Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1990, Blaðsíða 27
.FJMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR :1'990.
35
Fólk í fréttum
Broddi Kristjánsson
Broddi Kristjánsson badmintonleik-
ari, Holtsgötu 12, Reykjavík, varö
íslandsmeistari í einliöaleik karla í
badminton um síðustu helgi. Eins
og fram kom í íþróttafréttum DV á
mánudaginn var er þetta í níunda
sinn sem Broddi hreppir þennan tit-
il en þar meö setti hann nýtt met
því enginn hefur áöur orðið jafnoft
Islandsmeistari.
Broddi fæddist í Reykjavík 8.12.
1960 og ólst þar upp í foreldrahús-
um. Hann hóf skólagönguna í
Landakotsskólanum, var síðan í
Hagaskóla og lauk stúdentsprófi frá
MS1981. Broddi var í íslenskunámi
við HÍ1981-82 og stundaði síðan fé-
lagsfræði viö HI samhhða íþrótta-
iðkun sinni.
Broddi er að öllum líkindum
fremsti íslenski badmintonleikar-
inn frá upphafi enda hefur hann náð
einstökum árangri í íþróttagrein
sinni. Hann hóf að æfa badminton
hjá TBR sjö ára að aldri og tók þátt
í sínu fyrsta móti tíu ára. Broddi
varð unglingameistari í einliðaleik,
tvOiðaleik og tvenndarleik 1978.
Hann varð íslandsmeistari í meist-
araflokki í einhðaleik 1980 og hefur
unnið titilinn síðan, að tveimur
árum undanskildum, ahs níu sinn-
um. Hann varð einnig íslandsmeist-
ari í tvfliðaleik 1980 og hefur ahs
átta sinnum unnið þann titU. Þá
hefur hann orðið íslandsmeistari í
tvenndarleik fimm sinnum.
Broddi hefur sigrað á fjölda ann-
arra móta, hér á landi og erlendis.
Hann er landshðsmaður í badmin-
ton frá 1979 og hefur að baki flesta
landsleiki eða ahs áttatíu og tvo
leiki.
Broddi var á þjálfaranámskeiði í
Nyborg í Danmörku 1982 og hefur
þjálfað unglinga í badminton. Þá er
hann mikill áhugamaður um hesta-
mennsku og hrossarækt.
Unnusta Brodda er Helga Jó-
hannsdóttir, f. 1966, sem stundar
framhaldsnám í rafmagnsverkfræði
í Danmörku, dóttir Jóhanns Ind-
riðasonar rafmagnsverkfræðings og
Helgu Jónasdóttur kennara.
Broddi á eina systur. Sú er Kristín
Berglind, f. 4.9.1958, húsmóðir í
Reykjavík og fyrrv. landshðsmaður
í badminton og margfaldur íslands-
meistari í þeirri grein, en sambýhs-
maður hennar er Páll Svansson,
viðskiptafræðingur og starfsmaður
hjá Reiknistofu bankanna, og eiga
þautvosyni.
Foreldar Brodda eru Kristján
Benjamínsson, f. 5.Í0.1923, skrif-
stofustjóri Sölufélags garðyrkju-
manna, og kona hans, Hulda Guð-
mundsdóttir, f. 5.12.1925, skrifstofu-
maður hjá Sölufélagi garðyrkju-
manna og fyrrv. íslandsmeistari í
tvíhðaleik í badminton.
Hálfbræður Kristjáns, sam-
mæðra, eru Haukur, b. á Snorra-
stöðum, kvæntur Ingibjörgu Jóns-
dóttur frá Gestsstöðum á Ströndum,
Friðjón, sparisjóðsstjóri í Borgar-
nesi, kvæntur Björk Halldórsdóttur
úr Borgarnesi, og Jóhannes, for-
stöðumaður Söfnunarsjóðs lífeyris-
réttinda. Hálfsystur Kristjáns, sam-
mæðra, eru Kristín, gift Grétari
Haraldssyni, starfsmanni Eurocard,
Helga, gift Indriða Albertssyni,
mjólkurbússtjóra í Borgamesi, og
Ehsabet, gift Baldri Gíslasyni kenn-
ara.
Kristján er sonur Benjamíns,
borgarstarfsmanns í Reykjavík,
bróður Kristjáns Jóhanns, stofn-
anda og forstjóra Kassagerðar
Reykjavíkur, fóður Agnars, for-
stjóra Kassagerðar Reykjavíkur.
