Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1988, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1988, Síða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 1988. Iþróttir Þrír „Júggar“ til Þórsara? Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Knattspyrnudeild Þórs á Akureyri hefur ráðið Júgóslavann Milun Duricic til að þjálfa 1. deildar lið fé- lagsins næsta sumar. Samningar hafa verið undirritaðir og er Duricic væntanlegur til Akureyrar í febrúar, en fram að því munu leikmenn æfa eftir áætlun frá honum. „Það er ekki frágengið, en þaö hef- ur verið rætt,“ sagði Sigurður Arn- órsson, formaður knattspyrnudeild- ar Þórs, er DV spurði hann hvort júgóslavneskur leikmaður mýndi fylgja honum til Akureyrar en jafn- vel hefur heyrst að tveir slíkir gætu komið með Duricic til Akureyrar. „Við höfum ekki rætt við okkar leikmenn, vildum geyma það þar til gengið hefði verið frá þjálfaramálun- um. Hins vegar veit ég ekki annaö en að allir leikmenn okkar verði áfram hjá félaginu," sagði Sigurður. HM-C kvenna: ísland í 5. sæli íslenska kvennalandsliðið í hand- knattleik hafnaði í 5. sæti í C-heims- meistarakeppninni sem fram fór í Frakklandi en henni lauk í gær. íslensku stúlkurnar glímdu við svissneskar stöUur sínar um 5. sætið og fóru leikar 19-17 eftir að staðan hafði verði jöfn eftir hefðbundinn leiktíma, 16-16. íslenska Uöið sótti á brattann fram- an af leiknum og var staðan 6-10 í hléi. Blaðið snerist hins vegar við í seinni hálfleiknum og kom jöfnunar- mark okkar stúlkna á síöustu sek- úndunum. íslenska hðið hafði síðan öll ráð á vellinum í framlenging- unni. Bestar í liði íslands voru mark- verðirnir tveir en mörkin skiptust þannig: Guðríður Guðjónsdóttir 6, Margrét Theódórsdóttir 6/4, Kristín Pétursdóttir 2, Rut Baldursdóttir 2, Erna Lúðvíksdóttir 1, Erla Rafns- dóttir 1 ög Arna Steinssen 1. -JÖG Platini tekur við franska liðinu Kristján Bemburg, DV, Belgiu: Michel Platini hefur verið ráðinn þjálfari knattspyrnulandsliðs Frakk- lands í stað Henri Michele. Knatt- spymusambandið franska gaf ekki upp í hversu langan tíma honum er ætlað að halda um stjómvölinn, en verkefnið er erfitt. Ein aðalástæðan fyrir þvi að fransk- ir landsliðsmenn sýna ekki sitt besta eru of há laun en leikmenn verða hreinlega latir þegar þeir leika fyrir landsliðið. Það hefur enginn þjálfari náð að telja kraft og baráttu í þessa landsliösmenn en þeir telja sig flestir kónga. Þeir sem þiggja lægstu launin eru með 7 milljómr í árstekjur sem þykja engir vasapeningar. „Valur sterklega • Atli Eðvaldsson - áfram með Val næsta sumar. • Sævar Jónsson - einnig áfram með Val næsta tímabil. • Hilmar Sighvatsson, Val, ætlar ekki i Fylki. • Bjami Sfgurðsson landsliðsmarkvörður, og segir nú að Valur komi sterkast til gre segir Bjami Sigurösson landsliðsmarkvörður. H „Eg hef ekki alveg gert upp hug minn ennþá í þessu máli en ég get þó sagt aö Valur er sterklega inni í myndinni. Þetta mun koma í ljós á næstu dögum,“ sagði Bjarni Sigurðsson, landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, í samtali við DV í gærkvöldi. Mikl- ar hræringar virðast vera framundan í knattspyrnunni hér innanlands á næstunni. Gróa á Leiti hefur þó gert víðreist sem áður og ekki eiga allar „kjaftasögurnar“ við rök að styðjast. Heyrst hefur að landsliðsmaöurinn með Þór frá Akureyri, hyggist skipta „Eins og staöan er núna eru mjög HaUdór Áskelsson, sem leikiö hefur um félag. Hann sagði í gærkvöldi: miklar likur á þvi aö ég skipti um félag og breyti til eftir sjö heil tíma- bil meö Þór. Það er langlíklegast aö ég fari í Val eða Fram.“ • Annar Akureyringurhefurjafn- vel veriö að hugsa sér til hreyfings en það er landsliðsmaðurinn Þor- valdur Örlygsson í KA. Þar munu Fram og Valur einnig koma sterk- lega til greina. Þorvaldur gekkst und- Handboltaveislan hefst með f imm leikjum í kvöld - Þá leika ÍBV - Grótta, Fram - KR, Valur - UBK, KA - Víkingur og Stjaman - FH íslandsmótið í handknattleik karla hefst í kvöld og verður leikin heil umferð. Ætla má að mótið verði spennandi og leikmenn í góðu formi þótt liðin eigi mörg hver eftir að mótast í kjölfar mikilla breytinga. Þær veigamestu eru liðsstyrkur sá sem Valsmönnum og KR-ingum hef- ur fallið í skaut. Þá ber að líta á brottfór Sigurðar Gunnarssonar úr Víkingi en hann er farinn út í Eyjar. Mun hann þjálfa nýhða Vestmannaeyinga og leika með þeim í fyrstu deildinni. Lið ný- hðanna mætast einmitt í fyrstu um- ferðinn en Grótta, sem vann sér einn- ig rétt til að leika í efstu deild á síð- asta