Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1989, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1989, Síða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 27. DESEMBER 1989. Fólk í fréttum Þórhallur Sigurðsson - Laddi Þórhallur Sigurðsson - Laddi, dag- skrárgerðarmaöur, leikari og tón- listarmaður er samkvæmt nýjustu skoðanakönnun DV skemmtilegast- ur íslendinga. Laddi er fæddur í Hafnarfirði 20.1. 1947. Hann hóf nám í húsgagnasmíði og var um tíma fasteignasölumaöur, afgreiddi í Karnabæ og var sviðs- maöur hjá Sjónvarpinu. Laddi hefur verið skemmtikraftur síðustu tutt- ugu ogfimm árin, fyrst jafnhliða öðrum störfum en siðan eingöngu sl.fimmtán ár. Kona Ladda er Sigurrós Marteiqs- dóttir, starfsstúlka á dagheimili,f. 7.8.1948. Hún er dóttir Marteins Böðvars Björgvinssonar, húsgagna- smiðs í Reykjavík, og Kristínar Guð- laugsdóttur matráðskonu. Laddi og Sigurrós eiga þrjá syni. Þeir eru Marteinn Böðvar, verka- maður i Reykjavík, f. 21.8.1%6, ókvæntur; ívar Örn, starfsmaður Borgarleikhússins, f. 25.8.1969, ókvæntur, og Þórhallur, f. 24.3.1983. Alsystkini Ladda eru fjögur. Þau eru Haraldur, sölustjóri í Jöfri, f. 5.6.1942, kvænturRagnhildi Ólafs- dóttir og eiga þau tvö böm; Valgarö- ur, lögfræðingur í Reykjavík, f. 14.5. 1943, kvæntur Elísabetu Kristjáns- dóttur og eiga þau þrjú börn; Her- móöur, prentari í Reykjavík, f. 26.9. 1945, kvæntur Önnu Ólafsdóttur og eigaþautvö böm. Hálfsystkini Ladda samfeðra eru Kristján, trésmiður í Keflavík, f. 29.1.1942; Guðjón, trésmiður á Hellu, f. 7.2.1954; Sigríður Járngerð- ur, bankamaður í Reykjavík, f..24.9. 1955; Guðbjörg, f. 2.11.1958 og Ágúst, f. 31.10.1964. Foreldrar Ladda eru Siguröur Haraldsson, trésmiður, bóndi og hestamaður í Kirkjubæ á Rangár- völlum, f. að Tjömum undir Eyja- tjöllum 20.4.1919, og fyrsta kona hans, Una Huld Guðmundsdóttir húsmóðir, f. í Hafnarfirði21.3.1918. Una er dóttir Guðmundar, verka- manns í Hafnarfirði, bróður Jóns, afa Jóhanns Þorbergs, föður Val- gerðar Önnu, fréttamanns á ríkisút- varpinu. Guðmundur er sonur Jó- hanns, b. á Saurum í Dýrafirði, bróður Benedikts, langafa Ragnars Tómassonar, hrl. ogfasteignasala. Jóhann var sonur Samsonar, b. og hreppstjóra á Brekku í Dýrafirði, bróöur Jósafats á Kirkjufelli, lang- afa Fríðu Proppé. Samson var sonur Samsonar, skálds og síðast b. í Hóla- hólum á Snæfellsnesi, eins af líf- vörðum Jörundar hundadagakon- ungs, bróður Jakobs, langafa Sig- urðar Eggerz ráðherra, og Ragn- hildar, móður Kristjáns Thorlacius, fyrrv. formanns BSRB. Jakob var einnig langafi Búa, föður Ásgerðar veflista-konu. Samson var sonur Samsonar, skálds í Klömbru, Sig- urðssonar, bróöur Jónasar, langafa Karls, föður Guðlaugs Tryggva hag- fræðings. Samson í Klömbru var sonur Sigurðar, b. í Klömbru Jóns- sonar, í Ósum á Vatnsnesi, Sigurðs- sonar, b. í Gröf á Vatnsnesi, Jóns- sonar í Krossnesi, Umboðsmanns Vatnsdalsjarða Hallgrímssonar, prests á Hofi á Skagaströnd, Ólafs- sonar, prests og skálds á Sauðanesi, Guðmundssonar. Móðir Samsonar á Hólahólum var Ingibjörg Halldórsdóttir, systir Hildar, móður Jóns, langafa Ólafs Friðrikssonar verkalýðsleiötoga