Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1989, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1989, Side 28
32 ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1989. Menning Margra hæða sögur Þetta er fjórða smásagnasaín Svövu en hið fyrsta birtist 1965. Auk þess hefur hún sent frá sér tvær skáldsögur og sex leikrit. í þessu safni eru sex smásögur og hefur ein þeirra (Endurkoman) birst áður, í smásagnasafni Ustahátíðar 1986. í hverri sögu er ein persóna í miðpunkti, þannig að fylgst er með hugsunmn hennar, stundum segir hún söguna. Flestar sögumar eru einkum hugleiðingar miðaldra kvenna um ýmislegt sem fyrir hefur borið. Ein sagan er þó hugleiðingar gamals manns, þegar uppkomin böm hans em komin til að flytja móður sína á elliheimili. Bókin ber nafn af fyrstu sögunni sem ger- ist á sumarbústaðarlandi roskinni hjóna. Sonur og tengdadóttir em í heimsókn með lítið bam sitt, þama er rætt um margra alda gróðureyðingu á staðnum og skógrækt eldri hjónanna. Sagan leggur saman myndir af viðkvæmu ungviði af ýmsu tagi, tijám, fugls- ungum, bömum, andspænis eyðingaröflum elli og uppblásturs. Sagan er sögð frá sjónar- miði eldri konunnar. Önnur saga er bemsku- minningar fullorðinnar konu, um búferla- flutninga í Ameríku og skrítið atvik í Bret- landi á stríðsárunum. Þar skynjar bamið vanmátt sinn og gamallar íslenskrar konu í því að hvorag nær valdi á málinu. Minning um tæmdan nautsskrokk tengir þetta við þriðja umkomuleysingjann, sem hefur þó vald á málinu og lítur glæsilega út, það er klæðskiptingur. Um báðar þessar sögur gild- ir að of lítið tengir einstök atriði þeirra, þær em gisnar, þar sem aðrar sögur hér em þétt- ar. Mér fmnst auk þess há síðamefndu sög- unni verulega að hún er sögð frá sjónarmiði smástelpu, en málfar hennar er fullorðins- legt, jafnvel ritmál, t.d.: „Raðir af innrömm- uðum mannamyndum stóðu uppi á kommóð- unni en hún var svo há að ógjömingur var fyrir telpuna að skoða myndimar að gagni úr sæti sínu. Því síður sá hún inní skúffum- ar.“ Það bætir ekki úr þessu ambagan að kalla skúffumar misbreiðar þegar greinilega er átt við að þær séu misdjúpar. Málfar er miklu áhrifaríkara í síðustu sögunni, þar sem telpa notar talmál, en færist yfir í hefð- bundið ritmál þegar hún fer að segja htla bróður sínum þjóðsögur (bls. 103). En ailar em sögumar á fleiri en einni hæð, ef svo má að orði komast, það er mikið um vísanir í foma atburði og sagnir. Útskúf- un og samkennd er áleitið efni í bókinni. Álfasaga Síðasta sagan finnst mér einna athyglis- verðust. Þar fléttast saman ýmsar sögur. Annars vegar era álfasögur, sem fylgja ætt aðalpersóna. Ættfaðir þeirra hafði verið tældur inn í álfarann af áifkonu, en á síðustu stundu hafnaði hann ástum hennar. Fyrir slíkt hefna álfkonur ævinlega með því aö Svava Jakobsdóttir. leggja á menn auðnuleysi, eins og alkunna er. Síðan bera ýmsir karlmenn ættarinnar fæðingarblett á enni. Þessi álfasaga er svo endurtekin í nútímanum; maður heldur við konu vinar síns, hefur loks sagt skilið við hana, en vitjar hennar í síðasta sinn í sumar- bústað sem er einangraður í heiðinni. Þar hittir hann fyrir mann hennar og þeir fara saman glæfraferð. Okkur er sagt að þeir séu mjög