Systir Berjamíns var Ingibjörg,
kona Guðlaugs Jónssonar sem var
lögregluþjónn og rithöfundur í
Reykjavík. Hálfbróöir Benjamíns
var Sigurður Pálsson vígslubiskup,
faðir Olafs fréttamanns, Gissurar
fréttamanns og Sigurðar, sóknar-
prests á Selfossi. Benjamín var son-
ur Kristjáns, b. á Kaldárbakka í
Kolbeinsstaðahreppi, Benjamíns-
sonar, b. í Dalsmynni í Eyjahreppi,
Gíslasonar. Móöir Benjamíns var
Jóhanna Guðríður, systir Gott-
skálks, fóður Ragnhildar læknamið-
hs og afa Gottskálks Björnssonar
læknis. Jóhanna Guðríður var dótt-
ir Bjöms, b. á Stóra-Hrauni, bróður
Gísla, langafa Magnúsar Gíslason-
ar, formanns Verslunarmannafé-
lags Suðurnesja. Bjöm var sonur
Gottskálks, b. í Landbrotum, bróður
Eggerts, langafa Guðmundar Egg-
ertssonar prófessors og Guðnýjar,
móður Sigmunds Guðbjamasonar,
rektors HÍ. Gottskálk var sonur
Gísla, prests í Hítarnesi, bróður
Jóns, langafa Guðmundar Kamban,
Sigvalda Kaldalóns og Guðrúnar,
móður Gauks Jörundssonar, um-
boðsmanns Alþingis. Gísh var son-
ur Guðmundar, tukthúsráðsmanns
í Reykjavík, Vigfússonar. Móðir
Gísla var Guðrún Þorbjamardóttir
„ríka“ í Skildinganesi Bjamasonar,
langafa Ólafar, langömmu Jóhann-
esarNordal.
Móöir Kristjáns er Margrét, hús-
freyja á Snorrastöðum, dóttir Jó-
hannesar, b. í Skjálg, Jónatansson-
ar, og Kristínar Benjamínsdóttur
skáldkonu.
Systir Huldu er Gyða, gift Haraldi
Baldurssyni bankaútibússtjóra.
Bróðir Huldu er Adolf símvirki í
Reykjavík, kvæntur Erlu Þórðar-
dóttur frá Akureyri.
Hulda er dóttir Guðmundar, versl-
unarstjóra og söngvara í Reykjavík,
bróður Sigurðar, verktaka á Akra-
nesi, fóður Halldórs ríkisendur-
skoðanda. Systir Guðmundar er
Þórdís, amma Sigurðar Símonar-
sonar, sveitarstjóra á Egilsstöðum.
Guðmundur var sonur Símonar, b.
í Götu og síðar í Austurkoti á Vatns-
leysuströnd, bróður Ragnheiðar,
ömmu ívars Jónssonar, skrifstofu-
stjóra Þjóðleikhússins. Símon var
sonur Símonar, b. í Hahstúni, Eyj-
ólfssonar. Móðir Símonar í Hahs-
Broddi Kristjánsson.
túni var Þorgerður Símonardóttir,
systir Magnúsar, langafa Einars
Bjarnasonar, prófessors og ríkis-
endurskoðanda. Móðir Guðmundar
var Gróa ljósmóðir Guðmundsdótt-
ir, b. á Staðarhöfða, Ásmundssonar,
b. á Þórustöðum í Svínadal, Guð-
mundssonar. Móðir Guðmundar á
Staðarhöfða var Sigríður Jónsdóttir
frá Króki í Biskupstungum. Móðir
Gróu var Steinunn Sæmundsdóttir,
töflusmiðs og málara á Hehulandi,
Gíslasonar, bróður Guðrúnar, móð-
ur Guðmundar Guömundssonar
skólaskálds.
Móðir Huldu var Magnea, hús-
móðir í Reykjavík, hálfsystir Stef-
aníu, kaupkonu í verslun Ámunda
á Hverfisgötunni. Magnea var dóttir
Gísla, b. í Hólsbæ á Stokkseyri, Stef-
ánssonar, b. á Bergsstöðum, Páls-
sonar. Móðir Magneu var Magnea
Magnúsdóttir, b. í Brandshúsum,
Guttormssonar.
Afmæli
Benedikt Agnarsson
Benedikt Agnarsson loðdýra-
bóndi, Víðigrund 24, Sauðárkróki,
erfimmtugurídag.
Benedikt er fæddur á Heiði í
Gönguskörðum. Hann vann við bú-
skap í fóðurhúsum frá 15 ára aldri
th þrítugs en fór þá á sjóinn. Á sjón-
um var hann fyrst í tvö ár og síðar
aftur á annað ár en vann ýmis störf
í landi á Sauðárkróki þess á mhh.
Árið 1985 hóf hann loðdýrarækt að
Breiðstöðum í Gönguskörðum, auk
þess sem hann hefur unnið í fóður-
stöðinni Melrakka á Sauðárkróki.
Benedikt kvæntist þann 16.8.1970
Maríu Angantýsdóttur húsmóöur,
f. 8.11.1949. Hún er dóttir Angantýs
Jónssonar, pípulagningarmanns og
innrömmunarmanns á Sauöár-
króki, og Báru Jónsdóttur.
