Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1989, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1989, Síða 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskötið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstfóm - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Simi 27022 FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 1989. Sykurmolamir: Seldist upp á lokatónleikana á tveim tímum Birgir Þórisson, DV, New Yorfc Tónleikaferðalagi Sykurmolanna lauk í gærkveldi með því að þeir spil- uðu fyrir fullu húsi, 20.000 manns, í New York. Þetta voru 22. tónleikarn- ir í fórinni. Með þeim í fór voru tvær aðrar hljómsveitir, Public Image Limited og New Order, sem eru ráð- settar í þessum bransa. Tónleikarnir í New York voru liöur í tónlistarhátíð sem nefnist New Music Seminar. Þrjár íslenskar hljómsveitir, Risaeðlan, Bless og Ham, spiluðu einnig á þeirri hátíð á vegum Smekkleysu, fyrirtækis M þeirra Sykurmolanna, en minna var látið með þær en Sykurmolana sem eru orðnir vel þekktir meðal fólks sem nýungagjarnt er með tónhst. Miðar á tónleikana seldust upþ á tveim tímum tyeim mánuðum fyrr. Eitt er víst að nógir vildu heyra þá. Og New York var ekki einsdæmi. Hljómsveitirnar þrjár komu fram á 22 tónleikum um landið þvert og endilangt. Milli 10.000 og 20.000 áhorfendur voru á hverjum tónleik- um og var jafnan uppselt. Þetta var því nokkuð strangur túr, ■»þó ekki eins og fyrri tónleikafór þeirra vestra, að sögn Einars Arnar Benediktssonar. Viðtökur áhorfenda segir Einar Örn að hafi verið frekar góðar eftir svipnum á fólkinu að dæma . Samt vildi hann ekki kalla þetta sigurför en sagði Sykurmolana hafa náð að hrekkja hinar hljóm- sveitirnar með vasklegri framgöngu á sviðinu. Ekki vildi hann heldur viðurkenna að þau væru orðin stór- stjörnur eins og umboðsaöih þeirra hérna vestra vildi meina. í ágúst hggur svo leiðin til Bret- lands í blaðaviðtöl því aö plata er væntanleg í september, tónleika- ferðalag um Evrópu í október og svo aftur vestur um haf í febrúar á næsta .. ári. Nauðgunarkæran: Málið upplýst Garöar Guðjónsson, DV, Akranesi: Rannsókn á kæru um nauðgun, sem ung stúlka á Akranesi lagði fram fyrir nokkru, er að ljúka og verða gögn send ríkissaksóknara til ákvörðunar á næstunni. Að sögn Jóns Snorrasonar hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins er mál- ið upplýst og styrktist grunur um að um kynferöisafbrot hafi verið að ræða. Atburðurinn átti sér stað að ■^tiorgni sunnudagsins 2. júh en kær- an var lögð fram nær viku síðar, föstudaginn 7. júh. LOKI íþróttamenn í Hafnarfirði munu á hraðferð austur til að taka þátt í Skaftárhlaupi! Aflasamdrátturinn hefur enn ekki sagt til sín: 20 prósent samdráttur á síðari hluta ársins mestur samdráttur á Suöurlandi, Reykjanesi og Vesturlandi Þrátt fyrir að gert sé ráð fyrir um 10,9 prósent samdrætti i þor- skafla á þessu ári drógust þorsk- veiðar ekki saman um nema 2,5 prósent á fyrri helmingi þessa árs. Til þess að ná boðuðum samdrætti þarf þvi að draga úr þorskveiðum um tæp 22 prósent á síðari helm- ingi þessa árs miöað við sama tíma í fyrra. Þessi mikli samdráttur mun að likindum koma harðast niður á Suðurlandi, Reykjanesi og Vestur- landi. Á iyrri hluta þessa árs hefur verið landað í þessum landshlutum um 12 til 22 prósent meira af þorski en á sama tíma í fyrra. Ef ekki hefur komið til umtalsverðrar til- færslu á kvóta til þessara lands- hluta frá öðrum má búast við feiki- legum samdrætti i sjávarútvegi á síðari helraingi ársins. Þar sem togaraútgerð er meiri hefur verið aflað minna af þorski á fyrri hluta ársins en á sama tíma í fyrra. Á Vestfjörðum, Norður- landi og Austurlandi hefur þorsk- fah verið um 17 til 21 prósent minni í ár en í fyrra. Bf þessir landshlutar haí'a ekki misst kvóta ætti þorskafl- inn