Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1988, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1988, Blaðsíða 19
 Guðni Bergsson leikur ekki i þessari peysu á næstunni ef fer sem horfir. Hann mun líklegast klæðast hinni hvítu skyrtu Tottenham Hotspur. Venables vUI aö Guðni leiki gegn Milwall á laugardag: Guðni með tilboð frá Spws - liklega gengið frá samkomulagi 1 dag „Ég held að þetta sé orðið 99 pró- sent öruggt. Viö Terry Venables, framkvæmdastjóri Tottenham, héldum áfram viðræðum í dag og Tottenham gerði mér ákveðið til- boð sem mér lýst vel á. Heildar- myndin er sem sé komin og eins og staðan er þá býst ég við að frá þessu verði endanlega gengið á morgun (í dag).“ Þetta sagöi Guðni Bergsson, knattspyrnumaðurinn siyalli, í samtah við DV í nótt. „Samningurinn, sem nú er rædd- ur, er væntanlega til 3 til 4 ára og það er í raun það eina sem ég get sagt um samninginn að svo komnu máli,“ hélt Guðni áfram í samtal- inu. „Allt er þetta þó vitanlega háð því að ég fái atvinnuleyfi hér í Eng- landi en ég er með tímabundið leyfi fram í janúar. Ég má því spila með aðalliðinu á þeim tíma. Ráðamenn Tottenham vilja raunar að ég spili sem fyrst með aðalliðinu, spurðu hvort ég gæti hugsað mér að leika á laugardaginn en ég sagðist vilja komast í betra form áður en ég spilaði með liðinu," sagði Guðni. „Ég hef komist að samkomulagi við Val um þessi félagaskipti, en ég held að peningamir séu mitt einkamál," sagði Guðni Bergsson, aöspurður um hvernig máhn snem varðandi Val og peningahliðina. „Það má þó vitanlega allt eins búast við því að upphæðin verði gefin upp í blööunum héma úti en sá háttur er oft hafður á. Þaö verð- ur hins vegar bara að koma í ljós. Ég er annars mjög ánægður. Þetta er það sem allir knattspyrnumenn hljóta að stefna að, að komast út og reyna fyrir sér sem atvinnu- menn. Það er sjaldgæft aö leik- menn fái sitt fyrsta tækifæri með svona stóru félagi eins og Totten- ham og ég er því mjög ánægður með hvernig máhn hafa þróast," sagði Guðni. „Leeds er mitt lið í ensku knatt- spyrnunni," svaraði landsliðsmað- urinn íslenski þegar hann var spurður hvert væri félag hans í ensku deildarkeppninni. „Leeds hefur hins vegar ekki verið nógu sterkt síðustu árin og það er því kominn tími til að skipta," sagði Guðni sem nú er með annan fótinn á einum frægasta knattspymuvelh heims, White Hart Lane í Lundún- um. -JÖG Bayern áfram eftir sigur á Inter Milan - Bayem skoraði þrjú mörk á sex mínútum. Juventus og Napoli áfram Körfuknattleikur: Lands- liðið vann létt Ægir Már Kárason, DV. Suðumesjum; íslenska landsliðið í körfu- knattleik sigraöi úrvalslið leik- manna úr Flugleiðadeildinni í Keflavík í gærkvöldi með 71 stigi gegn 55. Leikurinn var í heild mjög slakur. íslenska landsliðið hafði mikla yfirburði í leiknum. í hálfleik var staðan 37-29 fyrir landshðið. Þetta var æfmgaleikur fyrir landsliðið sem tekur þátt í móti á Möltu í næstu viku en á leiðinni þangað leikur liðiö tvo leiki við ensk félagshð i London. Stigahæstir í landshðinu: Guð- mundur Bragason 14, Valur Ingi- mundarson 12, Tómas Holton 12, ívar Ásgrímsson 10. Stigahæstir í úrvalshðinu: Pálmar Sigurðs- spn 17, Helgi Rafnsson 10, Sturla Örlygsson 8. Leikinn dæmdu Gunnar