Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1990, Page 13
ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 1990.
13
Lesendur
Haust í Moskvu
Ragnar skrifar:
Ég finn mig knmnn til að setja
nokkrar línur á blað og senda ykkur
vegna sjónvarpsþáttar sem ég sá í
gærkvöldi (11. jan.) í Sjónvarpinu.
Þátturinn var gerður af íslenskum
sjónvarpsmönnum, sem Bjarni
Arnasaon hafði umsjón með, á ferð
í Moskvu. Þetta var einn besti þáttur
þessarar tegundar sem ég hefi lengi
séð. - Ekki fyrir það eitt að hann var
frá Moskvu, heldur vegna þess að
það var algjört nýnæmi að sjá og
kynnast mannlífi og viðhorfum fólks
á götum úti í höfuðborg þessa víð-
feðma ríkis.
Maður hefur oft séð ýmsar myndir
og þætti frá þessari borg en það var
nýtt að sjá íslenska sjónvarpsmenn
ræða við íbúana þama, efdr það sem
gerst hefur i Evrópu nýlega, og heyra
fólkið tjá sig.
Það var heilmargt sem maður hef-
ur ekki áður séð þaðan, eins og t.d.
hve mikill munur er á aðstöðu þess
fólks sem hefur umráð yfir erlendum
peningum og getur keypt sér fáséöa
hluti í sérverslunum sem selja ein-
ungis gegn greiöslu í erlendum gjald-
eyri - og svo þeirra sem veröa að búa
við hinn mikla skort sem þarna ríkir
enn.
Einkennilegt var t.d. að sjá og
heyra konuna fyrir framan húsið,
sem mannfiöldinn þyrptist að til að
lesa efni blaðs nokkurs, tala án afláts
og lesa samborgurum sínum pistil-
inn um mismuninn á lífinu þarna og
því sem hún vildi búa við. Fólkið
virtist allt vera með á nótunum en
vilja rökræða við hana fram og aftur.
Einnig að hlusta á mennina tvo
sem voru að dreifa einhverju blaði
sem boðaði málstaö þeirra. Þessir
menn komu mér fyrir sjónir eins og
persónur úr öðrum heimi, jafnvel úr
leikriti. - Allt eins og þetta væri
óraunverulegt en samt var þétta
raunverulegt viðtal við íbúa í þessari
stóru borg heimsveidisins.
í þættinum kom einnig vel fram
að þetta stóra og mannmarga ríki á
við svo feiknaleg vandamál að stríða
að maður gerir sér fyrst einhverja
lítils háttar hugmynd um það eftir
að hafa séð svona þátt, þótt hann
væri ekki lengri en þetta. - Allt var
þetta stórfróðlegt og framandi. Mað-
ur kemst ekki hjá því að hugsa hvað
maður er langt frá svona aðstæðum,
sem þó eru í raun alltaf nálægar og
geta dunið yfir jafnsnögglega og
hendi sé veifað. Einmitt hér á íslandi
sem hefur ekkert upp á að hlaupa
ef sjávarafli bregst og þar sem fólkið
skilur ekki að velmegun fæst ekki
með kröfugerð einni saman.
Þennan þátt væri þörf á að endur-
sýna fljótlega því að ég hefi strax
heyrt frá fólki sem missti af þættin-
um og sá eftir að hafa ekki séð hann.
Annað eins er endursýnt eins og
svona fróðlegur og framandi mann-
lífslýsing frá þessu umtaiaða landi
þessa dagana.
Viðhald Þjóðleikhússins:
„Fordjarfað“ af ráðherranáð?
Haraldur Guðnason skrifar:
Nú stendur mikið til í Þjóðleik-
húsinu. Bygginganefnd, af náð Svav-
ars ráðherra hefur fengið leyfi til
þess að ,Jordjarfa“ húsið - en slíkum
er oftast ætlað annað hlutverk. Um-
rótið kostar nokkur hundruð millj-
ónir sem nýmenningarpostulum
þykir ekki áhorfsmál.
En þetta er nú þjóðleikhús, a.m.k.
Reykvíkinga, sem hafa nú fengið til
viðbótar stórt og myndarlegt leikhús
þótt heldur sé það drungalegt að utan
og innan enn sem komið er.
Ég hef séö margar leiksýningar í
Þjóðleikhúsinu, bæði í sal og á svöl-
um. Ég tel sætin ágæt, nema á efri
svölum en þau eru raunar tæpast
boðleg. En það er einmitt sá staður
sem virðist vera bygginganefnd
þóknanlegur!
