Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1988, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1988, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 1988. Utlönd Bhutto reiðubúin Benazir Bhutto, leiðtogi stjórnarandstöðunnar f Pakistan. Simamynd Reuter Benazir Bhutto, leiötogi stjómarandstööunnar í Pakistan, sagöi í gær að ekkert sé því til fyrirstöðu að hún taki viö völdum ef Qokkur hennar vinnur kosningamar í þessum mánuöi. Bhutto greindi einnig frá því í gær aö hún óttaðist kosningasvindl. Talsmaöur stjómarinnar vísar á bug áætlunum um kosningasvindl. Hins vegar var þaö gefiö í skyn í gær aö fiokkur Bhutto, Pakistanski þjóð- arfiokkurinn, hafi fengið erlent fé í kosningasjóði sína. Þjóðarflokkurinn berst gegn níu flokka bandalagi stuðningsmanna Zia, hins látna forseta. Götheinstitut í Kína Iflalli Jóm Sveinaam, DV, Siegwu Ráðamenn í V-Þýskalandi og Kína hafa nú fullan hug á því að auka sam- skipti ríkjanna á sem breiöustum gmndvelli. Utanrödsráöherrar land- anna, Hans Dietrich Genscher og Qian Qichen, undirrituðu sáttmála þar aö lútandi í Peking á mánudag. Gerðir vora samningar um að þýska símafyrirtækið Siemens aðstoöaði Kínveija við að koma upp sjálfvirku og tölvustýröu símakerfi. Einnig voru undirritaðir samningar um samvinnu á tæknisviði í gær opnaði Genscher Götheinstitut i höfúöstaö Kína, Peking, og ætla nú Kínvetjar að fara að læra þýsku. Kinverskum stúdentum ætti þvi að vera betur kleift en áður að stunda háskólanám í V-Þýskalandi Þetta er fyrsta erlendamenntastofnunin sem hefur starfsemi sína í alþýðulýðveld- inu. Er þetta tahð bera vott um hið mikla vinarþel sem náöst hefur á milli þessara tveggja voidugu þjóöa í vestri og austri. Persaflóavidræður Viðræöur um frið á Persaflóasvæðinu eru nú hafnar á ný i stöðvum Sameinuðu þjóðanna i Genf í Sviss. Simamynd Routor Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Perez de Cuellar, segir það markmiö sitt aö reyna aö koma á einhvers konar málamiölun í friðarvið- ræðum íraka og írana í þessari viku. Viðræöumar hófust á ný í gær eft- ir nokkurt hlé og var þá gerö grein fyrir afstöðu hvors aöila um sig. Framkvæmdastjórinn kvaðst vera ánægður meö að deiluaöilar skyldu hafa saraþykkt í gær að framvegis yrðu allar viöræður beinar. Natoflugskeyti grandaði farþegavél ítöisk farþegaflugyél, sem fórst við dularfullar kringumstæöur undan Sikiley áriö 1980, var skotin niður af ílugskejdi af misgáningi. Flugskeytið tilheyrði Natoþjóö, sennilega ítaliu. Þetta kom fram í ítalska sjónvarpinu í gær. Áttatíu og einn maöur fórst þegar vélin, sem var af gerðinni DC-9, fórst. í sjónvarpinu sagði aö orr- ustufiugvél heföi viUst af leið og að fiugskeyti, sem skotiö hefði ver- iö á æfingamark, heföi hitt far- þegavélina í staðinn. Flugvélar- brakið var dregið upp úr sjónum í ítaiska farþegavélln fórst undan sumar og sent í rannsókn til Bret- Sikiiey. lands og Italiu. Bush hvetur til leíðtogafundar Steinunn Böðvarsdóttir, DV, Washington; George Bush, forsetaframbjóðandi repúblikana í Bandaríkjunum, kvaðst í gær myndu hvetja til leiö- togafundar stórveldanna hið fyrsta ynni hann sigur í forsetakosningun- um sem haldnar verða næstkomandi þriðjudag. í ræðu, sem ætlað var að útlista stefnu hans í utanríkismálum í gær, lagði Bush til áð leiðtogar Bandaríkjanna og Sovétríkjanna kæmu saman án allra skilyrða eins fljótt og auðið er að loknum kosning- um. Bush kvað tilganginn með slík- um fundi að ígrunda stöðu stórveld- anna með frekari afvopnun í huga. í ræðunni fjaliaði Bush í mjög gróf- um dráttum um stefnu