Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1990, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1990, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 1990. Otgáfufélag: FRJÁLS FJOLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÖLFSSON / Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RVlK, SlMI (1 >27022 - FAX: (1 )27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJOLMIÐLUNAR HF, ÞVERHOLTI 11 Prentun: ARVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 1000 kr. Verð i lausasölu virka daga 95 kr. - Helgarblað 115 kr. Eina kreppuþjóðin Við erum allt í einu sér á báti í hópi þjóða Stofnunar efnahagsþróunar, OECD. íslendingar voru í fyrra eina aðildarþjóðin, sem bjó við kreppu, og svo verður einnig á þessu ári, samkvæmt spá stofnunarinnar. Móðurskip- ið siglir sinn sjó, en íslenzka skektan hrekst undan veðri. Yfirleitt höfum við farið í humátt á eftir öðrum þjóð- um í nágrenni okkar. Þegar vel hefur árað í viðskipta- löndum okkar, hefur okkur gengið vel að koma afurðum okkar út á góðu verði. Þegar samdráttar eða stöðnunar hefur gætt umhverfis okkur, hefur þetta gengið verr. Fá dæmi eru þess, að alger skilnaður verði á siglingu okkar og allra annarra þjóða í Stofnun efnahagsþróun- ar, sem er klúbbur ríku þjóðanna í heiminum. Við bjugg- um þó í fyrra við næstum 3% samdrátt efnahags, en hinar þjóðirnar allar við hagvöxt, flestar vel yfir 3%. Samkvæmt fyrri reynslu ætti okkur að hafa gengið vel í fyrra og ganga vel á þessu ári. Vegna velgengni viðskiptaþjóða okkar ætti verð íslenzkra afurða að vera hátt. Og það er einmitt hátt um þessar mundir. Einka- kreppa okkar stafar af öðru en utanríkisviðskiptum. íslenzka einkakreppan er að verulegu leyti framleidd af stjórnvöldum, einkum ríkisstjórninni, sem nú hefur setið nokkuð á annað ár. Aðrir þættir hafa þó stuðlað að vandræðum okkar. Ber þar hæst, hversu erfitt okkur hefur reynzt að læra að laga okkur að raunvöxtum. Þótt vextir hafi í nokkur ár oft verið jákvæðir, höfum við haldið áfram að haga okkur eins og lánsfé væri eins konar happdrættisvinningur. Við höfum ekki hert arð- semiskröfumar í kjölfar breytingarinnar úr neikvæðum vöxtum og gjafvöxtum yfir í raunverulega vexti. Við mörg gjaldþrot og ríkisforsjá síðustu mánaða hefur stungið í augu, að mörg gæludýra hins opinbera hafa efnt til ú ármagnskostnaðar, sem fyrirfram mátti vita, að mundi leiða til ófarnaðar. Arðsemi íjárfestingar- innar gat ekki staðið undir raunverulegum vöxtum. Annað atriði, sem líka hefur stuðlað að óförum íslend- inga, er fastgengisstefna ríkisstjórnarinnar, sem sat næst á undan þeirri, er nú situr. Stefnan var fundin upp í nefnd bjargvætta undir stjórn núverandi formanns vinnuveitenda og varð að tízkufyrirbæri, faraldri. Fastgengisstefnan fór illa með sjávarútveginn árið 1988. Hún skekkti samkeppnisaðstæður hans og var upphaf mikils taprekstrar, sem sjávarútvegurinn hefur síðan ekki náð sér eftir' Hún veikti mótstöðu atvinnulífs- ins, þegar ógæfan skall á með núverandi rikisstjórn. Ofan á hefðbundna íjármunabrennslu í landbúnaði upp á 7-8 milljarða árlega bætti nýja ríkisstjórnin ann- arri eins 7-8 milljarða fjármunabrennslu í atvinnutrygg- ingarsjóðum og hlutaíjársjóðum og í margvíslegri ann- arri fyrirgreiðslu af hálfu velferðarríkis fyrirtækja. Ríkisstjórn hefur frá upphafi verið önnum kafin við að strengja björgunarnet undir hvers konar rekstur, sem ekki stenzt arðsemiskröfur raunvaxta. Hún hefur tekið ábyrgð af herðum stjórnenda fyrirtækja, sem nú geta dansað á línu í trausti öryggisnetsins fyrir neðan. Ríkisstjórnin hefur leitt arðleysi og tap til vegs með margvíslegri fyrirgreiðslu. Svigrúm vantar til hagvaxt- ar, því að jarðvegurinn er frátekinn handa gæludýrum, sem brenna verðmætin. Ríkisrekin velferðarstefna hnignandi atvinnurekstrar kæfir framtak þjóðarinnar. Óbeit þjóðarinnar á vöxtum, fastagengi síðustu stjórnar og björgunarforsjá núverandi stjórnar hafa framleitt langvinna einkakreppu, séríslenzka. Jónas Kristjánsson Uppeldisleysi í nútímanum „Ó, Guö, ég þakka þér að ég er ekki eins og aðrir menn....