vori, sækir Eyjamenn heim og hefst viðureignin klukkan 20. „Mér hst sæmilega á íslandsmótið en þekki hin höin vitanlega afskap- lega lítið eða veit í raun ekki hvernig við stöndum gagnvart þeim. Það er gríðarlegur munur á fyrstu og ann- arri deild en við gerum þó allt til að halda okkur uppi. Það er ljóst að við þurfum að berjast fyrir sæti okkar og þá reynir á samstöðuna í liðinu, fólkið í bænum og heimavöllinn sem er okkar meginstyrkur," sagði Sig- urður Gunnarsson í samtali við DV í gær. „Við höfum haft lítinn tíma th und- irbúnings og ég held að við vöxum af styrk er hður á mótið. Það eru náttúrlega þessi stóru lið, Valur, FH og KR, sem hafa betri einstaklinga en við ætlum að vinna saman enda teflum við ekki fram neinum stjörn- um,“ sagði Sigurður. „Eg vil engu spá um sigurvegara í íslandsmótinu. Það eru nokkur sterk lið í deildinni en viö eigum eftir að sjá hvernig þau ná saman og mótast. Ég held að þetta verði mjög jafnt mót og lokastaðan gæti komið mörgum á óvart. Ég neita því þó ekki að Valur og FH standa best að vígi en þessi lið hafa náð að mótast án mikilla breyt- inga ár frá ári,“ sagði Sigurður. • „Þetta íslandsmót verður tví- mælalaust mjög erfitt fyrir okkur, nánast upp á líf og dauða. ÖU hðin í dehdinni stefna að því að vinna ný- liðana. Ef Grótta nær að halda sér í 1. deild eftir þennan vetur er ég þess fullviss að liöið nær að festa sig í sessi í deildinni," sagði hins vegar Árni Indriðason, þjálfari hinna ný- liðanna, Gróttu af Seltjarnanesi. „Það»er enginn vafl á að Valsmenn verða í toppbaráttunni og það kæmi mér ekki á óvart að þeir yröu ís- landsmeistarar. Síðan hef trú á að FH, KR, Stjarnan og KA muni berj- ast um næstu sæti. Spennan á eftir að verða mun meiri neðar í deildinni og fleiri en tvö lið eiga eftir að drag- ast inn í baráttuna,“ sagði Árni enn- fremur. „Fyrsti leikurinn í kvöld í deildinni gegn Eyjamönnum verður mjög erfiður. Reynsla mín að leika í Eyjum er sú að aðkomulið geta ekki bókað þar sigur,“ sagði Árni Indriða- son. Aðrir leikir í kvöld eru þeir að ís- landsmeistarar Vals heíja titilvörn- ina að Hlíðarenda klukkan 18.15, fá þá Breiðabhk í heimsókn. Stjarnan ghmir viö FH í Digranesi, Víkingar halda norður yfir heiðar og etja kappi við KA en þrír síðasttöldu leikirnir hefjast klukkan 20. Klukkan 20.15 eigast síðan við lið Fram og KR. -JÖG/JKS in< Landskeppni í Karate: Konráð vann gull á írlandi Konráð J. Stefánsson vann gull- verðlaun í opnum flokki í lands- keppni írlands, Skotlands og Is- lands í karate sem fram fór á dög- unum. Konráö vann allar þrjár við- ureignir sínar og náði mjög góðum árangri. AJis kepptu níu karate- menn í opna öokknum. Landskeppnin var tvískipt. Ann- ars vegar var keppt í liðakeppni, og var hver sveit skipuð flnun kar- atemönnum. Hins vegar var keppt í opnum flokki og þar kepptu þrír frá hverri þjóð. í hðakeppninni sigraði íslenska sveitin þá skosku með þremur vinningum gegn einum en tapaði hins vegar fyrir irsku sveitini 2-3 sem sigraði á mótinu.í fréttatil- kynningu frá Karatesambandi ís- lands segir að sveitir írlands og Skotlands séu skipaðar keppend- um á heimsmælikvaröa og í hðun- um meðal annars menn sem kom- ist hafa á verðiaunapall á heims- meistaramótum. íslenska hðið hafí staðiö sig míög vel á mótinu. -SK • Konráð J. Stetánsson með gull- verðlaunin sem hann vann f opn- um flokki i landskeppni á írlandi. DV-mynd Brynjar Gauti Úrval körfufa til íslands n - NBA-liö San Antonio Spurs reiöubúið s Svo kann að fara að bandaríska körfuknattleiksliðið San Antonio Spurs, félag Pét- urs Guðmundssonar í bandarísku atvinnu- mannadeildinni, komi til landsins á næsta ári. Er ætlunin, ef af verður, að Spurs mæti annað hvort öðru banda- rísku stórliði ellegar úrvalshði evr- ópskra körfuknattleiksmanna: „Það hafa farið fram viðræður við ráðamehn San Antonio Spurs um hvort hðið er tilbúið að spila einn af sínum forleikjum héma heima á ís- landi fyrir næsta tímabil. Forvígis- menn Spurs sögðu að sá möguleiki væri fyrir hendi og raunar komu þeir með ákveðið tilboð sem við erum að skoða núna. Þeirra hugmynd er að taka annað NBA-hð með til að leika við,“ sagöi Kolbeinn Pálsson, formað- ur Körfuknattleikssambands íslands, í samtali við DV í gær. „Hjá Körfuknattleikssambandinu hef- ur sú hugmynd komið upp að Spurs leiki gegn Evrópuúrvah köfuknatt- leiksmanna. Það sem við sjáum merk- ast við slíkan leik er að þar fengjum við sjónvarpsefni sem selja má um alla Evrópu og víðar. Þetta yrði því geysi-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.