Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1988, Side 5
LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1988.
5
Fréttir
Hársnyrting:
Verðmunur
mestur
327 prósent
Gífurlegur verömunur er á þjón-
ustu hárgreiðslu- og rakarastofa
samkvæmt könnun Verðlagsstofn-
unar. Munurinn er mestur 327% á
hárþvotti en þvotturinn kostar frá
100 krónum upp í 427 krónur.
Herraklipping með léttum blæstri
kostar frá 650 krónum upp í 1.563
krónur. Munurinn er hér 136%.
Munurinn er enn meiri á dömuklipp-
ingu með blæstri en þar munar 179%
á hæsta og lægsta verði.
Fyrir venjulega herraklippingu án
blásturs og annarra aukaaðgerða
greiða menn á bihnu 650-1.095 krón-
ur. Hér er munurinn aðeins 69%.
í könnuninni er ekki tekið tillit til
gæða þjónustunnar heldur er hér
eingöngu um verðsamanburð að
ræða. -Pá
Leigubílstjóri á Hreyfli:
Hann ógnaði
mér með hnífi
„Farþeginn var með stóran og
beittan hníf. Hann ógnaöi mér með
hnífnum og tók mig kverkataki. Það
er greinilegt að viö getum búist við
öllu hér á landi,“ sagði leigubílstjóri
á Hreyfli.
í fyrrinótt tók hann upp farþega
við veitingastaðinn Abracadabra.
Farþeginn var allundarlegur, að
sögn leigubílstjórans, og greinilega
undir áhrifum lyíja. Farþeginn var
óákveðinn um hvert hann vildi fara.
Leigubílstjórinn ók honum niður
Laugaveg og upp Hverfisgötu. Þegar
þeir komu aftur á Laugaveg tók far-
þeginn bílstjórann kverkataki.
„Mér stóð ekki á sama. Ég var
ákveðinn í að botngefa bílnum og
snögghemla ef hann herti takið. Ég
gat talið honum hughvarf áður en til
þess kom. Að lokum gat ég kallað á
lögreglu sem handtók manninn,“
sagði leigubílstjórinn. -sme
Kynfræðingur
með Hugsjón
Kvikmyndafyrirtækið Hugsjón .er
nú aö undirbúa gerö fimm fræðslu-
mynda um kynlíf. Fyrirtækið hefur
fengið til liðs við sig bandarískan
kynfræðing, Mark Schoen að nafni.
Hann hefur sérhæft sig í gerð
fræðslumynda af þessu tagi og hefur
dvalið hér undanfarna daga Hug-
sjónarmönnum til halds og trausts.
Að sögn Sonju B. Jónsdóttur stend-
ur til að reyna aö koma fræðslu-
myndunum inn í heilbrigðis-og
skólakerfið. Standa yfir viðræður við
heilbrigðisyfirvöld í því skyni.
Myndirnar íjalla um öruggara kyn-
líf, unglinga, fatlaða, eldra fólk og
hvemig á aö gera gott kynlíf betra.
Sagði Sonja að þær ættu allar erindi
inn á heimili landsmanna. Því stæðu
yfir viðræður við bókaforlögin um
að selja þær i bókaklúbbun. Væri
áætlað útsöluverð um 2000 krónur.
Starfsmenn Hpgsjónar eru nú að
vinna að gerð handritanna. Mynd-
irnar munu samanstanda af leiknum
atriðum og grafik. Að sögn Sonju er
áætlað að sú fyrsta komi á markað í
mars, og hinar fljótlega þar á eftir.
-JSS
Ótrúlega
litlar spólur
9,4 cm á breidd og
6cm á hæð
Fáanlegar 30 min., 60 min., 120 min.
og 180 min.
Sex sinnum Zoom linsa.
Sjálfvirkur og handvirkur fókus.
CCD myndrásir.
Þriggja tíma upptökuspólur.
Innbyggður hljóðnemi.
Tengi fyrir aukahljóðnema.
Ljósnæmi 12 lux.
Heyrnartólstengi.
Sjálfvirk og handvirk hvituviðmiöun.
Stafrænt (digital) minni til texta og
myndinnsetninga.
Hreinar myndklippingar.
Hrein myndinnselning.
VERÐ 76.850 STGR.
JAPISS
• BRAUTARHOLT 2 ■ KRINGLAN ■
■ SÍMI 27133 ■
■ AKUREYRI ■ SKIPAGATA 1 ■
■ SÍMI 96-25611 ■
Video-8 videomyndavélakerfið frá
Sony fer nú sigurför um heiminn
og fjölgar þeim stöðugt framleið-
endunum sem veðja á video-8 sem
framtiðarmyndavélakerfið, enda
skiptir ekki máli hvaða mynd-
bandstæki eða sjónvarpstæki þú
átt, video-8 passar
TÍMfl- 0G
TITLAINNSETNING.
Hægt er á ein/aldan hátt að setja
irin á upptöku daginn, mánuðinn,
árið, klukkutimann og minúturnar
(t.d. 21.08.88/19:30:00). Eftir að
einu sinni er búið að stilla inn
dagsetningu og tima er hvenær
sem er hægt að kalla upplýs-
ingarnar fram aftur því klukkan
gengur þótt slökkt sé á vélinni.
Einnig er hægt að setja titil inn á
mynd, t.d. Sigga 5 ára eða Jólin
1988 og geyma tvo tit/a i minni. Þá
er hægt að velja um
átta liti i letrið.
PflSSflR VIÐ ÖLL TÆKI.
Þar sem myndavélin er lika
afspilunartæki er hægt að tengja
hana við öll sjónvarpstæki og sýna
beint af vélinni eða tengja við
heimilismyndbandið og ,,klippa",
þ.e.a.s. færa á milli þau atriði sem
þið viljið varðveita af upptökunni
eða búa til eintök til að senda
vinum og vandamönnum.
INNBYGGÐUR SKJÁR.
SJÁLFVIRKUR FÓKUS.
Allt sem er tekið upp sést jafnóðum
í innbyggðum skjá þannig að það
fer aldrei á milli mála hvað er verið
að gera. Þá er skjárinn líka notaður
í afspilun og skiptir þá ekki máli
hvort þú ert uppi á Vatnajökli, í
miðri Sahara eða bara niðri við
Tjörn. Þú getur hvenær sem er
skoðað upptökurnar á staðnum.
Einnig gefur innbyggði skjárinn
upplýsingar um allar gjörðir
vélarinnar ásamt upplýsingum um
birtu, rakastig, ástand rafhlöðu og
svo tramvegis.
Er myndin i fókus eða ekki? Á
Sony CCD-F330 þurfum við ekki að
hata áhyggjur af svoleiðis hlutum
eða þá birtu- og hvitustillingu því
hægt er að hafa allar stillingar sjálf-
i f'/ir ó i i jm nA nllt f'ó
SONY VIDEO-8
NÝ TÆKNI
FYRIR
OANSSKOiI
ASTVAiOSSON AR
ALÞJÖÐADANSDAGURINN
SUNNUDAGINN 6. NÓVEMBER
Við erum með opið hús í dansskólanum, Brautar-
holti 4 og Drafnarfelli 4, kl. 13-18. ÓKEYPIS AÐ-
GANGUR. Danssýningar á klukkutímafresti, almennur
dans og fl. Verksmiðjan Vífilfell kynnir Coca Cola
(frítt kók fyrir alla krakka).
Kennarar Dansskóla Heiðars Ástvaldssonar