Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1988, Page 31
LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1988.
47
Skák
Jón L. Árnason
er eftir því var gengiö. Lítum á
skák sem sögð var dæmigerð fyrir
léttleikandi og örugga taflmennsku
hans á mótinu.
Hvítt: Hannes Hlífar Stefánsson
Svart: Sigurður Daði Sigfússon
Caro-Kann vörn.
1. e4 c6 2. d4 d5 3. Rd2 dxe4 4. Rxe4
Rf6 5. Rxf6+ exf6
Þetta afbrigði nýtur fremur lítilla
vinsælda nú á dögum. Svartur
drepur frá miðborðinu og gefur
hvitum peðameirihluta á drottn-
ingarvæng og miðborði. Mögulegt
er 5. - gxfö en traustara þó í fjórða
leik 4. - Bf5, eða 4. - Rd7 en það er
annar handleggur.
6. Bc4 De7 +!
Svíinn Ulf Andersson hafði þetta
í vopnabúrinu til skamms tíma.
Endatöfl eru hagstæð fyrir hvítan
vegna peðastöðunnar en svartur
hyggst laga stöðu sína fyrst.
7. De2 Be6 8. Bxe6
Hér er 8. Bb3!? beittari leikmáti.
8. - fxe6?
Eftir þetta lendir svartur í erfið-
leikum. Betra er 8. - Dxe6 og nú
t.d. 9. Bf4 Ra6 10. 0-0-0 0-0-0 11.
Dxe6+ fxe6 og svartur hefur náð
að laga peðastööu sína og má vel
við una. Þannig tefldist m.a. skákin
Peters - Andersson frá 1978.
9. Rf3 Ra6 10. 0-0 Dd7 11. c4 0-0-0
12. Hel Rc7 13. Be3 Kb8 14. Habl!
Áætlun hvíts er einföld: Peðabyl-
ur á drottningarvæng, opna línur
og freista þess að ná mátsókn.
Svartur reynir að svara í sömu
mynt en sókn hans er byggð á veik-
ari grunni og er því dæmd til að
mistakast. Hvítur á meira rými og
sterkari miðborðsstöðu, menn
hans standa betur og kóngsstaðan
er traustari.
14. - g5 15. b4 h5 16. a4 g4 17. Rh4
Bh6 18. b5 Bxe3 19. fxe3
Þar með dofnar þrýstingur hvíts
niður á e6 en miðborðið styrkist
og f-línan gæti orðið nytsamleg.
19. - Hhg8 20. Hb2 Ka8 21. Hebl Hb8
22. D£2 De7 23. g3 c5 24. Df4 cxd4 25.
exd4 Hd8 26. b6 Ra6 27. bxa7 Kxa7
28. Hb6 e5
* i
m
i 4 i
A && tiíi
A A
a £i
ABCDEFGH
29. De3! Ka8
Ekki 29. - Hxd4 vegna 30. Rf5 með
riddaragaffli. Svartur álítur skyn-
samlegast að víkja kóngnum úr
skotlínu drottningarinnar.
30. De4 Ka7 31. Rf5 Dc7 32. c5 Hd7
33. Rd6!
Nú er ekki hægt að valda b-peðið
með góðu móti. Svartur er glatað-
ur.
33. - Rxc5 34. Rb5+ Kxb6 35. Rxc7+
Kxc7 36. dxc5
Og svartur gafst upp. ,
Haustmót SA
Haustmót Skákfélags Akureyrar
er heldur seinna á •'ferðinni en
haustmótin fyrir sunnan. Það hefst'
nk. sunnúdag, 6. nóvember, kl. 14.
Teflt verður í tíu manna flokkum
eftir styrkleika. Keppnisdagar eru
sunnudagar og miðvikudags- og
fóstudagskvöld. Tímamörk 2 klst. á
40 leiki og síðan hálf klukkustund
til að ljúka skákinni.
Keppni í telpna- og drengjaflokki
og unglingaflokki hefst í dag, laug-
ardag kl. 14. Teflt er í félagsheimili
Skákfélags Akureyrar, við Þing-
vallastræti númer 18, og þar geta
menn jafnframt skráð sig til
keppni.
-JLÁ
Bridgefélag
Hafnarfjarðar
Lokið er tveimur kvöldum í að-
altvímenningi félagsins.