og Haraldar Níelssonar prófessors, föður Jónasar Haralz. Móðir Jóhanns á Saurum var Margrét Gunnlaugsdóttir. Móðir Margrétar var Oddný Ólafsdóttir. Móðir Oddnýjar var Margrét, systir Björns Olsen, afa Björns Olsen rekt- ors og langafa Margrétar, móöur Auðar og sr. Jóns Auðuns. Annar bróðir Margrétar var Magnús Berg- mann, ættfaðir Bergmannættarinn- ar sunnlensku. Systir Margrétar var Oddný, móðir Guðrúnar, konu Björns Blöndal, ættmóðir Blöndals- ættarinnar. Margrét var dóttir Ól- afs, b. og hreppstjóra á Vindhæli á Skagaströnd, Guðmundssonar, og konu hans, Guðrúnar Guðmunds- dóttur, „Skagakóngs“, b. í Höfnum á Skaga, Björnssonar. Foreldrar Sigurðar voru Haraldur Jónsson, b. á Tjörnum undir Eyjafjöllum, og kona háns, Sigríður Tómasdóttir. Föðurbróðir Sigurðar er Ingibergur, faðir Egils Skúla, verkfræðings og fyrrv borgarstjóra. Haraldur var sonur Jóns, b. í Vesturholtum, Jón- geirssonar, b. í Neðra-Dal undir Eyjafjöllum, Jónssonar, b. í Hamra- görðum, Jónssonar, fálkafangara á Eyvindarmúla, ísléikssonar, langaf- a Ragnhildar, langömmu Sváfnis Sveinbjarnarsonar, prófasts á Breiðabólstað í Fljótshlíð. Móðir Jóns í Vesturholtum var Gunnvör Jónsdóttir, b. í Hlíðarendakoti, Ól- afssonar, prests í Eyvindarhólum, Pálssonar, klausturhaldara í Gufu- nesi, Jónssonar, ættföður Pálsætt- arinnar. Móðir Jóns var Helga Jóns- dóttir, eldprests, Steingrímssonar. Þórhallur Sigurðsson - Laddi. Sigríður var dóttir Tómasar, b. í Svaðbæh undir Eyjaíjöllum, bróður Þórðar, langafa Stefáns Harðar Grímssonar skálds, Þórðar Tómas- sonar, safnvarðar og rithöfundar í Skógum, og Ólafs Laufdal. Tómas var sonur Tómasar, b. og smiðs í Varmahlíð, bróður ívars, langafa Oddgeirs Kristjánssonar tónskálds. Tómas var sonur Þórðar, b. í Mold- núpi Pálssonar, b. í Langagerði í Hvolhreppi, Þórðarsonar, prests í Skarði í Meðallandi, Gíslasonar. Afmæli Hjörtur Hjartarson Hjörtur Hjartarson kaupmaður, Miðbraut 2, Seltjarnarnesi, varð sextugur á Þorláksmessu. Hjörtur fæddist í Reykjavík og ólst þar upp i foreldrahúsum í húsinu Reynimel við Bræöraborgarstíg. Hjörtur stundaði bamaskólanám í Miðbæjarskólanum og var síðan viö nám í Héraðsskólanum í Reykholti. Hann lauk prófi frá Iðnskólanum í Reykjavík og sveinsprófi í vélvirkj- un 1950 og vélskólaprófi með raf- magnsdeild 1953. Hjörtur hóf störf hjá IBM1956 og hóf þá í Svíþjóð grundvallarnám í skýrsluvélafræðum á vegum fyrir- tækisins. Hann starfaði síðan í átta ár á Keflavíkurflugvelh á vegum IBM við skýrsluvéladeild banda- ríska flughersins. Hjörtur stundaði 1%2 nám á fyrstu véhna sem var með rafeindastýrt segulkjarna- minni. Hann hefur síöan stundað mikinn fjölda námskeiða í tölvu- tækni á vegum IBM. Hjörtur var ráðinn stjórnandi tæknimanna hjá IBM1976 og var framkvæmdastjóri tæknideildar IBM1978-81. Hann var deildarstjóri tæknimanna IBM við Persaflóa með aðsetur í Duhai í Sameinuðu arab- ísku furstadæmunum 1982-83, sá þá um uppsetningu á tölvubúnaði fyrir forritunarnámsmiðstöð IBM í Dubai en flutti aftur heim til íslands 1983 og hóf þá störf sem umsjónar- maður með varahlutalager tækni- deildar IBM. Hann varö lagerstjóri IBM1988 og sá