hugsanlegrar ríkisstjórnar sinnar í utanríkismál- um. Tillagan um leiðtogafund stór- veldanna gefur til kynna að Bush hafi mildast ögn í afstöðu sinni til Sovétríkjanna. Að loknum leiðtoga- fundi Reagans Bandaríkjaforseta og Gorbatsjovs Sovétleiðtoga í Moskvu hvatti Bush til varfæmi í samskipt- unum við Sovétríkin. í ræðunni kvaðst Bush myndu verða athafnamikill á sviði utanrík- ismála næði hann kosningu en gaf áheyrendum ekki nánari útskýring- ar. Hann notaði tækifærið og réðst að Michael Dukakis, forsetafram- bjóðanda demókrata, og kvað stefnu þeirra í öllum mikilvægum málum ósambærilega. Niðurstöður tveggja skoðanakann- ana, sem birtar voru í morgun, sýna að Bush heldur enn töluverðu for- skoti á Dukakis. í skoöanakönnun CBS sjónvarpsstöðvarinnar hlaut Bush fylgi 53 prósent aðspurðra gegn 41 prósenti Dukakis. Niðurstöður skoðanakönnunar dagblaðsins Was- hington Post og ABC sjónvarpsstöðv- arinnar sýna svipað forskot Bush, 55 prósent gegn 42. í könnun dagblaðs- ins Washington Post kemur fram að 60 prósent kjósenda á aldrinum 18 til 34 ára eru hlynntari Bush. Fjórðungur kjósenda virðist ekki enn ákveðinn í afstöðu sinni til fram- bjóðendanna. í könnun CBS sjón- varpsstöðvarinnar kváðust alls 25 prósent enn geta breytt um skoðun, jafnvel þó viðkomandi væru nú hlynntari öðrum hvorum frambjóð- andanum. Steinuim Böðvaisdóttir, DV, Washington; Michael Dukakis, forsetaframbjóð- andi demókrata í Bandaríkjunum, valdi Lloyd Bentsen, öldungadeildar- þingmann frá Texas, sem varafor- setaefni sitt með aðeins eitt í huga. Hann vonaðist til að Bentsen myndi tryggja þeim sigur í fylkinu. Texas er eitt af mikilvægustu fylkj- um landsins í kosningabaráttunni. Það hefur á að skipa 29 atkvæðum af 270 sem þarf til sigurs á þriðjudag- inn kemur. Enginn forsetaframbjóð- andi demókrata hefur unnið í kosn- ingum án þess að sigra í Texas. í for- setakosningunum áriö 1980 hlaut Ronald Reagan, núverandi forseti, 55,3 prósent atkvæða og 63,6 prósent árið 1984. Hvort Bentsen takist ætlunarverk sitt er umdeilanlegt. Hann er einnig í framboði í þingkosningunum sem fram fara samhliða forsetakosning- unum. Þetta er í fjórða sinn sem Bentsen býður sig fram til öldunga- deildarinnar. Hann vann öruggan sigur í síðustu þingkosningum með nær því 60 prósent atkvæða fylkisins. En Bentsen er ekki eini Texas- búinn í framboði. George Bush, for- setaframbjóðandi repúblikana, er einnig frá Texas og það gerir ætlun- arverk Bentsens þeim mun erfiðara. Texasbúar telja aö þeir geti slegiö tvær flugur í einu höggi á þriðjudag, kjósa Bentsen á þing og Bush í Hvíta húsið. Dukakis á erfitt uppdráttar í Texas og heldur Bush 7 prósent forskoti í fylkinu samkvæmt niðurstöðum skoðanakannana. Stefnumál Dukak- is eru aö tvennu leyti á skjön við Varaforsetaefni Dukakis, Lloyd Bentsen, með sögulega forsíðu á lofti. Bents- en spáði í gær sigri Dukakis eins og þegar Truman sigraði óvænt Dewey fyrir 40 árum. Símamynd Reuter skoðanakannanir flestra Texasbúa. Dukakis er andvígur dauðarefsing- unni, íbúar fylkisins eru fylgjandi henni. Og Dukakis er fylgjandi tak- mörkunum á byssueign almennings sem Texasbúar eru andvígir. í uþphafi kosningabaráttunnar hamraði Bush á því að hann skildi skoðanir Texasbúa í þessum málum og Dukakis lét það fram hjá sér fara. Hann var seinn til gagnsóknar í fylk- inu og nú virðist sem hann eigi á hættu aö tapa atkvæðum þess. Aliar vonir demókrata í Texas eru því bundnar við Bentsen og vinsældir hans meðal kjósenda þar. Vonir Dukakis bundnar við Bentsen

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.