Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1988, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1988, Blaðsíða 15
FlMMTUDÁGUIt !8. I)ÉSÉMBER;,I988. lí1 „Siðbótar“ er á íslandi Svavar Gestsson menntamálaráöherra. - „Stendur vörð um sameigin legar eignir þjóðarinnar," segir greinarhöfundur m.a. Á aðventunni 1988 hriktir í stoðum íslensks efnahagslífs. Það er ekki uppörvandi að hlusta á all- ,ar þær hremmingar sem yfir þjóð- félagið ganga. Ekki er það vegna þess að veðrið leiki ekki við okkur, - nei, það er mannlífið sem allt vir,ðist gengið úr skorðum. Hvar er þín fomaldarfrægð? stendur í einu kvæðanna. Hvar er nú sú þjóð sem mest hefur státað af dugnaði og siðferðislegu þreki? Fjölmiðlamir senda nú út hveija fréttina á fætur annarri um sið- spillingu æðstu embættismanna þjóðarinnar þar sem brennivínið spilar aðalhlutverkið. Bankarnir hafa á undanfomum árum hrifsað til sín milljarðatugi frá einstaklingum og atvinnufyrir- tækjum svo að allt atvinnulíf stendur á barmi gjaldþrots. - Jafn- vel innan læknastéttarinnar ber á því að sjúkhngar séu notaðir í auðgunarskyni, þar sem verið er að hagræða útskrift reikninganna. Þeir aðilar, sem hafa þá aðstöðu að geta skammtað sér launin, hafa á undanfórnum árum verið svo frekir til fjárins að það gengur út yfir allt velsæmi. Siðlaust háttemi Svona væri hægt að telja upp endalaust þau einkenni sem hvar- vetna blasá við í mannlífinu á ís- landi nú. Hinn almenni launamað- ur horfir upp á þetta siðlausa hátt- erni sem við blasir og stendur al- gjörlega ráðþrota. Sennilega stafar það af því að maðurinn á götunni var búinn að gera sér grein fyrir þessu öllu í nokkuð langan tíma að svona væri hlutunum háttað í þjóðfélaginu en hefur sennilega ekki viljað trúa því fyrr en í lengstu KjaHarinn Karvel Pálmason alþingismaður lög - að þeir sem kjörnir hafa verið til þess að stjóma málum þjóðfé- lagsins stæðu ekki betur í stykk- inu. Fólk almennt hefur haft þá trú að þeir sem gegndu æðstu embætt- um meðal þjóðarinnar væm þann- ig úr garði gerðir að þeim mætti treysta til þess aö leiöa þjóðfélagið fram eftir veginum svo að til heilla horfði. Sem bétur fer eru ekki allir hér á sama báti - flestir sem við stjórnun fást hafa í heiðri þau siö- ferðis- og drengskaparsjónarmið sem í gildi eiga að vera meðal sið- menntaðrar þjóðar. Það er því mikið vandaverk sem núverandi ríkisstjórn og þá um leið þeir þingmenn, sem styðja þessa stjóm, hafa með höndum. Verkefni ríkisstjómarinnar er ekki einungis það að rétta við efnahaginn og forða þjóðinni frá atvinnuleysi - heldur líka það og ekki síður að koma á almennri „siðbót“ meðal þeirra sem vahst hafa til þess að gegna hinum ýmsu trúnaðarstörf- um úti í þjóðfélaginu. Það sagði við mig fyrir nokkrum dögum aldinn vinur minn að það væri engin furða þó að íslendingar væra hættir að sækja kirkjur því þar væri stöðugt verið að áminna fólk um rétta breytni. Það væri þann veg komið fyrir mörgum mönnunum í „æðri“ stéttum að þeir hreinlega þyldu ekki að hlýða á hinn hreina sannleika sem þar væri boðaður. Ekki viðunandi Að þessu öhu framansögðu gera félagshyggjumenn á íslandi þá kröfu til ríkisstjórnarinnar og þeirra þingmanna sem hana styðja að samhugur ríki milli manna. Það er gjörsamlega óviðunandi að ein- stakir stuðningsmenn ríkisstjórn- arinnar séu að gera sér leik að því að vera með ótímabærar kröfur sem aftur leiða til þess að samstað- an, sem myndaðist um þessa ríkis- stjórn, á það á hættu að rofna. Að stjórnarþingmenn séu í tíma og ótíma að troða sér fram í fjöl- miölum af minnsta thefni, í því augnamiði einu að koma sjálfum sér á framfæri, gengur bara ekki við ríkjandi ástand. Svo mikið hafa t.a.m. launþegasamtökin.lagt undir að það er eftir því tekið hvaða þing- menn haga sér á þennan hátt. Rik- isstjórnin stendur svo tæpt í þing- inu að það er ekki viðunandi að einstakir stjórnarþingmenn séu æ ofan i í að gera sér leik að því að ijúfa samstöðuna. Hugsjónir eru ekki hátt skrifaðar nú. En þeir sem hafa valið þá leiö í stjómmálabaráttunni að fylkja sér undir merki jafnréttis og bræðralags ættu öllum öðrum fremur að vera sér þess meðvitandi hvemig haga beri málflutningi og starfsaðferðum. Ég þykist þess full- viss að ahir núverandi ráðherrar séu meðvitaðir um það sem að framan greinir. Þjóðin hefur orðið vitni að þessu, sbr. starfsaðferðir forsætisráðherra og menntamála- ráðherra. Alþýðuflokksráðherrana tala ég ekki um þvi það myndi hljóma einkennilega frá sam- flokksmanni. En fullyrði samt að þeir gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að ná fram hug- sjónum Alþýðuflokksins. Ég talaöi um hugsjónir. Talandi tákn um það er núverandi mennta- málaráðherra, Svavar Gestsson. Það vekur athygh hvernig hann tekur á þeim málaflokkum sem undir hann heyra. Hvernig hann stendur vörð um sameiginlegar eignir þjóðarinnar og vih efla þær á alla lund. Þar ber t.a.m. að nefna endurreisn Ríkisútvarpsins og Þjóðleikhússins. Hér eru táknræn dæmi um hugsjónastarf sem allir kunna að meta. Því skulu menn fara að gera sér grein fyrir þvi að stjómmál eru hugsjónastarf, þjónusta, - ekki eig- inhagsmunapot og sjálfsupphafn- ing. Karvel Pálmason „Svo mikið hafa t.a.m. launþegasam- tökin lagt undir að það er eftir því tek- ið hvaða þingmenn haga sér á þennan hátt.