Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1988, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1988, Blaðsíða 40
» :,»S FRÉTT ASKOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón- þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Augiýsingar - Áskrift - Dretfing: Sími 27022 Kambháfurinn í Eyjum: „Kraftaverk ef hann lifir“ 'Óraar Gardarsson, DV, Vestmannaeyjum: „Þaö er mjög af kambháfinum dregiö. Tilraunir að ná úr ho.num lofti mistókust og blóð kom í spraut- una, sem notuð var við aðgerðina. Greinilegt að honum blæðir inn- vortis. Það er kraftaverk ef hann lifir næsta sólarhring," sagði Kristján Egilsson. forstöðumaður fiskasafns- ins í Vestmannaeyjum, í samtali við DV í morgun. Kambháfurinn kom meö flugvél frá ísafirði til Vestmannaeyja með millilendingu í Reykjavík. Nátthrafn handtekinn Lögreglan í Reykjavík handtók mann í nótt. Maöurinn er grunaöur um að hafa ætlað að brjótast inn í kjallaraíbúð í Laugarneshverfi. Kona, sem býr í íbúðinni, vaknaði í nótt við að maður var kominn hálfa leið inn um glugga á íbúðinni. Maðurinn lagði á flótta en konan hafði samband við lögreglu. Lögregla "handtók drukk-inn mann skömmu síðar. Talið er fullvíst að það sé sá sami og reyndi að komast inn í íbúð- ina. Maöurinn gisti fangageymslur í nótt. ’ -sme ísafjöður: Bátur sótti slasaðan mann Daníel Sigmundsson, björgunar- bátur Slysavarnafélagsins á ísafirði, sótti í gær slasaðan sjómann um borð í Orra ÍS. Orri var staddur út af Hornvík er Daníel Sigmundsson kom á móts viö hann. Orri var á línuveiðum er einn skip- verja slasaðist á hendi. Ferðin til ísa- íjarðar gekk með ágætum - þó urðu tafir sökum veðurs. Vindur var tölu- verður og einnig var mikill sjór. -sme ÞR0STUR 68-50-60 VANIR MENN LOKI Enn eru þeir að, þessir hrafnar! Verður Húsnæðisstofiiun ríMsins peningalaus? Óvíst að staðið verði við útgetf in lánsloforð félagsmálaráðherra biður Seðlabankann um úttekt á spá Vinnuveitendasambandsins „Ef þessi áætlun Vinnuveitenda- sambandsins er rétt þá er búið að lofa meiru en Húsnæðisstofnun getur staðið við,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra en samkvæmt athugun hagdeildar VSÍ þá geta lífeyrissjóðirnir ekki stáðið við skuldbindingar sínar gagnvart Byggingasjóði. Er það vegna ofmats á ráðstöfunarfé þeirra. Vegna þess er gert ráð fyrir aö vanti um 1.100 milljónir króna á næsta ári og jafnvel eitthvað í ár. Jóhanna sagðist hafa falið Seöla- bankanum að skoða þessa útreikn- inga en frá honum eru komnar þær tölur sem byggt er á við fjárlaga- gerð. Jóhanna tók þó fram aö hún teldi bilið ekki vera eins stórt og VSÍ gerði ráð fyrir. „En ef fjármálaráðherra stendur við þann niðurskurð sem hann hefur þegar boðað þá er örugglega um gat að ræðasagði félagsmála- ráðherra en Ólafúr Ragnar hefur farið fram á 600 milljóna niður- skurð á framlagi ríkissjóðs til hús- næðissjóðanna. Einnig færði hann i tal minnkun á lánsheimild hús- næðissjóðanna hjá lífeyrissjóðun- um en í ljósi þessara nýju talna þá virðist sjálfgeíið að það gerist. Þá hefur ríkisstjómin ákveðið að verja 75 milljónum í desember og 75 milljónum í janúar til fólks í greiðsluerfiðleikum. Þetta eru aukafjárveitingar sém eiga að leysa vanda um 300 manna sem þurfa á greiðsluerfiðleikalánum að halda sem fyrst Þá sagði Jóhanna að enn væri óleyst hvernig yrði aflað þeirra 250 til 300 milljóna sem þarf í greiðsluerfiðleikalán á næsta ári. Félagsmálaráðherra játaöi að sjálMrkni í húsnæöiskerfinu gerði það að verkum að þegar væri búið að ráðstafa meira fé en stofnunin hefur til umráða. Hún sagðist ekki treysta sér til að segja til um laga- legar skyldur Húsnæðisstofnunar gagnvart þegar útgefnum lánslof- orðum. -SMJ Krakkarnir á barnaheimilinu að Flúðum á Akureyri kunna greinilega vel að meta snjóinn sem nú er kominn fyrir norðan. Snjóþoturnar voru teknar í notkun strax og snjórinn kom og það var líf og fjör í brekkunni við barnaheimilið. DV-mynd: GK Akureyri. Veðrið á morgun: Hvasst í suðvestan- áttinni Á morgun verður allsnörp suð- vestanátt um mestallt land, eink- um á Suðvesturlandi. É1 og slydduél verða vestanlands en bjartara annars staðar. Hitinn verður -5-3 stig. Hressó-kaffi: Öllum sagt upp Allir starfsmenn Hressó-kaffis fengu uppsagnarbréf fyrir síðustu mánaðamót. Munu uppsagnir þeirra taka gildi um áramót. „Þetta eru um 25 manns sem við urðum að segja upp,“ sagði Reynir Karlsson, annar eigenda Hressó- kaffis, við DV. „Ástæðan er sú að lít- ið er að gera á þessum árstíma, þ.e. janúar febrúar og mars. Við sjáum okkur því tilneydda til að fækka starfsfólki eitthvað, þótt það sé alltaf leiðinlegt að þurfa að segja fólki upp. Við munum að sjálfsögðu endurráða einhverja þeirra sem hafa fengið uppsagnarbréf. Hversu margir það verða get ég ekki sagt til um á þess- ari stundu.“ Aðspurður um hvort rétt væri áð veitingastaðurinn stæði tæpt og yrði ef til vill lokað, kvað Reynir svo alls ekki vera. „Það er enginn bilbugur á okkur, þrátt fyrir erfiða tíma,“ sagði hann. „En viö getum ekki verið með fólk í vinnu nema eitthvað sé fyrir það að gera. Því urðum við að fara þá leiðina að fækka starfsmönnum eitthvað.“ -JSS Skák í Belgrad: Margeir í öðru sæti Mageir Pétursson stórmeistari er í öðru sæti á sterku skákmóti í Júgó- slavíu með 3,5 vinninga eftir 4 um- ferðir. Helgi Olafsson stórmeistari er með þrjá vinninga og Jón L. Árnason 1,5. Einn í efsta sæti á mótinu er júgó- slavneski stórmeistarinn Holak með íjóra vinninga. Á annað hundrað skákmenn etja kappi á mótinu og koma 70 frá Sovét- ríkjunum. Að sögn Jóns L. Árnason- ar eiga þekktir kappar á borö við Romanishin og Dolamtov erfitt upp- dráttar og mörg óvænt úrslit hafa litið dagsins ljós. Telfdar verða 9 umferðir eftir Monradkerfi og lýkur mótinu í næstu viku. -pv

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.