Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1989, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1989, Side 17
FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 25 Isson sækir fast að honum. KR-ingar unnu 1-0 sigur og bikarmeistarar Vals eru þar DV-mynd GS . Sveins frágengin: Sveinsson mdsliðinu leika með liðinu á HM 1990 við Val síðan þeir komu hingað í júní. hins vegar átekta því næsti leikur í stöð- Þeir ræddu þá við forkólfa Valsliðsins unni er hjá ráðamönnum franska liðs- en síðan þá hefur lítið gerst. Við bíðum ins,“ sagði Pétur við DV. -JÖG/JKS Er mjög ánægður - sagði Jón H. Magnússon „Ég er mtjög ánægður með að þess mál eru frágengin og að Spánveijamir skyldu hafa gengiö að ölium kröfum HSÍ,“ sagði Jón Hjaltalín Magnússon, formaöur HSÍ, í kjölfar þess að samningar voru handsalaöir milli HSÍ, KR, Alfreðs Gíslasonar og Bidasoa í gær. „Þá er ég ekki síður ánægður með að Alfreð skuli taka þátt í undirbúningi íslenska landshðsins vegna HM og í heimsmeistaramótinu sjálfu," hélt Jón áfram. „Við óskum Alfreð góös gengis með sínu nýja hði en söknum hans úr íslands- mótinu," sagði Jón Hjaltalín. -JÖG ______________________________íþróttir Mj ólkurbikarkeppnin: Verðskuldaður sigur KR-inga - sigruðu bikarmeistara Vals á Hlíðarenda í gærkvöldi „Þetta var verðskuldaður sigur. Við vorum betri aðihnn í leiknum og gátum vel skorað fleiri mörk. Þaö verður spennandi verkefni að kljást við Eyjamenn í undanúrshtunum en það verður án efa mjög erflður leik- ur,“ sagði Ian Ross, þjálfari KR-inga, eftir að hðið hafði sigrað bikarmeist- ara Vals á Hhðarenda í 8 hða úrsht- um mjólkurbikarsins í gærkvöldi. KR-ingar sigruðu með einu marki gegn engu og var sá sigur mjög sann- gjarn. Viðureign hðanna var sannkallað- ur bikarleikur þar sem baráttan var mikil og ekkert gefið eftir. Valsmenn voru meira með boltann í fyrri hálf- leik en það voru KR-ingar sem náðu að skapa sér marktækifæri eftir hættulegar skyndisóknir. Bjöm Rafnsson fékk tvívegis góð færi á að koma KR-ingum yfir. Fyrst komst hann einn í gegnum vöm Vals en í stað þess að skjóta reyndi hann að leika á Bjama Sigurðsson sem náði knettinum á síðustu stundu. í seinna skiptið komst Bjöm inn í sendingu Magna Blöndal Péturssonar en skot hans úr þröngu færi fór í hhðarnetiö. Á 71. mínútu skomðu KR-ingar eina mark leiksins. Aukaspyrna var dæmd rétt utan vítateigs og Heimir Guðjónsson skoraði rakleitt úr spyrnunni. Valsmenn mótæltu og töldu að Sveinn Sveinsson dómari hefði dæmt óbeina aukaspymu og því væri markið ekki löglegt. Markið var engu að síður dæmt gilt og bikar- meistaramir voru því komnir undir í leiknum. KR-ingar vom nálægt því að bæta við heldur en Valsmenn að jafna. Litlu munaði þegar Magni gaf enn misheppnaða sendingu aftur á Bjama sem stóð fyrir utan teiginn og Rúnar Kristinsson komst á milli en fyrir algera tílviljun rúllaði bolt- inn framhjá stönginni. Undir lokin reyndu Valsmenn allt hvað þeir gátu til að jafna en sóknir þeirra vora bitlausar og vöm KR átti ekki í neinum umtalsverðum vandræðum. Fögnuður vesturbæjar- hðsins var mikill þegar flautað var til leiksloka enda sigur á bikarmeist- urunum staðreynd. KR-liðið lék einn sinn besta leik í sumar og var hðið vel að sigrinum komið. Fæstir áttu von á því að KR- ingar ættu mikla möguleika þar sem Pétur Pétursson gat ekki leikið með liöinu. Það sýnir að breiddin í hðinu er mikil og ungu strákarnir hvöttu hver annan til dáða. Gunnar Odds- son var feiknasterkur í vöminni og besti maöur höins. Rúnar Kristins- son lék einnig mjög vel eins og reynd- ar liðiö í heild. Valsmenn áttu ekki góðan dag og hðið var hreinlega lélegt. Það munaði mikið um Atla Eðvaldsson og Einar Pál Tómasson sem báðir em meidd- ir. Vömin var óöragg og einungis Bjarni Sigurðsson kom í veg fyrir stærra tap. Baldur Bragason komst mjög vel frá sínu en aðrir voru undir meðallagi. -RR f ■ Alfreð Gíslason, landsliðsmaður í handknattleik, ásamt Halldóri Björnssyni, formanni handknattleiksdeildar KR, og Errazquin, framkvæmdastjóra Bidasoa frá Spáni. Samningur var handsalaður milli aðilanna í gær. DV-mynd Brynjar Gauti Samningar Alfreðs Gíslasonar við Bidasoa frágengnir: Höfum náð í tvo bestu handboltamenn heims - sagði framkvæmdastjóri Bidasoa í viðtali við DV 1 gær Forvfgismenn spánska stórhðsins Elgorriaga Bidasoa gengu frá sam- komulagi sínu við Alfreð Gíslason, KR og HSÍ í gær. Framkvæmdastjóri liðsins, Jóse Antonio Errazquin, kom hingað til lands gagngert th að ganga frá samn- ingunum. „Ég er mjög ánægður með að fá Alfreð til liðsins," sagði Errazquin í viðtali við DV í gær en hann var þá staddur á skrifstofu HSÍ. „Það stóð til að við fengjum tvo íslendinga til hðsins enda höfum við jafnan haft útlendinga af sama þjóð- erni í hðinu og hefur það reynst vel. Samningar við Sigurð Gunnarsson gengu hins vegar ekki upp. Ástæð- una má rekja til samkomulags heimastjórnar Baska við Pólveija en Pólverjum er boðið að æfa í Baska- héraðum Spánar fyrir ólympíuleik- ana í Barcelona við sama kost og heimamönnum. í kjölfar þessa samn- ings gátum við fengið Pólveijann Bogdan Wenta til liðs við okkur á hagstæðum kjörum til tveggja ára, með möguleika á framlengingu um eitt ár,“ sagði Errazquin. Errazquin kvað nei við, aðspurður hvort Bidasoa hygðist greiða Sigurði Gunnarssyni skaðabætur vegna samningsrofanna. Hann kvað hins vegar mögulegt að bjóða honum einhverjar bætur í formi þess að leika með öðrum hðum á Spáni eða annars staðar. Errazquin sagðist bjartsýnn á kom- andi leikár, enda teldi hann sig hafa náð samningum við tvo af bestu handknattleiksmönnum heims. „Við urðum meistarar fyrir þrem- ur árum en okkur hefur hins vegar gengið miður síðan þá. Við htum hins vegar björtum augum til næstu ára, við eigum unga og efnilega leikmenn og höfum auk þess fengið til okkar þessa tvo sterku útlendinga,“ sagði Errazquin við DV. -JÖG/JKS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.