Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1989, Qupperneq 30
MIÐVIKUDAGUR' 15. MARS 1989.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Cher
ætlar aö feta í fótspor Eltons John
sem um daginn hélt uppboð á
gleraugum, fotum og alls konar
hlutum sem safnast höföu saman
hjá honum. Cher hefur ekkl not-
að gleraugu en á löngum söng-
ferli hefur safnast fyrir mikið af
sviðsfötum sem hún hefur haldið
til haga. Ástæðuna fyrir upp-
boðinu segir hún eingöngu vera
að rýma til á heimili sínu.
Sýning SÚM-ara á Kjarvalsstöðum:
Iistaverk eða furðuhlutii?
Það heyrðust mörg andvörpin frá
opnunargestum á yfirlitssýningu
SÚM-hópsins á laugardaginn, enda
engin furða. Mörg verkanna, sem eru
öll frá 1965-1972, eru ekki beint í
anda þess sem flokkast undir list.
Á sýningunni eru um það bil eitt
hundrað verk eftir fimmtán lista-
menn er voru hluti SÚM. Listamenn
sem á sínum tíma boðuðu nýja list
þar sem hefðbundin list var látin
lönd og leið og hugmyndafluginu
sleppt lausu.
Það eru margir sem minnast þess
að á sínum tíma ollu listaverkin deil-
um og hneykslun margra. í dag vekja
verkin athygli og skemmtun og
minna á skemmtilegan tíma í menn-
ingarlífi þjóðarinnar.
Á myndunum hér á síðunni eru
nokkur sérkennileg verk og má sjá
viðbrögð áhorfenda sem voru mis-
jöfn. -HK
Sjálfsagt eru konur þessar aö hugsa
hvort Ijós sem þetta myndi auðvelda
þeim vinnuna við að strauja.
Hrúgan heitir þetta verk eftir Kristján
Guðmundsson. Og ætti engan aö
undra þótt margir hafi sett upp furðu-
og undrunasvip fyrir framan verkið.
Það hlýtur að vera í lagi að snerta, þetta er bara hey, gæti konan á mynd-
inni verið að hugsa. Sigurður Guðmundsson á heiðgrinn af þessu verki
sem hann hefur nefnt A Nice Girl And A Boy.
Stjörnur af himnum fallnar heitir þetta verk eftir Þórð Ben Sveinsson. Eins
og sjá má eru þetta kartöflur og gerðu margir stutt stopp við kartöflurnar
og hugsuðu stift. DV-myndir: GVA.
Þessum litla dreng líst örugglega
vel á kálfinn og skilur sjálfsagt ekki
hvernig hann fer að því að vera allt-
af í sömu sporum. Annars heitir
verkið Góðan daginn, Góðan daginn
og er eftir Þórð Ben Sveinsson.
Hjörtur Hjálmarsson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri, flytur gamanmál á
þorrablótinu. DV-mynd Reynir
Flateyri:
Reynir Tiaustason, DV, Flateyri:
Stútungur, árlegt þorrablót Flat-
eyringa, var haldið í febrúar aö
venju. Þar mætti fjöldi manns til
aö gera sér glaöan dag. Stútungur
var aö þessu sinnl haldinn f 55. sinn
og má geta þess að nafiigiftin vísar
til stórfisKjar. Hér áður voru haldn-
ar þrjár samhangandi háflðir, það
er „Stútungur" fýrir hjónafólk og
húseigendur, „Bútungur" fyrir
einhleypa, 16 ára og eldri, og „síla-
ball“ fyrir börnin.
Nú er Bútungur aflagöur en síla-
ball og Stútungur árvissir við-
buröir, sem fáir láta framhjá sér
fara.
AHICEGIRL
ANDAgQy
J
Sean
Connery
hefur fengið skipun frá lækni sín-
um um að þegja í óákveöinn tíma.
Leikarinn frægi, sem er orðinn
58 ára gamall, hefur undanfarið
veriö við tökur á kvikmyndinni
Family Business. Þar leikur hann
fóður Dustins Hoffman og hlut-
verk hans kallar á mikil öskur
og rifrildi og er greinilegt að álag-
ið hefur veriö of mikið fyrir radd-
böndin.
Boy George
hefur ákveðið að taka tíma í
sjálfsvamarlist. Ástæðan er að
ráðist var á hann fyrir stuttu fyr-
ir utan upptökustúdíó þar sem
hann er aö vinna að plötu. Þrír
menn réðust á hann og rændu
hann úri, skartgripum og pening-
um. Ekki nóg með það heldur
skildu þeir við hann í blóði sínu
á götunni.
Tveir listunnendur af eldri kynslóðinni, Guðmundur Árnason og Þorvaldur
Guðmundsson. Guðmundur er faðir Sigurðar og Kristjáns sem eru meðal
þeirra er sýna á yfirlitssýningunni.
Skilur þú þetta, gæti stúlkan verið
að segja við manninn gegnt sér.
Verkið heitir Handhæga settið og
er eftir Magnús Tómasson. Verkið
samanstendur af skjalatösku, þyrn-
um og nöglum.
Kona þessi starir athugulum augum
á gamalt útvarp og hrífu. Verk þetta
heitir annars Stöð A og er eftir Sig-
urð Guðmundsson.