þá um innflutning, útflutning og dreifingu alls tölvu- búnaðar til viðskiptaaðila IBM. Hjörtur hætti hjá IBM1988 og hefur síðan rekið eigiö fyrirtæki, Hjá Hirti. Hjörtur hefur verið framkvæmda- stjóri Útvarpsfélags Seltjarnamess hf. sem er aö kapalvæða Seltjamar- nesið. Hann er formaður Siglingafé- lagsins Sigurfara, situr í stjórn Sjálf- stæðisfélags Seltirninga og er í um- hverfismálanefnd Seltjarnarness. Hjörtur kvæntist 29.12.1956 Jens- ínu Guðmundsdóttur, f. 9.9.1928, verslunarstjóra en foreldrar hennar vora Guðmundur Guðmundsson, b. á Sæbóli á Ingjaldssandi við Ön- undafjörð, og kona hans, Ingibjörg Guðmundsdóttir. Hjörtur og Jensína eiga sex börn en tvær dætur þeirra eru kjördætur Hjartar. Börn þeirra era Drífa Hjartardóttir, f. 1.2.1950, bóndakona að Keldum á Rangárvöllum, gift Skúla Lýðssyni bónda þar og eiga þau þrjá syni, Lýð, Hjört og Skúla; Ingibjörg Hjartardóttir, f. 22.6.1951, húsmóðir á Seltjamamesi, gift Sig- urði Ólafssyni vélstjóra og eiga þau þrjár dætur, Jennýju Klöra, Þuríði Drífu og Ólöfu Kolbrúnu; Hjörtur Hjartarson, f. 13.11.1957, fram- kvæmdastjóri fyrir Safco hf. í Reykjavík, var kvæntur Birgittu Matthíasdóttur og eiga þau tvo syni, Hjört og Matthías; Anna Ásta Hjart- ardóttir, f. 25.7.1959, afgreiðslustjóri hjá SPRON, gift Hrafni Muhammed Alludin Khan verslunarmanni og eiga þau einn son, Grétar Ali; Björn Grétar Hjartarson, f. 22.2.1967, stundar innrömmun við verslun foreldra sinna, og Guðmundur Ingi, f. 29.6.1968, tölvuður. Hjörtur á fjögur systkini. Þau eru Björn, útibússtjóri hjá Útvegsbank- anum á Hlemmi, kvæntur Sigríði Ármann danskennara; Anna, skóla- stjóri Vélritunarskólans, gift Aðal- steini Kristjánssyni borgarstarfs- manni, og Grétar, forstjóri Kvik- myndahúss D AS, var kvæntur Guð- laugu Pálsdóttur húsmóður, sem lést 1982, en sambýhskona hans er Ólöf Konráðsdóttir. Uppeldissystir Hjartar er Anna Þórunn Unnur Ott- esen húsmóðir, gift Jóni Bjömssyni, lyfsalaáAkranesi. Foreldrar Hjartar: Hjörtur Hjart- arson, f. 31.10.1902, d. 15.2.1985, kaupmaður í Reykjavík, og eftirlif- andi kona hans, Ásta Laufey Björns- dóttir, f. 24.11.1908, húsmóðir. Meðal föðurbræðra Hjartar má nefna Svein, bakara á Bræðraborg- arstígnum, og Jón, forstjóra Skipa- verslunar Jes Zimsen. Hjörtur kaupmaður var sonur Hjartar, steinsmiðs og sjómanns á Reynimel í Reykjavík, Jónssonar, sjómanns í Steinum í Reykjavík, Eyjólfssonar. Móðir Hjartar stein- smiðs var Sigríður Oddsdóttir. Móö- ir Hjartar kaupmanns var Margrét Sveinsdóttir, b. í Ártúni á Kjalar- nesi, Sveinssonar. Móðir Margrétar var Margrét Þorláksdóttir. Meðal móðursystkina Hjartar má nefna Sigríöi, konu Bjama Bene- diktssonar forsætisráðherra og móður Björns ritstjóra, og Anton, föður Markúsar Amar útvarps- stjóra. Foreldrar Ástu voru Bjöm Jóns- son, skipstjóri íÁnanaustum í Rvík, og kona hans, Anna Pálsdóttir. Bjöm var sonur Jóns, útvegsbónda í Ánanaustum, Björnssonar, b. á Eiði, Bjarnasonar. Móðir Björns var Kristín Sigurðardóttir, b. á Esju- bergi, Örnólfssonar, bróður Jóns, langafa Einars Benediktssonar skálds. Móðir Bjöms Jónssonar var Hildur, systir Jóns, afa Guðmundar