Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1988, Qupperneq 6
6
LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1988.
Utlönd
Sovétmenn hætta brott-
flutningi frá Afganistan
Sovéskar hersveitir sjást hér veifa þegar þær fóru yfir landamærin til Sovétrikjanna í brottflutningunum i ágúst
síðastliónum. Sfmamynd Reuter
Sovétmenn hafa ákveðið að fresta
heimfór herhðs síns frá Afganistan.
Ástæðuna segja þeir vera áfram-
haldandi vopnasendingar til and-
kommúnískra skæruhða í landinu
frá vestrænum löndum.
„Hvaö halda menn að við getum
setið lengi og horft á hina gera okkur
að fíflum,“ sagði einn talsmaður sov-
éska utanríkisráðuneytisins í gær.
Alexander Bessmertnykh, fyrsti
varautanríkisráðherra Sovétríkj-
anna, tilkynnti ákvörðunina á frétta-
mannafundi í gær. Sagði hann að
brottflutningunum heíöi verið frest-
að um stundarsakir.
Yfirlýsingin kom þegar hann var
að svara spumingum fréttamanna
eftir að hafa flutt harðorða ræðu um
ástandið í Afganistan án þess að
minnast einu orði á brottflutninga
herliðsins.
Bessmertnykh sagði að frestun
brottflutninganna yrði framlengd ef
hernaðaraðstoð til skæruliða frá
vesturlöndum yrði ekki hætt.
Hann sagði að Sovétríkin ætluðu
að fara eftir samningunum um brott-
flutninga sem gerðir voru í Genf en
til að þeir væru marktækir þyrftu
allir aðilar að standa við sitt.
Samkvæmt samningnum, sem
skrifað var undir í apríl, áttu Sovét-
ríkin að hefja brottílutning í maí.
Helmingur eitt hundrað og fimmtíu
Engin hjálp fyrir heimilislausa
Steinimn Böðvarsdóttir, DV, Washington:
Hátt í tvær milljónir manna eru
heimilislausar að minnsta kosti eina
nótt á ári í Bandaríkjunum. Rúmlega
sjö hundruð þúsund eiga hvergi höfði
sínu að halla áriö um kring. I þessu
landi allsnægta sofa þúsundir barna
í almenningsgörðum og húsasund-
um stórborganna nótt eftir nótt.
Til að vekja athygli á þessu hafa
níu félagar í samtökum heimilis-
lausra í Washington D.C. fastað í
rúmlega íjörutíu daga. Heilsu eins
þeirra, tveggja barna móður, hefur
hrakaö mikið og óttast læknar að
hjarta hennar kunni að gefa sig fljót-
lega. Hún hefur eingöngu neytt vatns
síðustu daga, hún neitar allri læknis-
hjálp og er nú rúmliggjandi. Félagar
hennar eru lítt betur staddir. En öll
eru þau staöráðin í að þrauka þótt
það kunni að kosta einhver þeirra
lífið.
Hinn sívaxandi fjöldi heimilis-
lausra á götum bandarískra borga
hefur fengið litla athygli í stjórnartíð
Reagans forseta. Síöan geösjúkrahús
hófu fyrir nokkrum árum að útskrifa
sjúklinga sem ekki voru taldir
hættulegir sér eða umhverfinu hefur
fiöldi heimilislausra margfaldast.
Félagsfræðingar telja að allt að fjöru-
tíu prósent heimilislausra eigi við
geðræn vandamál að stríða.
Það var fyrst fyrir ári að forsetinn
viðurkenndi ráðaleysi sitt og ríkis-
stjórnar sinnar. McKinneylögin svo-
kölluðu gengu í gildi árið 1987 en þau
gera ráð fyrir 1 milljarðs dollara að-
stoð til heimilislausra næstu tvö ár-
in.
Aðstoðin er að mestu í formi starfs-
þjálfunar og matarmiða. Síðastliðinn
febrúar gengu svo önnur lög í gildi
en þau gera ráð fyrir íjármagni til
að gera upp tíu þúsund íbúðir fyrir
láglaunafólk.
Talsmenn heimihslausra segja að 4
milljarða dollara þurfi næstu tvö ár-
in til að byggja 280 þúsund nýjar
íbúðir til að leysa brýnasta vandann.
Hið opinbera hefur á að skipa 1,3
milljónum íbúða fyrir láglaunafólk.
Rúmlega 70 þúsund þessara íbúða
standa auðar því þær þarfnast við-
gerðar. Margir heimihslausir hafa
nýtt sér þessar auðu, niðurníddu
íbúðir sem næturstað í óþökk yfir-
valda.
