Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1988, Síða 30
46
LAUGARDAGUR 5. NÓvÉmBER 1988.
Hannes Hiífar sigraði
glæsilega á Haustmóti TR
Hannes Hlífar Stefánsson: Tvöfaldur skákmeistari Taflfélags Reykjavíkur, aðeins 16 ára gamall.
Haustmót Taílfélags Reykjavíkur
hvarf gjörsamlega í skuggann að
þessu sinni fyrir öðrum og stærri
skákviðburði, heimsbikarmótinu.
Önnur ástæða fyrir dræmum frétt-
um af mótinu var kannski sú að
mótið var ekki sérlega spennandi.
Hannes Hlífar Stefánsson náði
snemma forystunni í A-flokki og
hafði tryggt sér sigurinn er einni
umferð var ólokið.
Með sigrinum varð Hannes Hlífar
skákmeistari TR í annað sinn þótt
hann sé aðeins 16 ára gamall. Fyrir
tveimur árum náði hann þessum
áfanga fyrst er hann varð í 2. sæti
á eftir Björgvini Jónssyni frá
Njarðvík sem tefldi sem gestur.
Árangur Hannesar er sérlega
glæsilegur. Hann hlaut 10 vinninga
af 11 mögulegum, leyfði aðeins tvö
jafntefli, við Jón Garðar Viðarsson
og Björgvin Jónsson, sem varð í 2.
sæti með 8,5 v. Þriðji varð Sigurður
Daði Sigfússon með 6,5 v„ Ásgeir
Þór Árnason og Tómas Björnsson
deildu fjórða sæti með 6 v„ Jón
Garðar Viðarsson fékk 5,5 v„ Þröst-
ur Árnason, Snorri G. Bergsson,
Hrafn Loftsson og Róbert Harðar-
son fengu 4,5 v„ Halldór G. Einars-
son fékk 4 v. og Árni Á. Árnason
rak lestina með 1,5 v.
Hannes þurfti 7 vinninga á mót-
inu til að halda alþjóðlegum Elo-
stigum sínum, þannig að hækkun
hans er umtalsverð. Kunnugir
segja að síðustu mót hafl skilað
Hannesi svo mörgum viðbótarstig-
um að á næsta lista um áramótin
megi búast við að hann veröi með
á bihnu 2470-2480 stig. Þar með
væri hann kominn fast á hælana á
stórmeisturunum. Á síðasta skák-
stigahsta hafði Hannes 2395 stig,
síðan bætti hann við sig 15 stigum
á opna Austfjaröamótinu, svo 25-30
stigum á Skákþingi íslands í Hafn-
arborg og nú um 40 stigum fyrir
sigurinn á Haustmótinu.
Björgvin stóð sig einnig afar vel,
enda hefði vinningatala hans í
flestum tilvikum átt að nægja til
sigurs. Honum fer stöðugt fram og
áreiðanlega er skammt að bíða þess
aö hann bætist í tölu alþjóðlegra
meistara okkar. Litlu munaði
reyndar á skákmóti í Englandi
síðla sumars að tithlinn væri end-
anlega í höfn.
Sigurður Daði er ungur skák-
meistari á uppleið sem er vel að
þriðja sætinu kominn. Ásgeiri
tókst ekki að veija titilinn frá í
fyrra þrátt fyrir góða byrjun og
Tómas stóð einnig vel fyrir sínu.
Þeir sem neðar komu hafa ástæðu
th að vera óánægðir. Þeir geta gert
betur.
í B-flokki urðu Erhngur Þor-
steinsson og Arinbjörn Gunnars-
son efstir og jafnir með 7,5 v. af 11
mögulegum. Erhngur hreppti
fyrsta sætið sökum hagstæðari
stigatölu. Eiríkur Björnsson varð
þriðji með 7 v.
Sigurður Páh Guðjónsson, Bjami
Magnússon og Einar T. Óskarsson
fengu 7,5 v. í C-flokki og urðu í
þessari röö samkvæmt stigum.
í D-flokki sigraði Ólafur B. Þórs-
son með 10 vinninga af 11 möguleg-
um, Hrannar Baldursson fékk 9 v.
og Helgi Áss Grétarsson fékk 8 v.
og þriðja sæti en hann er aðeins
11 ára gamah. Þessir þrír eru raun-
ar ahir ungir að árum og munu
stíga á stigaskalanum við frammi-
stöðu sína. Helgi Áss sigraði einnig
í unghngaflokki og vann allar
skákir sínar þar, níu að tölu. í 2.
sæti þar varð Ingólfur Gíslason
með 8 v. en 55 keppendur tóku þátt.
