Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1990, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1990, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 1990. 5 Fréttir Skoðanakannanir komnar í tísku á Akureyri: Þrír bæjarf ulltrúar hætta og óvíst um tvo aðra Akureyri: Hefðbundnu flokkarnir efna til skoðanakannana á meðan óánægðir ibúar i Glerárhverfi velta fyrir sér framboði í vor. Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Svo virðist sem skoðanakannanir meðal flokksmanna og stuðnings- manna þeirra hafi leyst af prófkjör hjá stjómmálaflokkunum og a.m.k. þrír af „stóru“ flokkunum, sem bjóða fram til bæjarstjómarkosninganna á Akureyri í vor, viðhafa skoðana- könnun til að kanna vilja fólks um skipan framboðslista. Úrslit þessara skoðanakannana em ekki bindandi fyrir uppstillingarnefndir. Alþýðu- flokkur og Sjálfstæðisflokkur skipa meirihluta bæjarstjórnar Akureyrar á yfirstandandi kjörtímabili. Þegar er ljóst að nokkrar breyting- ar verða á mannaskipan í bæjar- stjórninni því a.m.k. þrír bæjarfull- trúar af ellefu sem nú sitja ætla ekki fram aftur og óvíst er um aðra tvo. Leynd yfir úrslitum Framsóknarflokkurinn reið á vað- ið og var með skoðanakönnun á dög- unum. 61 flokksbundinn framsókn- armaður tók þátt í þessari könnun sem þykir slakt þar á bæ, en niður- stöður könnunarinnar hafa ekki ver- ið birtar og verða ekki birtar. Sam- kvæmt heimildum DV varð þó Úlf- hildur Rögnvaldsdóttir bæjarfulltrúi í efsta sæti og mun koma til með að skipa það sæti á lista flokksins, Þór- arinn E. Sveinsson mjólkursamlags- stjóri verður þá í 2. sæti en í 3. sætið hafa heyrst nöfn Þóm Hjaltadóttur, formanns Alþýðusambands Norður- lands, Guðmundar Stefánssonar framkvæmdasljóra og Braga Berg- manns, ritstjóra Dags. Sigurður Jó- hannesson, sem skipaði efsta sæti hjá framsóknarmönnum við síðustu kosningar, fer ekki fram nú. Uppstill- ingarnefnd Framsóknarflokksins er að störfum og ætlar að tilkynna um skipan listans um næstu helgi. Sjálfstæðismenn voru með lokaða skoðanakönmm um síðustu helgi fyrir flokksmenn sína. Þar er sömu sögu að segja og hjá framsóknar- mönnum, allt lokað og læst og engar upplýsingar að hafa. Allir bæjarfull- trúar flokksins munu gefa kost á sér áfram. Ingólfur Árnason hjá Alþýðuflokki sagði að flokkurinn myndi gangast fyrir skoðanakönnun meðal flokks- manna og stuðningsmanna flokksins í næsta mánuði. Eins og hjá Fram- sóknarflokki og Sjálfstæðisflokki verður niðurstaða könnunar ekki bindandi fyrir uppstillingarnefnd. Hjá krötum hafa tveir bæjarfulltrúar af þremur lýst því yfir að þeir gefi ekki kost á sér áfram, Freyr Ófeigs- son og Áslaug Einarsdóttir, en Gísli Bragi Hjartarson ætlar fram aftur. Nýtt framboð? Alþýðubandalagsmenn hafa ekki tekið ákvörðun um hvernig þeir hyggjast standa að framboðsmálum sínum og að rööun á lista. Bæjarfull- trúarnir tveir, Sigríður Stefánsdóttir og Heimir Ingimarsson, hafa ekki látið uppi hvort þeir gefa kost á sér áfram. Heyrst hefur aö Kvennalistinn muni bjóða fram í kosningunum en það hefur ekki verið staðfest. Þá hef- ur heyrst um hugsanlegt framboð óánægðra íbúa í Glerárhverfi, þar yrði um þverpólitískt framboð að ræða og á stefnuskrá yrði fyrst og fremst að berjast fyrir hagsmunum þeirra sem búa utan Glerár, en sum- ir telja að sá bæjarhluti hafi verið afskiptur hvað varðar ýmsa þjón- ustu. Bjóðum nú í nokkra daga stórkostlegan afslátt af hljómtækjasamstæðum ferðatækjum, geislaspilurum, mögnurum, hátölurum, bíltækjum, örbylgjuofnum og fleira og fleira. SKIPH0LT7 'SÍMI 62 25 55

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.