Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1988, Page 7
MMMTOEIASaim DKSEMHEK/im!
f
Fréttir
Atvinnutryggingarsjóður:
Hafnar þrem
fyrirtækjum
- 150 á biðlista
Stjórn Atvinnutryggingarsjóðs af-
greiddi skuldbreytingarlán til átta
fyrirtækja á fundi sínum á þriðjudag.
Alls var fyrirtækjunum veitt lán að
andvirði um 90 milljónir auk þess
sem sjóður lét þeim í té skuldabréf
fyrir um 210 milljónum.
Á fundi stjómarinnar var þremur
fyrirtækjum hafnað um aðstoð og
tveimur umsóknum var frestað þar
til frekari gögn lægju fyrir.
Atvinnutryggingarsjóður hefur nú
veitt ellefu fyrirtækjum fyrir-
greiðslu, hafnað þremur og frestað
tveimur. Á biðlista eru síðan um 140
til 150 fyrirtæki sem sækja um fyrir-
greiðslu sjóðsins að andvirði rúm-
lega fimm milljarða. -gse
Akureyri:
Útsvar hækkar
á næsta ári
Gyffi Kiistjánsson, DV, Akureyri:
Á fundi bæjarstjórnar Akureyrar
sl. þriðjudag var samþykkt að út-
svarsprósenta yrði 7,2% í stað 6,7%
eins og er á þessu ári.
Ekki var eining um þessa ákvörð-
un. Fulltrúae Framsóknarflokksins
báru fram tillögu um 7% útsvar en
sú tillaga var felld. Fulltrúar Al-
þýðubandalags sátu hjá en meiri-
hluti bæjarstjómar, sem skipaður er
fulltrúum Sjálfstæðisflokks og Al-
þýðuflokks, stóð að samþykktinni.
Þá samþykkti fundurinn einnig að
fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði
yrði innheimtur án álags á næsta ári.
Löwenbrau bak
við lokaðar dyr
Gyffi Kristjánsson, DV, Akuieyri:
Framleiðsla á Löwenbrau bjór
hófst í gær hjá Sana á Akureyri og
voru bruggaðir 8 þúsund lítrar til
reynslu. Þýskur sérfræðingur stjórn-
ar þessari bruggun hjá Sana og mun
skýrast fyrir áramót hvernig til hef-
ur tekist.
Þegar bruggun á Löwenbrau bjórn-
um hófst mætti DV á staðinn. Bald-
vin Valdimarsson, framkvæmda-
stjóri Sana, sagði að engar mynda-
tökur yrðu leyfðar og Ragnar Birgis-
son, forstjóri Sanitas, staðfesti það.
Álafoss:
Engirfrekarisamn-
ingar við Rússa
Gyffi Kristjánsson, DV, Akureyri
Viðræður Jóns Sigurðarsonar, for-
stjóra Álafoss, við Sovétmenn i Sov-
étríkjunum í síðustu viku báru ekki
þann árangur að frekari samningar
um sölu á ullarvörum tækjust.
Jón kom til landsins um síðustu
helgi og mun hafa rætt við viðskipta-
vini Álafoss í Sovétríkjunum auk
þess að ræða við fulltrúa fyrirtækis-
ins Rosvnesthorg, en það fyrirtæki
hefur ekki áður keypt ullarvörur af
Álafoss. Viðræðum við Sovétmenn
verður haldið áfram og er vonast til
að þær beri árangur á næstu vikum.
Akureyri:
JólatréfráRanders
Gyffi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Ljós munu verða tendruð á jólatré
á Ráðhústorgi á Akureyri nk. laugar-
dag, en tré þetta er gjöf frá Randers,
vinabæ Akureyrar í Danmörku.
Við athöfnina verða flutt ávörp,
Hornaflokkur Tónlistarskóla og
Passíukórinn skemmta, jólasveinar
mæta og gengið verður í kringum
tréð sem er 12 metrar á hæð.
• PHILIPS- I f / jkj
Matvinnsluvélin. . BJp i iBIWWg
Hakkar, hnoðar, hrærir, blandar, skerog rífur.
Ómissandi tæki í eldhúsið. Fjöldi aukahluta.
• Philipshave rafmagnsrakvél
3 fljótandi 90 rifu rakhausar.
12 sjálfbrýnandi skurðarblöð.
Bartskeri. Vandaður kassi fylgir.
P*HF.UUkp°Smin OT fVM!l
hljómtækja-
samstæða. ---------------- -----------------—
Geislaspilari með lagaleitara og 20 laga minni.
Hálfsjálfvirkur reimdrifinn plötuspilari,
33 og 45 snúninga með keramískum tónhaus.
Stafrænn útvarpsmagnari með stöðvaleitara og 10
stöðva minni. Tvöfallt kassettutæki.
2X40 Watta magnari (Equalizer). Tveir 60 Watta
hátalarar.
Án geislaspilara: Verð kr. 29.400 - Stgr. kr. 27.930
•Útvarpsklukka.
AM/FM útvarp. ■' 'y
Innbyggt loftnet.
Vekjarastilling á útvarp eða hljóðmerki., fj
•FM steríóútvarp y; XTFll
með tvöföldu
kassettutæki. —•
16 Watta magnari. Stunga fyrir heyrnartól. Inn-
pwups
byggður hljóð-
nemi. Kjörin jóla-
gjöf fyrir
unglinginn.
•Gufustraujárn. I
Létt og handhægt. Breiður sjálfhreinsandi álsóli
með 35 gufuventlum. Nákvæmur hitastillir.
Vatnsmælir. 1800
cl. vatnsgeymir.
•Djúpsteikningarpottur. Djúpsteikir án gufu eða
lyktar. Gufu- og loftsíur má þvo. Tekur 2,251 af
olíu. Hitastilling með Ijósi. Sjálfhreinsandi.
•12 bolla kaffivél, pappírs filter. Mæliskeið,
vatnsmælir og hitaplata.
•Hárþurrka. L__^ I"*™. Jíllial!
Tvær hitastillingar. Lágvær og fer vel í hendi.
1500 Wött.
•Kraftmikiloglétt , fl h
ryksuga. Mikill í v)\ « ' /
sogkrafturen —w JWHIIII
hljóðlátur mótor. Fóthnappur, 6 m. löng snúra
Ljós sem gefur til kynna þegar pokinn er fullur.
Þessi er góð í jólahreingeminguna.
•Elnita 140 saumavélin. Einföld, sterk og ótrú-
lega fjölhæf. Saumar öll nauðsynlegu sporin.
Saumavélin fyrir þá sem bæta og laga
en eyða ekki öllum frítíma í saumaskap. Verðið
er eftir því.
•Sjálfvirk v
brauðrist. I
Stillir sig sjálf fyrir nýtt, frosið eða gamalt brauð.
Einangraðar hliðar sem hitna ekki.
Heimilistæki hf
Sætúni8 • Hafnarstræti 3 • Kringlunni
SÍMI: 69 15 15 SÍMI:6915 25 SÍMI:6915 20
(/có e/uvK/SueájyaH&yA í samuH^twt
•Gas-ferðakrullu-
járn. Þú getur {gMj
tekið það með þér
hvert sem er, hvenær sem er og það er fljótt að
hitna. Áfylling er venjulegt kveikjaragas.
Gott innlegg í nútímaþjóðfélag.
QIGITAL
aiGlTÁ!