Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1989, Blaðsíða 25
FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 1989.
33
Sviðsljós
Ólyginn
sagði
Cybill Shepherd
hefur útilokað mann sinn frá
upptökustað Moonlighting þátt-
anna sem hún leikur í. Ástæðan
er sú að þau hjónin standa nú í
skilnaði og beijast um forræði
bamanna. Cybill og eiginmaður-
inn, Bruce Oppenheim, eiga tvö
ung böm, tvíburana Ariel og
Zack, og vilja bæði fá forræði.
Cybill hefur látið þau boð út
ganga að ef Oppenheim láti sér
ekki segjast og reyni að fá aðgang
að bömunum að henni forspurðri
skuh henda honum út með það
sama.
Stefanía Móna-
kóprinsessa
hefur samþykkt að koma fram
í fjórum til sex þáttum Dallas,
hinum vinsæla framhaldsþætti.
Prinsessan mun leika vellauðuga
prinsessu (hvað annað) sem verð-
ur ástfangin af Bobby Ewing.
Ætlunin er að þau skötuhjú eigi
í ástarsambandi og reyni í sam-
einingu aö koma J.R. Ewing á
kné. Framleiðendur vonast til að
með því að hafa alvöru prinsessu
í þáttunum aukist vinsældir
þeirra. Stefanía sjálf fær hátt í
þrjár milljónir króna fyrir hvem
þátt, ekki amalegt það.
Roseanne Barr
- hin íturvaxna leikkona úr
gamanþáttimum Roseanne - hef-
ur aldrei legið á meiningu sinni.
Fyrr á árinu rak hún einn fram-
leiðanda þáttanna vegna „sam-
skiptaörðugleika" og nú nýverið
fékk leikstjórinn, Ellen Falcon,
að fjúka. Að sögn kunnugra hefur
frægðin stigið Roseanne til höf-
uðs og vill hún fá að ráða í einu
og öllu. Framleiðendur og leik-
stjórar þora vart að mótmæla
henni því þeir gætu hreinlega
misst starfið.
Konur í upphlutum sem Snorri saumaði.
DV-mynd Sigrún
Egilsstaöir:
Verkin lofa meistarann
íslenska óperan:
Brúðkaup Fígarós
íslenska óperan frumsýndi Brúð-
kaup Fígarós eftir Wolfgang Amad-
eus Mozart um síðustu helgi. Það er
vel við hæfi að halda upp á 16. verk-
efni óperunnar og tíunda starfsár
hennar með þessu verki en Brúð-
kaup Fígarós er hin fyrsta af fjórum
stærstu og þekktustu óperum Moz-
arts. Var hún fiumsýnd í Vínarborg
árið 1786 við góðar undirtektir.
Flutningur íslensku ópenmnar
tókst í alla staði vel og tóku frumsýn-
ingargestir verkinu með virktum.
Um uppfærsluna á þessu verki sá
Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri og
er það ein rósin enn í hnappagat
hennar.
Aðalhlutverkin voru í höndum
fimm afburða söngvara, þeirra Krist-
ins Sigmundssonar, Ólafar Kolbrún-
ar Harðardóttur, Sigrúnar Hjálmtýs-
dóttur, John Speight og Hrafnhildar
Guðmundsdóttur. Auk þeirra tóku
fjölmargir aðrir þátt í sýningunni.
Frumsýningargestir tóku frumflutningi íslensku óperunnar á brúðkaupi Fígarós vel. Á myndinni eru Ragnar Stein-
arsson tannlæknir ásamt eiginkonu sinni, Emilíu Sigmarsdóttur, og hjónin Þórður Pálsson bóndi og Ágústa Þor-
kelsdóttir frá Refsstað. DV-myndirGVA
Sigiún Björgvinsdóttir, DV, Egilsstoðum;
Nýlega er látinn Snorri Gunnars-
son á Egilsstöðum í Fljótsdal, rúm-
lega áttræður að aldri. Jarðarfór
hans var gerð frá Valþjófsstað laug-
ardaginn 18. mars. Snorri var ágætur
smiður og stundaði smíðar, lengst
af á Jökuldal og í Fljótsdal. Þekktast-
m- var hann þó fyrir sauma sína.
Hann saumaði fiölmarga þjóðbún-
inga á konur um Hérað og víðar á
Austurlandi. Við útfór hans klædd-
ust margar konur upphlutum sem
hann hafði saumað og sex af þeim
báru kistu hans úr kirkju. Fjöldi
manns var við útforina og var hún
sérstaklega virðuleg. Sóknarprestur,
séra Bjami Guðjónsson, jarðsöng.
Jeppi Ljónsstaðabræöra i öllu sínu
veldi og við hlið hans venjulegur bill.
DV-mynd Kristján
Búningarnir í Brúðkaupi Fígarós
settu punktinn yfir i-ið í uppfærslu
íslensku óperunnar. Ekki var þó allt-
af auðvelt aö klæðast þeim eins og
Hrönn Hafliðadóttir fékk að reyna.
Fjallabíll í Flóanum:
Tætt á
torfæru-
túttum
Að mörgu ber að hyggja fyrir frumsýningu óperu á borð við Brúðkaup Fíga-
rós. Á myndinni eru leikstjórinn, Þórhildur Þorleifsdóttir, og búningahönnuð-
urinn, Alexander Vasiliev, að virða fyrir sér lokaundirbúninginn.
Knstján Einarssan, DV, SeHossi:
Þegar fannfergið er eins mikið og
verið hefur í vetur er eins og jeppa-
bílar spretti úr hverjum skafli. Að
minnsta kosti er betur tekið eftir
þeim í tíð sem þessari. Ekki er nóg
að vera á venjulegum jeppa, það
verður að breyta tækinu aðeins til
að það sé nothæft við íslenskar að-
stæður. Á þeirri skoðun eru bræð-
umir Ólafur og Tyrfmgur Leóssynir
frá Ljónsstöðum í Flóa enda hafa
þeir atvinnu af því að breyta og end-
urbæta torfæratæki af ýmsum gerð-
um.
Auðvitað eiga þeir endurbættan
jeppa, LandCruiserinn þeirra fékk
heldur betur uþplyftingu áður en
hann var talinn hæfur til átaka. Ofan
á vélina var sett túrbína til að auka
vélarkraftinn, fiaðrir settar upp á
hásingar, khppt var úr brettum og
gríðarleg dekk prýða tækið. Bræð-
umir urðu að lækka drifhlutfallið
efdr að þessi stóra dekk, 44"X18
-5"X15", komu undir. Loftlæsingar
era á báðum drifum og þarf aðeins
að ýta á takka inni í bílnum til að
læsa drifum þegar stórátök era fram-
undan. Fullkominn fiarskiptabúnað-
ur er í bílnum.
Auk venjulegrar miðstöðvar er í
bílnum öflug olíumiðstöð, staðsett í
vélarsalnum, til upphitunar þegar
gist er í bílnum. Hún eyðir 7 lítrum
af eldsneyti á sólarhring. Aðalljós
kvikna þegar rafall framleiðir raf-
magn og slokkna þegar tekið er í
handbremsuna.
Viðar Gunnarsson er hér snyrtur og
snurfusaöur áður en frumsýning
hefst.