Hvorugur forsetaframbjóðand-
anna hefur íjallað mikið um lausnir
á vanda heimhislausra. George
Bush, frambjóðandi repúblikana,
hefur alltaf hunsað fyrirspurnir um
stefnu hans í þessu máli. Hans lausn
er aö sjá tíl þess að McKinneylögun-
um verði framfylgt og aö einkageir-
inn leggi meira af mörkunum th
heimihslausra. Andstæðingur hans,
Michael Dukakis, frambjóðandi
demókrata, hefur heitið 2 th 3 millj-
arða dollara fjárframlagi næstu árin
til að byggja leiguhúsnæði nái hann
kosningu. Á þessum tímum spamað-
ar og niðurskurðar í fjárlögum er
óljóst hvaðan þeir peningar ættu að
koma.
Vandi heimihslausra er pólitískt
vandamál. Fáir þeirra kjósa og lofi
annar frambjóðandinn háum fram-
lögum þeim til aðstoðar er hætta á
að hinir betur stæðu kjósendur snúi
baki við honum. Kröfur hinna heim-
ihslausu hafa því hljómað fyrir dauf-
um eyrum.
VERKAMANNABUSTAÐIR
í REYKJAVÍK
Sýning íbúða
Laugardaginn 5. og sunnudaginn 6. nóvember veröa íbúðir í verkamannabústöð-
um við Svarthamra 28-36 í Grafarvogi almenningi til sýnis milli kl. 13 og 19.
Stjórn verkamannabústaða í Reykjavík
þúsund hermanna þeirra var kom-
inn úr landinu um miöjan ágúst.
Afgangurinn átti að fara að tygja
sig í þessum mánuði og aht herlið
Sovétríkjanna í Afganistan átti að
vera farið burt í febrúar.
Samkvæmt þessum sama samningi
skuldbundu Bandaríkin sig til að
hætta að senda skæruliðum vopn ef
Sovétríkin hættu algerlega að að-
stoða kommúnistastjómina í Kabúl.
Þessu höfnuðu Sovétríkin og báru
við að þau hefðu sextíu og sjö ára
gamlan samvinnusamning við Afg-
anistan.
Sovétmenn segjast hins vegar hafa
tahð sig hafa góðan samning um að
báðir aðilar myndu reyna að hafa
taumhald á sér og vinna að póhtískri
lausn. Reuter
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 5-7 Bb
Sparireikningar
3jamán. uppsögn 5-8 Sb.Sp
6mán.uppsögn 5-9 Vb.Sb,- Sp
12 mán. uppsögn 6-10 Ab
18mán.uppsögn 15 Ib
Tékkareikningar, alm. 1-2 Vb.Sb,- Ab
Sértékkareikningar 5-7 Ab,Bb,- Vb
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1.5-2 Bb.Vb,- Sp
6mán. uppsögn 2-3,75 Vb,Sp
Innlán með sérkjörum 5-12 Lb.Bb,- Sb
Innlán gengistryggð
Bandaríkjadalir 7,25-8 Vb
Sterlingspund 10,50- 11,25 Vb
Vestur-þýsk mörk 4-4,25 Ab,V- b,S-
Danskar krónur 7-8 Vb,Sb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 15,5-18 Sp
Viöskiptavíxlar(forv.) (1) kaupgengi
.Almenn skuldabréf 16,5-21 Vb
Viðskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 19-22 \b.0b
Utlán verðtryggð
. Skuldabréf 8-8.75 Vb
Utlántilframleiðslu
Isl. krónur 17-20 Lb.Bb
SDR 9-9,75 Lb.Úb,-
Bandarikjadalir 10,25 Sp Allir
Sterlingspund 13,50- 14,50 Lb.Úb
Vestur-þýsk mörk 6,75-7,25 Allir
Húsnæðislán 3.5 nema Vb
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 27,6 2.3 á
MEÐALVEXTIR mán.
Óverðtr. nóv. 88 20,5 8,7
Verðtr. nóv. 88
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala nóv. 2272 stig
Byggingavisitalanóv. 399,2 stig
Byggingavísitalanóv. 124,8stig
Húsaleiguvisitala Enginhækkunl.okt. Veröstöövun
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 3,285
Einingabréf 2 1,880
Einingabréf 3 «2.128
Fjölþjóðabréf 1,268
Gengisbréf 1.558
Kjarabréf 3,338
Lífeyrisbréf 1.651
Markbréf 1,761
Skyndibréf 1,025
Sjóðsbréf 1 1,604
Sjóðsbréf 2 1,385
Sjóðsbréf 3 1,143
Tekjubréf 1,555
HLUTABRÉF
Söluveró að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 118 kr.
Eimskip 346 kr.
Flugleiðir 273 kr.
Hampiðjan 130 kr.
Iðnaðarbankinn 172 kr.
Skagstrendingur hf. 160 kr.
Verslunarbankinn 134 kr.
Tollvörugeymslan hf. 100 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaupa viðskiptavixla gegn 31% ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar-
bankinn, Lb= Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb= Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.