Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1989, Page 12
12
MIÐVIKUÐAGUR 27. DESEMBER 1989.
Utlönd
Páfi biður fyrir Rúmenum
I jólamessu sinni í Páfagarði í gær bað Jóhannes Páll páfi II. sérstak-
lega fyrir Rúmenum sem fögnuðu nú jólunum þrátt fyrir mikið mann-
fall síðustu daga. Sfmamynd Reuter
Jóhannes Páll páíi II. baö sérstaklega fyrir Rúmenum er hann flutti
jólamessu sínaí Páfagaröi ájóladag. Á Péturstorginu höföu safhast sam-
an þúsundir manna sem-hlýddu á ávarp páfa en hann flytur þar ávarp
tvisvar á ári. Jólaræðu páfa var sjónvarpað eða útvarpað til rúmlega
fimmtíu landa, þar á meðal í fyrsta sinn til Austur-Þýskalands.
í ræðu sinni óskaði páfi Rúmenum gleðilegrar hátíþar á þeirra eigin
tungumáli. í ár fögnuðu Rúmenar jólunum án íhlutunar yfiryalda í fyrsta
sinn í 45 ár. Hið sama má segja um fleiri austantjaldsríki. { Þýskalandi
fögnuðu íbúar beggja hluta Berlínarborgar jólunum með því að flykkjast
yör landamærin í þúsundatali.
Hvetur til fyrirgefningar
Desmond Tutu, erkibiskup í Suður-Afríku, hvatti gyðinga um heim all-
an til að fyrirgefa naistum ógnarverk þeirra í síðari heimsstyrjöldinni
en þá voru sex milljónir gyðinga myrtar. Jafnframt því hélt biskupinn
áfram gagnrýni sinni á hernám ísraela á vesturbakkanum og Gaza-
svæðinu.
Biskupinn, sem var í heimsókn í ísrael um jólin, kvaðst mundu halda
gagnrýni sirrni á stjórnvöld í ísrael áfram jafnvel þó það þýddi að hann
þyrfti að þola svívirðingar. Tutu, sem hlaut friöarverðlaun Nóbels árið
1984, hefur ítrekað lýst yfir stuðningi sínum við baráttu Palestínumanna
gegn ísraelum á herteknu svæðunum en uppreisnin þar hefur nú staðið
Á þessari loftmynd af Chorillo hverfi í miöborg Panama sést hvernig umhorfs er eftir vikulanga bardaga milli
stuðningsmanna Noriegas, fyrrum leiðtoga, og bandarískra hermanna. Hverfið fór illa ut úr bardögum en höfuð-
stöðvar Noriegas eru einmitt í þessu hverfi. Símamynd Reuter
Sleppur Noriega
við framsal?
á annað ár.
- bandarískir embættismenn segja samkomulag líklegt
Kuldaboii ógnar ávöxtunum
Baendur t Flórída i Bandaríkjunum óttast nú um appelsinuuppskeru sina
í kjölfar mikilla kulda i fylkinu. Slmamynd Reuter
Verð á frosnum appdfsínusafa rauk upp úr Öllu valdi í gær í kjölfar
mikilla kulda i Flóridafylki í Bandaríkjunum síðustu daga. Næturfrost í
þessu fyJki ávaxtanna getur leitt til þess aö sumir ávaxtabændur missi
eina af hverjum flmm appelsínum. Bændur í Flórida framleiða áttatíu
prósent allrar uppskeru sitrusávaxta í Bandaríkjunum.
{ gær sagði Doyle Conner, landbúnaðarráðunautur Flórída, að aðeins
einn íimmti hluti allrar appelsínuuupskeru ársins heföi verið unninn.
Appelsínubændur hafa unniö dag og nótt vlð að bjarga appelsínunum frá
næturfrostinu.
Samuel Becketf látinn
írski leikrita- skáldsagnahöfund-
urinn Samuel Beckett lést á sjúkra-
húsi í París á föstudag og var bor-
inn til grafar í gær. Beckett, einn
helsti fjarstæöustefnumaður sam-
tímabókmenntanna, lést úr öld-
runar- og öndunarsjúkdómum.
Þekktasta vek Becketts, „Waiting
for Godot“ - sem hann hóf að skrifa
árið 1948 - hafði mikil áhrif á verk
heillar kynslóðar höfunda sam-
tímans, s.s. Harold Pinter og Tom
Stoppard. Fyrsta uppfærsla á „Wa-
iting for Godot" var árið 1953 og
voru gagnrýndendur ekki á einu
máll um ágæti þess. En þetta verk
gerði hann heimsfrægan og færði
honum tókmenntaverðlaun Nób-
els árið 1969.
Beckett lifði alla ævi {jarri skark-
ala heimsins. Hann fæddist í Dubl-
in áriö 1906 en flutti til Parísar árið 1938 þar sem hann kynntist konu
sinni, Suzanne. Hún lést fyrr á árinu. Becett forðaðist ætíð þá athygli sem
fylgir heimsfrægð og veitti til dærnis aldrei blaðaviðtöl né tók á móti
nóbelsverðlaununum. Tilkynningin um lát hans kom eftir að útförin
haíðífariðfram. Keuter
írska leikritaskóldlð og nóbels-
verólaunahafínn Samuel Beckett
lést á föstudag, 83 ára aö aldri.
Sfmamynd Reuter
Hin nýja forysta Panama. Frá vinstri: Ricardo Arias Calderon, einn varafor-
seta, Guillermo Endara forseti og Guillermo Ford, einn varaforseta.
Simamynd Reuter
Bandarísk stjórnvöld þrýsta nú á
ráðamenn í Páfagarði aö neita bón
Manuels Antonio Noriega, fyrrum
leiötoga Panama, um pólitískt hæli.
