Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1989, Page 28
36 ‘
.930/ TBIJöÁ -ó£ ÍÍUDA1
FÖSTUDAGUR 25. ÁGUST 1989.
Andlát
Marta Björnsdóttir, lést í Landspíta-
lanum 24. ágúst.
Pétur Guðmundsson frá Fáskrúös-
firði, andaðist í Landakotsspítala að
morgni 24. ágúst.
Jarðarfarir
Oddný Ingvarsdóttir frá Laugardals-
hólum, Laugavegi 98, Reykjavík, lést
fimmtudaginn 17. ágúst í Landspítal-
anum. Útförin verður frá Dómkirkj-
unni þriðjudaginn 29. ágúst kl. 10.30.
Jarðsett í Miödal kl. 15 sama dag.
Hjörvar Þór Jóhannesson, Álfaskeiði
72, Hafnarfirði, verður jarðsunginn
frá Víðistaðakirkju í dag, föstudag-
inn 25. ágúst kl. 15.
Karólína Sigurðardóttir, Vest-
mannabraut 73, verður jarðsungin
frá Landakirkju, Vestmannaeyjum,
laugardaginn 26. ágúst kl. 14.
Ásdís Sveinsdóttir frá Vestmanna-
eyjum veröur jarðsungin frá Landa-
kirkju í Vestmannaeyjum laugar-
daginn 26. ágúst kl. 11.
Hjörtur Þorkelsson netagerðar-
meistari, Heiðarvegi 6, Keflavík,
verður jarðsunginn frá Keflavíkur-
kirkju laugardaginn 26. ágúst kl. 14.
Helga Stefánsdóttir, Hvammsgerði
4, Reykjavík, áður Hjaltabakka, A-
Hún., sem andaðist 22. ágúst, verður
jarðsungin frá Blönduóskirkju laug-
ardaginn 26. ágúst kl. 16.
Sveinn Tryggvason, fv. fram-
kvæmdastjóri, lést 16. ágúst. Hann
fæddist í Reykjavík 12. ágúst 1916,
sonur hjónanna Sveinsínu Sveins-
dóttur og Tryggva Benónýssonar.
Sveinn stundaði mjólkurfræðinám
bæði hér heima og í Noregi. Hann
starfaði fyrst við Mjólkurstöðina í
Reykjavík og síðar varð hann mjólk-
urbússtjóri í Hafnarfirði allt til árs-
ins 1942. Hann gegndi ráðunautar-
störfum hjá Búnaðarfélagi íslands
1942-1947. Um skeið var hann mjólk-
urbússtjóri á Sauðárkróki. Hann var
skipaður framkvæmdastjóri Fram-
leiðsluráðs landbúnaðarins 1947 og
gegndi því starfi í 32 ár eða allt til
ársins 1979. Eftirlifandi eiginkona
hans er Gerður S. Þórarinsdóttir og
eignuðust þau tvö börn. Útför Sveins
verður gerð frá Dómkirkjunni í dag
kl. 13.30.
Fréttir________________,_______
Ungir sjálfstæöismenn:
Skora á sovéska valdamenn
y í tilefni af því að fimmtíu ár eru
hðin frá því að griðasáttmáli Sovét-
ríkjanna og nasistaríkis Adolfs Hitl-
er í Þýskalandi var undirritaður,
hafa ungir sjálfstæðismenn sent frá
sér áskorun til sovéskra valda-
manna.
Þar eru þeir hvattir til þess að gera
opinber öll skjöl sem lúta að griða-
sáttmála þeirra við Þriðja ríki nas-
ista í Þýskalandi, sem undirritaður
var hinn 24. ágúst 1939, þar með tahn
leyniákvæði samningsins, að viöur-
kenna að innhmun ríkjanna hafi ver-
ið ólögleg og láta af sögufölsunum
um að þjóðimar hafi af fúsum og
fijálsum vilja gengið í Sovétríkin.
í ályktuninni er tekið undir „sjálf-
sagðar kröfur Eistlendinga, Letta og
Litháenbúa um að fá að njóta ófrá-
víkjanlegs sjálfsákvörðunarréttar
þjóða frelsis og lýðræðis".