“ Lýðræðisbót á sveit- arstjómarlögum Það er í sjálfu sér ekki góður kostur, en skapast hins vegar oft af hlri nauðsyn, að setja lög um ýmsa hluti. Auðvitað væri betra ef aðeins þyrfti að lögfesta fátt en sið- ferðisvitund manna látin um að útkljá annað. Líklega er það af einhverri slíkri óskhyggju, einhverri draumsýn um siðferðisvitund stjórnmála- manna, að aldrei hafa verið sett í íslensk sveitarstjórnarlög nein ákvæöi um atkvæðagreiðslur um tiltekin málefni, ef kjósendur óska þess. Hins vegar ætti enginn að þurfa aö efast um það lengur að shkra ákvæða er brýn þörf á ís- landi eins og annars staðar, það hafa yfirvöld stærsta sveitarfélags landsins tekið að sér að sanna með eftirminnilegum hætti á síðustu misserum. Kosningar ef tíu prósent kjósenda óska þess Hér í Vestur-Þýskalandi eru í gildi skýr lög um rétt kjósenda til að fara fram á atkvæðagreiðslu um tiítekin málefni. Reglan er þessi: Ef tíu af hundraði atkvæðisbærra manna óska skriflega eftir því að kosið sé um tiltekið málefni þá verður kosning að fara fram. Ástæðurnar fyrir þessari reglu eru einfaldar. Tahð er sjálfsagt aö Kjallariim Einar Heimisson kosnu leiötoga, ef þeir sjá ástæðu th, utan venjulegra sveitarstjórn- arkosninga. Þettaer nokkurs kon- ar vamagh kjósendanna sem þeir geta gripið til ef þeim líka ekki at- hafnir þeirra manna sem þeir hafa kosið yfir sig. Slíkt getur gerst, eins og gengur. í rauninni felst í því undarleg hugsanaskekkja að hinir kjörnu leiötogar séu sömuleiðis þeir einu sem geta farið fram á atkvæða- greiðslu um eitthvert tiltekið mál- efni. Ekkert tryggir að það séu sömu málefnin og þegnarnir vilja kjósa um. Það er augljóslega rangt að mað- ur, sem framkvæmir eitthvert til- tekið verk fyrir aðra, geti ráðið því sjálfur hvort á það sé lagður dómur eða ekki. Það tíðkast sömuleiðis ekki í skólum að menn ráði því háskólanemi, Vestur-Þýskalandi „Ef tíu af hundraði atkvæöisbæra manna óska skriflega eftir því aö kosiö sé um tiltekið málefni þá verður kosn- ing aö fara fram.“ kjósendur hafi möguleika á að hafa sjálfir hvort þeir taki próf eða ekki áhrif á stjómarathafnir hinna ef þeir hyggjast halda þar áfram „Hér í Vestur-Þýskalandi eru i gildi skýr lög um rétt kjósenda," segir m.a. í greininni. námi. Kosningar eru auðvitað ekk- ert annað en nokkurs konar lýð- ræðispróf sem menn falla á eða standast. Það er augljóslega rangt að menn ráði því sjálfir hvort ein- stök verk þeirra hljóti dóm kjós- enda eða ekki, - hvort þeir mæti í lýðræðisprófið eða skrópi í því. Ráðhús og hundar Auövitað era það dæmin sem sýna að lýðræðisbótar sé þörf á ís- lenskum sveitarstjórnarlögum. Þær undarlegu uppákomur, sem orðiö hafa í stærsta sveitarfélagi landsins á síðustu missirum, ættu að vera næg sönnun þess. Þar hafa ráðamenn tekið að sér að sanna með svo eftirminnilegum hætti, að tæpast verður betur eða skýrar gert, að það er barnalegt að trúa því að engra reglna um aukakosn- ingar sé þörf. Augljóst var að Reykvíkingar vildu að kosið yrði um ráðhús og langt yfir tíu prósent atkvæðis- bærra manna skrifuðu undir áskorun þess efnis. Borgarbúar höfðu hins vegar engan áhuga á því að kjósa um hunda eins og kjör- sóknin í þeirri atkvæðagreiðslu sýndi. Betri sönnun þess að setja verði reglur um kosningar, eins og hér í Vestur-Þýskalandi, er ekki til og verður ugglaust aldrei til. Ástæðulaust er að ætla að reglur um kosningar um tiltekin málefni verði ofnotaðar og þess vegna óframkvæmanlegar. Hér í Vestur- Þýskalandi sýna dæmin að shkar kosningar eru fremur sjaldgæfar. Það, hve slíkar kosningar eru sjald- gæfar, sýnir hins vegar hve mikil- væg þau málefni era sem menn sjá ástæðu til að kjósa um. Og þess vegna er það brýnt að ákvæði um kosningar séu skýr. Menn ættu ekki að þurfa að velkjast í vafa um það lengur. Sönnunin er fyrir hendi, - þökk sé yfirmönnum Rey kj avíkurborgar. Einar Heimisson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.