“ Það umhverfi, sem bðrnin okkar hrærast í, er gerólíkt því sem við vöndumst á þeirra aldri. Gildir þá nánast einu hvort við erum fimm- tug eöa þrítug - slíkar eru breyting- ar allra síðustu ára. Mörgum okkar voru að líkindum settar alltof strangar reglur - opin- skátt eða í formi „ósagðra .tilætl- ana“. Sumir fóru i kringum regl- urnar - lugu sig frá gerðum sínum - ýmist með snilld eða af taum- lausri óskammfeilni. Aörir lutu reglunum þrátt fyrir hávær og stundum býsna oröljót mótmæli við foreldra og skóla. Stundum var talað digurt viö félagana um fárán- leikann i úreltum reglum og von- lausum foreidrum, en þrátt fyrir allt stjórnuðu tilætlanir „gamla • fólksins" miklu eða settu mörgum mörk sem héldu (oftast). Upparnir Sumum okkar vegnar vel í neyslustreðinu - öðrum miður eins og gengur. Flest eigum við það þó sameiginlegt að vilja gjarna láta líta út eins og allt sé í stakasta lagi hjá okkur. Upparnir í hópnum ber- ast á og brúka margvísleg gervi. Ekki veit ég samt hvort þeirra (lax)veiði er hótinu hamingju- samari veiðiskapur en netadráttur á höndum þeim sem leggja t.d. fyr- ir sig trilluútgerð. Að sönnu eru sagðar meiri sögur af laxveiðum, en þjóðarsálin á nú samt meira undir kvótabundinni skakveiði. Hvað sem öðru líður þá er mikill munur á þeim veiðum sem stund- aðar eru sem lífsform til framfæris sér og sínum og hinum sem til- heyra neyslunni og alltof oft reyn- ast eigingjörn útilokun m.a. frá börnum og amstri uppeldisins. Hversu margir skyldu það nú vera sem forðast það návígi sem sam- skipti fjölskyldunnar auðvitað skapa. Návígi sem getur oröið svo sárt og miskunnarlaust þegar illa gengur, en er aftur á móti svo óvið- jafnanlega gott, gefandi og mann- bætandi þegar okkur tekst að deila sorgum og gleði saman. Uppruninn Líklega hefur eitt af okkar verstu glappaskotum í búsetuþróun á síð- ustu áratugum falist í því að ganga af stóríjölskyldunni dauðri. Að „úrelda" afa og ömmur löngu fyrir aldur fram og flokka fólk niður á grundvelli aldurs til hvers konar samskipta. Þó að við tækjum upp sérbýli fyrir „kjarnafjölskylduna" þurftum við alls ekki að sækja svo stíft til fyrirmynda úr erlendum stórborgum að við sitjum nú uppi með það að hópur barna og ung- menna þekkir lítt til afa og ömmu - veit engin skil á ætt og uppruna og hefur engin samskipti haft við roskið fólk. Foreldrar margra okkar ólust upp við það að „uppeldi" var eitt- hvað sem gerðist af sjálfu sér - eins og það hefur alltaf gert. Þannig ól- umst við líka upp - en eitthvað var samt tekið að bresta undir lok 7. áratugarins. Uppeldisvenjumar sem við brut- um á bak affur - sjálf sem hálffull- orðnar manneskjur - hafa ekki verið endurnýjaðar og eitthvað lít- ið hefur komið í staðinn. Tilboð um neyslu - afþreyingu - viðtöku í einhverju formi (gláp, hlustun, át, diskórangl, leiktækja- nið) er hins vegar orðiö svo altækt að börnin okkar hafa tæpast friö til að hugsa - varla næði til þess þroska sem upplag og erfðir standa til. Þá gefst þeim heldur ekki færi á því „sjálfsuppeldi“ sem eftir- stríðsárin á íslandi innleiddu. Sjálfsuppeldi kalla ég það, því KjáUarinn Benedikt Sigurðarson skólastjóri fáir hafa beitt - eöa veriö beittir - markvissri ögun eða uppeldisað- ferðum. Gegnir þá svipuðu hvort við erum að tala um skólann eða heimilin. Skólarnir hafa - þangað til alveg nýlega - lítt sinnt uppeldishlut- verki heldur þóst vera uppteknir af því að miðla „fróðleiksmolum". „Skólarnir hafa - þangað til alveg nýlega - litt sinnt uppeldishlut- verki...