Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1988, Side 4
4
LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1988.
Fréttir_____________________________________
Hugur Alþingis í hvalamálinu engan veginn ljós:
Beðið eftir frum-
kvæði ríkisstjórnar
Þvi hefur verið haldið fram nýverið
að hirgur Alþingis í hvalamálinu
hafi breyst og nú sé meirihluti fyrir
þvi að hætta hvalveiöum. Erfitt er
að sjá hvemig þetta kemur heim og
saman því hvalamáliö er furðu flókið
og hugur alþingismanna engan veg-
inn ljós. Þetta er eitt af þeim málum
sem ekki fer eftir flokkslínum og
svipar að því leyti til bjórmálsins sem
hvað mest hjó á flokkslínur á síðasta
vetri.
Fyrir þingi liggur nú lagafrumvarp
og þingsályktunartillaga sem kveða
á um aö hvalveiöunum skuli hætt.
Þótt þama sé verið að krefja Alþingi
um afstöðu í málinu viröast flestir
þingmanna telja að hvorugt þessara
mála muni hafa áhrif á endanlega
niðurstöðu málsins - í besta falli
kalli það á athygli fjölmiða bæði inn-
an- og utanlands. Málin verði síðan
svæfð í nefnd. Flestir telja að ákvörð-
un í málinu verði að koma frá ríkis-
stjóminni og þá jafnvel í gegnum
utanríkismálanefnd.
Þegar má sjá titring innan vissra
flokka vegna þingmálanna tveggja
og á hann enn eftir að aukast þegar
umræða um tillögu Áma kemur á
dagskrá. Þingflokkamir hafa ekki
tekið sameiginlega afstöðu til hval-
veiða nú á þessuþfngi þannig að það
eitt gefur þingmönnum frjálsar
hendur. Kemur mönnum saman um
að óskynsamlegt sé að binda hendur
þingmanna með samþykktum þing-
flokka enda gerist breytingar hratt í
málinu.
Óvissa eftir
Tengelmannmálið
Þá verður að segjast eins og er að
þingmenn, frekar en aðrir, hafa ekki
fyllilega áttað sig á því hvert stefnir
í málinu. Nokkrum óhug sló á þá
fyrst eftir að Tengelmann-samning-
arnir duttu upp fyrir og mátti þá
greinilega heyra aö fylgi þeirra, sem
vildu endurskoðun vísindaveiðanna,
jókst. Þá sagði meðal annars einn
þingmaður aö engin styddi hvalveið-
amar nema Eiður Guðnason og
nokkrir framsóknarmenn. Eftir að
Aldi fyrirtækið „tók rökum“ varð
andrúmsloftið hins vegar afslapp-
aöra og menn urðu hugrakkari.
Margrét Frímannsdóttir sagði fyrir
stuttu í Þjóðviljanum aö afstaöa
þingmanna hefði breyst í þessu máli
og segir í sömu frétt að viðhorfs-
breyting hafi orðið á Alþingi. Þeir
Hugur þingmanna til óframhaldandi hvalveiða er óljós. Afstaða manna fer
ekki eftlr flokkslínum.
alþingismenn sem DV hefur talað við
viíja ekki taka svo djúpt í árinni.
Eiður Guönason sagði t.d. að það
væri rangt að þaö hefði orðið einhver
viöhorfsbreyting í afstöðu þing-
manna til þessa máls.
Óvissa í Borgaraflokknum
Innan Borgarflokksins er engan
veginn samstaöa um lagafrumvarp
Hreggviðs Jónssonar og Aðalheiðar
Bjarnfreðsdóttur. Þingmaður Vest-
urlands, Ingi Bjöm Albertsson, seg-
ist hvorki styðja þetta mál né tillögu
Árna. Þess ber þó að geta að þing-
menn Vesturlands njóta sérstöðu í
þessu máli vegna hv£ústöðvarinnar í
Hvalfirði.
