Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1988, Page 38
54
LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1988.
Ferðamál_____________________
Brasilía:
Samba uppi
r ■
a
Sykurtoppi
--------------------------------:---------------------------------------------------------------—
Iguassu fossarnir i samnefndum þjóðgarði eru
eitt af náttúruundrum Brasilíu, 275 saman, og
fjölsóttir af ferðamönnum.
FJÖLBRAUTASKÓLINN VIÐ ÁRMÚLA
ARMULA 10—12, 105 R. SIMI 84022
Frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla
Umsóknarfrestur fyrir vorönn 1989 rennur út mánu-
daginn 21. nóvember. Hafið í huga að afrit prófskír-
teina þurfa að fylgja umsóknum. Skrifstofa skólans
er opin kl. 8-16.00 og þar eru veittar allar nánari
upplýsingar.
Skólameistari.
Brasilía er aðeins ein borg í augum
flestra útlendinga: Rio de Janeiro.
Þangað fara líka flestir sem heim-
sækja landið. íslendingamir, sem
halda suður til Brasilíu í febrúar, eru
þar engin undantekning. Dvölin
hefst í Rio og þar endar hún einnig
eftir ferðalag vítt og breitt um landið.
Rio de Janeiro, Janúaráin. Reynd-
ar heitir horgin fullu nafni Sao Se-
bastiao do Rio de Janeiro. Sagan seg-
ir að hinn 1. janúar 1502 hafi tveir
sæfarar og landafundamenn, André
Goncalves og Amerigo Vespucci, sá
sem Ameríkumar era kenndar við,
siglt inn á flóa nokkurn og geflð hon-
um nafnið „Janúaráin“. Líklegra er
þó taliö aö staðurinn hafi ekki veriö
uppgötvaöur fyrr en 1504 af Goncalo
nokkrum Coelho. Nafnið komst þó
Sykurtoppurinn er frægasta fjallið í Rio og eins konar tákn borgarinnar.
Um milljón manns fer árlega upp á topp þess til að njóta útsýnisins.
ekki á landakort fyrr en um 1515.
Og fyrstir til að taka sér bólfestu á
þessum nýja stað voru franskir
húgenottar undir forystu Nicolas
Durand de Viliegaignon.
Rio á sjöunda degi
Gömul hrasilísk sögusögn segir aö
guð hafi skapað heiminn á sex dög-
um, en hinn sjöunda dag hafi hann
notað til að skapa Rio de Janeiro.
Rio var höfuðborg landsins fram
tfl 1960 þegar nýsköpunarborgin
Brasilia tók við því hlutverki. En Rio
hefur alltaf verið höfuðborg skemmt-
analífsins í gervallri Brasilíu, og
jafnvel þótt víðar væri leitað. Þar ber
aö sjálfsögðu hæst kjötkveðjuhátíð-
ina, eða karnivalið.
Kjötkveðjuhátíðin stendur yfir í
fjóra sólarhringa áður en fjörutíu
daga páskafastan byijar. Hún hefst
á fóstudegi með því að borgarstjórinn
afhendir konungi hátíðarinnar, Rei
Momo, lyklavöldin að borginni. Frá
því augnabliki er allt leyfilegt í Rio
og borgarbúar og gestir þeirra
skemmta sér meira og betur en á
nokkmm öðrum stað á byggðu bóh.
Hápunktur kjötkveöjuhátíðarinnar
er síðan hópganga sömubskólanna í
borginni, þar sem þátttakendur
syngja og dansa fyrir áhorfendur.
Sömbuskólarnir eru í heilt ár að
undirbúa gönguna, semja tónhst,
sauma búninga, smíða skrautvagna
o.s.frv. Það er hka tfl mikfls að vinna
því vegleg verðlaun eru veitt þeim
skóla sem er með bestu sýninguna.
Fæðingarstaður bíkinisins
Kjötkveðjuhátíðin er þó ekki hið
eina sem dregur ferðamanninn til
Rio, enda fýsir ekki alla að taka þátt
í þeim hasarleik. Borgin er ekki síður
þekkt fyrir faflegar baðstrendur sín-
ar. Þær era alls um 90 kílómetrar að
lengd og frægastar þeirra eru
Copacabana og Ipanema, líklega
þekktustu baðstrendur í heimi. Um
þær hafa hka verið samin mörg vin-
sæl dægurlög.
En Copacabana er miklu meira en
fræg strönd. Þar var bíkini fundið
upp á sínum tíma, og þar komst á sá
siöur að drekka bjórinn beint úr
tunnunni á börunum við gangstétt-
arbrúnina. í Ipanema var hin svo-
kallaða „tanga“-tíska kynnt um-
heiminum, og á þeirri strönd var
hljómsveitafárið innleitt í Rio. Það
þarf ekki mikið til aö reka hljóm-
sveitimar frá Ipanema út á götu tfl
að spila. Ipanema einkennist af kók-
ostrjám, fínlegur sandur og stórar
öldur sem skella á land, og þar þykja
stúlkurnar fahegastar.
Jesú á fjallinu
Fjallahringurinn í kringum Rio er
ákaflega tflkomumikill. Þar er Syk-
urtoppurinn fremstur meðal jafn-
ingja, tæplega 400 metra hár, sér-
kennflegur drangur og einkennis-
merki borgarinnar. Fjall þetta er
einn vinsælasti ferðamannastaður-
inn í Rio og upp á tind þess fer um
ein mflljón ferðamanna á hveiju ári
tfl að dást að útsýninu yfír borgina
og flóann fyrir neðan. í fyrra héldu
íbúar Rio upp á 75 ára afmæli svif-
brautarinnar sem flytur ferðamenn-
ina á Sykurtoppinn. Leiðin upp er
farin í tveimur áfóngum. Fyrsti
áfanginn er íjallið Urca, þar sem
unga fólkið í borginni kemur saman
um helgar til að skemmta sér við
tónhst og aðrar uppákomur. Og á
hveiju mánudagskvöldi leikur
trumbudefldin úr Beija-Flor samba-
skólanum kjötkveðjuhátíðarmúsík.
Á Urca fjahi eru líka haldnar bama-
skemmtanir í náttúrulegu útileik-
húsi sem kallað er Græna skelin.
En þau eru fleiri, íjöllin sem sér-
hver gestur í Rio verður „klífa“.
Corcovado íjall, 710 metra hátt, er
eitt þeirra, og merkilegt fyrir þær
sakir aö á tindi þess er styttan fræga
af Kristi með útbreiddan faðminn.
Styttan er 38 metrar að hæð og henni
var komið fyrir þarna yfír borginni
árið 1931. Lítfl lest, sem gengur frá
Cosme Velho torgi, skríður upp skógi
vaxnar fjallshhðamar og ber far-
þegana að fótstalh styttunnar. Og
þeim fer sífeht fjölgandi sem leggja
leið sína á fjallið því þaðan er útsýni
gott yfír borgina.
Vel á minnst-Villa Lobos
Mörg dæmi um byggingarhst fyrri
alda er aö fínna í miöborg Rio. Eink-
um eru byggingar þessar frá 16. og
17. öld og flestar eru þær kirkjur.
Kirkjumar eru látlausar að ytra út-
hti, en þegar inn er komið eru þær
ríkulega skreyttar. Meðal þeirra
bygginga sem vert er að skoða eru
Nossa Senhora do Carmo kirkjan,
þjóðskjalasafnið og Santo Antonio
klaustrið.
Þeir sem vilja kynna sér sögu bras-
flískrar menningar betur en með því
að virða fyrir sér gamlar byggingar