Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1988, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1988, Side 17
LAUGARBAGUR 5. NÓVEMBBR 1988. lf{ Bríet Bjarnhéðinsdóttir: Nútímakonur eiga henni margt að þakka. Barðist fyrir betra lífi kvenna - af heitu móöurhjarta Bókin um Bríeti Bjamhéðinsdótt- ur er ekki ævisaga heldur er uppi- staða hennar bréf, flest skrifuö af henni sjálfn en einnig nokkur sem hún fékk. Á árunum 1910-1917 var Laufey, dóttir Bríetar, við nám í Kaupmannahöfn og móðir hennar skrifaði henni oft í viku, stundum fleiri en eitt bréf á dag. Hún skrifaði líka syni sínum, Héðni, „en karl- menn eru nú eins og þeir eru,“ segir Bríet dóttir hans, „fæst þeirra bréfa hafa geymst.“ Bréfin tU Laufeyjar eru því uppistaða bókariimar. Við birtum hér stuttan kafla úr einu bréfanna sem Bríet eldri skrif- aði dóttur sinni. Um leið og það sýn- ir ást hennar og umhyggju fyrir dótt- urinni veitir það innsýn í viðhorf hennar sjálfrar gagnvart tilverunni. Það var ekki mulið undir Bríeti Bjarnhéðinsdóttur þegar hún fædd- ist í þennan heim á Haukagili í Vatnsdal árið 1856. Hún var barn fátækra ógiftra vinnuhjúa. Eina skólagangan var vetur á kvennaskólanum á Laugalandi í Eyjafirði. Rúmlega þrítug giftist hún Valdimari Asmundarsyni en missti hann árið 1902 eftir íjórtán ára far- sæla sambúð. Þau hjónin voru bæði ritstjórar, Valdimar fyrir tímaritinu Fjallkonunni en Bríet fyrir Kvenna- blaöinu sem hún stofnaði sjálf árið 1895 og hélt úti í aldarfjórðung. Bríet var fyrsta íslenska konan sem vogaði sér að halda opinberan fyrir- lestur. Fjallaði hann um kjör og stöðu kvenna. Það efni var ávallt hennar hjartans mál. Hún stofnaði Kvenréttindafélag íslands árið 1907 og barðist fyrir því að konur fengju kosningarétt og kjörgengi. En henni var ljóst aö pólitísk réttindi og jafn- réttislög eru oft ekki annað en bók- stafurinn einn. Sem fyrrverandi vinnukona þekkti hún kjör alþýðu af eigin raun og ásamt vinkonu sinni, Jónínu Jónsdóttur, stuðlaði hún að stofnun verkakvennafélagsins Framsóknar, Lestrarfélags kvenna, fyrstu atvinnumiðlun kvenna og fyr- ir hennar atbeina var fyrsta barna- leikvelli landsins komið á fót við Grettisgötu í Reykjavík. -ihh Mótlætið gaf mér víðsÝni Úr bréfi Bríetar til dóttur sinnar Reykjavík, snemma árs 1914 Fyrst Væmehjemmet, ásamt styrk „Og svo kemur nú síðasta bréfið frá Kultusministeríinu danska. Svo þitt i dag. Þú ert alltof mikill grufl- umsókn um Hagemanns Kollegium ari, bamiö mitt. Og guö veit að mér og svo hugsaði eg mér að sækja um þykir vænt um ef hann hefir hjálp- styrk handa þér frá Alþingi. aö þér til að finna sjálfa þig og þína Allt þetta hefir þú fengið. Svo eigin ákvöröun. mikla blessun hefir guð lagt yfir Ákvörðun okkar allra er aö fa þessa ráðagerð og áætlun okkar. sem mest og best út úr lífinu. Marg- Og auk þess hefir þú fengiö margt ar óskir og þrár getum við átt í annaö: Áö ferðast og sjá þig um út innstufylgsnumhjartanssemaldr- um heiminn sem fáir jafiifátækir ei rætast. En þá er að gera sér gott stúdentar hafa fengiö á þínum af því sem fyrir hendi er og gefa aldri. Auk þess góöa heilsu aö því svo mikið efni og innihald sem mestu leyti og eiginlega hamingju í okkar valdi stendur. Mér finnst i hvívetna. - Mér finnst allt þetta örlögin .eða öllu heldur guð hafi svo mikil guösgjöf að eg geti aldrei veriðsvoósegjanlegagóðurviöþig. nógsamlega