Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1989, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1989, Blaðsíða 11
 iHRaiRA Blse-Maric Nohr Erik Nerlöe KU.OBЮ SVIKAVEFUR SKUGGSJA -ÖfUGQs^U ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1989. Utlönd Sovéskir kommúnistar Afvopnun á höfimum: EKKI ER ALLT SEM SÝNIST. Theresa Charles. Annabella hafði verið yfir sig ástfangin af Davíð, og var niðurbrotin, þegar hann fór skyndilega til Ástralíu. En hún var viss um að hann myndi snúa aftur til hennar, þó aðrir væru ekki á sama máli. LYKILORÐIÐ. Else-Marie Nohr. Hugo liein bíður ásamt lítilli dótturdóttur sinni eftir móður litlu telpunnar. En hún kemur ekki. Skelfingu lostinn sér gamli maðurinn að dóttur hans er rænt. Litla telpan stendur einmana og yfirgefin. Mamma er horfin. ALJÐIJG OG ÓERJÁLS. Barbara Cartland. Til að bjarga föður sínum frá skuldafangeisi giftist Crisa Silas P. Vander- hault. Nokkru síðar er Crisa orðin ekkja eftir einn af ríkustu mönnum í Ameríku. En nú er hún eins og fangi í gylltu búri. SVIKAVEFUR. Erik Nerlöe. Hún hefur að því er virðist allt, sem hugurinn girnist. Elún hefur enga ástæðu til að stela, en samt er það einmitt það sem hún gerir. Eða hvað? Er einhver að reyna að koma rangri sök yfir á hana? Forysta Islands biðla til kjósenda vekur athygli - Sovétforseti vill bann á skammdræg vopn á herskipum Mikhail S. Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna (til vinstri), lagði til á fundi sín- um með George Bush Bandarikjaforseta (til hægri) i byrjun mánaðarins að stórveldin samþykktu bann á skammdræg kjarnorkuvopn um borö í herskipum. Simamynd Reuter Tribune var nýlega fjallað um víg- búnað stbrveldanna á höfunum og nýjar tiliögur Sovétmanna þar að lútandi. Var í blaöinu skýrt frá for- ystu íslendinga er varðar kröfur um að stórveldin setjist að samninga- borðinu um afvopnun eða hömlur á kjarnorkuvígbúnað á höfunum. Umfjöllun blaðsins kemur í kjölfar nýafstaðins leiðtogafundar stórveld- anna en hann var haldinn í byrjun þessa mánaðar. Þar lagði Gorbatsjov Sovétforseti til, að því er háttsettir bandarískir embættismenn hafa skýrt frá, að Sovétríkin og Bandarík- in samþykki bann á öll skammdræg kjarnorkuvopn um borð í herskip- um. Tilboð forsetans myndi ná til þúsunda kjarnorkuvopna beggja stórvelda. Að sögn heimildarmanna hafnaði Bush umræðum um tillögur Sovét- forsetans á fundinum. En þrátt fyrir að hann hafi vísað þessu á bug er ljóst að hann er undir sívaxandi þrýstingi frá sumum aðildarríkjum Atlantshafsbandalagsins, þ.á m. ís- landi, að láta af andstöðu sinni við að afvopnunarviðræður stórveld- anna nái einnig til vígbúnaðar á höf- unum. Bretland og Frakkland styðja þá afstöðu Bandaríkjanna að vígbúnað- ur á höfunum sé Vesturlöndum nauðsynlegur til að tryggja stöðug- leika á meðan vopnum á landi er fækkað. En önnur smærri aðildar- ríki Nato, s.s. ísland, Noregur, Dan- mörk og Kanada, hafa hvatt til sveigjanlegri afstöðu af hendi banda- lagsins og segja aö það ætti að und- irbúa sig undir viðræður um fækkun eða hömlur á vígbúnað á höfunum. Island hefur verið í forystu fyrir þessum þjóöum, segir í grein blaðs- ins, og hafa fulltrúar þess formlega farið fram á að Nato undirbúi tillögur um fækkun vígbúnaðar á höfunum, þar á meðal fækkun kjarnorkukaf- báta. _Og þó Danir, Norðmenn og Kanadamenn hafi ekki kynnt form- legar tillögur á sömu nótum leggja þeir einnig aö bandalagsríkjunum að vígbúnaður á höfunum verði hluti afvopnunarviðræðna stórveldanna. Bandaríkjamenn hafa áður lýst sig andvíga tillögum Sovétmanna um hömlur á vígbúnað á höfunum. En Paul H. Nitze, fyrrum samningamað- ur Bandaríkjaforseta, telur að hið nýja tilboð Sovétríkjanna sé mjög jákvætt. Segir hann að í raun sé eng- inn tilgangur með skammdrægum vopnum um borð í herskipum. Við værum betur stödd án þeirra, segir Nitze, því meiri líkur eru á að sjóher Bandaríkjanna beri sigur úr býtum í