Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1989, Side 9
FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 1989.
9
Útlönd
Fjölskylda { Beirút notar tœkifaerið þegar hlé er á bardögunum til aö
fara meö dýnur í loftvarnabyrgi.
Símamynd Rsuter
Enn er skipst á skotum í Beirút þrátt fyrir vopnahléð sem samþykkt
var fyrir milligöngu sendinefndar Arababandalagsins.
Herforingjar kristinna sökuðu Sýrlendinga og bandamenn þeirra mn
að hafa rofiö vopnahléð og í útvarpsstöðvum múhameðstrúarmanna í
vesturhluta Beirút var sagt að menn Aouns, leiðtoga kristinna, hetðu
hafið skothríðina í gær.
íbúar borgarinnar, sem margjr voru nýkomnir úr loftvamabyrgjum
eftir þriggja vikna dvöl þar, þustu óttaslegnir í byrgin á ný.
Franska utanríkisráðuneytið greindi frá því í gær að frönsk yfirvöld
hefðu sent tvö skip til Líbanon með hjálpargögn handa borgurum lands-
ins. Ákvörðun Frakka var tilkynnt samtímis því sem utanríkisráðherra
Sýrlands, Farouq al-Shara, fordæmdi það sem hann kallaöi óábyrgar yfir-
lýsíngar franskra yfirvalda um bardagana í Líbanon. Shara minntist
ekki beint á fullyrðingar fransks sendimanns um að sýrlenskt herlið
hefði fyrirskipað skotárás á miövikudagmn á franska sendiráðið í austur-
hluta Beirút þar sem kristnir ráða ríkjum.
Reuter
Sjúklingar, bundnir viö hjólastóla, þeystu út á götur i Amsterdam í gaer
til að sýna i verki stuðnlng sinn viö hjúkrunarfólk sem nú er i verkfalli
og krefst hærri launa. Veörið var ekki upp á það allra besta, rok og
rigning, þannlg að fólklð vafði sig með plasti til að verjast veðri og vind-
um. Þetta er ef til vill til eftirbreytni fyrir íslenskt hjúkrunarfólk og sjúkl-
inga þess.
Sfmamynd Reuter
Símamynd Reuter
Botha til Namibíu
Utanríkisráðherra Suður-Afríku,
Pik Botha, heldur til Namibíu í dag
til að reyna að finna leið til að binda
enda á bardagana í landinu sem ógna
sjálfstæði þess. Sovéskir og banda-
rískir embættismenn munu taka þátt
í viðræðunum.
Lögreglan í Namibíu sagði í gær
að að minnsta kosti tvö hundruð
skæruliðar Swapohreyfingarinnar
heíðu fallið og tuttugu og þrír lög-
reglumenn frá því að fimmtán
hundruð skæruliðar komu frá An-
góla til Namibíu á laugardaginn
nokkrum klukkustundum eftir að
áætlunin um sjálfstæði Namibíu frá
Suður-Afríku tók gildi. Fulltrúar
Swapohreyfingarinnar halda því
fram að skæruliðamir hafi þegar
verið komnir til Namibíu.
Átökin í norðurhluta landsins
héldu áfram í gær, sjötta daginn í
röð, þrátt fyrir boð Suður-Afríku-
stjómar um að skæruliðar fengju að
fara óáreittir til Angóla ef þeir legðu
niður vopn fyrir laugardag. Stjórnin
í Suður-Afríku hefur hótað að leita
uppi alla skæruliða ef þeir taka ekki
boðinu.
Sameinuðu þjóðirnar, sem eftirlit
eiga að hafa með friðaráætluninni í
Namibíu, hafa sætt gagnrýni Afríku-
ríkja fyrir að hafa leyft suður-afrísk-
um hermönnum að fara frá bæki-
stöðvum sínum í Namibíu til þess að
hafa afskipti af skæruhðum. Sex suð-
ur-afrísk ríki buðust í gær til að
senda herlið til Namibíu til aðstoðar
friðargæslusveitum Sameinuðu
þjóðanna. Aðeins eitt þúsund af þeim
fimm þúsund liðsmönnum Samein-
uðu þjóðanna, sem fara eiga með eft-
irlit í Namibíu, eru komnir þangað.
Deilur í New York um kostnað vegna
eftirlitsins hafa tafið flutninga friðar-
gæslusveitanna..
Samkvæmt samkomulaginu um
frið í Namibíu, sem undirritað var í
New York í desember síðastliðnum,
samþykkti stjórn Suður-Afríku að
veita Namibíu sjálfstæði ef yfirvöld
á Kúbu kölluðu heim fimmtíu þús-
und manna herlið sitt frá Angóla.
Swapohreyfingin var ekki aðili að
samkomulaginu en samþykkti það
skriflega. í skjali frá bandaríska ut-
anríkisráðuneytinu, sem Reuter-
fréttastofan hefur fengið í hendur,
er fullyrðingum Swapo um rétt til
að hafa bækistöðvar í Namibíu vísað
á bug.
Reuter
, Kötturinn Samantha, sem býr í þvottavélinni, hafði einhvern veg- myndina Rauöu skikkjuna hér á
Alesund í Noregi, lifði af fimm min- inn lent inni i vélinni með óhrein- íslandi sumarið 1966 tókst svo illa
útna veru inni í þvottavél, sem var um gallabuxum. til að annar af tveimur schafer-
áfúllu,þegareigandihennarbjarg- Nedregaard stoppaði vélina. „Ég hundum sem komu fram í mynd-
aðilífihennarraeömunnviðmunn hringdi i dýralækni en hann gat inni þoldi ekki meðferðina og
aðferðinni. ekki gert raikið,“ sagði húa „Síðan hjarta hans . stöðvaðist Ungur
Ann-Eli Nedregaard sagði, í við- datt mér í hug aö nota munn við læknanemi, sem var statisti í
tali við dagblaðið Verdens Gang í munn aðferðina og hún virkaði." myndinni, brá skjótt við og blés lífi
gær, að flölskylduhundurinn hefði Þetta. er hins vegar síður en svo í hundinn og beitti hjartahnoði.
byijað að gelta er hann tók eftir í fyrsta skipti sem dýri er bjargað Hundurinn skilaði sínn hlutverki
því að Samantha, sem hefur gaman með munn við munn aöferðinni. með prýði eftir þá læknisaðstoð.
af að sitja og horfa á fötin snúast í Þegar verið var að taka kvik-