Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1989, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1989, Page 15
FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ '1989. 15 Evrópubandalagið eftir Madridfundinn Eölilega fylgjast íslendingar af áhuga með því sem er aö gerast í Evrópubandalaginu. Bandaríki Evrópu eru að myndast og þangað beinast viðskipti okkar í vaxandi mæli. Kosningar til Evrópuþingsins fóru fram 18. júní sl. og þar kom m^rgt á óvart. Græningjar virðast sigurvegarar kosninganna. Þeir tvöfolduðu fylgi sitt og hlutu 39 þingsæti af 518 sætum þingsins. Af þessu má draga þá ályktun að umhverfismál verði rædd af meiri þunga á þinginu í framtíðinni. Græningjar V-Þýskalands juku fylgi sitt og græningjar frá Frakk- landi og Belgíu mæta til leiks ásamt fulltrúum annarra ríkja. Bretland sker sig úr. Þar hlutu græningjar 15% fylgi en engan þingmann vegna óréttláts kosningakerfis, ein- menningskjördæmi. Reyndar tóku aðeins 56% þeirra 242 milljóna manna, sem kosninga- rétt áttu, þátt í kosningunum. Athygh vakti hve illa íhaldsflokki Schluters gekk í Danmörku og íhaldsflokki Thatcher í Bretlandi. Sumir vilja rekja ósigur Thatcher í þessum kosningum til baráttu hennar gegn því að afsala sjálfs- ákvörðunarrétti til bandalagsins. íhaldsmenn í Bretlandi segja hins vegar að ástæðumar séu allt aðrar, þ.e. erfiðleikar í stjórnmálum heima fyrir, háir vextir og verð- hólga ásamt fleiru. Myntkerfi Evrópubandalagsins Barátta Thatcher hefur að und- anfórnu einkum beinst gegn þátt- KjaUarirm Guðmundur G. Þórarinsson alþingismaður töku í myntkerfmu EMS sem hún hefur kallað „óviðunandi framsal sjálfsákvörðunarréttar til Brussel" og félagsmálasáttmálanum sem hún hefur kallað „að koma sósíal- isma á um bakdyrnar". Þessi atriði eru mjög umdeild í Bretlandi. Til að mynda hafa bæöi utanríkisráðherrann og fjármála- ráðherrann reynt að hafa áhrif á járnfrúna og tahð það gagnstætt hagsmunum Breta að tengjast ekki myntkerfmu. Fyrir Madridfundinn veltu menn því fyrir sé hvort slæm útreið Thatcher í kosningunum til Evr- ópuþingsins mundi ekki hafa áhrif á hana eða hvort fundinum myndi ljúka með pattstöðu. Niðurstaðan varð sú að sam- komulag var um að vinna áfram að því að Evrópubandalagið yrði eitt myntkerfi og þessu kerfi yrði komið á í þrem áfóngum. Vandinn er sá að aðildarríkin túlka ekki samkomulagið öll á sama veg. Thatcher féllst á aö tengja pundið fastar Evrópumyntinni þegar ákveðnum skilyrðum væri full- nægt, þ.e. þegar 1) verðbólgan í Bretlandi, sem nú er 8,3%, hefði lækkað verulega og 2) komið hefði verið á fullu frelsi á sviði fjármagns og fjármálaþjónustu innan banda- lagsins. Segja má að meginniöurstaöa fundarins sé skuldbinding ríkj- anna til að koma á fullu frelsi fjár- magnshreyfinga og fjármálaþjón- ustu fyrir 1. júlí 1990. Síðan eru í farvatninu tveir áfangar sem ekki eru tímasettir. a) Settur verði á fót Evrópuseðla- banki er stjórni peningamála- póhtík ríkjanna. b) Þriðji og síðasti áfanginn að löndin taki öll