Noriega leitaði hæhs í bústað fufltrúa
Páfagarðs í Panama, Juan Sebastian
Laboa, á aðfangadag eftir að hafa
fariö huldu höfði í fimm daga. Leið-
toginn fyrrverandi lagði á flótta fljót-
lega eftir að Bandaríkjaher gerði
innrás í landið fyrir réttri viku.
Bandarískir hermenn hafa nú slegið
hring um sendiráð Páfagarðs til að
koma í veg fyrir að Noriega reyni að
laumast burt, að því er talsmaður
bandaríska varnarmálaráðuneytis-
ins skýrði frá í gær.
í fréttum bandarisku sjónvarps-
stöövarinnar CBS í gærkvöldi sagði
aö Noriega væri ekki einn síns hðs í
sendiráðinu heldur væru um tuttugu
stuðningsmanna hans með honum,
þar á meðal tíu er vel gætu veriö
vopnum búnir. Lögfræðingur Nori-
egas í Bandaríkjunum sagði aftur á
móti að 38 stuðningsmenn Noriegas
væru með honum í sendiráðinu en
enginn þeirra væri vopnaður.
Framsai ólíklegt
Bandarískir embættismenn eiga í
viðræðum við fulltrúa Páfagarðs um
þá kröfu Bandaríkjastjómar að Nori-
ega verði framseldur til Bandaríkj-
anna. Þar er hann eftirlýstur fyrir
aðild að eiturlyfjasölu og hafa ákær-
ur á hendur honum verið lagöar
fram í bandarískum dómstólum í
Floridafylki. Þó Páfagarður hafi ekki
gert framsalssáttmála við erlend ríki
hafa sendiráð Páfagarðs veitt ein-
staklingum, er segjast hafa sætt póli-
tískum eða trúarlegum ofsóknum,
hæli, að minnsta kosti til bráða-
birgða. En Bandaríkjamenn fara
fram á að beiðni Noriegas um póh-
tískt hæh verði hafnað því að hæli
skuli einungis veita þeim er sætt
hafa pólitískri undirokun eða trúar-
legum ofsóknum.
Einn talsmanna Páfagarðs sagði í
gær að viðræður um framtíð Norieg-
as héldu áfram en vildi að öðru leyti
ekki ijá sig um málið. Á mánudag
sagði helsti talsmaður Páfagarðs að
Noriega hefði ekki verið veitt hæli
en bætti jafnframt við að hann bygg-
ist ekki við að hinn fallni leið-
togi yrði framseldur til Bandaríkj-
anna.
Sleppur Noriega?
Talsmaður Bandaríkjaforseta
sagði í gær að markmið Bandaríkja-
stjórnar væri að tryggja að Noriega
yrðu dreginn fyrir rétt. En í fréttum
CBS í gærkvöldi sögðu embættis-
menn Bush-stjómarinnar að þeir
byggjust við að samningar næðust
milli Noriega og Bandaríkjastjórnar
- jafnvel í dag - og myndu þeir samn-
ingar heimila Noriega að fara úr
landi og leita hælis einvers staðar
annars staðar. Slíkt myndi þýöa að
leiðtoginn fyrrverandi þyrfti ekki að
koma fyrir rétt, hvorki í Bandaríkj-
unum né Panama. í fréttinni var sagt
að bandarískir embættismenn óttuð-
ust að réttarhöld yflr Noriega myndu
leiöa í ljós eitthvað miður þægilegt
fyrir bandarísku leyniþjónustuna en
Noriega var eitt sinn starfsmaður
hennar.
Talsmaður Bandaríkjaforseta
sagði á fundi með blaðamönnum í
gær aö markmiðum innrásarinnar í
Panama - að handtöku Noriegas
tmdanskilinni - hefði verið náð.
Hann vildi þó ekki tjá sig um hversu
lengi þeir tólf þúsund bandarísku
hermenn, sem sendir voru til lands-
ins í síðustu viku, yrðu í Panama.
Svo virðist sem barátta stuðnings-
manna Noriegas hafl verið brotin á
bak aftur eftir vikulanga harða bar-
daga en hemaðaríhlutun Banda-
ríkjahers, þeirrar viðamestu af hálfu
' Bandaríkjanna síðan í Víetnamstríð-
inu, hófst aðfaranótt síðasliðins miö-
vikudags, 20. desember. Rúmlega
þrjú hundruð týndu lífi í þessum
bardögum, þar af tæplega tvö hundr-
uð panamískir hermenn.
Bandaríkjamenn hyggjast frysta
flármuni þá sem Noriega á í bönkum
víðs vegar í heiminum, aðallega þó í
Evrópu, til að koma í veg fyrir að
hann geti nálgast þá, Segja Banda-
ríkjamenn að hann eigi um tíu millj-
ónir dollara á reikningum víða um
heim, peningar sem hann hefur
sankað að sér með eiturlyflabraski.
Lífið í eðlilegt horf
Líf er nú sem óðast að færast í eðli-
legt horf í Panama eftir vikulanga,
harða bardaga. íbúar Panamaborgar
sneru tfl vinnu á nýjan leik í gær.
Landið lýtur nú stjórn Guillermo
Endara, fyrrum forsetaframbjóð-
anda, en hann sór embættiseið fyrir
viku.
Að mati fréttaskýrenda er stóra
spumingin nú hvort Endara geti
staðið á eigin fótum án hemaöarað-
stoðar Bandaríkjanna. Þeir segja að
í kjölfar innrásar Bandaríkjahers
þurfl Endara að kljást við vaxandi
efnahags- og félagsleg vandamál.
Framundan bíður hans erfitt verk,
að tryggja sig í sessi.
Reuter