samrýndir, enda þótt öðrum verði allt að gulli en ekkert festist við hinn. Þetta leið- ir hugann að sögunni um Kaen og Abel, ásamt blettinum á enni, enda er oft vikið að þeirri sögn beinlínis og sagt að í henni skipt- i bróðurmorðið ekki mestu máli, heldur upp- haf sögunnar, að fóm var hafnað. Og þetta tengist álfasögninni, sem sögð er vera tilraun ættarinnar til að skýra auðnuleysi sitt. Enn flækist málið við það að öll sagan er frásögn eldri systur mannsins sem fór í bú- staðinn, hún lýsir líka-því sem ekkert vitni var að. Og hún hafði alla bemsku verið að segja honum sögur, einkum þó álfasögur ættarinnar. Við kynnumst þessari konu þeg- ar í upphafi sögu, þar kemur fram að hún er beisk yfir því að hafa alla ævi þurft að annast þennan bróður sinn, auk þess sem hún er síþrælandi einstæð móðir teggja barna. Og í frásögn hennar skín hvarvetna í gegn löngunin til valda, með því einkum að breyta sögum að eigin geðþótta. En þessi saga virðist ætla að fá farsælan endi, gegn vilja hennar. Bókmeraitir Öm Ólafsson Þannig er sagan fléttuð úr ýmsu efni, fomu og nýju, sem allt er kunnuglegt lesendum. Forboðar þétta hana líka, t.d. fylgir frá upp- hafi ískaldur gustur manninum sem seinast verður úti. Og með því að sagan er á fleiri en einni liæð, ef svo mætti segja, samtímafrá- sagnar og goðsagna, þá verða persónur margbrotnar og koma við lesendur á óvænt- an hátt. Þetta munu lesendur Svövu kannast við frá fyrri ritum. En sfimdum finnst mér þetta ekki takast eins vel, eins og þegar Palestínu- farinn fer allt í einu að finna fyrir „flís í auga“ sínu og sjá eigin uppeldisaðgerðir gagnvart unglingnum syni sínum sem eitt- hvað hliðstætt við kúgunina á Palestínuaröb- um. Hún er einfaldlega ekki nógu grimm við strákinn til að það réttlæti þessa samlíkingu, ætlaði bar aö finna að þvi að hann lægi í bælinu til hádegis. Endurkoma er frásögn konu sem kemur heim til íslands eftir fjömtíu ára fjarvem. Svava hefur fínleg tök á því að sýna sálar- ástand aðalpersónunnar. Garður þessarar konu er fyrsta vísbendingin um að eitthvað sé að, hún ræður ekki við illgresið. „Hún reyndi svo sem að halda í horfinu hér fram- anvert við húsið. Öðra máli gegndi um bak- garðinn. Þar hafði hún alveg gefist upp. [...] skammaðist sín fyrir arfagarðinn, flúði það- an svo hratt að háir slímugir stönglamir vöfðust um fótleggina meðan hugsanimar þutu í óreiðu um hugann... hvers vegna ekki að sýna honum... hvað var hún að dylja" [auðkennt af E.ÓJ. Þetta er táknrænt fyrir sálarástand hennar. Alla ævi hafði hún verið fangi sárra minninga og hve nærri henni þær gengu sést á því að lesendur upp- götva minningarnar smám saman undan fargi bæhngar. Einnig á því að þegar hún gengur fjömtíu ámm síðar um fomar slóðir fylgjumst við með huga hennar í fyrirvara- lausu stökki úr nútíð í fortíð og aiftur til baka. Við finnum loks fyrir frelsun hennar á svip- aðan hátt í því að skynjun hennar á nánasta umhverfi fer að brenglast, hún veit ekki hvort bjargvætturin, sem hún hitti, er eftir- mynd hennar sjálfrar, maðurinn hennar eða hvað. Hún fann fyrir félagslegri útskúfun í bemsku en frelsast þegar hún skynjar að hún er hluti heildar, hennar vandi var í grundvallaratriðum almennur. Þessi bók sýnir að ekki skortir hæfileika en kannski eitthvað á sjálfsgagnrýni höfund- ar, of mikið að hálíklámðum hlutum fer út. Svava Jakobsdóttir: Undir eldfjalli. Forlagið 1989, 122 bls. -ö.