í fréttaskeyti frá SÚS segir m.a. „að
Moskvustjórnin hafi leynt og ljóst
unnið að því að útrýma öllum menn-
ingareinkennum Eystrasaltsþjóð-
anna“. Einnig segir þar að ungir
sjálfstæðismenn styðji frelsisbaráttu
þessara þjóða og vilja minna íslend-
inga á hve gæði frelsis og lýðræðis
geti verið auðglatanleg.
-ÓTT
Uppboö á Patreksfiröi á þriðjudag:
Talið að Fiskveiða-
sjóður innleysi
hraðfrystihúsið
„Þaö getur vel verið að Hraðfrysti-
hús Patreksfjarðar falh í hlut Fisk-
-veiðasjóðs ísiands á uppboðinu sem
verður haldið eftir helgi. En ég tel
engar líkur á því aö skipin Sigurey
og Þiymur verði okkar,“ sagði Sva-
var Armannsson, aðstoðarforstjóri
Fiskveiðasjóðs, í samtah við DV í
gær.
„Reyndar eigum við fyrsta veðrétt
bæði í skipunum og í húsinu en það
hefur aldrei verið okkar stefna að
bjóða hærra en veð sjóðsins í við-
komandi eignum segir til um. Húsið
er þama á þessum tiltekna stað og
verður ekkert flutt þaðan. Skipin em
hins vegar eftirsóttari vegna fisk-
veiðiheimilda og annars slíks sem
þeim fylgir. Því em meiri hkur til
þess að við munum aðeins eignast
húsið. Annars verða uppboð að hafa
sinn gang og ekkert hægt að segja
fyrirfram um slíkt,“ sagði Svavar.
Samkvæmt heimildum DV er lík-
legast að Stapar, nýstofnað hlutafé-
lag sveitarfélags Patrekshrepps og
fiskvinnslu- og útgerðaraðha á Pat-
reksfirði, muni ganga tU samninga
við Fiskveiðasjóð íslands að afloknu
uppboði - ef raunin verður sú að
sjóðurinn innleysi hraðfrystihúsið tíl
sín á þriðjudaginn.
-ÓTT
Leiðrétting
Með mynd um verðlaunagarða á Akranesi í blaðinu gær birtist rangur
texti. Hér er sá rétti en tveir garðar hlutu viðurkenningu. Karl örn Karlsson
og Guðrún Garðarsdóttir í verðlaunagarði stnum ásamt Rakel dóttur sinni.
» DV-mynd Garðar
Menning
Til að skrifa á umslagið duga ekki venjuleg skriffæri. Stefán á þó blýant við hæfi í safni sínu.
DV-mynd Hanna
Yfirstærð af umslagi bíöur þess að fara í póst:
Trúi að Andy Warhol
hefði verið ánægður
- segir listamaöurinn Stefan Geir Karlsson
„Áhrifin koma fyrst og fremst frá
bandarísku popphstamönnunum.
Ég hef trú á að Ándy Warhol hefði
verið ánægður með mig,“ sagði
Stefán Geir Karlson, „stórhsta-
maður“ og teiknari hjá Sighnga-
málastofnun ríkisins.
Hann hefur á undanfömum
árum vakið athygh fyrir hstaverk
sem öh eru í stærri kantinum.
Hann sýndi fyrir tveimur árum 4,5
metra breitt herðatré í Viðey og nú
hefur hann búið til umslag sem er
2,10 á hæð og 3,10 á breidd. Næstur
á dagskrá er tappatogari af stærri
gerðinni.
Umslagið geymir hann á
geymslulofti Sighngamálastofnun-
ar og verður það trúlega ekki póst-
lagt í bráð. Umslagið prýðir mynd
sem Grétar Eiríksson ljósmyndari
tók af Snæfehsjökh séðum úr
Breiðuvík á SnæfeUsnesi.