upp eina og sömu Evrópumynt, þ.e. ECU. Jafnframt var ákveðið að ríkis- stjórnir landanna tækju þátt í ráð- stefnu sem ákvað nánar undirbún- ing þessara þátta. Ráðstefnan var ekki tímasett. Leiðtogar flestra að- ildarríkjanna telja að þar með sé eining komin um markmiðið, ein Evrópumynt, ECU. Thatcher segist hins vegar ekkert hafa samþykkt enn. Raunar er þaö rétt ef grannt er skoðað. Fyrsta skrefið að tengja pundið ECU (og reyndar myntir allra aðhdarríkj- anna) er skilyrt frá henni en auk þess ekki mikh breyting frá því ástandi sem nú ríkir. Annað skrefið með sameiginlegum seðlabanka Evrópubandalagsins er stærra mál. Eftir það er stjóm pen- ingamála ríkja bandalagsins mið- stýrð og sjálfsákvörðunarvald ríkj- anna í raun lítið í þeim málum. Menn velta því fyrir sér hvernig hin ýmsu ríki muni þá bregðast við fjárlagahalla og viðskiptahaha við útlönd. Thatcher hefur ekki fahist á þetta framsal sjálfsákvörðunarréttar en Mitterrand er ákafastur talsmaður myntkerfisins. Hugmynd Delors framkvæmda- stjóra virðist vera að styðja veikari ríkin með sameiginlegum sjóði bandalagsins th að mæta haha á utanríkisviðskiptum þegar þau hafa afsalað sér rétti til að feha gengi gjaldmiðilsins. Flækjumar em því margar þótt myn^erfið veröi eitt og enginn sér fram úr þeim öhum. Ákvörðun eða biðleikur Eins og fyrr segir virðast flestir þjóðarleiðtogarnir þeirrar skoðun- ar að teningunum hafi verið kast- að. Eigi að síður er það svo þó að Thatcher hafi undirritað sam- komulagið að sumt er skhyrt en annað ótímasett og óumsamið þannig að á síðari stigum getur hún komið að fleiri skhyrðum t.d. varð- andi vald Evrópuseðlabankans. Ahir leiötogarnir voru ánægðir með niðurstöðu fundarins en túlk- uðu hana á mismunandi veg. Menn töldu að Thatcher hefði óvænt sýnt samkomulagsvhja. E.t.v. vegna úrslita kosninganna, e.t.v. vegna vaxandi þrýstings frá samstarfsmönnum. í stað fyrri yfirlýsinga um að Bretland tæki þátt í myntkerfinu í fylhngu tímans (when time is ripe) lét hún sér nægja að setja skilyrði. Því telja flestir að ekki verði aftur snúið, innan bandalagsins verði ein mynt innan skamms tíma. Áfram halda erfiðir samningar. Mitterrand leggur áherslu á félags- lega samninginn. Vhjandi frestuðu menn honum á Mádridfundinum. Myntkerfið var næghega stór biti. Tíminn mun hins vegar leiða í ljós hvort skrefiö var í raun stigið, hvort ákvörðunin var tekin, eða hvort undirskriftin var í raun bið- leikur og átökin um framsal sjálfsákvörðunarréttar eru eftir. Guðmundur G. Þórarinsson. „Segja má aö meginniðurstaða fundar- ins sé skuldbinding ríkjanna til að koma á fullu frelsi Qármagnshreyfmga og fjármálaþjónustu fyrir 1. júlí 1990.