ó. Af Skuggabjörgum Ný bókaútgáfa hefur tekið til starfa í Reykjavík. Það em í sjálfu sér ekki stórar fréttir, nema af því að fyrirhugað er að hún gefi eingöngu út bækur fyrir börn. Bama- bókaútgáfan fer af stað með útgáfu á sögu Áma Árnasonar Óvænt heimsókn, sem Anna Cynthia Leplar hefur myndskreytt. Óvænt heimsókn er ævintýri og byggir á ýmsum hefðum sem þeim tilheyra. í upphaf- skynningu sögunnar segir: „Á tilteknu svæði á miðju Atlantshafi er næstum því alltaf þoka. Öldum saman hafa sæfarendur sneitt framhjá því án þess að kanna það.“ Sagan segir frá mannlífinu á þessu svæði. Aðalpersónan er Hugi kóngssonur. Hann er orðinn leiður á ofvemduðu lífi innan veggja Skuggabjarga, hallarinnar á Þokueyj- um. Með hjálp gamals vinar síns tekst hon- um að komast út úr höllinni og inn á yfir- ráðasvæði Strandveija sem em næstu ná- grannar. Þar kynnist hann bömum og leikj- um þeirra. Skarpar andstæður f óvæntri heimsókn er persónusköpun mjögaf skomum skammti. Það er einna helst að Hildur, stelpa í nágrannabyggðinni, hafi Bókmenntir Sigurður Helgason greinanleg persónueinkenni. Hugi er hins vegar flatur og litlaus persónuleiki. Her- menn komungs em gerðir helst til vitgrann- ir, en það er væntanlega til að sýna fram á tilgangsleysiö og heimskuna sem fylgir hem- aði og stríðsrekstri. Höfundurinn mótar mjög skarpar and- stæður í sögunni. Annars vegar er það drunginn og leiðinlegheitin í höllinni, en hins vegar glaðværð og lífsgleði Strandverja. Kannski kemur þetta ljósast fram í nafni hallarinnar, Skuggabjörgum, annars vegar og nafni á íbúum nágrannabyggðarinnar, Strandveijum, hins vegar. Kímnigáfa höfimdar fær hann til að gera óspart grín að hermennskunni og segja má að þetta sé lýsing á herferðinni sem aldrei var farin. Hermennimir em gerðir að ein- feldningum og allar athafnir þeirra gefa það til kynna. Árni Arnason. Agætt byrjandaverk Fyrir fáeinum árum bar langmest á sögum fyrir böm, sem fjölluðu um raunveruleik- ann. Ævintýri vom þá helst ekki skrifuð. Lífið á heimilinu, með félögunum, í skólan- um og í leikskólanum vom áberandi á bama- bókamarkaði. Núna kemur hvert ævintýrið út á fætur örðu. Raunsæið- er í fríi - ævin- týraheimarnir í tísku. Ég held að Óvænt heimsókn sé áreiðanlega fyrsta bók Árna Ámasonar. Hún telst hið ágætasta byijandaverk, en þó em á henni þeir hnökrar sem fyrr em nefndir, að persón- usöpun er með einfaldasta móti. En það er líka hátturinn í ævintýmnum og því hugsan- lega gert af ásettu ráði. Myndir Önnu Cynthiu Leplar þjóna mikil- vægum tilgangi í heildargerð bókarinnar. Þær falla mjög vel að efni bókarinnar og ljá hugblæ sögunnar aukna dýpt. Ég óska Bamabókaútgáfunni til hamingju með þetta fyrsta útgáfurit og vona að áfrarn verði hald- ið við að gefa út bækur fyrir böm, sem bera það með sér að útgefendur hafi metnað og beri virðingu fyrir bömunum sem njótend- um góðra bókmennta. Árni Arnason og Cynthia Leplar: Óvænt heimsókn. Reykjavik, Barnabókaútgáfan, 1989. S.H.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.