Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1988, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1988, Blaðsíða 27
. MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 1988. 27 Iþróttir 1. deild kvenna í handknattleik um helgina: Slakt lið Hauka var engin hindrun fyrir Framstúlkur Fram bætti tveimur stigum í safnið er liðið bar sigurorð af Haukum í 1. deild kvenna á laugar- dag. Haukar voru ekki mikil fyrir- staða fyrir íslandsmeistarana sem unnu öruggan sigur, 19-12. Staðan í hálfleik var 11-6 fyrir Fram. Af öðrum ðlöstuðum var markvörður Fram, Kolbrún Jóhannsdóttir, manneskjan á bak við sigur Fram. Annars átti liðið ágætan dag. Haukarnir voru ekki sannfærandi í leiknum ef undanskildar eru fyrstu mínútur leiksins. • Mörk Fram: Ama 5, Margrét og Ósk 3 hvor, Jóhanna og Hafdís 2 hvor, Ingunn, Björg, Anna og Guðrún eitt mark hver. • Mörk Hauka: Þórunn og Margrét4 hvor, Hrafnhildur, Stein- unn, Ragnheiður og Elva eitt hver. Tveir sigrar Víkings Víkingur gerði góöa ferð til Akur- eyrar. Stúlkumar spiluðu þar tvo leiki við Þór og sigraðu í þeim báð- um, 22-18 og 24-13. Víkingur byijaði fyrri leikinn mjög vel og hafði góða forystu i hálfleik, 14-5, sem nægði til sigurs. Víkingar skoraðu mörg marka sinna úr hraðaupphlaupum. Þórs- stúlkurnar komu tvíefldar til síðari hálfleiks og áttu þá ágætan leik, þá sérstaklega Harpa Örvarsdóttir sem aðeins er 15 ára gömul. Þær náðu að saxa á forskot Víkinga en bilið var of stórt og Víkingur sigr- aði örugglega, 22-18. • Mörk Þórs: María 7, Inga 3, Valdís og Harpa 2, Margrét, Eva, Steinunn og Þórdís eitt hver. • Mörk Víkings: Inga Lára 7, Halla 5, Heiða 4. Valdís 3, Svava 3. Síðari leikur liðanna var i lakari kantinum og mikið um mistök á báða bóga. Enn vora það hraðaupp- hlaup Víkinga sem voru banabiti Þórs. Staðan í hálfleik var 8-5 Vík- ingi í vil og endaði leikurinn 24-13. Athygli vakti að Víkingsstúlk- umar afhentu hverjum leikmanni Þórs 2 kg af hveiti til jólabaksturs- ins í upphafi fyrri leiks liðanna. • Mörk Þórs: María 5, Inga 4, Harpa 2, Valdís og Steinunn eitt hvor. • Mörk Víkings: Inga Lára 7, Halla 5, Svava 4, Valdís og Jóna 2 hvor, Heiða, Oddný, Matthildur og Gróa eitt hver. -ÁS/EL NBA-deiIdin í körfuknattleik: Tveir sigrar hjá Spurs San Antonio Spurs, lið Péturs Guð- mundssonar, vann tvo sigra í NBA- deildinni um helgina. Pétur leikur ekki með liðinu þessa dagana vegna meiðsla. Úrslit i NBA-deildinni um helgina urðu þessi: Atlanta Hawks - Portland 115-97, 76- ers - Indiana 107-100, Chicago Bulls - Dallas Mavericks 113-100, Charlotte Hornets - Houston Roc- kets 108-104, San Antonio Spurs- New York Knicks 122-102, Phönix Suns - Los Angeles Clippers 114-106, Seattle Supersonics - Golden State Warriors 136-106, Utah Jazz-Sác- ramento Kings 107-73, Portland- Miami Heat 105-102, Milwaukee Bucks-New Jersey Nets 103-92, Cleveland - Boston Celtics 112-84, Detroit Pistons - Washington Bullets 120-114, New York Knicks - Dallas Mavericks 104-101, Denver Nug- gets - Golden State Warriors 122-102, Seattle Supersonics - Los Angeles Clippers 154-104, Los Angeles Lak- ers-Utah Jazz 113-92, Atlanta Hawks - Washington Bullets 127-115, Charlotte Hornets - 76ers 109-107, Cleveland Cavaliers - Milwaukee Bucks 99-96, Denver Nuggets-Sac- ramento Kings 133-126 í framleng- ingu, Boston Celtics-New Jersey Nets 133-100, Detroit Pistons - Indi- ana Pacers 114-111, San Antonio Spurs- Miaami Heat 105-101, 76- ers-Portland 114-106, Houston Roc- kets - Dallas Mavericks 101-89, Utah Jazz-Chicago Bulls 107-93, New York Knicks - Los Angeles Chppers 135-128 í framlengingu og Los Ánge- les Lakers - Seattle Supersonics 110-106. -SK • Robert Parish, miðherji Boston Celtics, til vinstri, og Bill Lambeer, mið- herji