Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1989, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1989, Side 14
14 FÖSTUDAGUR 25. ÁGU^ 1989, Frjálst,óháð dagblaö Útgáfufélag: FRJÁLS FJOLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÖLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RVlK, SlMI (1 )27022-FAX: (1)27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1000 kr. Verð í lausasölu virka daga 95 kr. - Helgarblað 115 kr. Þörf á kosningum Þaö er móðgun vlö landsmenn aö láta ekki kjósa fljót- lega til þings. Þar kemur margt til. Einkum er sú stað- reynd, að núverandi ríkisstjórn er ekki nógu sterk til aö ráöa viö hinn mikla vanda, sem þjóöin glímir við. Stjórnin er auk þess rúin trausti. Þessi ríkisstjórn hefur í raun ekki einu sinni nægan þingmeirihluta til aö stjórna landinu. Hún hefur lifaö á stuðningi nokkurra manna Borgaraflokksins, stuöningi sem ekki er aö vita, hversu endist. Reynslan sýnir okkur sannarlega, að þessi ríkisstjórn er ekki vandanum vaxin. Nú eru erf- iðir tímar fyrir þjóöina. Ríkisstjórnin gerir bara illt verra. Eitthvaö þessu hkt hafa jafnvel sumir stjórnarflokka- menn verið aö segja. Þar má benda á Guðmund G. Þórar- insson, þingmann Framsóknarflokksins, og Hjörleif Guttormsson, þingmann Alþýöubandalagsins. Þeir benda meðal annars á samstööuleysi í stjórninni. Þar skortir samstöðu í veigamiklum málum. En til dæmis fulltrúar A-flokkanna munu flestir vilja halda í þessa ríkisstjórn. Þar kemur fyrst og fremst til ótti viö kosn- ingar. Eins og sagði ræöur þessi ríkisstjórn ekki viö vand- ann. Hún hefur eiginlega ekki þingmeirihluta. Þeim mun síður hefur hún traust þjóðarinnar. Ríkisstjórnin hefur slegið met í fylgisleysi meðal landsmanna. Stjórn- arflokkarnir, einkum A-flokkarnir, eru á faflandi fæti. Við blasir, aö Sjálfstæðisflokkurinn mundi vinna yfir- burðasigur, ef kosið yrði nú. Spurning hefur verið, hvort fá ætti Borgaraflokkinn í þessa ríkisstjórn, sem þá breyttist auðvitað samkvæmt því. Borgaraflokkurinn hefur hins vegar ekkert fylgi. Hann gæti auðvitað náð sér á strik með nýjum, þekktum andlitum. En sem stendur yrði stjórnin jafnfylgislaus og fyrr með Borgaraflokkinn innanborðs. í stuttu máfl verður ekki annað sagt en, að þessi ríkisstjórn ætti að fara frá. Greinilega stefnir í miklar breytingar í þing- flði. Þjóðin á heimtingu á, að kosið verði hið fyrsta. Ný og sterkari ríkisstjórn gæti kannski gert betur í viðureign við vandann. Verr gerði hún naumast. En þegar rætt er um þingkosningar kemur upp tvískinn- ungur í Sjálfstæðisflokknum. Sjálfstæðismenn leggja mesta áherzlu á að halda Reykjavík í borgarstjórnarkosningum, sem verða næsta vor. Það ætti að reynast þeim auðvelt. En þó óttast margir áhrifamenn í Sjálfstæðisflokknum, ef sjálfstæð- ismenn tækju að sér stjórnarforystu nú. Sflk stjórn mundi vafalaust beita óvinsælum aðgerðum. Það yrði ríkisstjórn á krepputímum, eins og nú er. Þótt búast mætti við, að ástandið skánaði, yrði ríkisstjórnarforysta Sjálfstæðisflokksins þeim flokki ekki fylgisaukandi. Því segja margir sjálfstæðismenn, að bezt sé, að núverandi, hin óvinsæla ríkisstjórn sitji áfram fram yfir borgar- stjórnarkosningar. Þetta kom fram í DV í gær. En raunverulegt lýðræði útheimtir annað. Ekki er unnt að hafa samúð með framangreindum sérhagsmunum Sjálfstæðisflokksins. Sjálfstæðismenn hafa unnið mikið fylgi, meðan stjórnin hefur tapað miklu. Lýðræðið útheimtir, að kosið verði hið bráðasta. Menn þurfa að vera miklir flokksdýrkendur til að sjá það ekki. Við þurfum