Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1989, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1989, Page 27
ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1989. 31 Fréttir Víðidalstungu- kirkja 100 ára Július G. Antonsson, DV, V-Húnavatnssýslu: Hátíöarguðþjónusta var í Víði- dalstungukirkju sunnudaginn 19. nóvember en þá voru rétt um 100 ár liðin frá vígslu kirkjunnar. í upphafi guðsþjónustunnar flutti Ólafur B. Óskarsson erindi um sögu kirkjunn- ar. Kom þar fram að á milli 1950 og 1960 hefði minnstu munað að kirkjan yrði rifm og ný byggð þar sem ástand hennar var mjög slæmt. Hins vegar var í það ráðist að endurnýja kirkj- una þó að það væri mikið verk. Síðan var aftur hafist handa við viðhaid og endurnýjun upp úr 1980 og lauk því á afmælisárinu. Má fullyrða aö kirkjan hefur aidrei verið í eins góðu ástandi og einmitt nú. Við hátíðarguðsþjónustuna þjón- uðu fyrir altari Sigurður Guðmunds- son vígslubiskup, Hólum í Hjaltadal, Guðni Þór Ólafsson, prestur og pró- fastur á Melstað í Miðfirði, Ágúst DV-myndir Júlíus Guðni Sóknarpresturinn, séra Kristján Björnsson, í predikunarstól, Kirkjukór Viðidalstungukirkju ásamt Guðmundi St. Sigurðssyni organista. Sigurðsson, prestur á Prestbakka í Hrútafirði, og Kristján Bjömsson, sóknarprestur Víðidalstungukirkju í Breiðabólsstaðarprestakalh, en hann flutti einnig predikun. Auk þeirra var Gísh H. Kolbeins, prestur í Stykkishólmi, við athöfnina en hann var áður prestur á Melstað. Aö guðs- þjónustu lokinni var kaffisamsæti í Víðihlíð í boði sóknaroefndar. Þar var sagt frá gjöfum sem bárust, svo og kveðjum, m.a. frá Róbert Jack sem lengi þjónaði Víðidaistungusöfnuði. Ágúst Sigurðsson flutti erindi um fyrrum ábúanda í Víðidalstungu, Pál Vídalín, sem bjó þar í lok 17. aldar og fyrri hluta þeirrar 18. Páll er þekktastur fyrir jarðabók þeirra Árna Magnússonar og skáldskap. Víðidalstunga var í eigu Vídalínsætt- ar allt frá fornum sið fram á þessa öld. Undir 1400 lét Jón Hákonarson rita, á staðnum, Flateyjarbók. Einn kirkjupresta, sem áður sátu í Víði- dalstungu, var Þorlákur Hallgríms- son, faðir Guðbrands Hólabiskups. Tveir aðrir, auk Guðbrands, þjónuðu staðnum frá Breiðabólsstað og tóku síðar biskupsvígslu, Ólafur Rögn- valdsson og Hálfdán Guðjónsson. Sóknamefndin gaf út 100 tölusetta platta með teikningu af Víðidals- tungukirkju í tilefni afmælisins. Platti númer 1 er í kirkjunni, Róbert Jack var sendur platti númer 2 en Sigurði Guðmundssyni vígslubisk- upi var afhentur platti númer 3. Þú getur næstum allt á ROSSIGNOL skíðum! Byggðin undir Borginni Magnús Ólafsson, DV, Húnaþingi: „Ég veit ekki um annað kauptún af svipaðri stærð og Skagaströnd sem hefur ráðið sérfræðing til þess að rita sögu sína,“ sagði Bjarni Guðmarsson sagnfræöingur á fundi sem haldinn var tU þess að kynna nýja bók um Skagaströnd og Höfðahrepp. Bókin ber heitiö Byggðin undir Borginni. Hún er 327 síður að stærð og læsilega skrifuð. í bókinni er fjöldi mynda og töflur og línurit gefa myndræna inn- sýn í það sem oft er sett fram sem þurr fróðleikur. Það var árið 1986 sem hreppsnefnd Höfðahrepps ákvað að láta rita sögu staðarinsog ári síðar var Bjami ráð- inn til verksins. Honum til halds og trausts var skipuð ritnefnd. í henni sátu Ehnborg Jónsdóttir form., Lár- us Ægir Guðmundsson og Ingibergur Guðmundsson. Guðmundur Sigvaldason sveitar- stjóri telur að kostnaður við útgáf- una sé vart undir 5 millj. kr. að nú- virði. Menningarsjóður Kaupfélags Húnvetninga, Rækjuvinnslan á Skagaströnd og Skagstrendingur hf. hafa styrkt útgáfuna. Sama dag og bókin kom út var fmmsýnt myndband um Skaga- strönd. Það var Myndbær hf. sem gerði þetta 30 mínútna myndband og er þar brugðið upp mynd af því lífi sem í dag er á Skagaströnd. Höfundur ásamt ritnefnd. Frá vinstri Lárus Ægir Guömundsson, Bjarni Guðmarsson, Elinborg Jónsdóttir og Ingibergur Guðmundsson. DV-mynd Magnús á aila ^öimkjfkiumi Þaðgerasér ekkiallirgrein fyrir því, hvað þaderþýðingar- mikiðfyrir heils- unaaðlátasér ekki verfta kalt. íslenska ullin er mjög góð og er betri en allt annað, sérstaklega í miklum kulda og vosbúð. En í dag ferðumst við á milli heimilis og vinnustaðar í bilum og förum frá hlýjum heimilum okkar á hlýja vinnustaði. Þessar stuttu ferðir geta verið ansi kaldar og jafnvel örlagarikar ef við verjum okkur ekki fyrir kuldanum. Hér kemur silkið sem lausnin. Silkið er mjög hlýtt en aldrei óþægilega hlýtt; það bókstaflega gælir við hörundið. Silkið er örþunnt og breytir því ekki útliti ykkar. Þið verðið áfram jafn grönn þótt þið klæðist því sem vöm gegn kulda. Því er haldið fram í indverskum, kínverskum og fræðum annarra Austurianda að silkið vemdi likamann í fleiri en einum skilningi. IM ATTU RU t Æ K N I l\IG ABUÐI N PÓSTKRÖFUSALA - SMASALA - HEILDSALA. S 10263. LAUGAVEGI 25 Sigursælustu skíðin í heiminum í dag SKÍÐAPAKKAR: * skiði * skiðaskór * stafir * bindingar BARNAPAKKI: Skíði, 80-120 cm Verð Visa/Euro, kr. 12.800,- Staðgreiðsluverð 12.000,- UNGLINGAPAKK11 Skíði, 130-170 cm Verð Visa/Euro, kr. 16.000,- Staðgreiðsluverð 15.200,- UNGLINGAPAKKI2 Skiði, 130-170 cm Verð Visa/Euro, kr. ls.4.200,- Staðgreiðsluverð 13.500,- FULLORÐINSPAKKI Verð Visa/Euro, kr. 19.400,- Staðgreiðsluverð 18.450,- GÖNGUSKÍÐA- Verð Visa/Euro, kr. 13.000,- Staðgreiðsluverð 12.300,- Ármúla 40, sími 83555 & 83655 Eiðistorgi 11,2. hæð, s. 611055

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.