Böðvarssonar skálds og Stefáns Jónssonar rithöfundar. Hildur var dóttir Jóns, b. í Fljótstungu í Hvítár- síðu, Böðvarssonar, og konu hans, Margrétar Þorláksdóttur, langömmu Halldórs Laxness. Móðursystir Ástu var Stefanía, amma Þórðar Arnar Sigurðssonar dósents, föður prestanna Döhu og Y rsu. Anna var dóttir Páls, b. í Neðradal í Biskupstungum, Stefáns- sonar, b. í Neðradal, Þorlákssonar, b. í Neöradal, bróður Þorsteins lang- afa Sigurðar, fööur Eggerts Hauk- dal. Þorlákur var sonur Stefáns, b. í Neðradal, Þorsteinssonar. Móðir Stefáns var Guöríður Guðmunds- dóttir, b. á Kópsvatni, Þorsteinsson- ar, forföður Kópsvatnsættarinnar, Hjörtur Hjartarson. langafa Magnúsar Andréssonar al- þingismanns, langafaÁsmundar Guðmundssonar biskups og Sigríð- ar, móður Ólafs Skúlasonar vígslu- biskups. Móðir Þorláks var Vigdís Diðriksdóttir. Móðir Vigdísar var Guðrún Högnadóttir „prestaföður", Sigurðssonar, langafa Þuríðar, langömmu Vigdísar Finnbogadótt- ur. Móðir Páls var Vigdís, systir Egils, afa Egils Thorarensen kaup- félagsstjóra. Vigdís var dóttir Páls, b. í Múla, Stefánssonar, bróður Þor- láks í Neðradal. Móðir Önnu var Auðbjörg Runólfsdóttir, b. í Miö- húsum í Biskupstungum, Þóröar- sonar og konu hans, Önnu Guðna- dóttur, b. í Brattholti, Runólfssqnar, bróður Þorgerðar, langömmu Ólafs Friðrikssonar, og Haraldar Níels- sonar prófessors, fööur Jónasar Haralz. Guðrún Sveinsdóttir Guðrún Sveinsdóttir húsmóðir, Njálsgötu 13B, Reykjavík, er áttatíu áraídag. Guðrún er fædd í Meðalheimi í Ásum í Húnavatnssýslu og alin upp á Blönduósi. Hún bjó á Miðsetju í Blönduhhð í Skagafirði en frá 1974 hefur hún búiö í Reykjavík. Eiginmaður Guðrúnar var Krist- ján Guðbrandsson verkamaður, f. 23.4.1903, d. 13.6.1943. Börn Guðrúnar og Kristjáns: Fjóla Heiðdal, f. 27.7.1933, d. 23.3.1969; Gunnlaug Heiðdal, f. 7.10.1936, hús- móðir á Akureyri; Ingimar Worm, f. 10.6.1939, d. 18.8.1989, sjómaöur og kaupmaður; og Lilja Þuríður, f. 31.7.1943, kaupmaður í Reykjavík. Foreldrar Guðrúnar vora Sveinn Benjamínsson og Lilja Lárusdóttir. Guðrún veröur að heiman í dag. Til hamingju með afmæliö, 27. desember Málfríður Jónedóttir, Birkimel 6A, Reykjavík. Kagnheiður B. Másdóttir, Hagamel 35, Reykjavík. 90 ára 70 ára Sigfús B. Jóhannsson, Hátúni 10A, Reykjavík. 85 ára A\l4 Ólufsson, Ásvallagötu 9, Reykjavík. Konráð Konráðsson, Hafnargötu 18, Siglufiröi. 80 ára Guðleif Helgadóttlr, Byggðarholti 29, Mosfelisbæ. Ólöf Markúsdóttir, Hátúni 8, Reykjavík. Aðalbjörg Bergmundsdóttir, Vestmannabraut 35, Vestmannaeyjum. Sigurður Guðbrandsson, Eskihlíð 18A, Reykjavik. Ásdís Sigrún Sigurjónsdóttir, Ársæll Guðsteinsson, Syðra-Skörðugih. Eyjabakka 26, Reykjavik. Birna Sólveig Lúkasdóttir, Helgi Ingimundarson, Hlíöarbraut 8, Blönduósí. Kópanesbraut 4, Hóknavik, Ftnnur Guðmundsson, Sveinn Þórir Þorsteinsson, Garðabraut 22, Akranesi. Bragagötu 32, Reykjavík. Jón Þ. Ragnarsson, Dísarási 4. Reykjavík. Kirstcn B. Kristjánsson, Baldursgaröi 4, Keflavík. Valur Sigurðsson, Lynghrauni 1, Mývatnssveit. 50 ára Ásgrímur Jónasson, Lerkihlíð 15, Reykjavík. 60 ára 40 ára

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.