sterkari ríkisstjórn í stað þeirrar veiku, sem við höfum með eða án Borgaraflokksins. Það þarf að taka tilflt til vilja kjósenda, sem margsinn- is hefur komið ffam. Haukur Helgason Stríðsmenn frels- isins og heims- kommúnisminn Þaö hefur vakiö minni athygli en vert er, nú þegar stórtíðindi eru aö gerast í PóUandi og víöar í Austur- Evrópu, að síðasta stríðinu, sem háö hefur veriö síðustu átta ár í nafni frelsis undan heimskommún- ismanum, var að ljúka. í síðustu viku var samþykkt á fundi fimm forseta Mið-Ameríku- ríkja að hersveitir contraskæru- hða, sem nú hafast við á bandarísk- um ölmusum í Hondúras, skyldu afvopnaðar og leystar upp ekki síð- ar en í desember og síðan yrðu haldnar frjálsar kosningar í Nic- aragua í febrúar. Bandaríkjastjóm ein var alger- lega mótfaÚin þessu samkomulagi, en nú er ljóst og frá því gengið aö stríðinu í Nicaragua er lokið og þar með íhlutun Bandaríkjamanna í því stríðshrjáða landi. Efasemdir vöknuðu Á þeim átta árum, sem contralið- ar hafa herjað á stjóm sandínista í Nicaragua, hefur ekkert áunnist, aðeins hefur stjórninni verið gert erfiðara fyrir en ella að rétta við efnahagslíf landsins. Stríð þetta hefur verið háð á hugmyndafræði- legum grunni, Reagan forseti lýsti því ytlr á sínum tíma að heimskom- múnisminn væri að ná fótfestu í Nicaragua og þaðan gæti hann breiðst út norður allt til landa- mæra Bandaríkjanna sjálfra. Upp vöktust í Bandaríkjunum ýmiss konar hugsjónamenn í bar- áttunni við þennan skelfilega óvin, sjálihoðaliðar buðu sig fram, millj- ónir manna gáfu fé í söfnun handa frelsishetjunum í Nicaragua og þingið tók contraliöa upp á sína arma. En efasemdir vöknuðu, þegar allt kom til alls var þetta framhald á byltingunni 1979 þegar Somoza var kolivarpað og þeir voru og eru fáir sem leggja nafn Somoza að jöfnu við lýðræði, frelsi og friöhelgi ein- stakúngsins. Contraliðar voru í upphafi leif- amar af her Somozas, sem haíði verið sigraður og hrakinn í útlegð til Hondúras, þar sem hann fékk að vera, gegn því að Bandaríkja- menn veittu stjóm Hondúras stór- fellda aðstoð. Hernaðurinn var í því fólginn að spilla fyrir sandínist- um með því að hrelia landslýð í Nicaragua. Hetjulegar innrásir vom gerðar frá Hondúras til að eyðileggja raf- magnslínur svo að almenningur fengi ekki rafmagn og yröi þess vegna andsnúinn stjóminni. Sömuleiðis var það hernaðarlega mikilvægt að eyðileggja samgöng- ur og spilla uppskeru kotbænda til að þeir yröu óánægðir með stjórn- ina og gengju í liö með stríðsmönn- um frelsisins. Skólar vom eyði- lagðir í sama tilgangi og þorp brennd. Allur þessi hetjuskapur í nafni frelsis og lýðræðis er nú unn- in fyrir gýg. Hrakföll Sandínistar eru að sönnu marx- istar, en ástæöan fyrir miklu fylgi þeirra er baráttan gegn Somoza á sínum tíma. Sú barátta nær allt aftur til 1923 þegar Cesar Sandino baröist gegn hemámshöi Banda- ríkjanna í Nicaragua. Sandino var síðan myrtur að undirlagi Somozas forseta, hins fyrsta af þremur af þeirri ætt sem Bandaríkjamenn komu til valda, árið 1932. Sandínistar kenna sig viö þessa frelsishetju Nicaragua og em þjóð- emissinnnar fýrst og fremst. Meðal margra Bandaríkjamanna er þjóð- emisbarátta sama og kommún- ismi. Á sínum tíma hættu Banda- ríkjamenn undir forystu Carters forseta stuöningi við Somoza í KjaUarinn Gunnar Eyþórsson fréttamaður ríkjamönnum ekki tekist að hrekja stjóm sandínista algerlega frá sér í faðm kommúnistaríkjanna. Sandínistar vilja samstarf og sam- vinnu við nágrannaríki sín og vildu frekar vera í nánum tengslum við Bandaríkin en