Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1989, Blaðsíða 27
FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 1989.
35
Afmæli
Ólafur J. Unnsteinsson
Ólafur J. Unnsteinsson, íþrótta-
kennari og þjáifari, Safamýri 52,
Reykjavík, er fimmtugur í dag. Ólaf-
ur er fæddur á Reykjum í Ölfusi,
lauk stúdentsprófi í ML1959, Kenn-
araprófi 1960, íþróttakennaraprófi
frá Laugarvatni 1961 og var í fram-
haldsnámi í Danmarks Höjskole for
Legemsövelser 1973-1975. Hann var
á fijálsíþróttanámskeiði í íþrótta-
miðstöðinni í Bosön í Sviþjóð 1967,
Vejle í Danmörku 1973 og 1974, As-
coteia's í Portúgal 1983 og í Reykja-
vík 1986. Ólafur var kennari í Laug-
arlækjarskóla 1961—1973, MH1967-
1973, Birkeröd menntaskólanum á
Sjálandi 1974-1975, framhaldsdeild
Laugalækjarskóla 1975-1979, Ár-
múlaskólann 1977-1978, Fjölbrauta-
skólanum í Breiðholti 1978-1979 og
Fjölbrautaskólanum í Ármúla frá
1979. Hann var deildarstjóri á
íþróttabraut þar 1982-1987. Ólafur
var formaður íþróttanefndar ML
1956-1958, formaður íþróttakenn-
arafélags íslands 1962-1964, í stjóm
frjálsíþróttadeildar ÍR1961—1962,í
útbreiðslunefndFRÍ 1963-1964,
framkvæmdastjóri UMSK1969, og
HSK1970, í laganefnd FRÍ1971-1973,
formaður öldungaráðs FRI frá 1986
og í Nprðurlandaráði öldunga frá
1985. Ólafur er frjálsíþróttaþjálfari
frá 1962 og hefur alþjóðleg þjálfara-
réttindi. Hann þjálfaði UMSK1969,
HSK1970, KR1975-1976, FH1977,
UÍA1978 og 1979, UBK og UMSK
1983 og 1984 og ÍR1985-1986. Hann
þjálfaði á unglinganámskeiðum á
vegum Reykjavíkurborgar og ÍBR
1963-1967. Þá þjálfaði hann eitt
sterkasta frjálsíþróttafélag Dana
1973-1975. Hann hefur verið lands-
Uðsþjálfari og fararstjóri í mörgum
landskeppnum 1973-1986. Ólafur er
alþjóðlegur dómari í frjálsum íþrótt-
um og hefur verið yfirdómari á
mörgum alþjóðlegum stórmótum
hér heima og erlendis. Hann hefur
keppt á tveimur heimsmeistaramót-
um, tveimur Evrópumeistaramót-
irni og tveimur Norðurlandamótum
öldunga og þá komist í úrsht í kúlu-
varpi og sleggjukasti oftar en einu
sinni. Olafur hefur hlotið guhmerki
Frjálsíþróttasambands Danmerkur
1978, FRÍ1981, heiðursmerki frjáls-
íþróttasambands Noregs 1961, Pól-
lands 1974, Bretlands og Frakklands
1976, Portúgals 1982, ítahu 1985 og
Svíþjóðar 1986.
Kona Ólafs var Stefanía Erla
Gunnlaugsdóttir, f. 2. janúar 1942,
Foreldrar Stefaníu eru Gunnlaugur
Lárussonar, skrifstofustjóra í
Reykjavík, og konu hans, Fjólu
Gísladóttur. Synir Ólafs og Stefaníu
Erlu eru Unnsteinn, f. 7. júh 1966,
stúdent í Rvík, og Gunnlaugur, f. 21.
maí 1968, stúdent í Rvík. Systkini
Ólafs eru Grétar, f. 5. nóvember
1941, skólastjóri Garðyrkjuskóla
ríkisins, kvæntur Guðrúnu Guð-
mundsdóttur íþróttakennara og
eiga þau þijú börn; Reynir, f. 29.
júní 1945, húsvörður Árnasafns;
Bjarki Aage, f. 13. desember 1947,
búsettur í Rvík, ogHanna, f. 17. júní
1951, félagsráðgjafi hjá Borgarspíta-
lanum, gift Eyjólfi Valdimarssyni,
verkfræðingi hjá ríkissjónvarpinu
og eiga þau tvö börn.