Afstaða formannsins, Alberts Guð-
mundssonar, hefur ávallt verið á þá
leið að það beri að veiða hval. Vegna
drottnunarstöðu Alberts innan
flokksins hefur þaö að sjálfsögðu
mikiö vægi. Varamaður Alberts, Ás-
geir Hannes Eiríksson, situr nú á
þingi og hefur sagst styðja frumvarp
samflokksmanna sinna. Júlíus Sól-
nes og Óli Þ. Guðbjartsson munu
vera fylgjandi áframhaldandi veið-
um.
SJÓNVARPIÐ
INNLEND DAG-
SKRÁRDEILD ÓSKAR
EFTIR TILBOÐUM í GERÐ KV/KMYNDAR
ÆTLAÐA YNGSTUÁHORFENDUM. MYND/N ER HLUTI
AF SAMNORRÆNUM MYNDAFLOKKL ÞAR SEM HVER
KVIKMYND ER SJÁLFSTÆTT VERK OG VERÐUR SÝND Á
ÖLLUM NORÐURL ÖNDUNUM. LENGD MYNDARINNAR ÞARFAÐ
VERA UM 20 MÍNÚTUR. í ÚTBOÐ/NU FEÍST ENDANLEGUR
KOSTNAÐUR V/Ð GERÐ MYNDAR/NNAR ÁSAMT
HANDR/T1SEM VERKTAK! VELUR SJÁLFUR.
T/LBOÐUM ÞARFAÐ SK/LA T/L SJÓNVARPS/NS
FYR/R 15. DESEMBER1988. KVIKMYNDIN AFHEND/ST
FULIBÚIN E/G/ SÍEIAR EN1. DESEMBER 1989.
NÁNAR/ UPPLÝSINGAR VEITIR DAG-
SKRÁRFULL TRÚ/ BARNAEFN/S.
S/GRÍÐUR RAGNA SIGURDARDÓTTIR
SJÓNVARP/NU LAUGA VEG1176
106 REYKJAVÍK
SlM! 38800. Jf
RÍKISÚTVARPIÐ
Eiður og Arni takast á
Innan Alþýðuflokksins takast á
þeir Eiður Guönason (annar Vestur-
landsþinpnaöur) og Arni Gunnars-
son. Ámi hefur lagt fram þingsálykt-
unartillögu um endurskoðun hval-
veiðistefnu íslendinga. í tillögunni
er lagt til að rikisstjómin láti stöðva
visindaveiöarnar um þriggja ára
skeið. Hefur Eiður sagt að tillaga
Árna væri ein af þeim tillögum sem
aldrei hefðu átt að vera fluttar.
Eiður hefur reyndar sýnt mikla
hörku í þessu máli og á flokksstjórn-
arfundi Alþýðuflokksins um síðustu
helgi reyndi hann að fá samþykkta
tillögu um stuðning við hvalveiðar
sem hefði verið áfall fyrir Árna. Nið-
urstaðan varð sú að tiUagan var
milduð en í henni má þó sjá ákvæði
sem telja má sigur fyrir Eið eins og:
y... rannsóknir á lífríki sjávar við
Island era á forræði íslendinga
sjálfra í samræmi við alþjóölegar
samþykktir."
Yfirlýsingin tekur aðallega á af-
skiptum Bandaríkjamanna sem vom
þá aðalmáUð. Var þar að sjálfsögðu
lýst yflr stuðningi við viðbrögð Jóns
Baldvins Hannibalssonar.
Aðrir í flokknum hafa ekki eins
ákveðið lýst hug sínum en Sighvatur
Björgvinsson hefur þó í umræðu um
frumvarp Hreggviðs og Aðalheiðar
sagst styðja sjávarútvegsráðherra í
máUnu. Um leið sagðist hann vera
aifarið á móti frumvarpinu. Jónarnir
og Jóhanna munu heldur vera fylgj-
andi veiðum en það er þó engin frá-
gangssök fyrir þau þó að þær verði
lagðar til hUðar um tíma. Þau, ásamt
Kjartani Jóhannssyni og Karli Stein-
ari Guðnasyni, munu því fylgja
þeirri stefnu að bíða og sjá til.
