Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1989, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1989, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1989. Utlönd beinar forsetakosningar 1 Tékkóslóvakíu? „Havel í kastalann" segir á þessum spjöldum sem bar fyrir augu Tékka í gær. Kastalinn sem hér um ræðir er forsetahöllin. Sfmamynd Reuter Tékkneski kommúnistaflokkurinn hvatti í gær til beinna kosninga um arftaka Gustavs Husaks forseta. í dag, á sérstökum fundi þingsins, verður líklega ákveðið hvort gengið verður til slíkra kosninga eða hvort þing skuli kjósa forseta. Verði kosið á þingi skal það gerast eigi síðar en á aðfangadag samkvæmt lögum en samþykki þing að leyfa beinar kosn- ingar um forseta þýðir það að breyta þarf stjómarskrá landsins. Vaclav Havel, leikritaskáld og einn helsti leiðtogi stjórnarandstöðunnar, er talinn líklegasttu-.arftaki Husaks. En möguleiki er þó talinn á að þing, þar sem kommúnistar halda enn meirihluta þrátt fyrir minnihluta í nýrri ríkisstjóm, {ísi gegn Havel og kjósi annan kommúnista í forseta- stólinn, t.d. Ladislav Adamec, fyrr- um forsætisráðherra. iólagjafir gegn udiiickiim Hér eru jólagjafírnar fyrir allar konur sem eru áhugasamar um frísklegt og gott útlit. Tvenns konar frábær húðnæring, svo áhrifarík að hún er skráð í Svíþjóð sem náttúrumeðal. SuperGlandin húðnæringin er einstaklega góð gjöf fyrir eiginkonur, dætur, mömmur, ömmur, tengdamömmur, vinkonur, samstarfskonur. . . eða bara allar konur sem þú veist að vilja líta vel út og viðhalda húðinni á náttúrulegan og SuperGlandin inniheldur mikið af GLA fjölómettuðu fitusýrunni (gammalínólsýru) sem er nauðsynleg fyrir teygjanleika, viðhald og vöxt húðarinnar. Með GLA fitusýrunni byggir SuperGlandin upp frumuveggina, eykur blóðstreymi og kemur jafnvægi á fitu og raka í húðinni. Með því að nota SuperGlandin má laga þurra og sprungna húð, auk þess að bæta mein eftir of mikla notkun sápu og hreinsikrems. SuperGlandin er nátt- úruleg húðnæring og inniheldur aðeins efni sem eru líkamanum eiginleg, eins og t.d. GLA fitusýruna sem er SuperGlandin gj afapakkningar 20% afsláttur í móðurmjólkinni. SuperGlandin vinnur gegn ótíma- bærri öldrun húðarinnar vegna skorts á GLA. SuperGlandin eykur endumýjunarstarfsemi og mót- stöðuafl húðarinnar gegn útfjólublárri geislun. Su- perGlandin húðnæringin er notuð sem dagkrem enda fullnægir hún þörfum flestra kvenna fyrir raka- og mýkingarkrem yfir daginn. SuperGlandin Intensive Night Care inniheldur tvöfalt meira af GLA fitusý- runni og er ætlað sem næturkrem, eða 24 stunda krem fyrir þá sem eiga við sérstakan húðvanda að stríða. Utsölustaðir: Apótek og heilsuverslanir Kristín innflutningsv., sími 641085 Krefjast sameiningar þýsku ríkjanna Krafan um sameiningu þýsku ríkj- anna veröur æ háværari meðal þátt- akenda í hinni hefðbundnu mánu- dagskröfugöngu andófsmanna í borginni Leipzig, vöggu mótmæla gegn kommúnistum í Austur-Þýska- landi. í gær söfnuðust allt að þrjú hundruð þúsund saman á götum borga víðs vegar um land. Hrópaði fólkið slagorð gegn kommúnistum og krafðist sameiningar Þýskalands. Sumir reyndu að kveða sameining- arraddirnar í kútinn en allt kom fyr- ir ekki. Fréttamenn sem voru í Leipz- ig sögðu að tveir þriðju fundarmanna hefðu verið fylgjandi sameiningu. Eftir tveggja vikna stanslaus mót- mæli, sem hafa knésett kommúnista- flokkinn, verða kröfur um samein- ingu þýsku ríkjanna sífellt háværari. Þær hafa haft í íör með sér vaxandi spennu á stjórnmálasviðinu og munu án efa einnig setja svip sinn á fyrirhugaðar viðræður Bakers, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, og Kohls, kanslara V-Þýskalands, sem fara fram síðar í dag. Kohl kom mörgum bandamönnum sínum, sem og stjómvöldum í Moskvu, á óvart í síðasta mánuði þegar hann lagði fram tillögur er miða að sameiningu þýsku ríkjanna. En margir kröfu- manna í gær voru ekki í neinum vafa og kröfðust sameiningar. í gær komu sendiherrar banda- manna úr síðari heimsstýrjöldinni, Bandaríkjanna, Frakklands, Bret- lands og Sovétmanna, saman í A- Berlín í fyrsta sinn í átján ár til að ræöa framtíð borgarinnar. Lítt er vitað um niðurstööur fundarins en í yfirlýsingu að honum loknum segir að mennirnir hafi rætt framtíð borg- arinnar á grundvelli hugmynda fyrr- um Bandaríkjaforseta, Reagans, frá árinu 1987. Þar er gert ráð fyrir að Berlín verði alþjóðaleg vegamót. ^ Umrót í Búlgaríu í Búlgaríu gerast tíðindi ekki síður en í Tékkóslóvakíu og Austur-Þýska- landi. Þar hefur leiðtogi kommúnista Mladenov, heitið frjálsum kosning- um, viðræðum við andófsmenn og að alræði flokksins verði afnumið. Viðræðurnar eiga að hefjast tafar- laust, að sögn talsmanns flokksins. í A-Evrópu standa nú eftir tvö lönd sem umbótabylgjan virðist engin áhrif hafa á, AJbanía og Rúmenía. Reuter Heimsækja Vín Trygcjvi M. Baldviusson, DV, Vín; Það verður ekki annað sagt en að Tékkar hafi notfært sér ferðafrelsið sem þeir hafa fengið. Tugir þúsunda Tékka hafa nú komið til Austurríkis ,og komu langflestir þeirra hingað til Vínar. Það hefur því verið þröng á þingi á helstu verslunargötum borg- arinnar, einkum í kringum raftækja- og matvælaverslanir. Ekki voru þó innkaup Tékkanna mikil því þeir máttu aðeins hafa með sér sem sam- svaraði um fimmtán hundruð ís- lenskum krónum. Helst voru það appelsínur, bananar og aðrir fram- andi ávextir sem seldust og eflaust hafa margir smakkað þessa ávexti nú í fyrsta sinn. Vínarborg bauð þessa nágranna- þjóð sína velkomna með því að bjóða ókeypis aðgang að söfnum og öðrum opinberum stofnunum, þar á meðal óperunni. Og til að koma til móts við hina miklu umferð var opnuð ný landamærastöð sem Tékkar og Aust- uiríkismenn einir mega nota. í gær hófu Tékkar aö rífa jámtjald- ið sem þeir höfðu reist við austur- rísku landamærin. Vaxandi ólga í A-Evrópu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.