Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1990, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1990.
5
DV
Misnotkun á ofskynjunarsveppum eykst í Danmörku:
Fréttir
Hafa fundist á umferð-
areyjum í Reykjavík
Margar venjulegar sveppategundir
geta í auknum mæli haft misnotkun
í fór með sér í Danmörku á næstu
árum. Þetta kemur fram í frétt í
danska dagblaðinu Politiken í síð-
ustu viku en hún er aftur byggð á
5Vamr?SSdef
°me 5
f KaA^e Sltovmattd
,.r.
’SSSSÆ&Z
'V.
Hostelsvamp
.T,tayn.;.“”„kompUce-
” u,re b>v«k-
d.o»od.»de.»ggeI
nger. ro.e”. forvekeler
i rieiko i. » . ;fnge arter.
/ampeoe tnefl í ,vorUgere
„ pSdrager eig
Sreiftninge'- t moligt
orv'i.Urov.r,OJ.hv„det
,u.gift-ro“b,í?; blive meg.l
^v'ilrl.r begr»n«.
Van.Wiwnende l»g«' vagt
l GednlngsnoQ.o'18'
Sptdsnogenha»|
Sendinefnd Noröurlandaráðs til Sovét:
Páll Pétursson
verður formaður
„Við viljum gjarnan leggja þeim
öflum Uð í Sovétríkjunum sem vilja
auka á lýðræði. Við myndum fagna
því mjög ef við yrðum þessum frjáls-
lyndari öflum að liði,“ sagði Páll Pét-
ursson, þingmaður Framsóknar og
tilvonandi forseti Norðurlandaráðs-
þings.
Páll verður formaður sendinefndar
Norðurlandaráðs sem fer til Sovét-
ríkjanna í vor. Stefnt er að því aö
nefndin fari meðal annars til Eystra-
saltsríkjanna og búist er við að rætt
verði um aukin samskipti Norður-
landanna og Eistlands, Lettlands og
Litháen. í nefndinni verða fulltrúar
úr fjárhagsnefnd Norðurlandaráðs,
menningarmálanefndinni og félags-
og umhverfismálanefndinni.
Það var Gorbatsjov, forseti Sovét-
ríkjanna, sem bauð nefndinni til Sov-
étríkjanna á ferð sinni til Finnlands
í haust.
„Gorbatsjov hefur áhuga á að fá
svona sendinefnd og það kemur heim
og saman við þær hugmyndir sem
um hefur verið rætt í Norðurlanda-
ráði,“ sagði Páll.
Á undanförnum árum hefur marg-
sinnis verið rætt um aukið samstarf
við Eystrasaltslöndin á Norðurland-
aráðsþingi. Meðal annars hefur kom-
íð fram sú tillaga að heimila þeim
inngöngu í Norðurlandaráð þó sú til-
laga hafi ekki hlotið mikinn hljóm-
grunn. -gse
Fjárhagsáætlun Garöabæjar:
540 milljóna króna tekjur
Heildartekjur bæjarsjóðs Garða-
bæjar eru áætlaðar 537,6 milljónir
króna á þessu ári. Þar af eru útsvars-
tekjur 413,4 milljónir.
Bæjarstjórn Garðabæjar hefur
samþykkt fjárhagsáætlun fyrir árið
1990.
Fræðslumál eru sá málaflokkur.
sem útheimtir mest fé, eða 94,9 millj-
ónir. Framlög til almannatrygginga
og félagshjálpar eru næsthæst, 58,1
milljón. Rekstrarafgangur bæjar-
sjóðs er áætlaður 162 milljónir en það
eru rúm 30 prósent af tekjum.
Framkvæmdafé bæjarsjóðs Garða-
bæjar er 312,6 milljónir króna.
Stærsta framkvæmd ársins er mal-
bikun og nýgbygging gatna. Kostnað-
ur vegna gatnaframkvæmda er áætl-
aður 127 milljónir.
30 milljónum verður varið til ný-
byggingar leikskóla í nýju hverfi á
austanverðum Arnarnéshálsi. Fyrir-
hugað er að taka skólann í notkun í
mars 1991. Auk þessa fara 10 milljón-
ir í byggingu við Flataskóla, 15 millj-
ónir til innréttinga og endurbóta í
Heilsugæslu Garðarbæjar svo eitt-
hvað sé nefnt.
Einn sveppanna, sem blaðamaður DV fann á umferðareyju i Reykjavik
haustið 1988, ásamt mynd af greininni i danska dagblaðinu Politiken. Á
dönsku heita þeir, frá vinstri: Gödningsnögenhat, höstelsvamp og spids
nögenhat. DV-mynd S
skrifum í danska læknablaðinu, Uge-
skrift for læger. Sveppirnir innihalda
efnið psilocybin og við neyslu þeirra
koma fram áhrif í ætt viö ofskynjun-
arlyfið LSD.
DV sagði frá því í september 1988
að á umferðareyjum í Reykjavík yxu
sveppategundir sem innihalda efnið
psilocybin. Sagði frá fólki sem sést
haföi á fjórum fótum á stöðum eins
og við Miklatorg og Höfða í leit að
þessum sveppum. Nokkir aðilar
höfðu samband við blaðiö í kjölfar
fréttarinnar til að ausa af visku-
brunni sínum en þeim bar ekki sam-
an og myndin af sveppum þessum
því heldur rughngsleg. Á mynd er
fylgir frétt Politiken sést hins vegar
að þar er á ferðinni alla vega einn
þeirra sveppa sem blaðamaður fann
í einum sveppaleiðangri á umferðar-
eyium Reykjavíkur.
í danska læknablaðinu segir að
læknar viti enn lítið um reynslu
Dana af neyslu sveppanna. Hins veg-
ar segir að í öðrum löndum sé svepp-
anna í sívaxandi mæli neytt sem
vimuefnis.
Sveppir þessir vaxa í stórum breið-
um í Evrópu og eru einnig ræktaðir
í heimahúsum. Áhrif þeirra virðast
ekki vera margflókin og án meiri-
háttar aukaverkana en fólk getur
auðveldlega ruglast á þeim og eitruð-
um sveppum. Þá er einnig varað viö
neyslu áfengis samsvara sveppaát-
inu.
Danska læknablaðið vill vekja at-
hygli heimilislækna, vaktlækna,
lækna á slysavakt og geðdeildum á
þessu fyrirbæri.
-hlh
A síldarhlaðborðinu má finna mikinn fjölda girnilegra síldarrétta, auk heitra rétta, og er verðinu mjög
stillt í hóf. Síldarævintýrið stendur yfir í hádeginu alla virka daga.
Síldarævintýri
í hjarta Reykjavíkur
Veitingahúsið Óðinsvé
við Óðinstorg býður
þessa daga upp á sann-
kallað síldarævintýri í
hádeginu, síldarhlaðborð
þar sem finna má ókjör
girnilegra og nýstárlegra
síldarrétta. Það er hinn
kunni matargerðarmeist-
ari að Óðinsvéum, Gísli
Thoroddsen, sem hefur
veg og vanda af mat-
reiðslu réttanna.
„Við íslendingar eigum
þetta úrvals hráefni, sjálft
silfur hafsins, og það er svo
sannarlega tími til kominn
að við förum að setja metn-
að og hugvit í fyrsta flokks
matseld þessarar ágætu
fisktegundar," segir Gísli
Thoroddsen en hann býður
upp á hátt á þriðja tug mis-
munandi síldarrétta.
„Við höfum alltaf haft hér
fjölda fastagesta í hádeginu,
sem kunna að meta góðan
mat, og við erum ekki í
minnsta vafa um að síldar-
ævintýrið muni mælast vel
fyrir hjá sælkerum borgar-
innar. Við verðum með
þetta á sérstQku kynningar-
verði til að byrja með þann-
ig að ekki ætti verðið að
aftra neinum.“
Auk síldarréttanna verður
alltaf boðið upp á a.m.k.
einn heitan rétt á hlaðborð-
inu en það stendur til boða
í hádeginu alla virka daga.
Og fyrir þá sem enn eru
ekki komnir upp á bragð
með síldina býður Óðinsvé
auðvitað einnig upp á sinn
fjölbreytilega hádegisverð-
armatseðil.
Auglýsing
-sme