Þjóðleikhúsið þarf viðhald og end-
urbætur sem önnur hús. Byggingar
í eigu ríkisins og á þess ábyrgð hafa
drabbast niður, svo sem Bessastaðir,
Þjóðminjascifn og Þjóðleikhús. Loks
„Efri svalir Þjóðleikhússins, einmitt sá staður sem er bygginganefnd þókn-
anlegur," segir m.a. í bréfinu.
þegar farið er að gera átak í þessum svo sem um hættur af timbri - auk
málum, en allt of seint, koma til þess rándýrar og allt að því fáránleg-
„fræðingar" með sínar „fiks-ideur“, ar.
Enn heimtað til íþróttamála
Bjarni Ólafsson skrifar:
íþrótta- og tómstundaráð hefur nú
lagt til að borgarráð samþykki að
húsaleiga íþróttafélaga hér í Reykja-
vík verði greidd að fullu. Og nú þykj-
ast allir pólitíkusar vera samþykkir!
Til þessa hefur helmingur leigu verið
greiddur. Verði þessi beiðni sam-
þykkt er talið aö heildarstyrkur
borgarinnar verði um 80 milljónir
króna.
Formaður íþróttaráðsins, sem er
einnig einn af borgarfulltrúunum,
segir að verði þessi beiðni samþykkt
sé hún „mesta framfaraspor í ára-
tugi“ fyrir íþróttamál borgarinnar.
Ég get vel trúað því! - En er það fram-
faraspor fyrir skattborgarana? Borg-
arfulltrúinn ætti að íhuga það.
Mér finnst þetta dekur við íþrótta-
hreyfinguna og svokölluð æskulýðs-
mál vera eitt mesta bruölið sem hér
viðgengst. Hvers vegna er alltaf verið1
að mylja undir æskuna? Væri ekki
þarfara að henni yrðu lagðar ein-
hverjar skyldur á herðar líkt og ann-
ars staðar?
Hér eru mörg fyrirtæki sem selja
fólki aðgang aö líkamsrækt 1 húsa-
kynnum sínum. Það eru hundruð
karla og kvenna á öllum aldri sem
stunda þessa starfssemi sér til
ánægju og heilsubótar. Fá þessi fyr-
irtæki eða viðskiptavinir þeirra ein-
hvem styrk? Aldeilis ekki, og heldur
engin ástæða til. Fólk greiðir ein-
faldlega aðgang, kaupir í mesta lagi
mánaðarkort með afslætti og lætur
það nægja.
I likamsræktarstöðvunum eru hundruð viðskiptavina. - Greiða einfaldlega
aðgang. Enginn styrkur, i mesta lagi afsiáttur og það látið nægja.
Hvers vegna ættu íþróttafélög að
fá styrk frá skattgreiðendunum?
Þetta er að ganga út í svo miklar öfg-
ar með styrk og hlunnindi til íþrótta-
félaga, auk þess sem þau hafa hlunn-
indi af happdrættum og annarri
starfsemi sem engin önnur fyrirtæki
fá, að nú verður að stöðva þá ölmusu-
starfsemi - og það strax.
Þessi tillaga til borgarráðs, ef sam-
þykkt verður, er ekki til atkvæða-
fylgis hins venjulega borgara í næstu
kosningum, svo mikið er víst.
Námskeið
Reykjavik20.og21.jan.
Akureyri 27. og 28. jan.
Hugrækt
Heilun Líföndun
Á Aknreyri þann 27. og 28. janúar n.k. Námskeiðið er
samtals 20 timar að lengd. Verð er aðeins kr. 6.500 og
er hœgt að greiða með Euro eða Visa. Leiðbeinandi á
námskeiðinu er Friðrik Páll Ágústsson og er hægt að
fá nánari uppl. hjá honum í sima: 91-622273.
Vegna mikillar sölu
vantar bíla á staðinn
0
BÍLAKAUP
Borgartúni 1
Símar 686010 & 686030
2. leikvika - 13.desember 1990
Vinningsrööin: 212-11X-X12-XX1
HVER VANN ?
1.736.402- kr.
1 var með 12 rétta - og fær: 1.390.045- kr. á röð
17 voru með 11 rétta - og fær hver: 20.373- kr. á röð
SPRENGIPOTTUR
- um næstu helgi!!
Svæðameðferðog létt rafmagnsnudd
ásamt acupunchurmeðferð með lacer
Sérhæfing við bólgu í herðum, baki og höf-
uðverk.
ELSA HALL,
Langhottsvegi 160, sími 68-77-02.
S3 E
——I ko«ocAoc
■ Húsgögn
Skápar, sófar,borö og bekkir,
betri kaup þú varla þekkir.
Leitaóu ei um hæðir og hóla,
heldur skaltu á okkur.....
smAauglýsingar
SÍMI 27022