Úrslit síðasta kvöld urðu þessi:
A-riðill
1. Jón Sigurðsson-
Jens Sigurðss. 120
2. Bjarnar fngimarsson-
Þröstur Sveinsson 117
3. Jón Gíslason-
Árni Hálfdánarson 114
B-riðiU
1. Árni Þorvaldsson-
Sævar Magnússon 124
2. Ari Konráðsson-
Kjartan Ingvarsson 122
3. Sverrir Jónsson-
Ólafur Ingimundarson 117
Staða efstu manna að loknum
tveimur kvöldum er því þessi:
1. Kristján Hauksson-
Ingvar Ingvarsson 255
2. Árni Þorvaldsson-
Sævár Magnússon 252
3. Ari Konráðsson-
Kjartan Ingvarss. 238
4. Bjarnar Ingimarsson-
Þröstur Sveinsson 234
5. Björn Arnarson-
Guðlaugur Ellertsson 226
Næsta kvöld verður raðaö í riðla
eftir stigafjölda og spilað til úrslita
um verðláun í báðum riðlum.
Bridgefélag
Breidfirðinga
Nú er lokið 6 umferðum af 17 í
aðalsveitakeppni félagsins og hefur
sveit Páls Valdimarssonar náð
umtalsverðri forystu en baráttan
er hörð milli næstu sveita. Staða
efstu sveita er þannig:
1. Páll Valdimarsson 139
2. Guðmundur Kr. Sigurðssonll2
3. Hans Nielsen 110
4. Jónas Elíasson • 105
5. Albert Þorsteinsson 104
6. -7. Guðlaugur Karlsson 102
6.-7. Guðlaugur Sveinsson 102
8. Romex 100
Katarina Witt i æfingasalnum. Hún hefur nú lagt inn á nýja braut.
Katarina Witt snýr
sér að leiklistinni
„Þegar ég gríp eitthvað í mig er ég á áttatíu dögum eftir Jules Vernes. Heine valdi sér reyndar leiklistina
að stafsvettvangi þegar keppnis-
ferlinum lauk. Fyrsta afrek Katar-
inu Witt var að verða í öðru sæti á
heimsmeistaramótinu í listhlaupi á
skautum árið 1982. Þá var hún 17
ára gömul og hreif áhorfendur með
glæsileik sínum. Á þessu móti varð
mönnum ljóst að ný skautadrottn-
ing var að leggja heiminn að fótum
sér.
Og þetta var aðeins upphaflð.
Árið eftir varð hún Evrópumeistari
og hefur ekki látið þann titil af
hendi síðan. Árið 1984 varð hún
bæði ólympíumeistari og heims-
meistari. Frá þeim degi hefur lítið
þýtt að etja kappi við Katarinu
Witt.
Hún varð enn á ný heimsmeistari
árið 1985 og aftur áriö 1987. Árið
1986 varð hún að sætta sig við ann-
að sætið en í ár sannaði hún enn
yfirburði sína með því að verða
bæði ólympíu- og heimsmeistari í
annað sinn á ferlinum. Aðrar
skautadrottningar hafa ekki leikið
það eftir.
Katarina Witt er mjög dáð í
heimalandi sínum, sem og í öðrum
löndum þar sem íþróttir njóta hylli.
Engar hömlur eru settar á ferðir
hennar til annarra landa. Skauta-
ballettinn, sem hún tekur nú þátt
í, var frumsýndur í Vestur-Þýska-
landi. Kærasti Witt heitir Ingo
Politz og leikur á trommur með
austur-þýsku rokkhljómsveitinni
Dazu.
ekki rónni fyrr en hugmyndin er
orðin að veruleika," segir austur-
þýska skautadrottningin Katarina
Witt. Á þessum áratug hefur hún
verið fremst meðal íþróttakvenna
á ísnum en nú hefur hún fengið
nýja hugmynd. Draumur Witt var
að snúa sér að leiklist og sá draum-
ur varö að veruleika í lok síöasta
mánaðar þegar hún kom í fyrsta
skipti fram á sviði. Hún hefur því
um tíma gert hlé á keppnisferlin-
um.
Hún ætlar þó ekki að yfirgefa ís-
inn því hún kemur nú fram í
skautaballett sem hefur fengið
nafnið „Holiday on ice“. Þetta er
mikil skrautsýning sem byggð er á
gamansögunni Umhverfis jöröina
I sýningunni fer Witt með hlutverk
indversku prinsessunnar Aoudu
sem aðalpersónan Filias Fogg hittir
fyrir á hnattferð sinni.
Sextán ár á ísnum
Þetta eru vissulega tímamót á
ferli Katarinu Witt sem hefur tekið
þátt í skautaíþróttum frá því hún
var sjö ára. Þaö var árið 1972 og
allar götur síðan hafa skautarnir
átt hug hennar allan. Fyrir
skömmu hóf hún nám í leiklist og
þá þóttust menn sjá hvert hún
stefndi á ferli sínum.
Ferill Katarinu Witt í skauta-
íþróttinni er óvenju glæsilegur og
jafnast fyllilega á við afrek skauta-
drottninga á borð við Sonju Heine.
Kærasti Katarinu Witt, trommuleikarinn Ingo Politz.