Foreldrar Ólafs eru Unnsteinn
Ólafsson, f. 11. febrúar 1913, d. 22.
nóvember 1966, skólastjóri Garð-
yrkjuskóla ríkisins, og kona hans
Elma, f. Christiansen, f. 21. júní 1912,
Systir Unnsteins er Margrét, móðir
Þóris Björnssonar, læknisfræði-
prófessors í Bandaríkjunum. Unn-
steinn var sonur Ólafs, b. á Stóru-
Ásgeirsá í Víðidal, bróður Jóns, íöð-
ur Einars J. Skúlasonar forstjóra.
Ólafur var sonur Jóns, b. á Söndum
í Miðfirði, Skúlasonar, bróður Ein-
ars, afa Skúla Guðmundssonar al-
þingismanns. Móðir Unnsteins var
Margrét, systir Bjöms Líndal, út-
gerðarmanns og alþingismanns,
föður Theodórs Líndai lagaprófess-
ors, foður Sigurðar Líndal, lagapró-
fessors, sagnfræðings og forseta
HÍB, og Páls Líndal dehdarstjóra,
fóður Björns Líndal, aðstoðar-
bankastjóra í Landsbankanum.
Margrét var dóttir Jóhannesar, b. á
Útibleiksstöðum í Miðfirði, Jóhann-
essonar, ráðsmanns í Múla í '
Línakradal, Gíslasonar. Móðir
Margrétar var Margrét Björnsdótt-
ir, b. í Kolugih í Víðidal Guðmunds-
sonar, b. á Kolugih, Ólafssonar, b. á
Vindhæli, Guðmundssonar, fóður
Oddnýjar, móður Guðrúnar, konu
Björns Blöndals, ættmóður Blön-
dalsættarinnar. Sonur Ólafs var
Ólafur J. Unnsteinsson.
Magnús Bergmann, ættfaðir sunn-
lensku Bergmannsættarinnar. Ann-
ar sonur Ólafs var Björn Olsen, ætt-
faðir Olsensættarinnar, afi Björns
Olsensrektors.
Foreldrar Elmu vora Cenius
Christiansen, óðalsb. á Norður-Jót-
laridi, og kona hans, Hanna Christ-
iansen. Systir Elmu var Valborg,
tengdamóðir Karls Hjortnæs, fv.
dómsmálaráðherra Dana.
Ólafur verður að heiman á af-
mæhsdaginn.
Tvíburamir:
Sigurður Njáll Njálsson og
Sigurður Gunnar Ellert Njálsson
Til hamingju
með
afmælið
7. apríl
Sigurður Njáh Njálsson fram-
leiðslustjóri, Breiðvangi54, Hafn-
arfirði, og Sigurður Gunnar Ellert
Njálsson skipstjóri, Sævangi 36,
Hafnarfirði, uröu fimmtugir 4.
apríl sl. Sigurður Njáh var í námi
í fiskiðnskóla í Vardö í Noregi og
var verkstjóri í Vestmannaeyjum
og Hafnarfirði. Hann var við leið-
beiningar og kennslu í fiskvinnslu
í Færeyjum 1970 og framkvæmda-
stjóri hjá Hólanesi á Skagaströnd
1974- 1975. Sigurður var dehdar-
stjóri hjá Fiskmati ríkisins og
Framleiðslueftirhti sjávarafurða
1975- 1980 og yfirverkstjóri ísbjarn-
arins 1981-1982. Sigurður hefur
verið framleiðslustjóri hjá SÍS frá
1982. Sigurður Njáh kvæntist 30.
júní 1962 Guðrúnu Helgu Ágústs-
dóttur, f. 12. september 1949, banka-
ritara. Foreldrar Guðrúnar era
Ágúst V. Matthíasson, forstjóri í
Vestmannaeyjum, og kona hans,
Sigurbjörg M. Benediktsdóttir.
Börn Sigurðar og Guðrúnar era
Ágúst Vilhjálmur, f. 17. janúar
1963, yfirverkstjóri á Fáskrúðsfirði;
Sigurbjörg Margrét, f. 12. janúar
1965, skrifstofumaður, sambýhs-
maður hennar er Björgvin Sigurðs-
son stýrimaður, og Fannar, f. 13.
ágúst 1975.
Sigurður Gunnar Ehert er fædd-
ur á Akranesi og lauk skipstjóra-
og fiskimannaprófi 1959. Hann hef-
ur verið skipstjóri hjá Hval hf. frá
1959. Sigurður Gunnar kvæntist 16.
janúar 1960 Sigurleif Sigurðardótt-
ur, f. 1. mai 1941. Foreldrar Sigur-
leifar era Sigurður Jónsson og
kona hans, Kristín María Jóns-
dóttir. Börn Sigurðar Gunnars og
Sigurður Njáll Njálsson.
