Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1988, Page 21
FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1988.
1 fram hjá landsliðsmanninum Þorgils Óttari Mathiesen. Sá síðartaldi tekur ekki lítið á til
tnum. DV-mynd Brynjar Gauti
nar gengu í
alsmönnum
íu í lokin og unnu FH, 30-25
„Það varð allt til þess að hjálpa okkur í
lokin - þeir misstu mann út af og við náðum
hraðaupphlaupum. En svona er handbolt-
inn og þeir voru líka heppnir í fyrri hálf-
leik, skoruðu þá ódýr mörk. Varnarleikur
okkar var alls ekki nógu góður, það hafa
verið of miklar tilraunir og tilfærslur þar
aö undanfórnu og það hefur bitnað á gæð-
unum. Það er gott að vera búinn með þenn-
an leik og það má segja að nú höfum við
fyrst fengið reglulega mótspyrnu,“ sagði
Geir Sveinsson, fyrirhöi Vals, í samtali við
DV eftir leikinn.
„Ég er ánægður með leik FH en heilladís-
imar voru ekki með okkur í lokin - Vals-
menn voru þá mjög heppnir og lokatölurn-
ar segja ekkert um leikinn. Það er ljóst að
við verðum ekki íslandsmeistarar úr þessu,
Valur tapar aldrei (jórum leikjum, en við
gefumst ekki upp og í seinni umferðinni
eigum við marga lykilleiki á heimavelli
þannig að allt getur enn gerst," sagði Viggó
Sigurðsson, þjálfari FH-inga.
Leikurinn á Hlíðarenda var stórskemmti-
legur og spennan kraumaði á þétt setnum
áhorfendapöllunum lengst af. Jafnt var á
öllum tölum í fyrri hálfleik, liðin yfir til
skiptis og 13-13 í hléi. Fyrst munaði tveim-
ur mörkum þegar Valur komst í 18-16 en
FH svaraði með því að komast í 20-22 og
21-23 en lokakafhnn var eins og áður hefur
verið lýst. FH-ingar gerðu sig þá seka um
slæm mistök, Guðjón Árnason var rekinn
út af fyrir rövl og boltanum var tapað ódýrt
í hendur Valsmönnum. Óheppnin var hka
mikil þegar tveir þrumufleygar í röð frá
Héðni Gilssyni glumdu í markstöngum
Vals og Hlíðarendaliðið skoraði úr hrað-
aupphlaupum í kjölfariö.
Þeir Júhus Jónasson og Héðinn Gilsson
léku stórkostlega með liðum sínum og eiga
báðir fullt erindi í b-keppnina með landslið-
inu, ásamt Valdimar Grímssyni sem átti
mjög góðan leik í hægra horninu hjá Val.
Sigurður Sveinsson vaknaði í seinni hálf-
leik eftir að hafa verið mjög mistækur í
þeim fyrri og Einar varði sinn skerf í mark-
inu. Hjá FH var Héðinn yfirburðamaður,
Guðjón lék vel og Óskar Ármannsson kom
á óvart í nýrri stöðu sem hornamaður
vinstra megin.
Mörk Vals: Valdimar Grímsson 8/2, Júl-
íus Jónasson 7/1, Sigurður Sveinsson 6, Jón
Kristjánsson 5, Jakob Sigurðsson 3, Geir
Sveinsson 1.
Mörk FH: Héðinn Gilsson 9, Óskar Ár-
mannsson 8/4, Guðjón Árnason 4, Óskar
Helgason 3, Þorgils Óttar Mathiesen 1.
Dómgæsla Ólafs Haraldssonar og Stefáns
Arnaldssonar var alls ekki gallalaus en
þeir höfðu mjög örugg tök á erfiðum leik.
-VS
-------------
KR fylgir Val sem skugginn:
Blikar
engin
hindrun
- KR-ingum sem halda áfram sigurgöngunni
Bhkar veittu litla mótspyrnu er
þeir mættu KR-ingum í Digranesi í
gærkvöldi. Vesturbæingar höfðu
ráðin frá upphafi og var sigur þeirra
aldrei í hættu þótt barátta færi nokk-
uð vaxandi í hði heimamanna allra
síðustu mínúturnar.
Lokatölur urðu 23-26 en bilið milli
hðanna var jafnan stærra í leiknum
og í leikhléi var staðan 10-14.
Alfreð Gíslason átti fyrsta orðið í
slag liðanna og ruddi þá braut sem
Vesturbæingarnir fylgdu en Stefán
Kristjánsson var þeirra atkvæða-
mestur.
Hann átti þokkalega spretti á svip-
aðan hátt og Guðmundur Albertsson
sem þó var mistækur þrátt fyrir
mörkin sín sex. Enginn var betri á
velhnum en markvörðurinn, Leifur
Dagfinnsson, sem varði 19 skot á
sama tíma og markverðir Bhkanna
uppskáru fremur lítið.
Ef á heildina er litiö var þessi leik-
ur annars rislítill þótt nokkur
spennugustur næddi um menn á
lokamínútunum. Þá breyttu Blikar
stöðunni úr 20-24 í 22-24 en höfðu
ekki burði til að láta kné fylgja kviði.
