Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1990, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1990, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 1990. Útlönd Vinningstölur laugardaginn 13. jan. ’90 Manuel Noriega: Á hann millj ónir í þýsk- um banka? Manuel Antonio Noriega, fyrrum einvaldur í Panama, kann að hafa aðgang að milljónum dollara sem geymdir eru á bankareikningum í V-Þýskalandi, að því er bandaríska sjónvarpsstöðin NBC skýrði frá ný- lega. í frétt stöðvarinnar sagði að Noriega, sem nú er í vörslu banda- rískra yfirvalda og á yflr höfði sér réttarhöld vegna meintrar aðildar að fíkniefnasmygli, hefði aðgang að reikningi í Deutsche Sud-Amerikan- ische Bank í Hamborg. Þar gæti ver- ið um að ræða inneign upp á margar milljónir dollara. I fréttinni var raunar haft eftir starfsmönnum bankans að þar væri ekki neinn Bandaríkin: Hálft tonn af rusli á mann í Bandaríkjunum faiía til 160 milljónir tonna af úrgangi á ári að því er sérfræðingar telja. Það þýðir að hvert mannsbarn skilur eftir sig rúmlega hálft tonn. Að- eins um tíu prósent af þessum 160 milljónum tonna fara til endur- vinnslu og milli tíu og fimmtán prósent fara í brennslu. Þá eru eftir 130 milljónir tonna af rush sem þarf að koma fyrir, þ.e. grafa í jörðu niöur. Skortur fer að verða á landi þar sem hægt er að urða úrganginn. Að því er fram kemur í álitsgerð þingnefndar, er kannaði þessi mál, verða áttatíu prósent sorp- hauga Bandaríkjanna fullir inn- an tveggja áratuga. Og leitin að heppilegum landsvæðum til urð- unar úrgangs verður æ erfiðari eftir því sem árin líða vegna hertra reglna um umhverfis- vernd sem og mikillar andstöðu almennings. Niðurstaða nefndar- innar er því sú að svo gæti farið að Bandaríkjamenn verði uppi- skroppa með staði þar sem þeir geta urðað ruslið sitt. Vandamál þetta var mikið í sviðsljósinu fyrir nokkrum árum þegar ruslaprammi frá New York var á siglingu á Atlantshafl, Mexíkóflóa og Karíbahafi svo mánuðum skipti í leit að heppi- legum stað til að losa sig við farm- inn. Skipið fékk hvergi að leggja aö og fór að lokum til New York á nýjan leik. Úrgangi, sem losaður hefur. ver- ið í sjóinn, hefur skolað upp á strendur Bandaríkjanna. Fyrir tveimur árum skolaði notuðum sprautunálum upp á nokkrar baðstrendur. í kjölfarið greip mikil hræðsla um sig meðal al- mennings og háværar raddir heyrðust um hættuná samfara shku. Þingnefndin, sem vitnað var í fyrr í greininni, hefur komist að þeirri niðurstöðu að hægt sé að minnka umfang úrgangs mikið, m.a. með meiri endurvinnslu sem og betri hönnun umbúða, svo notkun hættulegra efna í umbúð- ir minnki eða verði algerlega hætt. Umhverfisverndarstofnun Bandaríkjanna hefur lagt til að endurvinnsla verði aukin og að fiórðungur alls úrgangs fari til endurvinnslu. Reuter reikningur á nafni Noriegas en einn- ig sagt að bandarísk yfirvöld hefðu í fórum sínum skýrslur þar sem fram kæmi að Noriega ætti þar reikning. Frá því að Noriega var handtekinn ogfærður í járnum til Bandaríkjanna hafa bandarísk yfirvöld reynt að finna leynireikninga hans í bönkum víðs vegar um heim og frysta inn- stæðurnar. Nokkrir bankar í Sviss og Frakklandi hafa þegar fryst inn- eignir hans, að því er NBC skýrði frá. Þar var um að ræða innstæður sem nema um 25 milljónum dollara. Noriega er talinn eiga eignir upp á allt að tvö hundruð milljónir dollara. Reuter i only one person; | oan fly into ; I tlie USA for less i i tlia.n ,£90. m VINNINGAR FJÖLDI | VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5af 5 0 2.395.250 2.4 TÆ 1 416.115 3. 4af5 76 9.444 4. 3af 5 2.806 596 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 5.201.485 kr. Margir hafa nýtt sér handtöku Manu- els Noriega, fyrrum einvalds i Pa- nama, í auglýsingaskyni. Meðal þeirra er flugfélagið Virgin Atlantic. Þessi auglýsing birtist í bresku sunnudagsblaði nýverið. Þar segir að aðeins einn maður geti ferðast til Bandaríkjanna fyrir minna en 90 pund. Símamynd Reuter Hvíldu þig nú á skammdeginu UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002 «1 Nú gefst einstakt tækifæri til aö hvíla sig dálítið á íslenska skammdeginu og bregöa sér í stutta ferö yfir pollinn. Þú getur valiö um tvær af skemmtilegustu borgum Evrópu til aö slappa af og láta þér líða vel. Þetta tilboð gildir fyrir janúar og febrúar en athugaóu aö aöeins er selt í þessar feróir í janúar þannig aö þótt þú ætlir ekki aó leggja land undir fót fyrr en í febrúar veróur þú aó tryggja þér miöa fyrir mán- aðamótin. Útsölutíminn í Amsterdam Útsölurnar eru þegar hafnar í Amsterdam. Þar er verölag aó vísu hagstætt allt áriö en þó best á þessum tíma. Not- aóu tækifærið. En jafnvel þótt þig langi ekkert til aó versla getur þú fundiö þér nóg að gera í Amsterdam. Veturinn er sá tími sem menningar- og skemmtana- líf er í hvað mestum blóma. Heimsfrægar hljómsveitir, bæöi popp- og sinfóníu-, heilla hvorar sinn aódáenda- hópinn og Rembrandt og van Gogh eru á næstu grös- um. Og láttu endilega eftir þér að fara á indónesiskan veitingastaó og fá þér 26 rétta „rijstaffel“. Þaó kostar ótrúlega lítió. Hamborg allra árstíða Útsölurnar í Hamborg hefjast 29. janúar og standa í tvær vikur. Hamborg er fræg fyrir aö þar er hægt aó fá mjög „vönduó merki“ á sérlega góöu verði. En Hamborg er ekki síður borg menningar, lista og skemmtana. Þú átt erindi til Hamborgar allt árið. I Amsterdam i „l ____! Hamborg Lágmúla 7, sími 84477, Austurstræti 22, sími 623060

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.