Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1990, Blaðsíða 8
8
FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1990.
Útlönd
Sögulegur atburður í Sovétríkjunum:
Skref í átt að
fjölflokkakerfi
- persónulegur sigur fyrir Gorbatsjov Sovétforseta
Moskvubúi les Prövdu, málgagn sovéska kommúnistaflokksins.
Miöstjórn sovéska kommúnista-
flokksins tók í gær sögulegt skref í
átt að fjölflokkakerfi í Sovétríkjun-
um með því að samþykkja afnám
einræöis flokksins. Samþykkt þessi
var gerð á síðasta degi þriggja daga
fundar miðstjómar flokksins en þar
voru róttækar tillögur Mikhails Gor-
batsjovs, forseta landsins og leiðtoga
flokksins, um víðtæka uppstokkun í
stjómarfari og hlutverki flokksins,
ræddar og samþykktar nær óbreytt-
ar. Með þessari samþykkt hefur mið-
stjórnin þar með rutt veginn fyrir
íjölflokkakerfi eftir sjötíu ára ein-
ræði kommúnistaflokksins í þessu
stærsta landi heims. Ákvörðun mið-
stjómarinnar verður lögö fyrir báðar
deildir löggjafarþingsins, fulltrúa-
deild og æðsta ráð, til samþykktar.
Ákvörðun miðstjórnarinnar í gær
sýnir að Gorbatsjov hefur borið sigur
úr býtum í valdabaráttu þeimi sem
fréttaskýrendur segja hafa átt sér
stað á fundinum. Þá er þetta einnig
talinn mikill persónulegur sigur fyr-
ir forsetann sem mátti þola mikla
gagnrýni harðlínumanna á fundin-
um fyrir að leggja fram svo róttækar
tillögur, tillögur sem hann kallaði
„mannlegan, lýðræðislegan sósíal-
isma“. Gagnrýnin gekk jafnvel svo
langt að einn nefndarmanna sakaði
Gorbatsjov um að leiða landið fram
á hengibrún stjómleysis. En þrátt
fyrir þessi hörðu oröaskipti voru til-
lögumar samþykktar í nær sinni
upprunalegu mynd með yfirgnæf-
andi meirihluta atkvæða, að sögn
fulltrúa sem sátu fundinn.
Breytingarnar
í tillögunum felst að einræði
flokksins verði afnumið, vald og
áhrif embættis forseta aukið, fækkað
veröur í miöstjórninni en þar sitja
nú hátt í þijú hundmð fulltrúar og
að sett verði á laggimar nýtt stjóm-
málaráð, framkvæmdanefnd, þar
sem fulltrúar allra fimmtán lýðvelda
Sovétríkjanna. Þá verður embætti
framkvæmdastjóra flokksins lagt
niður og í staðinn sett á laggirnar
embætti stjómarformanns.
En á fundinum í gær varð ekki sú
uppstokkun í forystunni sem margir
Sovétmenn höfðu vonast eftir og enn
eiga þar margir íhaldsmenn sæti. Því
verður almenningur enn að bíða þess
að hreinsun og endurnýjun í æöstu
stöðum flokksins eigi sér stað. Einnig
er óljóst hvenær og hvemig forysta
flokksins hyggst staðfesta hinar nýju
samþykktir með lögum. Því má bú-
ast við að enn sé margt og mikið
verk framundan.
Valdaeinokun
heyrir sögunni til
Fulltrúar á miðstjórnarfundinum
sögðu í gær að gengið heföi veriö til
atkvæða um breytingu á sjöttu grein
stjórnarskrár landsins en í þeirri
grein er valdaeinokun flokksins
tryggð. Greinin kveður á um „for-
ystuhlutverk" flokksins í sovésku
þjóðfélagi eða með öðmm orðum ein-
ræði hans á sviði stjórnmálanna.
„Hvað varðar sjöttu grein stjórnar-
skrárinnar mun miðstjómin leggja
fyrir æðsta ráðið tillögur að nýjum
drögum. Þetta felur í sér ógildingu
Fyrsti varaforseti Sovétríkjanna,
Anatoli Lukyanov, ræðir við blaða-
menn að loknum fundi miðstjórnar
sovéska kommúnistaflokksins.
Simamynd Reuter
greinarinnar," sagði Júrí Shatalín,
félagi í miðstjórninni, í samtali við
fréttamenn að fundinum loknum í
gær. Sjötta greinin verður þó við lýði
þar til þingið hefur formlega fellt
hana úr gildi.
Sovéskir embættismenn sögðu að
tillögur um breytingar væri að finna
í nýjum drögum að breytingum á
stjórnarskránni en þau drög verða
lögð fyrir flokksþing í júní eða júlí
næstkomandi. En enginn texti að
þessum drögum hefur enn verið birt-
ur opinberlega, hvorki í daghlöðum
né öðrum fjölmiðlum og því er óljóst
hvernig breytingunum verður hag-
að.