“, segir hér m.a. Allt fyrir það að jafnvel kennurum hefur fundist það neikvætt að eiga að „passa börn“. - Mér íinnst þvert á móti að skólarnir eigi að vera hreyknir af því að vera trúað fyrir því að passa börn - trúað fyrir vel- ferð og þar með menntun þeirra og uppeldi. Samskiptaumhverfi Það eru gömul sannindi að eng- inn er „fæddur maður“ - að mönn- um verðum við einasta innan um aörar manneskjur. (sbr. J.G. Herd- er) Slíku hættir nútímanum til að gleyma þegar fjölmiölarnir eru farnir að ráða yfir verulegum hluta af vökutima barnanna okkar. Fjöl- miðlar koma aldrei í stað mann- legra samskipta og tölvur koma aldrei i stað kennarans í skólanum. - Hin nýja tækni er góður og oftast gagnlegur þjónn, en hún er óhæfur húsbóndi - og vonlaus uppalandi. Staða barna sem fædd eru eftir 1980 er að þessu leyti gerólík að- stæðum allra sem eldri eru. Við megum ekki vanmeta áhrif sjón- varps - videos - kassetturokks og myndasagna eða „glansmynda- rita“. Allir þessir miðlar eiga það sameiginlegt að sýna óraunveru- lega mynd af samhengi hlutanna - stundum „plata“ þessir miðlar vilj- andi. Sú sjónreynsla sem myndmiðl- arnir skila heim á stofugólf - með nákvæmlega sama hætti og „frétt- irnar“ birtast dag hvern - er mikl- um mun alvarlegri og virkari að- ferð til að vijla raunveruleikaskyn smáfólksins heldur en munnleg (eða bókleg) miðlun á hryllingi ís- lendingasagnanna, þjóðsagnanna eða Grimmsævintýra. Spyrji svo hver maður sálfan sig um sinn eigin beyg - þegar einsemd eða kvíði' stóð okkur fyrir svefni. Farísearnir Líklega hættir okkur öllum meira eða minna til að leita frið- þægingar með svipuðum hætti og „faríseinn forðum" svo sem vitnað var til í upphafi þessa spjalls. Kannski sjáum við ekki „bjálka fyrir flísum" og trúum því í raun og veru að uppeldi sé einungis áfátt hjá fáeinum „aumingjum" - segj- um þaö jafnvel fullum fetum. Raunin er því miður í alltof mörg- um tilfellum önnur. Uppeldisleysi - afskiptaleysi - vanhirða tilheyrði hér á árum áður „undirmálsfólki“ eða þeim sem ekki áttu margra kosta völ. Nú hefur uppeldisleysið hreiðrað um sig á „bestu. bæjum“. Menn láta undir höfuð leggjast aö setja börn- unum sanngjöm mörk - gleyma því að þau þurfa á því að halda að fylgja ákveðinni reglu. Mönnum láist að vernda rétt þeirra til að vera börn og þau fara þess í staö að „leika fullorðins- leiki“ langt fyrir aldur fram. Þau temja sér e.t.v. það fráleitasta af skemmtunarmáta þeirra eldri - það sem enginn ætlaöist til í raun og veru. Málsmetandi fólk - upparnir - velmegunarkynslóðin er orðin svo heltekin af sjálfselsku og dýrkun á eigin bílífi og blekkingum að þaö er jafnvel farið að tilheyra neysl- unni að bömin séu „út um allt“ fram eftir nóttu - á stefnulausum þvælingi til kl. 3 að nóttu um helg- ar - fara í 11-bíó. Jafnvel heyrir maður ömmur og afa tala um það eins og ekkert sé sjálfsagðara að 13-14 ára krakkar séu „á fóstu“. Fullorðinsleikirnir eru orðnir svo sjálfsagðir að mati þeirra sem „vilja tolla í tískunni" að skólastjórinn er sagður óþolandi íhaldssamur þegar hann heldur því fram að vangadans sé fullorðins- leikur sem ekki eigi erindi við 9-12 ára börn. Erum við e.t.v. að reyna að vera góð við okkur sjálf þegar við slepp- um því að setja börnunum okkar mörk sem við síöan fylgjum eftir? Það geta ekki allar breytingar talist „þróun“. Benedikt Sigurðarson „Menn láta undir höfuö leggjast aö setja börnunum sanngjörn mörk - gleyma því aö þau þurfa á því aö halda aö fylgja ákveðinni reglu.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.