Stefán beitti nýjustu tækni frá
Japan við að koma myndinni á
umslagið, sem er úr lérefti. Myndin
er samansett úr ótölulegum fjölda
punkta sem sprautað er á efnið með
sérstakri tækni sem kahast Scan-
krom. Tölva er látin nema frum-
myndina og hún stýrir síðan máln-
ingarspruatunni sem punktar
myndina á léreftið.
Með þessari tækni má yfirfæra
myndir á hvaða efni sem er. Þær
halda sama skarpleika og ljós-
myndir en endast jafnlengi og mál-
verk. Venjulegar litmyndir endast
vart lengur en í 25 ár.
Þessa tækni má jafnt nota til að
hressa upp á daufan ht á forngrip-
um sem að búa th risastór auglýs-
ingaskUti. Stefán lét stækka mynd-
ina í Svíþjóð en þar er önnur af
þeim tveimur vélum þessara gerð-
ar í Evrópu. Uppátækið er dýrt og
kostar Stefán um 100 þúsund krón-
ur.
„í popphstinni er aUt leyfilegt. Það
er ekki til sú tækni eða fyrirmynd
sem ekki má nýta,“ sagði Stefán
Geir Karlsson.
-GK
Fréttir
Styrkir Fulbright nema 6,6 milljonum
Fulbrightstofnuxún, þ.e. Mennta-
stofnun íslands og Bandaríkjanna,
styrkir árlega hóp íslendinga tíl
framhaldsnáms við bandaríska há-
skóla. í ár nemur framlag stofnunar-
innar og bandarískra háskóla sam-
tals um 6,6 miUjónum króna.
Á síðasta ári hlutu 16 íslendingar
styrk, þ.e.a.s. fyrir skólaárið 1989-90.
Úthlutun Fulbrightstyrkja fyrir
skólaárið, sem gengur í garð haustið
1990, verður í október næstkomandi.
Stofnunin, sem hefur skrifstofu á
Laugavegj 59, veitir umsóknarfrest
tU 15. september nk. Fulbrightstofn-
unin veitir hverjum námsmanni
peningaupphæð og aðstoðar við frek-
ari styrki frá bandarískum skólum.
„Er það gert í krafti þess nafns sem
Fulbrightstyrkþegar hafa getið sér,“
segir í tilkynningu frá stofnuninni.
-ÓTT
Fjölmiðlar
68-kynslóðirnar tvær
Hið dæmalausa sunnudagsblað
Morgunblaðsins, sem ritstjóramir
sjá vonandi sóma sinn í að leggja
niður sem fyrst, reynir þessar vik-
urnar eins og Ríkissjónvarpið á
undan þvi að gera mikið úr andófs-
mönnum þeim, sem kenna sig viö
68-kynslóðina. Eru birt við þetta fólk
viðhaöiarviðtöL
Hveiju hefur þetta fólk fengið
áorkað? Þeir, sem fóru til Kúbu,
aöstoðuðu einn versta afturhalds-
segg heims tU að kúga kúbverska
alþýðu. (Hvert er víðáttumesta land
i heimi? Kúba, svara gárungamin
Fólkið er í Bandaríkjunum, stjómin
í Moskvu og herinn i Angólu.) Þeir,
sem lögðust í eiturlyflaneyslu og
aðra ómennsku, urðu foreldrum
sínum til skammar og öðrum til
leiðinda. Þeir, sem mótmæltuaf-
skiptum Bandaríkjamanna af stríð-
inu í Indó-Kina sem hæst, hafa
vandlega þagað um bátafólkið, sem
sigldi frá Víetnam, og fjöldagrafirn-
ar, sem opnaðar hafa verið í
Kambódíu. .
Á sama tíma óx úr grasi önnur
68-kynslóð, sera stundaöi borgara-
legar dyggðir, notfærði sér réttindi
sín án þess að vanrækja skyldurn-
ar, bjó í haginn fyrir sig og sína. Eru
af henni menn eins og Davið Odds-
son, Þorsteinn Pálsson, Magnús
Gunnarsson, Jón Steinar Gunn-
laugsson, Baldur Guðlaugsson og
Brynjólfur Bjamason. En um það
þegir sunnudagsblaðið auðvitað.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson