Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1988, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1988, Síða 17
 31 17 Lesendur Frá kvikmyndahátíðinni i Berlín 27. nóv. sl. - Italski leikarinn Marcello Mastroianni tekur við verðlaunum úr hendi landa síns, Giuletta Masina. Evrópsku kvlkmyndaverölauiiin: Ómerkileg hátíð F.R. hringdi: Hátíðardagskrá í beinni útsend- ingu frá Berlin í tilefni verðlaunaf- hendingar evrópsku kvikmynda- verðlaunanna hét þetta fyrirbæri sem sýnt var í Sjónvarpinu á dögun- um. Tll þessara verðlauna var stofn- að af Evrópubandalagi útvarps- og sjónvarpsstööva og eru þau veitt í fyrsta skipti í ár. Þessi kvikmyndahátíð stendur að sjálfsögðu langt að baki hinni amer- ísku óskarsverðlaunahátíð sem er orðin kunn um allan heim og haldin árlega í Hollywood. - En við hveiju bjóst fólk? Á þessari Evrópuhátíð kvikmynda- verðlauna var mikið um mistök í framkvæmd, röng umslög aíhent, taugaveiklun áberandi, of mikið mál- æði - og það sem verst var, tungu- málaerfiðleikar háðu öllum þátttak- endum og verðlaunahöfum verulega. En auðvitað var enskan þrautalend- ingin eins og ávallt áður. Og þótt sumir haldi að svona verð- launahátíð sé mikil „menningarhá- tíð“ og þama eigi að mæla fram setn- ingar með samanbitnar varir og al- vörasvip, eins og gert var þarna, þá er þetta fyrst og fremst „show“ og hefur aldrei verið annað en góð af- þreyingarstund. Þannig gera þeir þetta í Hollywood og því tekst það vel þar. Þar sem flestallir skilja ensku nú- orðið er algjör óþarfi að eyðileggja svona sjónvarpssendingar með því að vera með sérstakan mann til að þýða, jafnvel þótt hann sé „okkar maður í Þýskalandi". Það má hins vegar segia honum til hróss að hann var mjög tillitssamur við okkur áhorfendur og talaði a.m.k. ekki al- veg ofan í það sem verið var að segja hveiju sinni. í guðanna bænum hættið svo að þýða erlendar myndir með innátah það er afar hvimleitt. Skrifaður texti er mun betri, við er- um vön honum og viljum ekki aðra aðferð. ÓDÝRA LAMBAKJÖTIÐ Kjötfars Svínaskrokka laútaha, mdabjug Fullt hús matar***! Meiriháttar stefnumót er um Svenna, 15 ára Akurnesing. Hann er hrifinn af tveimur stelpum, sem báöar sýna honum áhuga. Hvora þeirra á hann aö velja? Meiriháttar stefnumót er 7. unglingabók metsöluhöfundarins Eövarös Ingólfssonar, höfundar „Fimmtán ára á föstu“, „Sextán ára í sarnbúö", „Pottþétts vinar“ o.fl. pottþéttra unglingabóka. Meiriháttar stefnumót er fjörlega sögö og skemmtileg saga, sem vekur lesandann jafnframt til umhugsunar um lífið og tilveruna. Meiriháttar stefnumót — Meiriháttar unglingabók! 'i, l"!"' WSttiM§il

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.