Að vanda var Hans Guðmundsson
atkvæðamestur í liði Breiðabliks,
skoraði grimmt jafnhliöa því sem
aðrir í liðinu sýndu lítið. Sérstaklega
voru hornamennirnir óvenju slapp-
ir, þeir Ólafur Björnsson og Þórður
Davíðsson. Þá komst Jón Þórir Jóns-
son, sem oft hefur verið kvikastur í
liðinu, aldrei í takt við leikinn á þeim
fáu mínútum sem hann spilaði.
Mörk Breiðabliks: Hans Guð-
mundsson 10, Andrés Magnússon 4,
Kristján Halldórsson 3, Jón Þórir
Jónsson 4/4, Sveinn Bragason 2.
Guðmundur Hrafnkelsson og Þórir
Sigurgeirsson vörðu 5 skot hvor.
Mörk KR: Stefán Kristjánsson 8/2,
Guðmundur Albertsson 6, Konráð
Olavsson 4, Alfreð Gíslason 3, Páll
Ólafsson 2, Páll Ólafsson (yngri) 2,
Sigurður Sveinsson 1.
Leifur Dagfmnsson varði 19 skot
þarafeittvíti. JÖG
fþróttir
Létl
hjá
Fram
Fram átti ekki í vandræðum
með sigur á FH-liðinu í gær-
í kvöldi. Það var aðeins í byijun
leiksins sem FH veitti einhverja
mótspyrnu en svo voru það hrað-
aupphlaupin hjá Fram sem geröu
útslagið og var staðan í hálfleik
10-5 fyrir Fram. Síðari hálfleik-
urinn var aðeins jafnari en FH-
liðið náði þó aldrei að jafna og
sigraði Fram, 20-15. Arna Steins-
en átti ágætan leik fyrir Fram og
nýtti færin sín vel. Einnig varði
Kolbrún vel í markinu. FH-liðið
var ekki gott og var mikið um
mistök hjá þvi.
Mörk Fram: Ama 6, Ósk 4,
Margrét 3, Hafdís og Ingunn 2
mörk hvor, Guðríður, Jóhanna
og Sigrún 1 mark hver.
Mörk FH; Eva 5, Heiða og Rut
3 mörk hvor, Ingibjörg 2, María
og Kristín 1 mark hvor.
ÁS/EL
ís
vann HK
Einn leikur fór fram í 1. deild
karla á íslandsmótinu í blaki í
gærkvöldi. Það voru ÍS-ingar og
HK-menn sem áttust við í Haga-
skóla. HK byrjaði betur og sigraði
í fyrstu hrinunni, 15-11. ÍS-ingar
komu svo mun ákveðnari til leiks
í annarri hrinu, komust í 10-0 og
unnu hana, 15-7. Þeir urniu einn-
ig þriðju og fjórðu hrinu, báðar
15-11, og tók leikurinn 83 mínút-
ur. Bestir hjá Is vora þeir Friðjón
Bjamason og Þorvarður Sigfús-
son. Hjá HK var hins vegar eins
og alla leikgleði vantaði og því
náðu menn sér ekki á strik.
-B
t l.deild
stadan
Valur.......8 8 . 0 0 250-183 16
KR..........8 8 0 0 212-178 16
Stjaman.....8 5 0 3 179-164 10
KA..........8 4 0 4 183-180 8
FH..........8 4 0 4 233-225 8
Víkingur....8 3 1 4 212-226 7
Grótta......8 2 1 5 165-183 5
Fram........8 1 3 4 171-199 5
ÍBV.........8 1 1 6 160-190 3
UBK.........8 1 0 7 167-204 2
Valur-FH..............30-25
Fram - Víkingur.......29-29
Stjaman - Grótta......24-19
KA-ÍBV................24-19
UBK-KR................23-26
l.deild
^ staðan
\ írslit
Valur - Haukar 12-22
Fram-Fi ff... 20-15
Staðan
Fram... ....6 6 0 0 128-65 12
Víkingur ....5 4 0 1 99-73 8
FH 3 0 1 64-63 6
Haukar.. ....5 2 1 2 88-91 5
Valur 203 74-80 4
Stjaman. ....£ 1 1 3 98-84 3
Þór A...... ....f 1 0 5 80-119 2
ÍBV. 1 0 5 71-127 2
Stefán Kristjánsson var atkvæðamestur í liði KR í gær er það lagði Breiða-
blik að velli, 23-26. Þarna reynir Þórður Daviðsson að stöðva kappann.
DV-mynd Brynjar Gauti
Enn tapa Valsstúlkur
Valsliðið var ekki sannfærandi í leik sínum á móti Haukum í gærkvöldi.
Haukaliðið tók völdin strax í sínar hendur og komst í 4-1 eftir 8 mínútur
og tókst að halda forystunni út allan leikinn. Staðan í hálfleik var 12-8, Hauk-
um vil. Haukaliðið jók forystuna enn meir í síðari hálfleik og vann leikinn
með 10 marka mun, 22-12. Margrét í Haukum var tekin úr umferð allan leik-
inn en við það opnaðist vörn Vals mikiö og Hrafnhildur reyndist erfið i sókn-
inni. Sólveig í Haukamarkinu varði vel á köflum og meðal annars 5 vítaköst.
Mörk Vals: Katrín 4, Erna 2, Guðrún, Steinunn, Kristín, Kristín Anna,
Asta og Una Steindórsdóttir eitt mark hver.
Mörk Hauka: Hrafnhildur 8, Margrét 6, Ragnheiður 3, Brynhildur H. 2,
Steinunn, Þórunn og Elva, eitt mark hver.