“ Samtrygging eða sérhyggja! Þingmaður okkar Sunniendinga, Guðni Ágústsson, skrifaði nýlega forsíðugrein um lífeyrismál í Dag- skrána á Selfossi og get ég ekki orða bundist eftir lestur hennar. Greinar sem þessar eru til þess eins fahnar að skapa óánægju með núgildandi lögbundið kerfi. Og fer ekki hjá því að manni detti í hug að slíkur sé thgangurinn. Auðvitað er kerfið ekki gallalaust, á því eru ýmsir hnökrar, en mér þætti það standa þingmanninum nær að leita leiða th úrbóta fremur en varpa fram slíkum hugmyndum og fram koma í umræddri grein. Má fækka verulega Við sem höfum kynnt okkur mál- efni lífeyrissjóðanna höfum oft heyrt athugasemdir um kerfið, sumar réttmætar en ahtof margar byggðar á misskhningi og vanþekk- ingu. Misskilningurinn stafar aðal- lega af rangtúlkunum á þeim hug- myndum sem varpaö hefur veriö fram, þ.e. einn lífeyrissjóður fyrir aha landsmenn, gegnumstreym- issjóður, skyldusparnaður o.fl. Okkar færustu tryggingafræð- ingar hafa komsist að raun um að það kerfi, sem notað er í nágranna- íöndum okkar, henti okkur best, þ.e. samtrygging lífeyris með upp- söfnun réttinda. Auðvitað má deha um þaö hvað margir lífeyrissjóðirnir eiga að vera. Flestir eru sammála um að þeim megi fækka verulega og er sú þróun reyndar komin vel á veg. Óneitanlega myndi það flýta þeirri þróun ef frumvarp 17 manna nefndarinnar, sem legið hefur í skúffu ráðherra sl. 3 ár, næði fram að ganga en í því felst veruleg end- urbót á núgildandi kerfi. Sam- kvæmt því frumvarpi mun lífeyris- KjaUarinn Hansína Á. Stefánsdóttir starfsmaður Verslunarmanna- félags Árnessýslu sjóðum væntanlega fækka en eftir sem áöur verður í aðalatriðum byggt á svæðis- eða faglegum sjóð- um með uppsöfnun og samtrygg- ingu. Mér þætti ekki úr vegi að þingmaðurinn kynnti sér þetta frumvarp örlítið, ásamt fleiri þátt- um lífeyrismálanna. Hugmyndir Guðna og annarra þeirra sem telja einkareikninga hvers og eins leysa allan vanda líta ekkert illa út séðar á pappír. En er þá ekki eins hægt að hugsa sér að menn bruna- tryggöu húsin sín eða húftryggðu bílana sína á sama hátt, þ.e. að þegar húsiö brennur eða bhhnn eyðileggst fáist greidd th baka þau iðgjöld sem viðkomandi hafði greitt að viðbættum vöxtum? Mér er sannarlega th efs að nokkur mundi vilja tryggja eigur sínar á þennan hátt. Byrðinni dreift I núgildandi kerfi er samtrygg- ingin eitt af aðalatriðunum. Sam- tryggingin felst í því að þegar menn verða fyrir áföhum er byrðinni dreift eins og gert er í almennu lif- eyrissjóðunum. Hugmynd Guðna um að leggja 1% af iðgjöldum_til að mæta áhættulífeyri lítur þokka- lega út en þegar litið er á reikninga lífeyrissjóða kemur glögglega í ljós að hún er fjarri öllum raunveru- leika. Sem dæmi má taka skiptingu lífeyris hjá tilteknum hfeyrissjóöi en bætur vegna áhættulífeyris hjá honum voru þannig árið 1987: Örorkulífeyrir 10,7% af iðgjaldatekjum Makalífeyrir 9,0% af iðgjaldatekjum Bamalifeyrir 1,1% af iðgjaldatekjum Samkvæmt þessu er áhættulifeyrir 20,8% af iðgjaldatekjum sjóösins. Aðeins hluti þessara bóta er vegna áunnins lífeyris, stærsti hluti þeirra er vegna framreiknings, en hver sá sem greiðir í lífeyrissjóð þegar/ef hann verð- ur fyrir áfalli fær th vdðbótar áunnum rétti þann rétt sem hann hefði öðlast sjö- tugur miðað við iðgj aldagreiðslur 3ja síð- ustu ára. Erfið innheimta Ekki virðist þingmaðurinn