á síðari helmingi ársins að geta verið svipaður eða jafnvel meiri en í fyrra. Það er gert ráð fyrir minni sam- drætti í veiðum á öðrum botnfisk- tegundum en þorski eða um 4 pró- sent. Það sem aí'er þessu ári hefur hins vegar borist að landi um 4,5 prósent meira af helstu tegundun- um. Það má því búast við um 14 prósent samdrætti á síöari helm- htgi ársins. Sá samdráttur bætist við fyrirséðan samdrátt í þorsk- veiðum. Samdrátturiim í öðrum tegrmd- um en þorski mun skiptast mun jafnar ’ niður á landshlutana. Af flestum tegundum hefur nokkuö svipað eða örlítið magn borist aö landi á fyrri helmingi þessa árs og í fyrra og á þetta við um alla lands- hluta. -gse Skákþing Norðurlanda: Jón L sigraði Wedberg Urslit í fyrstu umferð skákþings Norðurlanda í Finnlandi urðu þessi: Jón L. Árnason vann Wedberg frá Svíþjóð. Larsen frá Dánmörku vann landa sinn. Yrjola frá Finnlandi vann samlanda sinn, Westerinen. Jafntefli varð í öðrum skákum, meðal annars í skák þeirra Helga Ólafssonar og Margeirs Péturssonar. -J.Mar Sala ÁTVR: Um 75 þúsund alkóhóllítrum Skaftá er nú í rénun en hlaupið sem hófst á mánudaginn er talið vera eitt hið stærsta síðan 1984. Tekur það ána um þrjá til fjóra daga að komast aftur í eðlilegt ástand. Vegurinn inn í Skaftárdal grófst i sundur og símasam- bandslaust varð við tvo bæi. Áætlað er að viðgerðir á því sem aflaga fór í hlaupinu geti hafist á mánudaginn en ekki var gert ráð fyrir að hægt væri að gera neitt fyrir helgi. -GHK/DV-mynd Valgeir Ingi meiri en í fyrra Vandi loödýrabænda: Samþykkt stjórnarinnar ekki til neins - segir Stefán Valgeirsson alþingismaður „Þetta er engin niðurstaða. Þessi samþykkt, sem gerð var í ríkisstjórn- inni, er ekki til neins eins og staðan er. Þetta sýnir bara að þeir vita ekki hvernig staðan raunverulega er,“ sagði Stefán Valgeirsson, þingmaður Samtaka um jafnrétti og félags- hyggju, um afgreiðslu ríkisstjórnar- innar á vanda loðdýrabænda. Stefán telur þá afgreiðslu ekki þjóna neinum thgangi. Verið sé að loka fóðurstöðvunum og þetta komi ekki í veg fyrir það. Margar fóður- stöðvar séu komnar með greiðslu- stöðvun og fái ekkert afgreitt nema gegn staðgreiðslu. Stefán taldi aö fyrst og fremst þyrfti að skuldbreyta afurðalánum frá fyrra ári svo að stöðvarnar fengju afurðalán til að halda rekstrinum áfram í ár. Stefán taldi þetta ekki vera neitt gríðarlegar upphæðir sem þannig þyrfti að millifæra til loð- dýrabænda. Hann sagðist þó ekki treysta sér til að segja hve há upp- hæðin væri fyrr en hann hefði stað- festaútreikningaáþví. -SMJ Fyrstu sex mánuði ársins seldi Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins 455.992 alkóhóllítra. Er það rúmlega 75 þúsund alkóhóllítrum meira en á sama tíma í fyrra. Heildarsala á áfengi á fyrstu sex mánuðum ársins nam 1.224.262 lítr- um sem gera 330.858 alkóhóllítra. Á sama tíma í fyrra höföu selst 1.451.299 lítrar af áfengi sem gera 380.644 alkó- hóllítra. Þarna hefur því orðið sam- dráttur í sölu sterkra og léttra vína, sem nemur 13,08%. Þessar tölur segja þó-ekki alla sög- una því bjórinn er ekki inni í þessu dæmi. í marsmánuði nam heildar- sala á honum 1.170.303 lítrum sem gerir 61.081 alkóhóllítra. Heildarsala til júníloka nam 2.418.950 lítrum sem gerir 125.134 alkóhóllítra. - JSS Veörið á morgun: Engin breyting Veðurspáin fyrir morgundaginn er nákvæmlega eins og hún hefur verið undanfarna viku eða meira. Fremur hæg suðvestlæg átt verður ríkjandi á landinu öllu. Afleiðing- arnar láta heldur ekki á sér standa. Á Suður- og Vesturlandi verður súld en þurrt og víða bjart annars staðar. Á dimmviðrissvæðinu verður hitastigið 10-11 gráður en allt upp í 18 gráður hjá þeim heppn- ustu sem að þessu sinni verða Ák- ureyringar. SHlÐASKACIIin 4 4 4 t í í 4 4 I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.