Hvalskurðarmenn í
Sjálfstæðisflokknum
Sjálfstæðisflokkurinn er kloflnn í
þessu máU sem og mörgum öðrum.
Innan flokksins eru menn sem setja
máUð upp sem sjálfstæðismál og
segja að ekki komi til greina að hætta
vísindaveiðunum. HaUdór Blöndal
mun vera einna harðastur í því að
fylgja áfram hvalveiðum, enda gam-
aU hvalskurðarmaður. Þá hefur
Matthías Bjarnason tekið þátt í um-
ræðunni og sagst fylgja veiðum.
Hann sagðist telja að málið snerist
um sjálfsákvörðunarrétt íslensku
þjóðarinnar.
Á hinn bóginn eru menn eins og
Guðmundur H. Garðarsson sem telja
að vernda verði hagsmuni fisk-
vinnslunnar með því að hætta veið-
unum tU að stefna ekki mörkuðum
okkar erlendis í hættu.
Stærstur hluti sjálfstæðismanna
fylgir hins vegar þeirri stefnu aö bíða
og sjá tU. Með öðmm orðum: Þaö
verði aö meta stöðuna eftir þróun
mála á næstu vikum.
Kvennaiistinn samhljóma
Þingkonur KvennaUstans munu
vera nokkum veginn sammála í því
að vera gegn hvalveiðum. Kristin
HaUdórsdóttir hefur þegar komið í
pontu og sagt að hún teldi rétt að
hætta veiöunum. Það er helst að aðra
skoöun megi finna hjá Kristínu Ein-
arsdóttur sem er helsti málsvari
KvennaUstans í umhverflsmálum.
Hún er sem kunnugt er líffræðingur
aö mennt og hefur UtUlega tengst
skipulagi vísindaveiðanna.
Framsóknarmenn
aö baki Halldóri
Framsóknarmenn þyrpast að baki
HaUdóri Ásgrímssyni í þessu máh
og styðja veiðarnar. HaUdór sjáfur
þreytist ekki á að útskýra að hann
hafl verið á móti áframhaldandi veið-
um þegar Alþingi greiddi atkvæði
um þær á sínum tíma.
Yflrlýsingar Steingríms Her-
mannssonar fyrir stuttu, um það að
vel gæti komiö til greina að stöðva
veiðar í einhvem tíma, orsökuðu aö
sjálfsögði titring innan ríkissljómar
og Framsóknar. Steingrímur hefur
lægt þær öldur en eigi að síður má
lesa út úr þessum viöbrögðum Stein-
Fréttaljós
Sigurður M. Jónsson
gríms aö hann er líklegur tU að hafa
frumkvæði að stefnubreytingu, enda
hefur ríkisstjómin ekki tekið neina
bindandi ákvörðun að undanförnu,
Alþýðubandalagið er á móti
Það virðist ríkja nokkurn veginn
full samstaða innan Alþýðubanda-
lagsins í þessu máU en þar fer Guð-
rún Helgadóttir, forseti Sameinaðs
þings, fremst í flokki. Hún hefur
lengi verið harður andstæðingur
hvalveiðanna og jafnvel haft fyrir því
að vera með mótmælastööu á hvala-
ráðstefnum Halldórs.
Sérfræðingur Alþýðubandalagsins
í umhverfismálum, Hjörleifur Gutt-
ormsson, hefur gagnrýnt meðferð
hvalamálsins hjá stjómvöldum og
tekið undir með Gurúnu Helgadótt-
ur. Margrét Frímannsdóttir er and-
snúin hvalveiðum en ráöherrar
flokksins hafa ekki úttalaö sig svo
mjög í málinu en ljóst er að þeim
þykir ekki tiltökumál þó vísindaveið-
unum yrði frestað.
Stefán Valgeirsson hjá Samtökum
um jafnrétti og félagshyggjú er
hlynntur veiðum og hefur sagt að
ófært sé fyrir okkur íslendinga að
láta beygja okkur í þessu máli.
-SMJ