kommúnistaríkin, enda er efnahagslíf landsins sam- tvinnað öðram Ameríkuríkjum. Sandínistar hafa því alla tíð viljað sættast við Bandaríkin, en sáttfýsi hefur þar verið af skomum skammti meðan kommúnista- stimpillinn er á lofti. Nú er svo komið að Bandaríkja- menn eiga ekki annarra kosta völ en sætta sig við stjórnina í Nic- aragua. í samkomulaginu, sem gert var á dögunum fyrir milhgöngu forseta annarra Mið-Ameríkuríkja, er ráð fyrir því gert að frjálsar „Sandínistar vilja samstarf og sam- vinnu við nágrannaríki sín og vildu frekar vera í nánum tengslum við Bandaríkin en kommúnistaríkin.“ Ortegabræðurnir vinguðust við Sovétríkin, ýmis riki i Austur-Evrópu svo og Kúbu. - Daniel (forseti) og Humberto (hershöfðingi og varnarmáiaráð- herra) Ortega. stríðinu viö sandínista árið 1979 og auðvelduðu þannig sandínistum sigurinn, en allt frá upphafl hafa Bandaríkjamenn haft ímugust á þeim vegna kenninga þeirra um sósíalisma. Eftir að sandínistar komust th valda undir stjóm Ortega bræðr- anna, vinguðust þeir við Sovétrík- in, ýmis ríki Austur-Evrópu svo og Kúbu, og óttast var í Bandaríkjun- um að Nicaragua yrði ný Kúba. Þegar Reagan forseti kom til valda varð Nicaragua einn hættulegasti óvinur Bandaríkjanna og undir hans forystu tóku Bandaríkjamenn leifarnar af her Somozas, sem síðan voru kahaðar Contraherinn, upp á sína arma, og hófu í raun stríö gegn stjóm Nicaragua. Jafnvel var svo langt gengið að leyniþjónustan CIA lagði tundurdufl viö hafnir í Nic- aragua th að stöðva hergagnaflutn- inga þangað. Þingið veitti stórfé til að vígbúa Contraherinn og fékk honum samastað í Hondúras. En efasemdir vöknuðu um ágæti alls þessa og svo fór að þingið hætti að sjá Contrahð- inu fyrir vopnum en hefur gefið því mat og klæönað hingað th. Upp úr banni þingsins við hernaðaraðstoð við contrana spratt síðan íran- Contra hneykshö, sem frægt er orðið, og þar með var endanlega útséð um að þingiö veitti aftur fé th skæruhðanna. Síðustu tvö ár hafa þeir að mestu húkt í herbúð- um sínum í Hondúras öhum til ama en engum th gagns. Kommúnisminn og kosn- ingar Þrátt fyrir allt þetta hefur Banda- kosningar verði í Nicaragua í fe- brúar undir alþjóðlegu eftirhti og mun Carter, fyirum Bandaríkja- forseti, fylgjast með framkvæmd þeirra fyrir hönd Bandaríkjanna. Þetta atriði er það sem Banda- ríkjamenn hengja hatt sinn á, þeir geta sagt að frelsið hafi verið tryggt í Nicaragua með þessum kosning- um og stríöið hafi ekki verið th einskis. Samt er Bush forseti and- vígur samkomulaginu, hann vhl að Contraherinn berjist áfram allt þar th ljóst sé hverjar niðurstöður kosninganna verða. í þessu er hann einn og einangr- aður, engir styðja hann nema hörö- ustu hægrimenn í Repúblíkana- flokknum heima fyrir, svo og land- flótta aðdáendur Somozas heitins í Bandaríkjunum. Þingið hefur samt ákveðið aö hætta öhum stuðningi við Contraherinn eftir nóvember- lok og Bush er því valdalaus í mál- inu. Þá er vandamálið hvað gera skal við þá 12 þúsund hermenn og 20 þúsund skyldmenni þeirra sem eru í Hondúras. Þessi her er stærri en her Hondúras og ekki hlaupiö að því að afopna hann með valdi. Svo gæti farið að Bandaríkjamenn yrðu að veita öllum hernum hæli í Bandaríkjunum, því að hermenn- irnir eru ófúsir að fara heim og búa undir stjórn sandínista. Það væri ekki ósanngjarnt að Bandaríkja- menn veittu þessum sigruöu frels- ishetjum athvarf, það voru þegar aht kemur th alls þeir sjálfir sem öttu hemum út í þær ógöngur sem hann er nú í. Gunnar Eyþórsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.