Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1988, Blaðsíða 18
18
FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1988.
Tippaðátólf__________
Jarðskjálfti hjá
Fylkistippurum
Mikill titringur var fyrir síðustu
helgi hjá tippurum því þá biðu
924.283 krónur í fyrsta vinningi eftir
eiganda. Salan var því mikil og seld-
ust 421.678 raðir fyrir 4.216.780 krón-
ur. Þrátt fyrir aUa þessa aukningu
tókst engum tippara aö ná öllum tólf
merkjunum á eina röð, því úrslitin
voru töluvert snúin. Sex tipparar
náðu 11 réttum og hlaut hver þeirra
101.202 krónur. Nú er potturinn orö-
inn þrefaldur og bíða 2.341.122 krón-
ur í fyrsta vinningi. Ekki minnkar
spennan á skjálftavaktinni og má
búast við að fyrsti vinningur rjúki
upp fyrir íjórar milljónirnar.
Söluaukningin skilaði sér best til
íþróttafélagsins Fylkis í Árbænum,
sem fékk að þessu sinni 38.936 raðir
í áheit og urðu Fylkismenn í efsta
sæti í fyrsta skipti í vetur. Það hafa
því verið miklar hræringar í Árbæn-
um fyrir helgina síðustu. Framarar,
sem hafa hingaö til verið efstir, fengu
33.711 raðir í áheit, KR 18.780 raðir,
ÍA 14.834 raöir og Valur í Reykjavík
14.481 röð. Áheit, um 70% seldra
raða, fóru til 135 íþróttafélaga á
landinu. Enn eru því 30% raðanna
án áheita.
Getraunahópum gekk mjög illa
þessa vikuna. Þeir sem náðu 10 rétt-
um þessa vikuna voru: ROZ, GUNN-
ERS, FYLKISVEN, SUNNAN4,
GILLI, TIPPIHF OG KOOLIE. Staða
efstu hópa eftir þrjár umferðir er sú
að ROZ er með 31 stig, GUNNERS
og FYLKISVEN eru með 30 stig og
BIS, TVB16, SUNNAN4, PST og
SLÉTTBAKUR með 29 stig.
David Speedie, hinn sókndjarfi mið-
vallarspilari Coventry, á eftir að
hrella vörn Manchester United á
laugardaginn í beinni útsendingu í
islenska ríkissjónvarpinu.
Tölvuval hefur minnkað
Þekking tippara á beinlínuget-
raunaseðlinum virðist hafa aukist
undanfarnar vikur, því hlutfall
tölvuvalsraða hefur minnkað úr 34%
fyrstu vikuna í 19% nú. Líkur á því
að fá 12 rétta á tölvuvali eru 1:
531.441, en líkur á 11 réttum eru
1:22.143. Um síðustu helgi fengu að
minnsta kosti tveir aðilar 11 rétta á
tölvuval í getraunum. í lottóinu eru
líkur á 5 réttum á tölvuvali 1:501.942,
en líkur á fjórum aðaltölum 1:3.042.
Ef miðað er við krónutölu þá breyt-
ast líkurnar getraunum í hag, því
hver röð í getraunum kostar 10 krón-
ur en 30 krónur í lottóinu. Líkurnar
í getraunum verða þá 1:177.147 , en
líkur á 11 réttum 1:7381.
Opni seðillinn
að ná undirtökunum
Tipparar nota opna seðilinn meira
nú en fyrst. 52% seldra raða nú voru
á opnum seðlum, en 40% fyrst. Einn-
ig virðast spamaðar- og útgangs-
merkjakerfm verða vinsælli með
hverri vikunni sem líður, því 17%
seldra raða voru á sparnaðar- eða
útgangsmerkjakerfum á laugardag-
inn var.
Vinsælasta kerfið virðist vera Ú
6-0-30. 140 aðilar notuðu það kerfi á
laúgardaginn síðasta. 107 aðilar not-
uðu S 7-0:36 kerfið, 81 aðili S 3-3-24,
38 aðilar Ú 5-3-128 kerfið. Fáir notuðu
stærstu útgangsmerkjakerfin, en
þau eru það stór að hvert eitt kerfi
skilar miklu.