hafa kynnt sér málefni sjóðanna ofan í kjölinn. Honum virðist alls ókunn- ugt um samstarfssamning sjóö- anna og hlutverk skráningar lif-. eyrisréttinda þegar hann heldur því fram að bótaréttur glatist séu iðgjöld greidd th fleiri en eins sjóðs. Lög um skráningu lífeyrisrétt- inda og samstarfssamningurinn eru th þess gerð að tryggja að allar greiðslur til lífeyrissjóðanna skih rétti th bóta. Því miður kemur fyrir aö iðgjöld- um til lífeyrissjóðanna sé aldrei skhað og getur bótaréttur rýrnað af þeim sökum. Mér fyndist það þarfara verkefni fyrir Guðna og aðra þá sam nú hamast við að gera núghdandi kerfi tortrygghegt og vilja brjóta það niður að leggjast á sveif með sjóðunum við að efla inn- heimtur og fá því framgengt að íjár- málaráðuneytið, f.h. skráningar líf- eyrisrétinda, framfylgi ákvæði í 7. gr. laga nr. 91/1980 en þar segir: „Lífeyrisskráin skal eftir því sem kostur er fylgjast með þvi að ákvæðum laga um starfskjör laun- þega og skyldutryggingu lífeyris- réttinda sé framfylgt að þvi er varð- ar greiðslu iðgjalda." Núna reynist lífeyrissjóðunum oft býsna erfitt aö innheimta þau iðgjöld sem launagreiðendur hafa sannanlega tekið af starfsmönnum sínum og áreiðanlega yrði mun erfiöara að innheimta þessi iðgjöld væru þau að öhu leyti einstaklings- bundin. Eða hver á að hafa eftirht með skilunum? Misrétti í tengslum við núgildandi kerfi viðgengst ýmislegt misrétti sem fuh ástæða er th aö leiðrétta, t.d. tvísköttun á iðgjaldahluta launþeg- ans. En iðgjaldahlutinn er skatt- lagður fyrst þegar teknanna er afl- að og aftur þegar iðgjöldin eru end- urgreidd í formi bóta. Annað hróplegt dæmi um mis- rétti er skerðing tekjutryggingar vegna bóta frá lífeyrissjóðum. Þeir aöilar, sem hafa tök á því að greiða ekki til lífeyrissjóða, en safna ið- gjöldum á eigin reiknigna, eru verðlaunaðir með því að þeim er veitt full tekjutrygging, auk þess sem þeir sleppa við tvísköttunina þar sem vextir eru skattfrjálsir. Þá má einnig benda á að þegar bætur almannatrygginga eru hækkaðar hækkar grunnlífeyrir sjaldnar og minna heldur en tekjutrygging. 1972 var grunnlífeyrir einstakhngs um 77% af héildarlífeyri, þ.e. grunnlífeyrir að viöbættri tekju- tryggingu, en í dag er grunnlífeyr- irinn aðeins 27% af heildarlífeyri. Það er nefnilega hægt að taka tekjutrygginguna, þ.e. 73% lífeyris- ins, aftur af mönnum hafi þeir far- ið að lögum og greitt til lífeyris- sjóös. í lokin vhdi ég benda hæstvirtum þingmanni á að líta sér nær og bera saman lífeyrissjóð þingmanna og almennu sjóðina. Væri þaö ekki verðugt verkefni fyrir hann og aðra þá þingmenn, sem á tylhdögum a.m.k. vilja kenna sig við félags- hyggju, að beita sér fyrir lagfæring- um á almenna kerfinu þannig að verkamaðurinn og sjómaðurinn og alhr hinir fái svipuð réttindi og þingmaðurinn? Hansína Á. Stefánsdóttir „Núna reynist lífeyrissjóöunum oft býsna erfitt að innheimta þau iðgjöld sem launagreiðendur hafa sannanlega tekið af starfsmönnum sínum..

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.