Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1989, Qupperneq 3
ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1989.
3
Fréttir
Tekjuskattar einstaklinga 1981 til 1990
á verðlagi 1990 miðað við launavísitölu
Tekjuskattur einstaklinga:
Tvöfaldast á þremur árum
Sá hlutur sem ríkissjóður tekur af
launum landsmanna í formi tekju-
skatts hefur nær því tvöfaldast á síð-
ustu þremur árum.
Miðað við launahækkanir voru
tekjur ríkissjóös af tekjuskatti um 5,8
milljarðar árið 1987 á verðlagi næsta
árs. Samkvæmt tekjuskattsfrum-
varpi Ólafs Ragnars Grímssonar er
hins vegar gert ráð fyrir að tekjur
ríkissjóðs á næsta ári verði um 11,1
milljarður af tekjuskatti einstakl-
inga. Á þremur árum hefur hlutur
ríkissjóðs af tekjum landsmanna því
vaxið um 5,3 milljarða eða 92 prósent.
Tekjuskattar árið 1987, „skattlausa
árið“, voru ívið lægri en árin á und-
an. Ef tekið er meðaltal tekjuskatts
á árunum 1981 til 1987 verður hækk-
un tekjuskatts undanfarin ár eihtið
minni eða um 76 prósent.
-gse
íslenskt iðnverkafólk:
Vinnur meira
fyrir minna
Kostnaður íslenskra fyrirtækja af
hverri vinnustund í iðnfyrirtækjum
er mun lægri en í flestum nágranna-
löndum okkur. Aðeins í Bretlandi er
kostnaðurinn minni. Hins vegar
vinnur íslenskt iðnverkafólk mun
meira en nágrannar okkar og þarf
að fara alla leið til Japan til að finna
meiri vinnu. íslenskt iðnverkafólk
vinnur þannig um 9 tímum meira á
viku en sænsk starfssystkin. Það
jafngildir um 30 prósent meiri vinnu
á íslandi.
Þrátt fyrir fleiri stundir á íslandi
tekst íslensku iðnverkafólki ekki að
ná jafnmiklum launum á ári og
Svíar. Launamismunurinn er ein-
faldlega meiri en það.
Þessar upplýsingar má lesa úr
skýrslu sænska vinnuveitendasam-
bandsins um samanburð á launa-
kostnaði og vinnutíma milli landa.
Nýverið birti danska blaðið Pohtiken
þennan samanburð.
Rétt er að geta þess að vinnutími
íslensks iðnverkafólks getur verið
ofmetinn í þessum samanburði þar
sem upplýsingar hans eru byggðar á
útreikningum kjararannsóknar-
nefndar. Þar er fólk sem vinnur hluta
úr degi hækkað upp til jafns við þá
sem eru í fullu starfi. Eins eru upp-
lýsingar frá öðrum löndum yfirleitt
mun nákvæmari. Til dæmis draga
Svíar námskeið trúnaðarmanna,
jarðarfararfrí og fleira frá í sínum
tölum.
Annað sem hefur áhrif á þennan
samanburð er að í tölurnar yfir
launakostnaðinn á íslandi vantar
alla stóriðju en starfsfólk í þeirri
grein er yfirleitt betur launað en fólk
í almennum iðnaði. Einhverra hluta
vegna hefur starfsfólk í stóriðju aldr-
ei verið tekið inn í kannanir kjara-
rannsóknamefndar. Ólíklegt er að
það verði gert þar sem þá kæmi fram
mikið launaskrið í fýrstu könmm
kjararannsóknamefndar effir þá
breytingu þar sem há laun stóriðju-
fólksins myndu hífa upp öU meðaltöl.
-gse
Árlegur
vínnutími
iðnverkamanns
Launakostnaður á
hverja vinnustund í
rakrónum 1988
JAPAN 2100 tímar
ISLAND 1959 timar
ENGLAIMD 673
jélatilboð !
HQ (High Quality), þráölaus fjarstýring,
barnalæsing, 365 daga/8 atriða v
upptökuminni og margt, margt fleira er
á þessu geysigóða myndbandstæki
Jólatilboð aðeins:
36.9S0,-.
Þetta fagurlega hannaða 20" sjónvarpstæki
er með þráðl. fjarstýringu, 40 stöðva minni,
skarpri mynd, skýrum litum, sýnir stillingar á
skjá og er sérlega auðvelt í notkun.
Jólatilboð aðeins:
44.800,-
NORDMENDE
Samliort
allt að 12mán.
/lílt á eUtusn dtaxt /
SKIPHOLT11
SIMI 29800
*■' .v, \' /% '• fVv '•Ý'íy' 'v^ X