Sigurleifar era Sigurður Einar, f.
12. desember 1959, vélstjóri í Rvík;
Helga Sigurbjörg, f. 10. september
1961, gift Þorsteini Þorsteinssyni,
þau era í háskólanámi í Uppsölum;
Njáh Gunnar, f. 9. nóvember 1961,
og Þórður Mar, f. 10. maí 1972.
Systkini Siguröar Njáls og Sigurð-
ar Gunnars era Sigurbjörg, f. 21.
september 1932, sjúkraliði í Hafn-
arfiröi, á fjögur böm; Steinunn
Erla, f. 2. júlí 1944, gift Hans Bjarna
Guðmundssyni, húsasmið í Rvík,
og eiga þau þrjú böm og Ehn Helga,
f. 5. nóvember 1946, aðalféhirðir á
Skagaströnd, gift Magnúsi Ólafs-
syni verkstjóra og eiga þau þrjú
böm.
Foreldrar Sigurðar Njáls og Sig-
urðar Gunnars era Njáh Þórðar-
son, skipstjóri á Akranesi, og kona
hans, Helga Sigurðardóttir. Njáh
er sonur Þóröar, vitavaröar á
Sigurður Gunnar Ellert Njálsson.
Siglunesi, Þórðarsonar, b. á Kálfs-
stöðum í Vestur-Landeyjum, bróð-
ur Jóns, afa Einars Gíslasonar, for-
stöðumanns Hvítasunnusafnaðar-
ins. Þórður var sonur Brands, b. í
Vestra-Fíflholti, Guðmundssonar,
b. í Þúfu, Erlendssonar, b. á
Sperðh, Sigurðssonar, b. á Flanka-
stöðum, Gíslasonar, prests á Krossi
í Landeyjum, Eiríkssonar. Móðir
Njáls var Sigurbjörg Jónsdóttir, b.
í Flekkuvík á Vatnsleysuströnd,
Þorkelssonar og konu hans, Guð-
rúnar Eyjólfsdóttur.
Helga er dóttir Sigurðar, kennara
í Hafnarfirði, Ólafssonar, b. í Garð-
húsum á Miðnesi, Sigurðssonar, b.
og smiðs í Merkinesi í Höfnum,
Ólafssonar, b. á Ægissíðu, Sigurðs-
sonar. Móðir Sigurðar í Merkinesi
var Valgerður Erlendsdóttir, b. í
Þúfu á Landi, Jónssonar. Móðir
Erlends var Halldóra Hahdórsdótt-
ir, b. á Tjörfastöðum, Bjarnasonar,
b. á Víkingslæk, Halldórssonar,
ættföður Víkingslækjarættarinn-
ar. Móðir Ólafs í Garðhúsum var
Guðríður Halldórsdóttir, b. í
Kirkjuvogi, Gunnarssonar. Móðir
Hahdórs var Kristín Jónsdóttir, b.
á Vindási, Bjamasonar, bróður
Hahdórs á Tjörfastöðum. Móðir
Guðríðar var Anna Jónsdóttir,
dbrm. í Höskuldarkoti, Sighvats-
sonar og konu hans, Oddbjargar
Snorradóttur.
Móðir Helgu var Steinunn, systir
Egils, afa Eghs Ólafssonar söngv-
ara. Steinunn var dóttir Ólafs, b. í
Ytri-Njarðvík, Jafetssonar. Móðir
Ólafs var Margrét Jónsdóttir, b. í
Höskuldarkoti í Njarðvík, Péturs-
sonar og konu hans, Ólafar Er-
lendsdóttur, smiðs og skipara í
Ytri-Njarðvík, Magnússonar, b. á
Brunnristöðum á Vatnsleysu-
strönd, Guðmundssonar, bróður
Ólafs, langafa Soffiu Guðlaugsdótt-
ur leikkonu. Móðir Steinunnar var
Elín Þorsteinsdóttir, b. í Ytri-
Njarðvík, Bjarnasonar, b. í Efra-
Holti undir Eyjafjöllum, Magnús-
sonar. Móðir Bjarna var Guðrún
Sighvatsdóttir, systir Jóns dbrm. í
Höskuidarkoti. Móðir Þorsteins
var Ingigerður yngri, Jónsdóttir,
systir Ónnu í Kirkjuvogi. Móðir
Ehnar var Guðrún Guðmundsdótt-
ir, verslunarstjóra í Hafnarfirði,
Péturssonar og konu hans, Ingi-
gerðar eldri Jónsdóttur, systur
Onnu í Kirkjuvogi. Sigurður Njáfi
og Sigurður Gunnar og eiginkonur
þeirra taka á móti gestum á Garða-
holtiídag kl. 19-22.