E.J.
Getraunaspá
fjölmiðlanna
ro
— .52
c =
c >
_: ■= o
> £ £ :2. <u >.
qSkxlqcqcccoo)
o>
cö
«0
:Q
LEIKVIKA NR.: 49
Charlton .Q.P.R X 1 1 X 1 1 2 2 2
Coventry .Manch.Utd 2 2 2 1 X 1 1 2 2
Derby .Luton 1 1 1 1 . 1 1 1 X X
Middlesbro .Aston Villa 1 X X X 1 1 X 1 2
Newcastle .Wimbledon 1 1 X 1 2 X 1 1 1
Norwich .Arsenal X 1 X 2 2 2 1 2 1
Southampton .Nott.Forest X X X 1 1 1 X X 1
Tottenham .Millwall 1 1 1 2 X 1 1 1 X
West Ham .Sheff.Wed 2 2 1 1 X 1 1 2 1
Blackburn .Ipswich 1 1 1 1 1 1 2 X 1
Chelsea .Portsmouth 1 X 2 1 1 X 1 1 X
Leicester .Sunderland 1 1 1 X 2 1 X X 2
Hve margir réttir eftir 48 leikvikur: 32 23 25 28 18 25 26 22 27
^TIPPAÐ, ,
mmá A TOLF
Umsjón: Eiríkur Jónsson
Enska 1. deildin
L HEIMALEIKIR U J T Mörk U ÚTILEIKIR J T Mörk S
15 3 4 1 13-11 Norwich ... 5 1 1 12 -7 29
14 3 2 1 12 -7 Arsenal ... 5 1 2 20-10 27
14 5 1 1 15-7 Millwall ... 1 5 1 12-11 24
15 2 4 1 8-5 Liverpool ... 4 2 2 12-6 24
14 4 2 2 11 -6 Derby ... 2 3 1 7-5 23
15 3 2 2 10 -7 Coventry ... 3 3 2 8 -6 23
15 4 2 2 15 -9 Southampton ... 2 3 2 10-12 23
14 3 3 1 12 -6 Everton ... 3 1 3 7 -8 22
15 3 4 1 11 -6 Manch.Utd ... 1 5 1 8 -7 21
15 1 5 1 7 -9 Nott.Forest ... 3 4 1 12-10 21
14 3 2 2 7 -7 Sheff.Wed ... 2 3 2 7 -8 20
15 5 0 2 11 -7 Middlesbro ... 1 1 6 8-19 19
15 4 0 3 10-6 Q.P.R ... 1 3 4 6 -9 18
15 3 3 2 12 -9 Aston Villa ... 1 3 3 10-13 18
15 2 4 1 8-6 Luton ... 1 2 5 7-11 15
15 2 3 3 15-17 Tottenham ... 1 3 3 9 -11 15
15 1 3 4 9-16 Charlton ... 2 2 3 7-11 14
14 2 2 4 7-13 Wimbledon ... 1 2 3 7-11 13
15 1 2 4 9-15 West Ham ... 2 1 5 5-14 12
15 1 2 4 5 -9 Newcastle ... 1 2 5 4-18 10
Enska 2. deildin
HEIMALEIKIR UTILEIKIR
L U J T Mörk U J T Mörk S
19 6 1 2 19 -7 Watford ... 4 3 3 12-12 34
19 5 2 2 17 -8 Chelsea ... 4 4 2 16-11 33
19 6 1 2 19 -11 Blackburn ... 4 2 4 14-14 33
19 5 3 1 16 -11 Manch.City ... 4 3 3 8 -6 33
19 6 3 1 19 -7 Portsmouth ... 2 4 3 10-14 31
19 5 2 2 16-11 W.B.A ... 3 5 2 13-10 31
18 6 2 1 20 -6 Plymouth ... 2 2 5 8-19 28
19 4 2 4 15 -13 Ipswich ... 4 1 4 12-11 27
19 6 1 3 13 -6 Bournemouth ... 2 2 5 9-16 27
19 5 3 1 16 -8 Barnsley ... 2 3 5 9-18 27
19 5 3 2 15 -10 Stoke ... 2 3 4 6-15 27
19 4 3 2 13 -8 Leeds ... 2 5 3 9-11 26
19 4 4 1 11 -7 Leicester ... 2 4 4 12-19 26
