Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1988, Page 23
LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1988.
23
Penísillínið
að verða
gagnslaust
Fúkalyfin, sem ollu byltingu í
lækningum fyrr á þessari öld, koma
nú aö æ minni notum til aö ráöa niö-
urlögum sýkla. Svo viröist sem sýkl-
ar með hæfileika til að breyta eiföa-
efnum sínum séu aö sigra í áratuga
löngu stríði viö fúkalyfin.
Þetta veldur því aö læknar og lyfja-
fræðingar leita ákaft að nýjum lyfj-
um til aö vinna á sýkingunum sem
fúkalyfin réöu auðveldlega viö áöur.
Þetta á jafnvel við um svo sakleysis-
lega sjúkdóma sem bólgur í eyrum.
Kannanir í Bandaríkjunum sýna
að mótstaða sýkla, sem herja á
mannslíkamann, gegn penísillíni vex
hrööum skrefum. Þetta á einkum við
í ríkjunum á austur- og vesturströnd-
inni. Inni á meginlandinu gætir
þessa síður án þess að nokkur not-
hæf skýring hafi fundist á muninum.
Margir sýklar hafa komið sér upp
vöm gegn fúkalyfjunum og eru orðn-
ir ónæmir fyrir þeim, jafnvel í stór-
um skömmtum. Stööugt koma á
markaöinn ný afbrigði af fúkalyfiun-
um en varnir sýklanna eflast að
sama skapi.
Nýjar sannanir
fyrir skaðsemi
kólesteróls
Bandarískir hjartasérfræöingar
segja aö nú sé æ betur að koma í
ljós hvemig kransæöasjúkdómar
þróast á frumstigi. Athygli lækna
hefur undanfarið einkum beinst aö
kólesteróli í blóði og nú em að
koma fram nákvæmar vísbending-
ar um hvemig það veldur kölkun
æða sem er undanfari langflestra
hjartasjúkdóma.
Niðurstaðan er fengin eftir til-
raunir á dýmm. Sagt er aö þetta sé
í fyrsta sinn sem fullnægjandi
skýringar komi fram á hvemig
kolesteról veldur kransæðasjúk-
dómum. Sönnunum fyrir því hefur
ekki verið til að dreifa þótt vitaö
sé að samband er á milli kóleste-
róls í blóði og kransæðasj úkdóma.
Kólesterólið veldur því að óæski-
leg efhi hlaöast innan á krans-
æöarnar og takmarka streymi
blóðs um hjartað. Menn finna fyrst
fyrir þessu sem þyngslum fyrir
brjósti og sting fyrir hjartanu viö
áreynslu. Losni kölkunin úr æðun-
um veldur það hjartaáfalli.
Nýju rannsóknirnar sýna að
hægt er aö koma í veg fyrir efna-
breytingamar, sem valda kölkun-
inni, þegar á frumstigi með lyfia-
gjöf. Við tilraunirnar kom í ljós að
kólesterólið verður aö nýta sér súr-
efni til að geta valdið skaða. Nú er
verið að gera tilraunir með lyf sem
hindrar aðgang kólesterólsins að
súrefninu.
Lyfiö hefur verið reynt á kanín-
um sem fá kransæðasjúkdóma líkt
og menn. Það hafði við tilraunirnar
tilætluð áhrif á kanínumar. Það
heftir enn ekki verið reynt á mönn-
um enda segja sérfræðingarnir að
tilraunimar séu enn á frumstigi og
enn allt óvíst um hvort þær bera á
endanum raunhæfan árangur. Þó
er viðurkennt að rannsóknir á
áhrifum kólesteróls hafi tekið nýja
stefnu.
Egg fyrir
hjartveika?
Með því að ala varphænur á sér-
stöku fitusnauðu fóðri hefur tekist
aö lækka magn kólesteróls í eggjun-
um um meira en helming. Það eru
bændur í Kalifomíu sem hafa staðiö
að þessari tilraun en þeir vonast til
að með þessu megi mæta óskum
manna um kólesterólsnauð egg.
í venjulegum eggjum eru um 280
milligrömm af kólesteróli en staðfest
er að egg úr hænum, sem fengu nýja
fóðrið, innihalda aðeins um 125
milligrömm. í Bandaríkjunum er
ekki talið ráðlegt að fullvaxinn mað-
ur neyti meira en 300 milligramma
af kólesteróh á dag enda þykir sann-
að að mikið kólesteról í blóði valdi
hjartasjúkdómum.
Þrátt fyrir að tekist hafi að minnka
kólesterólið í eggjunum segja hjarta-
sérfræðingár að þau innihaldi engu
að síður mikið af efninu og hlutfalls-
lega meira en flestar aðrar fæðuteg-
undir.
„Þetta breytir ekki miklu fyrir fólk
sem hefur mikið af kólesteróli í blóð-
inu fyrir,“ er haft eftir hjartasér-
fræðingunum John Kane sem starfar
við háskólann í San Francisco.
„Þessi egg innihalda vissulega minna
af efninu en áður en það þýðir ekki
aö þau innihaldi lítið af því,“ segir
hann.
„Nýju“ eggin eru nú seld á almenn-
um markaði í Kalifomíu. Þau eru
um 30% dýrari en venjuleg egg.
Vísindi
Hefðbundin fúkalyf eru nú að verða gagnslaus.
FYRIR BAK OG HNAKKA
Viðurkennt af Rafmagnseftirliti ríkisins
1 ÁRS ÁBYRGÐ
Vegna sérstaks samnings við framleiðanda
'getum við nú boðið á kynningarverði nokkur hundruð hitateppi
á aðeins kr. 3.900 ymm ^áður kr. 5.430,-
Hitateppi hentar öllum, ungum sem öldnum. Pantið strax.
Dregur úr vöðvaspennu með hita. Vinnur sérstaklega gegn verkjum í
baki og hnakka og almennri þreytu. Ver úr 100% bómull sem hægt er
að þvo. Tvær hitastillingar. Tengi fyrir 60/30 W. 220 volt.
Stærð ca 37x55 cm.
Póstverslunin Príma
Pöntunarsími 62-35-35. Símapantanir alla daga
vikunnar kl. 9.00-22.00.
S VISA ® EUROCARD
Fótóhúsið - Príma
- ljósmynda- og gjafavöruverslun,
Bankastræti, sími 21556. r=-,
CEj (JbJ