hernaðarátökum þar sem kjarn- orkuvopnum yrði ekki beitt. William Arkin, sérfræðingur í kjarnorkuvígbúnaði, telur að Banda- ríkin og Sovétríkin hafi milh 3.000 og 3.500 kjamaodda á 395 herskipum. En, sagði hann í samtali við blaða- mann greinarinnar, margir hta svo á að kjamorkuvopn á höfunum séu ónauðsynleg. Á síðustu fjórtán mán- uðum hefur Bandaríkjaher lagt hundruð kjamorkubúinna djúp- sprengja, sem em ætlaðar til nota í kafbátahernaði, sem og kjarnorku- búinna loftvarnaflugskeyta, að því er Arkin segir. Bandaríski sjóherinn hvorki neitar né viðurkennir að um borð í herskipum hans séu kjarn- orkuvopn. International Herald Tribune Sovéskir ráðamenn, sem standa nú frammi fyrir vaxandi óánægju almennings í landinu með hríðfall- andi lífskjör og versnandi efnahag, hafa lagt að sovéskum kjósendum að sýna stuðning sinn við komm- únistaflokkinn í bæjar- og sveita- stjómarkosningum víða um land á næstu vikum og mánuðum. í gær tóku flokksfélagar á sig sökina fyr- ir hvemig komið er fyrir efnahag þjóðarinnar og í yfirlýsingu mið- stjómar flokksins var ástandið sagt alvarlegt. Yfirlýsingin, þar sem biðlað var til kjósenda í fyrirhuguðum kosn- ingum, kom sama dag og tíu daga fundur löggjafarþings hófst. Á þeim fundi mun efnahagshfið og tillögur til úrbótar - hvernig rétta megi við fjárlagahalla og binda enda á hinn þráláta vöraskort - verða efst á baugi. En á fundinum munu fulltrúarnir án efa einnig ræða um ástand mála í mörgum bandalagsríkjum Sovétríkjanna en í mörgum þeirra hefur forystuhlut- verk kommúnistaflokksins verið lagt af. Á fundi miðstjómar flokksins í gær kom fram gagnrýni á umbóta- stefnu Gorbatsjovs forseta. Á fund- inum sökuðu íhaldsmenn forset- ann um að yfirgefa sósíahsmann með umbótum sínum og deildu miðstjómarmenn ákaft. Að sögn heimildarmanna bauðst forsetinn til að víkja úr embætti en ritstjóri málgagns kommúnistaflokksins, Prövdu, vísað síðar öhum slíkum fréttum á bug. Að sögn heinúldar- manna varð ekkert úr afsögninni þar sem flestir þeir sem á fundinum voru lýstu yfir stuðningi við Gor- batsjov. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem forsetinn er sagður hafa boðist tíl að víkja úr embætti, að sögn fréttaskýrenda. Yfirlýsing miöstjórnarinnar frá í gær kom á svipuðum tíma og fyrstu tölur bárast um niðurstöður sveit- arstjórnarkosninga sem fram fóra um helgina í tveimur Eystrasalts- ríkjunum. Niðurstöður Uggja ekki fyrir en líkur benda tíl að róttækir hópar aðskilnaðarsinna í Lettlandi Ritstjóri málgagns sovéska komm- únistaflokksins, Prövdu, Ivan Frolov, neitaði í gær fregnum um að Gorbatsjov forseti hefði boðist til að segja af sér. Simamynd Reuter og Eistlandi muni bera sigur úr býtum. Fyrstu niðurstöður, birtar í gærkvöldi, sýndu að hreyfmg umbótasinna hefði þegar unnið átj- án sæti af áttatíu í borgarstjórn TalUn, höfuðborgar lýðveldisins. í Lettlandi benda líkur tíl að Þjóð- fylkingin - sem m.a. krefst sjálf- stæðis frá Moskvu - hljóti sextíu prósent atkvæða. Endanlegar niðurstöður hggja ekki fyrir enn sem komið er. Fréttaskýrendur telja kosningar þessar mælikvarða á afstöðu íbúa lýðveldanna tveggja tU Moskvu og krafna um aukiö sjálfsforræði. En þeir lögöu áherslu á í gær að þó svo virtist sem umbóta- og aðskUnaðar- sinnar hafi forystuna í kosningun- um enn sem komið er þurfi það ekki endUega að þýða ósigur fyrir kommúnista. Klofningur er í flokk- unum í lýðveldunum og afstaðan til Moskvu misjöfn. Benda þeir einnig á t.d. að margir frambjóð- enda í Þjóðarfylkingunni í Lett- landi séu einnig félagar í komm- únistaflokki lýðveldisins. Reuter ENGINN SÁ ÞAÐ GERAST. Eva Steen. Hún erdaufdumb. Hún héfur búið hjá eldri systursinni, frá því aðforeldrar þeirra fórust í bílslysi. Systirin hefur haldið vandlega leyndu fyrir yngri systur sinni leyndarmálinu, sem foreldrar þeirra tóku með sér í gröfina. SKVGGSJÁ - BÓKABÚÐ OUVERS STEMS SF

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.