þakkað hana eins og Fyrst að gera þig eins vel úr garði vera bæri. og þú ert ger, gefa þér svo mikla Þú talar um að eiga einkavin, þig hæfileika í allar áttir, láta þig alast hafi fundist þig vanta það þangað upp undir tiltölulega góðum kring- til augu þín lukust upp og guö lét umstæöum, láta allar vonir og þig sjá skýran veg framundan þér óskir þínar um námið heima ræt- og finna sjálfa þig. Björnsson segir: ast. „Enhver gud sætter ene, / han selv Og þegar okkur báðar langar til er mere nær.“ aö þú getir fariö utan og lært í Já, eg trúi þvi að margir nái aldr- Höfn þér til meiri menningar og ei fullum þroska eða „finni sjálfa frama og kringumstæður okkar sig“ nema þeir hafi ekki aðra en virðast svo þröngar - þá leggjum sig sjálfa og guð aö byggja upp á. við okkar áætlun fyrir nám þitt og Eg hefi t.d. oft í seinni tið hugsaö námsstyrk í Kaupmannahöfn: umhvortegmundihafaorðiðbetri, meiri eða verri manneskja ef eg hefði átt hægari iífskjörum að fagna. Og eg er komin að þeirri niðurstööu að eg heföi ef tfl vill ekki orðið jafn þroskuð. Eg hefði líklega orðið þýðlyndari? Eg átti svo mikiö tfl af því ef það hefði ekki veriö bariö og nítt úr mér. En eg heíði varla átt tfl þá mann- úö og viðsýni sem eg þó hefi fengið fyrir margbreytta erfiöa lifs- reynslu sjálfrar mín. Mér hætti áður til að dæma svo hart, geri það ef til vill ennþá. En hefði eg alltaf verið borin á höndunum, veriö varinfyrir hverj- um mótlætisvindblæ af hamingj- unni, eða - hefði eg verið í hárri stöðu, varin fyrir öllu aðkasti lífs- ins utan að af góðum eiginmanni og mætt því smiaðri og sleikjuskap sem slíkt fólk verður oft fyrir - þá er eg óviss um að eg hefði komist óskemmd út úr því. Mér finnst guö hafa farið svo dá- samlega vel með mig. Og ykkur bömin mín líka það sem af er. Eg vildi óska að þið fynduð innilega til þess og þökkuðuð það.“ Því er œtiaö aö fíytja frœðandl og skemmti- legar grelnar um hlnar ýmsu llstgrelnar og gefa mynd af þvl sem er aö gerast á llstasvlðlnu bœðl hér á landl og f nágrannalöndunum. • Þegar rikislistin kom til fólksins • Það var mólað á íslandi fyrir tíma Kjarvals • Þannig verða listaverk hrömun að bróð • Nútímatónlist homreka ó íslandi • Það sem ber hœst í tónlist og leiklist í vetur • Upphaf nútfmaballetts • Þórður Hall mólar lika! Áskriftarsíminn er 32886 hoA or flaira rrvjti ir an faitt l/int ■r' Það er fleira matur en feitt kjöt segir máltækið og það bendir til þessaðfyrrum hafi íslendingar metið það meira en þeir gera í dag. En þótt íslendingar sniðgangi fitu í vaxandi mæli eru þeir ekki hættir að borða kjöt. Neytenda- síða DV fór í ellefu verslanir á höfuðborgarsvæðinu, bæði stórmarkaði og stórar hverfa- verslanir, og kannaði verð á 19 tegundúm af kjöti. Allt frá fjalla- lambi í heilum skrokkum yfir í reykt folaldakjöt með viðkomu í svína- og nautakjöti. Óhætt er að segja að niðurstöð- urnar urðu ekki alls kostar þær sem búast hefði mátt við. Gífur- legur verðmunur er á milli ein- stakra verslana þegar horft er á hverjategundfyrirsig. Munur- inn varalltfrá tæpum 20% yfir í meira en 100%. Þegar litið var á heildarverð tegunda, sem fengust alls staðar, var munurinn um 18%. Það er því alls ekki sama hvarsunnudagssteikin eða hvunndagskjötfarsið er keypt. Nánari umfjöllun á neytendasíðu DV á mánudag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.