Böm Benedikts og Maríu eru:
Agnes Bára, f. 29.10.1970, verslunar-
maður; Ásta Margrét, f. 26.2.1976;
Jón Hallur Björgvin, f. 5.7.1977;
Sigrún Elfa, f. 20.4.1983, og Sigfús
Amar,f. 18.11.1989.
Benedikt á níu systkini á lífi. Þau
eru: Marsibil, húsmóöir á Sauðár-
królti; Agnar, b. á Heiði í Göngu-
skörðum; Jóhannes, búsettur í
Reykjavík, starfsmaður Lýsis og
mjöls; Hólmfríður, húsfreyja á
Fagranesi á Reykjaströnd; Ásta,
húsmóðir á Sauðárkróki; Ingibjörg,
bankamaöur í Reykjavík; Anna
Snæbjört, verslunarmaður í
Reykjavík; Magnús, b. á Efri-Múla
í Dalasýslu, og Sigurður, sjómaður
á Sauðárkróki.
Foreldrar Benedikts eru Agnar
Hólm Jóhannesson, f. 11.3.1906,
fyirum bóndi á Heiði í Gönguskörð-
um, og Ásta Margrét Agnarsdóttir,
f. 10.9.1916.
Agnar er sonur Jóhannesar, b. í
Kolgröf í Efribyggð og víðar, Jónas-
sonar, b. í Litladal í Tungusveit,
Jóhannssonar, b. á Minni-Ökrum
og Stekkjarflötum, Hrólfssonar.
Móðir Jónasar var Margrét Pét-
ursdóttir frá Vatnsleysu. Móðir Jó-
hannesar í Kolgröf var Ingibjörg
Hinriksdóttir, hafnsögumanns í
Hhðsnesi á Álftanesi í Gullbringu-
sýslu, Guðmundssonar, og Herdísar
Jónsdóttur.
Móðir Agnars var Jóhanna Marsi-
bil Benediktsdóttir, b. í Breiðagerði
í Tungusveit, Jónssonar, b. á
Smyrlabergi á Ásum í Austur-
Húnavatnssýslu, Jónssonar.
Móöir Benedikts var Marsibil
Jónsdóttir skáldkona. Móðir Jó-
hönnu Marsibhar var Agnes Jóns-
dóttir, b. á Stóru-Seylu, Guð-
mundsssonar, og Guðríðar Sæ-
mundsdóttur.
Ásta Margrét, móðir Benedikts,
er dóttir Agnars, b. á Snæringsstöð-
um í Vatnsdal, í Holtastaðakoti í
Langadal og á Eyrarbakka, Þorláks-
sonar, vinnumanns á Eyjólfsstöðum
í Vatnsdal, Guðmundssonar. Móðir
Agnars var Anna Sigríður Davíðs-
dóttir.
Móðir Ástu Margrétar var Hólm-
fríður Ásgrímsdóttir, vinnumanns í
Ölfushreppi, Guðmundssonar, b. á
Reykjum í Ölfusi, Jakobssonar, b. á
Búrfehi, Snorrasonar, prests á
Húsafelli, Björnssonar.
Móðir Ásgríms var Valgeröur
Pálsdóttir. Móðir Hólmfríðar var
Þórunn Guðmundsdóttir.
Guðmundur Emilsson
Guðmundur Emhsson, sjómaður,
útgerðarmaöur og síðar starfsmað-
ur við fiskvinnslu, Ghsbakka 1,
Seyðisfirði, er sjötugur í dag.
Guðmundur fæddist á Landamóti
í Seyðisfjarðarhreppi og ólst upp í
foreldrahúsum í Hátúni í sömu
sveit.
Guðmundur byrjaði sex ára að
beita og tólf ára var hann er hann
hóf sína sjómennsku á opnum ára-
báti. Hann var síðan á bátum frá
Seyðisfirði, Ólafsvík og um skeið á
fiskibátum Björns Péturssonar í
Keflavík. Guðmundur hefur ætíð
verið á bátum og stundað netaveið-
ar, reknetaveiðar, hnuveiðar og
síldveiðar. Hairn gerði síðan út eigin
bát í félagi viö Ágúst Sigiujónsson
í u.þ.b. fimmtán ár en síðustu árin
hefur Guðmundur imnið við fisk-
vinnslu á Seyðisfirði.
Kona Guðmundar er Guðný Ás-
mundsdóttir, f. 1922, dóttir Ásmund-
ar Sigmundssonar, kaupamanns á
Héraöi, og konu hans, Jarþrúðar
Jónsdóttur.