í A-D flokki tefldu 12 skákmenn,
ahir við aha, en í E-flokki voru
þátttakendur 40 og tefldu 11 um-
ferðir eftir Monrad-kerfl. Þar urðu
úrslit þau að 9 ára piltur, Arnar
E. Gunnarsson, sigraði með 8,5
vinningum. Hann hlaut 63 Sonne-
born-Berger stig en Einar Kristinn
Einarsson, sem er 15 ára gamall,
og hlaut jafnmarga vinninga og
Arnar, hafði 61 stig. í þriðja sæti
varð Olgeir Elíasson með 8 v.
Þá er ógetið um Hausthraðskák-
mót TR sem haldið var sunnudag-
inn 23. október. Sigurvegari varð
Þröstur Þórhallsson með 14,5 v. af
18 mögulegum en Snorri G. Bergs-
son og Elvar Guðmundsson komu
næstir með 13,5 v. Keppendur í
hraðskákinni voru 60 talsins.
Henti skákunum
Nýkrýndum skákmeistara TR
fannst greinilega lítið th sigurs síns
koma og lítið í skákir sínar spunn-
ið. Er DV bað hann um að velja
eina af skákum sínum í þáttinn
kom í ljós að hann hafði hent þeim
öllum í ruslakörfuna. „Ég hef ekk-
ert með þær að gera,“ sagði hann,
spurður hverju þetta sætti.
Hins vegar kom í ljós að skákirn-
ar voru enn á sínum stað í hirslum
hugans. Hannes átti ekki í erfið-
leikum með að rifja upp sigra sína
REYKJkVÍKURBORG
Acutean Stfaáci
Seljahlíð
Hjallaseli 55
Sjúkraþjálfari óskast í hlutastarf frá 1. janúar 1989.
Einnig gefst kostur á að vinna sjálfstætt hluta úr degi.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 73633, milli
kl. 10.00 og 12.00 alla virka daga.
ísAcOr
Kaplahrauni 12, 220 Hafnarfirði Sími 54044
VINNUFLOTBÚNINGURINN
STEARNS IFS 580
Hentar öllum sjómönnum, rjú
skyttum, snjósleðafólki,
hestamönnum, verktökum
og veitustofnunum.
Tvöfalt ytra byrði á hnjám og
sitjanda.
Rennilásar á skálmum.
Uppblásanlegur höfuðpúði.
Mikið vasapláss.
Hetta sem hindrar ekki sjónsvið.
Þyngd aðeins 2,3 kg.
Fáanlegur í stærðum frá „XS“
til „XXXL“.
Viðurkenndur af Strandgæslu USA
til notkunar á heimskautasvæðum.
ÓL í Feneyjum:
ísland tapaði
naumlega
fyrir Pakistan
Pakistan vann nauman sigur á ís-
landi á nýafstöðnu ólympíumóti í
Feneyjum. Leikurinn var samt mjög
fjörugur og yfir 100 impar skiptu um
eigendur áður en upp var staðið.
- Guðlaugur og Örn lögðu töluvert á
spilin, reyndu fjórar slemmur og
unnu tvær. Ein var reyndar fóm
gegn töpuðu geimi sem Karl og Sæv-
ar fengu að vinna á hinu borðinu.
Við skulum skoða það spil betur.
A/N-S
♦ D76432
¥ 103
♦ 1085
+ 82
* K9
¥ ÁDG7652
'♦ KD32
* -
♦ G
V K98
4 QR4
+ DG10653
♦ Á1085
¥ 4
♦ ÁG7
+ ÁK974
í lokaða salnum sátu n-s Sævar
Þorbjömsson og Karl Sigurhjartar-
son en a-v Rashid U1 Ghazi og Abdur
Rahman Allana.
Sagnir gengur þannig:
Bridge
ísak Sigurðsson
Austur Suður Vestur Norður
3 L pass 4 H pass
pass dobl pass 4 S
pass pass pass
Austur spilaði út laufadrottningu
og vestur trompaði kónginn. Hann
tók síðan hjartaás og spilaöi meira
hjarta. Það var síðan auðvelt verk
fyrir Sævar að taka einu sinni tromp
og gefa einn slag á tígul. Það var fljót-
fæmi hjá vestri að spha ekki undan
hjartaás, því það er eini raunhæfi
möguleikinn á að hnekkja spihnu.
Það er hins vegar óskhjanlegt hvers
vegna austur segir ekki fimm hjörtu
við fjórum spöðum en þau standa á
borðinu eins og spihð hggur.
Fjórir spaðar unnir og 620 th ís-
lands.
Við hitt borðið sátu n-s Nisar Ah-
med og Nisat Abidi en a-v Guðlaugur
R. Jóhannsson og Öm Arnþórsson.
Nú gengu sagnir á þessa leið:
Austur Suður Vestur Norður
pass 1 L 4 H pass
pass dobl pass 4 S
5 H pass pass 5 S
pass pass 6 H dobl
pass pass pass
Guðlaugur slapp einn niður og ís-
landi græddi 11 impa á spilinu.