Detroit Pistons, i áflogum á dögunum. Báðir voru reknir i bað. Símamynd Reuter Ma Na frá Kína sést hér setja heimsmet i 56 kg flokki kvenna á heimsmeistararhóti í lyftingum kvenna sem fram fór um helgina. Á myndinni jafnhattar hún 105 kg. Kinverskar stúlkur þóttu skara fram úr á mótinu og Han Chang Mei lyfti mestu þyngd sem kvenmaður hefur lyft frá upphafi. Hún snaraði og jafnhattaði 132,5 kg og bætti eldra heimsmetið um 7,5 kg. Þá varð Xing Fen fyrst kvenna til að lyfta meira en tvöfaldri eigin þyngd. Hún lyfti samtais 90 kg en keppti i 43,5 kg flokki. -SK/Símamynd/Reuter Samdráttur ákveðinn á ársþingi KSÍ á Selfossi um helgina: Tap KSÍ á síðasta ari um 8,7 milljonir Sveinn Helgason, DV, Selfœsi: Nokkur samdráttur er fyrirsjá- anlegur á starfsemi Knattspyrnu- sambands íslands í kjölfar slæmrar íjárhagsstöðu sem staðfest var á ársþingi sambandsins á Selfossi um helgina. Tapið nemur 8,7 milljónum króna. Meðal aðgerða til spamaðar má nefna uppsagnir starfsfólks á skrifstofu sambandsins og fækkun utanlandsferöa landsliða. A-lands- liðið mun til aö mynda ekki fara í fyrirhugaðar feröir til Möltu og Búlgaríu. Á ársþinginu var ákveðiö aö Austri frá Eskifirði léki í 3. deild næsta sumar. Þá var felld tillaga þess efnis að 1. deildar félögin hæfu keppni í bikarkeppninni í 32-liða úrslitum í stað 16-liða úrslita í dag. Stjórn KSÍ er þannig skipuð: Ell- ert B. Schram formaöur, Gylfl Þórðarson varaformaður, Þór Sím- on Ragnarsson, en hann var kosinn til tveggja ára á þinginu, Helgi Þor- valdsson, Gunnar Sigurösson, Sveinn Sveinsson, kosinn til tveggja ára á þinginu, Elías Her- geirsson, Ragnar Marinósson, og Stefán Garðarsson, kosinn til eins árs á þinginu og kemur í staö Steins Halldórssonar. • Thomas Allofs, sem leiikur með FC Köln, er nú markahæst- ur i vestur-þýsku knattspyrnunni. Frétta- stúfar Thomas Allofs er nú að stinga aðra knattspyrnumenn af í Vestur-Þýskalandi varðandi markaskorun. Allofs er markahæsti leikmaðurinn í Þýskalandi þessa dagana og hef- ur skorað 12 mörk fyrir lið sitt. í öðru sæti eru þeir Uwe Leifeld, Bochum, Frank Neubarth, Werd- er Bremen, og Hans-Jörg Criens, Gladbach, en þremenningarnir hafa skorað 9 mörk. Baltazar einn á báti á Spáni Keppnin er ekki spennandi um markakóngstitilinn í spönsku knattspyrnunni. Þar hefur Baltazar de Morais, sem leikur með Atletico Madrid, skorað 15 mörk. Julio Salinas, Barcelona, kemur næstur með 9 mörk, Hugo Sancez er þriöji með 8 mörk og Ramon Vazquez, Sevilla, er með 7 mörk. Careca efstur í ítalska boltanum Enn um markaskorara og menn á skotskóm. í ítölsku knattspyrn- unni er Brasilíumaðurinn Careca í liði Napolí markahæstur en hann hefur gert 8 mörk það sem af er keppnistímabilinu. Félagi hans í Napolí, Andrea Carnavale, kemur næstur með 6 mörk. Aldo Serena, Inter Milan og Pietro Paolo Virdis, AC Milan, hafa komiö knettinum 5 sinnum i net andstæðinga sinna. Her manna hefur skorað fjögur mörk og þar á meðal eru snillingurinn Diego Armando Maradona og Daninn i liði Juventus, Michael Laudrup. Smith til Newcastle? Nú eru taldar nokkrar líkur á því að Jim Smith verði ráðinn fram- kvæmdastjóri enska knatt- spyrnuliðsins Newcastle en hann starfar nú hjá QPR. Hann yrði þá 5. stjórinn hjá Newcastle sl. 10 ár. 2.deUd r íirslit d Gylfi Kristjánsson, DV, Akuxeyri: Þórsarar urðu til þess að stöðva sigurgöngu Hauka í 2. deildinni í handbolta er liöin mættust á Ak- ureyri um helgina. Úrslit leiksins urðu 22-21 fyrir Þór sem leiddi 11-9 í hálfleik. El- ías Jónasson og Árni Hermanns- son skoruöu 5 mörk hvor fyrir Hauka, en hjá Þór var Páll Gísla- son markahæstur með 6 mörk. í gærkvöldi vora þessir leikir á dagskrá: Ármann-HK, 23-28, og Njarðvík-ÍH, 29-25.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.