18 5 4 1 17 -9 Crystal Pal ... 1 3 4 11 -16 25
19 4 6 0 16 -8 Sunderland ... 1 4 4 8-14 25
19 4 3 1 13 -7 Swindon ... 2 4 5 11 -20 25
20 4 5 1 14 -8 Hull ... 2 1 7 11 -23 24
20 5 3 3 21 -15 Oxford ... 1 2 6 9-16 23
19 3 5 2 11 -9 Bradford ... 2 3 4 9-12 23
19 4 5 1 21 -12 Oldham ... 1 2 6 9-18 22
19 4 1 4 14-11 Brighton ... 1 1 8 10-24 17
19 1 5 4 8-13 Shrewsbury ... 2 3 4 5-11 17
19 2 3 5 12-12 Walsall ... 0 5 4 7-15 14
18 2 2 5 10-16 Birmingham ... 1 2 6 5 -21 13
Kemst Arsenal á toppinn?
1 Charlton - QPR X
Charltonliðiö er í lægð um þessar mundir, hefur ekki uirnið
nema eirrn af síðustu rúu deildarleikjum sínum. Sóknin er
frekar slök sem sést á því að liðið hefur einungis skorað tvö
mörk í síðustu fimm leikjum. QPR er óútreiknanlegt lið. Lið-
ið hefur unnið fimm leiki, tapað sjö og gert þijú jafntefli.
Hér bætist fjórða jafnteflið vió.
2 Coventry - Manch. Utd 2
Leikur Coventry og Manchester United verður sýndur beint
í íslenska sjónvaipinu á laugardaginn og hefst hann klukkan
15. Bæöi lið eiga aðdáendur á Mandi og því verður mikil
spenna meðal áhorfenda. Manchester United hefur ekki tap-
að nema tveimur deildarleikjum í vetur en náð þeim ótrú-
lega árangri að gera níu jafntefli í 15 leikjum. Margir snjall-
ir leikmenn prýða liðið. United vann Charlton, 3-0, á laugar-
daginn var og er greinilega komið á skrið. Coventry hefur
náð þokkalegum árangri. Leikmennimir spila skemmtilega
og netta knattspymu en það nægir ekki að þessu sinni.
3 Derby - Luton 1
Derbyliðið hefur sprungið út í undanfömum leikjum, eða
síðan Dean Saunders var keyptur. Ekki hafa leikmenn tapað
í síðustu sjö leikjum sínum og skorað grimmt. Lutonliðið er
ekki eins sterkt og undanfarin ár. Sóknin hefúr bmgðist að
mestu leyti, enda hefur liðið ekki unnið nema þrjá leiki.
4 Middlesbro - Aston Villa I
Liðin eru bæði um miðja deild og hafa spjarað sig ágæt-
lega. Middlesbro hefur unnið fimm heimaleiki en tapað
tveimur. Aston Villa hefur einungis unnið einn leik á úti-
velli, gert þrjú jafntefli og tapað þremur. Markatala Aston
Villa er 22-22 eftir 15 leiki. Yfirleitt er gauragangurinn mik-
ffl þegar Villadrengimir em á ferðinni en að þessu sinni
verður liðið undir.
