myndi hefla tilraun til myndunar
nýrrar stjómar.
Shamir sagði að niðurstöður kosn-
inganna bentu til þess að möguleiki
væri á myndun ríkissflómar undir
forystu Likud bandalagsins með
þátttöku allra flokka sem ekki em á
vinstri væng sflómmálanna.
Trúarlegir flokkar sem hneigjast
til hægri og fengu áflán sæti af eitt-
hundrað og tuttugu em í lykilað-
stöðu á þingi eftir þessar kosningar
vegna þess að hvorugur stóm flokk-
anna fékk meirihluta.
Peres, sem er sextíu og fimm ára,
neitaði í gær að viðurkenna ósigur
og sagðist myndu reyna að fá flokka
heittrúarmanna til samstarfs við
Verkamannaflokkinn. Peres sagðist
ekki telja að allir trúarlegu flokkam-
ir væm með öfgafulla stefnu.
Þrátt fyrir yfirlýsingar Shamirs
um að Likud bandalagiö geti myndaö
sflóm benda skoðanakannanir sem
teknar vom fyrir utan kjörstaði í gær
til þess að hvorugur stóm flokkanna
muni eiga auðvelt með sflómar-
myndun. Skoðanakannanir stað-
festu að það verða heittrúarflokkam-
ir sem verða í lykilaðstöðu varðandi
stjómarmyndun.
Samkvæmt skoðanakönnun ísra-
elska sjónvarpsins í gærkvöldi leit
út fyrir að Verkamannaflokkur Per-
esar hlyti þijátíu og átta þingsæti en
Ldkud bandalagið þrjátíu og níu. Af-
gangurinn myndi síðan deilast milli
tólf smáflokka.
Vonbrigöi með úrslit
Bæði Shamir og Peres lýstu í gær
Yitzhak Shamir, forsætisráðherra Israels og leiðtogi Likud bandalagsins, virðist hafa komið með pálmann i höndun-
um út úr kosningunum i gær þótt ekki ynni flokkur hans mikinn sigur. Simamynd Reuter
vonbrigðum sínum með niðurstöður
kosninganna og neituðu að spá um
”2»
Það eru heittrúarmenn sem verða i lykilaðstöðu i stjórnarmyndun. Hér
sést einn þeirra greiða atkvæði i Jerúsalem i gær. Símamynd Reuter
hver myndaði næstu ríkissfióm.
Shamir var þó borubrattari en Peres
og sagðist myndu geta myndaö sflóm
með hægri flokkum í landinu.
Moshe Arens, kosningasflóri Likud
bandalagsins, sagði að Likud banda-
lagiö hefði styrkst ipjög í þessum
kosningum. Eftir þessar kosningar
væri óhugsandi að trúarflokkamir í
landinu fæm í stjómarsamstarf með
Verkamannaflokknum.
Samkvæmt skoðanakönnunum fá
Likud og aðrir hægri flokkar flömtíu
og sex þingsæti en Verkamanna-
flokkurinn og bandaflokkar hans á
vinstri vængnum fá flörutíu og átta
sæti. Líklegast er tahö að það verði
Likud sem fái stuðning trúarflokk-
anna.
Harðlínumenn hagnast
Niðurstöður þessara kosninga
virðast gefa harðlínumönnum í ísra-
el byr undir báða vængi og færa
sfiórnmálaumræðu í landinu meira
inn á svið þjóðemishyggju. Hugsan-
legt er að þetta geti orðið til þess að
kastist í kekki með ísrael og Banda-
ríkjunum sem era helsta bandalags-
ríki ísraels og sér ísrael að auki fyrir
þremur milljörðum bandaríkjadoll-
ara í aðstoð á hveiju ári.
Hægri sflóm, sem reiðir sig á
stuðning trúarlegra flokka, gæti
einnig eyðilagt fyrir tilraunum Ge-
orge Shultz, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, til að koma á al-
þjóðlegri friðarráðsteöiu um frið í
miðausturlöndum.
Heittrúaðir kjósendur em hlynntir
þeirri stefnu Lákud bandalagsins aö
ekki komi til greina að ísrael láti af
yfirráðum sínum yfir vesturbakkan-
um og Gaza svæðinu. Þar búa um
sauflán hundrað þúsund Palestínu-
menn. Fyrir ellefu mánuöum bratust
þar út miklar óeirðir í mótmæla-
skyni við yfirráö ísraela og standa
þær óeirðir enn yfir.
Stjórnarþátttaka trúarflokk-
anna veröur dýr
Trúarlegu flokkamir hafa lýst því
yfir að ef til sflórnarþátttöku þeirra
á að koma verði þeir að fá yfirráð í
ráðuneytum sem geti fylgt því eftir
að almenningur virði gyðingatrú og
einnig verði þeir að sflóma þeim
peningum sem fari til skóla þeirra
og trúarstofliana.
Samkvæmt ísraelskum lögum
verður Chaim Herzog, forseti ísraels,
að fela þeim flokksformanni sem
hefur mestan þingstyrk sflómar-
myndun.
Shamir sagði í gær að hann byggist
við að verða forsætisráðherra í
hægri sflórn sem muni leita eftir friði
við arabíska nágranna ísraels en
halda eftir vesturbakkanum og bibl-
íulöndum Júdeu og Samaríu.
Hann minntist ekki á uppreisn pal-
estínuaraba á herteknu svæðunum
en Likud bandalagið hefur heitið því
að keyra þá uppreisn niöur.
Framtið Peresar í hættu
Margir sflórnmálaskýrendur töldu
í gær að það yrði ógerlegt fyrir Peres
að koma í veg fyrir sflómarsamstarf
Likud og trúarflokkanna miðað við
þær niðurstöður kosninganna sem
virtust líklegastar í gærkvöldi.
Þetta er í flórða sinn í röð sem Per-
es mistekst að leiða Verkamanna-
flokkinn til sigurs í þingkosningum.
Þykir nú póhtísk framtíð hans vera
í mikilli hættu.
Kosningaþátttaka var með mesta
móti og hefur ekki verið meiri hlut-
fahslega síðan 1949 þegar ísraelar
gengu í fyrsta sinn að kjörborði. Nú
kusu um 2,3 mihjónir manna eða 79%
atkvæðabærra manna.
ísraelski flugherinn gerði í gær
loftárásir á Líbanon í hefndarskyni
fyrir morðið á ungri móður og þrem-
ur bömum hennar sem létust þegar
eldsprengju var varpað inn í fólks-
flutningabifreið sem þau vora í.
Reuter
Shimon Peres, utanrikisráðherra og leiðtoga Verkamannaflokksins, mi-
stókst í fjórða skiptið i röð að leiöa flokk sinn til sigurs i kosningum. Fram-
tið hans er nú talin i hættu. Simamynd Reuter
Shamir með pálmann
í höndunum