Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1988, Síða 12
pr ; - . - 12 .aaei nanMHVöM .b auoAflHAouAJ - LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1988.
Uppáhaldsmatur DV
Það er von að Sigurður sé ánægður
á svip þvi að konan hans, Sigriður
Héðinsdóttir, á afmæli í dag.
DV-mynd GVA
Skotfastur
pastaréttur
aðhætti
Sigga Sveins
Sigurður Sveinsson, landsliðsmað-
ur í handbolta, er mikill áhugamaður
um mat og góður kokkur. Hann gefur
lesendum hér uppskrift að skinkup-
astarétti sem lítur mjög vel út. Siggi
Sveins hefur nýverið gengið til hðs
við Valsmenn og er auk þess nýbyrj-
aður á auglýsingadeild Stöðvar 2.
Nóg er að gera hjá stráksa þessa dag-
ana en hann gaf sér þó tíma til að
setja saman uppskrift fyrir okkur.
Pastaréttir hafa náð miklum vin-
sældum hér á landi með svokölluðu
Ítalíuæði sem mikið var rætt um í
vor. Hér kemur skotfastur réttur fyr-
ir hina mörgu aðdáendur.
Skinkupasta
200 g grænar bandnúðlur
300 g skinka eða tvö bréf skinku-
strimlar
1/4 1 (peli) rjómi
200 g rifinn ostur
2 púrrulaukar
2 tsk. múskat
Núðlurnar eru soðnar í saltvatni í
fimm mínútur. Skinkan og púrru-
laukurinn skorin smátt og steikt á
pönnu. Rjóminn settur í pott. Sósu-
jafnara hrært saman með. Suðan er
látin koma upp. Þá er múskati og
rifnum osti bætt úti. Þegar osturinn
er bráönaður er sósan tilbúin.
Núðlurnar eru settar í ofnfast mót,
skinkunni og lauknum dreift yfir.
Síðan er sósunni hellt yfir allt sam-
an. Rifnum osti stráð yhr og mótinu
stungið í ofn sem er búið aö hita í
250°.
Rétturinn er tilbúinn þegar ostur-
inn er bráðnaður. Með honum er
boriö fram heitt grillbrauð (smá-
brauð) sem smurt er með smjöri og
hvítlaukssalti stráð yfir.
-ELA
Sérlega öflug, næm og góð
útvarpstæki í þremur litum
með FM - LW - MW og
stuttbylgju - tæki sem ekki
bregðast í vinnunni, ferða-
laginu, eldhúsinu, eða hvar
sem er.
Þýsk völundarsmíð.
Verð aðeins 3.568.-
Umboðsmenn um land allt.
SVART
02,1 - 90,1 - 92,4 - 93,5
lílúer
útvarp
I tísku
RAUTT
SJONVARPSMIÐSTOÐIN HF.
NÚ Á TVEIM STÖÐUM - SÍÐUMÚLA 2, SÍMI 68 90 90, OG LAUGAVEGI 80, SÍMI 62 19 90.