Tveir háttsettir embættismenn
lögðu á það áherslu aö framtíð sjöttu
greinar stjórnarskrárinnar væri
undir löggjafarþinginu komin en
breytingartillögur varðandi hana
verða lagðar fyrir fulltrúardeild
þingsins, neðri deild, sem og æðsta
ráðið, •efri deild. „Ákvörðunin er
undir þinginu komin. Margir eru
hlynntir því að greininni verði haldið
í stjórnarskránni en aðrir vilja hana
feiga,“ sagði Anatoly Lukyanov
varaforseti.
Engar mannabreytingar
Engar mannabreytingar í æðstu
stöðum voru samþykktar á fundi
miðstjórnarinnar að sögn Alexand-
ers Jakovluev, náins samstarfs-
manns Gorbatjovs og félaga í mið-
stjórninni, þrátt fyrir að margir rót-
tækir umbótasinnar hafi farið þess á
leit að harðlínumönnum verði vikið
úr miðstjórninni. Þetta kann að
reynast alþýðufylkingunum svoköll-
uðu, grasrótarsamtökum almenn-
ings, mikið reicjarslag. Á sunnudag
gengu tvö hundruð þúsund Sovét-
menn um götur Moskvu til að krefj-
ast umbóta og breytinga og margir
hvöttu til þess að harðlínumaðurinn
Jegor Lígachev yrði látin fjúka.
Gorbatsjov hafði látið í það skína
að mannabreytingar yrðu í æðstu
stofnunum flokksins. En fréttaskýr-
endur segja að líklega hefði forsetinn
viljað beina kröftum sínum að því
að fá tillögur sínar samþykktar á
miðstjórnarfundinum og ákveðiö að
láta hið viðkvæma mál, þ.e. manna-
breytingarnar, bíða þar til á flokks-
þinginu sem vald hefur til aö stokka
upp í forystusveit flokksins.
Reuter
Mikhail Sergejevitsj Gorbatsjov, leiðtogi sovéskra kommúnista, ásamt konu
sinni, Raisu. Símamynd Reuter
Gorbatsjov styrkir stöðu sína
Mikhail Sergejevítsj Gorbatsjov,
forseti Sovétríkjanna, þykir enn á
ný hafa sýnt póhtíska snilld sína;
hann hrósaði sigri á miðstjórnar-
fundi sovéska kommúnistaflokksins
sem haldinn var í Moskvu síðast-
liðna þrjá daga en þar tókst honum
að telja flokksfélaga sína á að sam-
þykkja víötækustu breytingar á
stefnu flokksins frá þvi að bylting
bolsévika átti sér stað í Sovétríkjun-
um áriö 1917. Með þessum breyting-
um telja fréttaskýrendur að nú hafi
brautin fyrir fjölflokkakerfi í Sovét-
ríkjunum veriö rudd.
„Markmiö okkar er mannlegur,
lýðræðislegur sósíalismi," sagði for-
setinn á fundinum í gær. Hann sagði
að kommúnistaflokkurinn þyrfti nú
að undirbúa sig undir að deila völd-
um með öðrum stjómmálaöflum og
lagði grunninn að því að alræði
flokksins verði afnumið.
Fimm ár í embætti
Frá því hann tók við leiðtogaemb-
ætti flokksins í mars áriö 1985 hefur
Gorbatsjov sýnt aftur og aftur kunn-
áttu sína á stjórnmálasviðinu og
tryggt stöðu sína í embætti. Skömmu
eftir að hann komst til valda kom
hann stuðningsmönnum sínum inn
í hiö valdmikla stjórnmálaráð og
hefur notfært sér völd sín til að koma
sínum skoðanabræðrum aö.
í apríl á síðasta ári fékk hann eitt
hundrað gamla kommúnista til aö
„segja af sér“ úr miðstjóm flokksins
og fylgdi eftir þessu í september er
hann stóð hann fyrir mestu hreins-
unum innan flokks frá því hann tók
við embætti. Sú uppstokkun leiddi
til þess að fimm í forystuliði flokks-
ins hurfu af vettvangi stjórnmál-
anna.
Treystir stöðu forseta
Gorbatsjov heldur nú embætti for-
seta og segja fréttaskýrendur að þeg-
■ar þing Sovétríkjanna hefur lagt
blessun sína yfir samþykkt mið-
stjórnarinnar frá í gær, eins og fast-
lega er búist við, hafl forsetinn styrkt
embætti sitt. Samkvæmt tillögunum
fær forseti - sem er í raun núna bara
formaöur Æðsta ráðsins - fullt fram-
kvæmdavald með jafnvel enn meiri
völd en nú er. Fréttaskýrendur telja
að þó Gorbatsjov kunni að fá fullt
framkvæmdavald muni hann halda
stöðu sinni í forystusveit flokksins.
Reuter