5 Newcastle - Wimbiedon 1
NewcasUe er neðst, hefur ekki unnið neinn af síðustu sex
leikjum sínum og reyndar ekki skorað mark í síðustu fimm
deildarleikjunum. Wimbledon er litlu ofar en Newcastle, er
í þriðja neðsta sæti með 13 stig en Newcastle er með 10
stig. Þama er um faUbaráttuleik aö ræða og sýnilegt að
ekkert verður gefið effir. Tveir leikmenn, Dave Beasant,
markvörður Newcastle, og Andy Thom miðvörður vom
keyptir til Newcastle frá Wimbledon í surnar og þeir sigra
gömlu félagana.
6 Norwich - Arsenal X
Arsenal hefur feeri á aö skjótast á toppinn með sigri á Nor-
wich. Liðin em töluvert ofar næstu liðum. Norwich hefur
spilað skemmtilega og árangursríka knattspymu í vetur og
lagt mörg stórliðin. Bæði liðin, Arsenal og Norwich, hafa
skorað mark í hverjum deildarleik til þessa. Það er því
ástæöa til að ætla að liðin skipti hlut.
7 Southampton - Nott. For. X
Leikmerui Southampton em sókndjarfir og hafa skorað 25
mörk í 15 leikjum til þessa. Skírisskógarpiltamir em ekki
eins markheppnir. Þeim hefur gengið illa að gera út um
leiki sína, hafa gert níu jafntefli í fimmtán leikjum. Hinir ungu
Skírisskógarpiltar em seigir og má búast við miklum sveifl-
um í þessum leik og mörgum mörkum.
8 Tottenham - Millwall 1
Tottenham er heldur að skána eftír hroðalega byrjun í
haust. Einungis eitt lið, West Ham, hefur fengið á sig fleiri
mörk, 29, en Tottenhamvömin hefur hleypt inn 28 mörkum
í 15 leikjum. Millwall tapaði öðrum deildarleik sínum í vetur
á laugardaginn. Það er oft erfitt að ná upp nægri baráthi í
næsta leik eftir tapleik og auk þess er Tottenhamliðið erfitt
heim að sækja á White Hart Lane.
9 West Ham - Sheff. Wed. 2
West Ham gerði góða hluti í síðustu viku er liðið vann Li-
verpool 4-1 heima og Millwall 0-1 úti. Slíkir sigrar hjá
West Ham koma ekki oft og endast ekki lengi. Sheffieldliðið
hefur ekki tapað nema fjórum leikjum í vetur. Leikmenn
liðsins eru miklir harðjaxlar. Vöm liðsins er góð, enda hef-
ur liðið einungis fengið á sig 15 mörk í 14 leikjum.
10 Blackbum - Ipswich 1
Blackbum er meðal efstu liða í 2. deild en Ipswich í sjöunda
sæti. Blackbum er erfitt heim að sækja, hefur unnið sex
leiki af níu og skorað 19 mörk í heimaleikjunum. Ipswich
hefur unnið f]óra leiki úti af níu en tapað |órum. Ipswich
hefur verið frekar slakt undanfarið, einungis unnið tvo leiki
af síðustu tíu leikjum sínum.
11 Chelsea - Portsmouth 1
Chelsealiðið er í mikilli uppsveiflu, hefur einungis tapað
einum af síðustu 13 deildarleikjum sínum og uruiið níu þess-
ara leikja. Portsmouth er einnig ofarlega, einungis munar
tveimur stigimt á liðunum. Meiri frískleiki einkennir Lund-
únaleikmennina sem hafa skorað 33 mörk í 19 leikjum. Ár-
angur Portsmouth á útivelli er frekar slakur og því eðlileg-
ast að spá heimaliðinu sigri.
12 Leicester - Sunderland 1
Einungis raunar einu stigi á þessum fomfrægu liðum sem
em um miðja deild þegar hér er komið sögu. Reyndar er
árangur Leicester á heimavelli spegilmynd af árangri Sund-
erland á útivelli. Leicester hefur unnið fjóra leiki, gert fjög-
ur jafntefli og tapað einum leik á meðan Sunderland hefur
unnið einn leik, gert fjögur jaffitefli og tapað fjórum leikjum.
Allar tölur benda til heimasigurs í þessum leik.