Guðmundur og Guðný eignuðust
sex böm. Þau eru María, f. 18.7.1944,
verkstjóri hjá Norðursíld á Seyðis-
firöi, gift Kjartani Björgvinssyni
trihusjómanni og eiga þau þijú
böm; Jónas, f. 18.9.1948, verkstjóri
hjá BYKÓ, kvæntur Aldísi Gústafs-
dóttur, starfsmanni hjá Flugleiðum,
en þau eiga saman eitt barn, auk
þess sem Jónas átti fyrir eitt bam
og Aldís þijú; Jarþrúður Dagbjört,
f. 1950, en hún dó á fyrsta árinu;
Valgerður Ljósbrá, f. 24.7.1951, eftir-
litsmaður við fiskvinnslu, gift Kol-
beini Agnarssyni, sjómanni á Seyð-
isfirði og eiga þau þijú böm; Emh
Theodór, f. 11.2.1955, verkamaður á
Seyðisfirði, og Auðbjörg Bára, f.
28.9.1962, starfsmaður á Heilsu-
gæslustöð Seyðisíjarðar, gift Agh
Sölvasyni, forstöðumanni félags-
heimhisins Herðubreið á Seyðisfirði
og eiga þau tvö börn.
Systkini Guömundar urðu ehefu
og em tíu þeirra á lífi.
Foreldrar Guðmundar vom Emh
Theodór Guðjónsson, f. 10.5.1896,
d. 11.1.1976, b. í Hútúni, og kona
hans, Guðný Guðmundsdóttir, f. 6.8.
1896, d. 16.6.1974, húsfreyja.
80 ára 40ára
Elís Sveinbjörnsson, Fjarðarbraut 48, Stöðvarfirði. Ásdís Ragnarsdóttir, Furugrund 17, Akranesi.
75ára Melbæl4,Reykjavik. Brvniólfur Sirrurðsson,
Margrét Helgadóttir, Fehsenda, Þingvallahreppi. Dalseli 24, Reykjavik. Diljá Guðmunda Gunnarsdóttir, Sæbólsbraut 7, Kópavogi.
. Uuðriður Oiafsdóttir, 70 3^3 Dalbraut8,Dalvík.
VilhjálmurEmilsson, Laufósi 7, Eghsstöðum. uUOi'Uu J^OniUUU (JOUSuOllU't Kögurseh 1, Reykjavík. Jóna Björg Sigurðardóttir,
60 ára Lena M. Otterstedt, _ Tjarnarlundi 14B, Akureyri.
Guðrún O. Óskarsdóttir, Flyöragranda20, Reykjavík. Ingibjörg Axelsdóttir, Unufehi 50, Reykjavík. Þorgerður Þorbjörnsdóttir, Þverholti 20, Keflavik. Ragnheiður Jónasdóttir, Reykholfi 2, Biskupstungnahreppi. Sigurður Björn Ingólfsson, Akurgerði 17, Akranesi. Svanhvít Magnúsdóttir, Klettagötu 15, Hafnarfiröi.
Leiðréttingar
Hörður Jóhannsson. í grein um
Hörð, sem birtist þann 6.2., féh niður
nafn unnusta Sædísar, dóttur hans.
Hann heitir Kristján Gunnarsson
nemi. Steingrímur, eiginmaður
Arnheiðar Bjargar, er Ólason ekki
Ólafsson. Hálísystkini Harðar vom
sjö, en ekki sex eins og kom fram í
greininni.
Jón Sigurðarson. Móðir Jóns var
Kolbrún, dóttir Regínu leikkonu,
sem var systir Sigurðar Þórðarson-
ar, aðalféhirðis Búnaðarbankans,
sem var faðir Péturs Friðriks Ust-
málara og Þórðar B. hjá Reikni-
stofnun bankanna. Hún var ekki
systir Sigurðar tónskálds. Móðir
Regínu yar Hansína Linnet, en al-
bróðir Hansínu var Kristján Linnet.
í greininni, sem birtist þann 29.1.
var aðeins getið um hálfbróður
hennar, Axel.
Sigurbjörg Ingvarsdóttir. Móðir
Gísla Helgasonar, b. í Forsæti og
síðar hreppstjóra í Vatnsholti í Flóa,
var ekki Marín Guðmundsdóttir,
heldur Ingibjörg Jónsdóttir, b. á
Grafarbakka, Bárðarsonar, prests í
Guttormshaga, Jónssonar. Greinin
um Sigurbjörgu birtist þann 19.1.
Ölvir Karlsson. í grein um Ölvi,
sem birtist þann 1.2., féh niður nafn
sonar hans fyrir hjónaband. Hann
heitir Reynir Heiðdal Ölvisson, f.
14.6.1934, leigubílstjóri í Keflavík,
kvæntur Sveinsínu Frímannsdóttur
húsmóður og eiga þau íjögur börn.
Móðir Reynis er Stefanía Axels-
dóttir.
Er hér með beðist velvirðingar á
þessum mistökum.