85 ára
Jón Guðjónsson,
Austurbrún 2, Reykjavík.
75 ára
Páll H. Jónsson,
Lækjarvöllum I, Bárödæla-
hreppi.
Aage Johansen,
Lindargötu 26B, Siglufirði.
60 ára
Bjöm Lúðvik Jónsson,
Karfavogi 11, Reykjavík.
Sveinn Kristjánsson,
Hraimbæ 102B, Reykjavík.
Jón Vigfússon,
Hólmum, Reyðarfirði.
Kristín Ottósdóttir,
Vogalandi 7, Reykjavik.
Theódóra Guðmundsdóttir,
Barmahhð 6, Reykjavík.
Sigurður Sigurbjörnsson,
Björgum, Ljósavatnshreppi.
50 ára
Þorbergur Bjarnason,
Geröi, Breiöabólstað n, Borgar-
hafharhreppi.
Gylfi Sævar Einarsson,
Tjamarlundi 12G, Akureyri.
Edda Tegeder,
Hrauntúni 35, Vestmannaeyjum.
Vilhjálmur Hallgrímsson
Brúðkaups- og
starfsafmæli
Akveðið hef ur verið að birta á af -
maelis- og ættfræðisíöu DV greinar
um einstaklinga sem eiga merkis
brúðkaups- eða starfsafmæli.
Greinarnar verða með áþekku sniði
og byggja á sambasrilegum upplýs-
ingum og fram koma í afmaelisgrein-
um blaðsins en eyðublöð fyrir upplýs-
ingar afmælisbarna liggja frammi á
afgreiðslu DV.
Upplýsingar varðandi brúðkaups-
eða starfsafmæli verða að berast astt-
fraeðideild DVmeðminnstþriggja
daga
fyrirvara.
bað er einkar mikilvægt að skýrar,
nýlegárandlitsmyndir fylgi upplýsing-
unum.
Vilhjálmur Hahgrímsson raf-
virkjameistari, Lönguhhð 3, Reykja-
vík, er níræður í dag.
Vilhjálmur fæddist í Miðeyjar-
hólmi í Landeyjum. Hann flutti th
Reykjavíkur 1929 og lauk prófi í raf-
virkjun 1933. Vilhjálmur var raf-
virkjameistari í Reykjavík frá
1933-60, var rafmagnseftirhtsmaður
frá 1960-70, en hann starfaði við
Samvinnunbankann frá 1970-81.
Kona Vilhjálms var Hulda Jóns-
dóttir, f. 27.6.1904, d. 1983, dóttir
Jóns Jónssonar, sjómanns í Reykja-
vik, og konu hans Guðnýjar Guö-
mundsdóttur.
Dóttir Vhhjálms og Huldu er
Ragnhhdur Auður, gift Guðmundi
Þór Pálssyni verkfræðingi. Sonur
Vilhjálms er Ámi, rafvirki á Húsa-
vík, kvæntur Helgu Magnúsdóttur.
Vilhjálmur átti fiórtán systkini og
erasjöþeirraálífi.
Foreldrar Vhhjálms vora Hah-
grímur Brynjólfsson, b. á Felli í
Mýrdal, og kona hans Sigurveig
Sveindóttir.
Foreldrar Hahgríms vora Brynj-
ólfur Guðmundsson á Litlu-Heiði og
kona hans Þorgerður Jónsdóttir.
Foreldrar Sigurveigar vora
Sveinn Jónsson, b. í Miðeyjarhólma
og kona hans Guðleif Erlendsdóttir.
Vilhjálmur tékur á móti gestum á
heimih dóttur sinnar og tengdason-
ar, Bjarmalandi 22, laugardaginn
8.4. klukkan 17-19.
Ásrún Kristjánsdóttir,
Mímisvegi 2A, Reykjavík.
Þórhallur Teitsson,
Grímarsstöðum, Andakílshreppi.
Anna Lisa Blomsterberg,
Torfufelh 30, Reykjavik.
Andrea Jónsdóttir,
Öldugranda 3, Reykjavík.
Vilbjálmur Sigurgeirsson,
Austurbergi 38, Reykjavík.
Sigriður Ólafsdóttir,
Fífumýri 4, Garöabæ.
Brynjólfur Markússon,
Fífumýri 14, Garðabæ.
Ingvar Kristjónsson,
Mánatröð 19, Eghsstöðum.