Valgeirsson og Kristinn Albertsson. Sjö leikir voru í Evrópukeppni fé- lagshða (UEFA) í knattspyrnu í gær- kvöldi. Þetta vom síðari leikirnir og bar helst til tiðinda að Bayern Munchen gerði sér lítið fyrir og vann Inter Milan í Mílanó, 1-3, en fyrri leik liðanna vann Inter Milan, 2-0. Töldu margir að Bayem Munchen ætti ekki mikla möguleika gegn Inter Milan á útivehi en annað kom á dag- inn. Bayern gerði út um leikinn í fyrri hálfleik Leikmenn Bayern Munchen fóru á kostum í fyrri hálfleik og skoruðu öll mörkin á sex mínútna leikkafla. Roland Wohlfarth skoraði fyrsta markið á 33. mínútu. Fjórum mínút- um síðar skoraði Klaus Augenthaler annað mark Bayern með skalla og þriðja markið skoraði Jurgen Weg- mann. Við þriðja markið sló þögn á 75 þúsund áhorfendur á San Siro leikvanginum í Mílanó. Aldo Serena skoraði eina mark Inter Milan á síð- ustu mínútu fyrri hálfleik. ítalska liðið sótti án afláts í síðari hálfleik og fjórum sinnum varði Au- mann markvörður glæsilega frá Ser- ena. Bayern Munchen er því komið í átta liða úrslit keppninnar en Inter Milan er úr leik. Samanlögð marka- tala úr leikjunum tveimur er jöfn, 3-3, en Bayern kemst áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli. Juventus og Napoli áfram en Roma úr leik Tvö ítölsk félög komust áfram í átta liða úrslit. Napoli gerði markalaust jafntefli í viðureigninni gegn Borde- aux en Napoli kemst áfram því hðið vann fyrri leikinn í Frakklandi, 1-0. Juventus vann belgíska liðið FC Liege, 1-0, með marki frá Alessandro Altobelli en Juventus vann einnig fyrri leikinn með sömu markatölu. Roma tapaði óvænt fyrir austur- þýska hðinu Dynamo Dresden, 0-2, á heimavelh en fimm fastamenn vantaði í Roma. Austur-þýsku lands- liðsmennirnir Torsten Guetschow og Ulf Kirsten skoruðu mörk Austur- Þjóðverja. Samanlögð markatala, 4-0 fyrir Austur-Þjóðverja. Hearts, Real Sociedad og Victoria öll áfram Skoska hðið Hearts er komið í átta liða úrsht þrátt fyrir 1-2 ósigur gegn Velez í Júgóslavíu. Fyrri leikinn vann Hearts, 3-0, í Skotlandi og sá sigur fleytti liðinu áfram. Köln og spánska hðið Real Sociedad gerðu jafntefli, 2-2, í Köln. Spánska liðið vann fyrri leikinn, 1-0, og kemst áfram. Finnska liðið Turun Pahose- ura vann rúmenska liðið Victoria Bukarest, 3-2. Sá sigur nægði liðinu ekki því Victoria vann fyrri leikinn, 1-0, og kemst áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelh. -JKS Scifo m a förum Kristján Bemburg. DV, Belgiu; Enzo Scifo, belgíski landshðs- maðurinn í knattspymu, á nú í miklum vandræðum hjá franska félaginu Bordeaux. Þjálfari þessa fræga toppfélags, Claude Beoz, hefur sett hann á varamanna- bekkinn og tilkynnti hann frönskum blaöamönnum aö Scifo yröi að fara frá félaginu sem fyrst. Bordeaux er með Scifo á leigu frá Inter Milano á itahu, sem aft- ur keypti kappann á 135 milljónir frá Anderlecht í fyrra. Belgíska félagið hefur áhuga á aö fá hann aftur sín, en þá verður hann að lækka til muna kröfur sínar um árslaun, segir framkvæmdastjóri Anderlecht. Tahð er aö Scifo hafi einar 15-18 mihjónir króna í árs- laun en getum leitt að því að hann þyrfti að lækka sig niöur í sex með því aö fara til Anderlecht.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.