Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1988, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1988, Blaðsíða 48
48 MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 1988. Sviðsljós Cynthia Lennon - fyrrum eiginkona Johns Lenn- on heitins - hefur í heiöri gömul „mottó" eiginmannsins fyrrver- andi. Hann sagði á sínum tíma aö ekkert væri auðveldara og betra en að komast áfram án Bítl- anna. Cynthiu hefur gengið bæri- lega hin síðustu ár og nýlega sannaði hún orð Lennons þegar hún setti á markað ilmvatn með sínu nafni. Sean Connery hefur enn einu sinni tekið hlut- verki gamla mannsins. Nú leikur þessi hálfsextugi leikari föður en sonurinn verður leikinn af Dust- in Hoffmann. í fyrstu hafnaði hann hlutverkinu og benti kurt- eislega á að hann væri aðeins sjö árum eldri en Dustin. En hann lét tilleiðast þegar hann heyrði hver launin yrðu en þau verða ekki skorin við nögl. Förðunar- meistararnir geta svo séð um það sem vantar upp á. Leikarinn myndarlegi, Richard Chamberlain, segir aö lífið hafi gefið sér allt - nema það sem hann langar mest í, böm. „Ég er búinn að gefa upp vonina um að verða pabbi,“ sagði leikarinn 53 ára í opinskáu viðtali á franskri sjónvarpsstöð. Richard segist elska böm meira en allt annaö. „Ég er guöfaðir tuga bama heima í Los Angeles og ennþá fleiri bama á eyj- unni minni á Hawaii. En það er ekki eins og að eiga eigin börn. Einu sinni hugleiddi ég aö ættleiða litla stúlku. En þó ég hefði fengið það þá hefði það verið ósanngjarnt gagvart henni. Hver hefði átt að gæta hennar á meðan ég er í mánaðarlöngum kvik- myndatökum." Richard er nú að vinna aö fram- haldsþáttum fyrir sjónvarp þar sem hann leikur lækni. En hann reynir að gefa börnum eins mikið af tíma sínum og hann getur. Hann starfar fyrir barnasamtökin Unichef og tek- ur þátt í mörgum verkefnum sem tengjast börnum. „Ég verð ham- ingjusamur með bömum - þau veita mér lífsfyllingu," segir hann. „Ann- ars get ég verið ánægður með lífið því ég fæ 10.000 aðdáendabréf á hverjum degi og verð ástfanginn í hverri viku.“ Ólyginn sagði... „Ég fæ 10 þúsund aðdáendabréf á dag og verð ástfanginn í hverri viku,“ segir Richard Chamberlain. Hann langar þó mest af öllu i lífinu til að verða pabbi. Richard Chamberlain: Hef allt í lífinu nema... Kim Wilde nagar nú neglur af áhyggjum. Um daginn var brotist inn á heimih hennar og dagbókinni hennar stohð. Eins og flestir vita skrifar maður í dagbókina sína ýmis leyndarmál sem ekki eru ætluð öðrum. Sá sem hefur dagbókina nú undir höndum getur lesið allt um Michael Jackson og tónleika- förina sem þau fóm í saman. Bókin inniheldur líka símanúm- er helstu poppstjama í heimin- um, ljóð og söngtexta og mörg önnur leyndarmál sem gæti kom- ið sér illa að yrðu á alla vömm. Þjóð veit þá þrír vita. Alan Alda var trúður Allir þekkja Alan Alda, leikara og leikstjóra í Hollywood, stórstjömu með meiru. Færri vita sjálfsagt að hann var trúöur, leigubílstjóri og dyravörður áður en frægðin bankaði upp á hjá honum. Alan á ekki langt að sækja hæfi- leikana. Foreldrar hans vom báðir leikarar og sex mánaða kom hann fyrst fram á sviði með föður sínum. Piltinn langaði alltaf til að leggja leik- hstina fyrir sig en pabbi gamli vildi að hann yrði iæknir. Hann gekk í háskóla, tók próf, gekk í herinn og síöan í hjónaband. Hann er enn giftur sömu konunni. Eftir vistina í hemum vann Alan Alda ýmis störf en draumurinn um leikhstina yfirgaf hann aldrei. Árið 1960 fékk hann fyrsta aðalhlutverkið sitt á Broadway og þannig koll af kohi uns hann varð frægur fyrir leik sinn í sjónvarpsseríunni MASH. Framhaldið þekkja allir. Alan Alda hefur lagt gjörva hönd á margt. Tyson lýgur Nú er Mike Tyson genginn guði á hönd. Áður en það gerðist laug hann því til að hann danglaði aldrei í kon- una sína. Þessar hrikalegu staðreyndir komu í Ijós þegar virtur bandarískur vísindamaður á sviði mannlegs eðlis notaði sérstök mæhtæki á viðtal sem Tyson veitti nýlega um málið. Tæki þetta mælir streitueinkenni sem koma fram í röddinni og annars stað- ar þegar maður lýgur. í viðtahnu var Tyson spurður aö því hvort honum væri stundum laus höndin í návist konu sinnar. Boxar- inn kvað nei við. Sannleiksmaðurinn segist hins vegar vera sannfærður um að Tyson ljúgi. Og þá vitum við það. Sannleiksmaður segir að Tyson lemji konuna sina. Svona litur Brigitte Nielsen út á plastevuklæðunum. Mennirnir tveir eru lista- menn. Rambólína úr plasti Brigitte Nielsen, fyrrum Ramb- ófrú, verður senn tekin í guðatölu á sínu eigin heimili. Núverandi spúsi hennar, ameríska fótboltastjarnan Mark Gastineau, vih endilega eignast plaststyttu af öllu sílikoninu. Stúlkan hefur því mátt sitja fyrir hjá tveimur myndhst- armönnum undanfarnar vikur með hendurnar upp fyrir haus, kviknakin sem í upphafi. Styttan verður svo væntanlega sett á stall þar sem hægt verður að thbiðja hana. Sem kunnugt er hefur gengið á ýmsu í samskiptum þeirra Marks og Gittu en nú virðist aht vera fallið í ljúfa löð. Pilturinn ætlar þó ekki að taka neina sjensa og vill geyma mynd af íturvöxnum kroppi konunnar um eilífð alla fari svo að hún kveðji kóng og prest einn góðan veðurdag og haldi á vit annarra vöðvafjalla. Ringo er hættur að drekka Nýlega kom Ringo Starr heim til Englands úr áfengismeðferð á einka- stofnun í Bandaríkjunum. Hann seg- ist ekki ætla að drekka áfengi aftur. „Mér líður miklu betur enda hef ég ekki fengið mér í glas í 45 daga og það er stórkostlegt á minn mæli- kvarða," segir hann. Eiginkona Ringos, leikkonan Barbara Bach, fór með honum í meðferðina í Arizona. Ringo sagöi að þau hefðu ákveðið þetta í sameiningu eftir að hafa gert sér grein fyrir hve drykkjuvandamál þeirra var orðið mikið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.