Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1990, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1990, Qupperneq 11
FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1990. 11 Utlönd Líbanon: Vopnahléð valt Vopnahléð í austurhluta Beirút, höf- uðborg Líbanons, riðar nú til falls. Hinar stríðandi fylkingar kristinna, sem þar heyja blóðugt stríð, virðast ákveðnar í að knýja fram uppgjöf hvor annarrar. Skelfingu lostnir íbú- arnir veija nú hverri nóttunni á fæt- ur annarri í neðanjarðarbyrgjum til að forðast sprengjuregnið. Sjónar- vottar segja að á götum borgarinnar liggi rotnandi lík og að þrátt fyrir hlé á bardögum hafi björgunarmenn ekki getað náð þeim burtu vegna leyniskyttna. Að minnsta kosti þrjú hundruð og fimmtíu hafa týnt lífi í þessum bardögum síðustu daga og þrettán hundruð særst. Þetta eru blóðugustu átök sem íbúar þessarar stríðshrjáöu borgar hafa orðið vitni að. Hermenn hliðhollir Aoun og líb- anska þjóðvarðliðið hafa átt í bardög- um í viku en átökin hófust þann 31. janúar síðastliðinn þegar Aoun krafðist þess að líbanska þjóðvarðlið- ið, sem er undir stjórn Samir Ge- agea, leggi niður vopn. Átök hófust svo að nýju þegar Aoun lýsti því yfir að hermenn sínir myndu berjast þar til Geagea og hð hans afneitaði frið- aráætlun þeirri sem friðarfulltrúar Arababandalagsins reyna nú að koma í framkvæmd í Líbanon. Aoun hefur hafnað áætluninni á þeim for- sendum að hún kveði ekki á um hve- nær hermenn Sýrlendinga í landinu hverfi þaðan á brott. Borgarastyijöld hefur ríkt í landinu í ijórtán ár. Heimildir herma að fulltrúar Ao- Skipt á austur-þýskum og vestur-þýskum mörkum fyrir framan Branden- borgarhliðið. Kohl, kanslari Vestur-Þýskalands, hefur hvatt til samræmingar gjaldmiðla þýsku ríkjanna. Símamynd Reuter Umræðan um sameinað peningakerfi: Tillaga Kohls samþykkt Vestur-þýska stjórnin samþykkti í gær tillögu Kohls kanslara um við- ræður við austur-þýsk yfirvöld um sameiginlegan efnahag og samræm- ingu gjaldmiðla ríkjanna. Aukinn þrýstingur er á stjómvöld um að finna leiðir til að stöðva straum Aust- ur-Þjóðverja til Vestur-Þýskalands. Þaö sem af er árinu hafa sjötíu þús- und flutt til Vestur-Þýskalands. Yfirvöld í Vestur-Þýskalandi von- ast til að Austur-Þjóðverjar verði um kyrrt heima hjá sér þegar þeir fá áhrifamikinn gjaldeyri í vasana. Hans Modrow, forsætisráðherra Austur-Þýskalands, mun koma til Vestur-Þýskalands í næstu viku til viðræðna við Kohl kanslara. Hingað til hafa austur-þýsk yfirvöld ekki gengið jafnlangt og vestur-þýsk í umræðunum um samræmingu hag- kerfa ríkjanna. Seðlabankastjóri Vestur-Þýska- lands, Karl Otto Pöhl, sem áður var mótfallinn samræmingu gjaldmiðl- anna, kom fram í sjónvarpi í gær og hrósaði „sögulegri ákvörðun Kohls sem taka þyrfti fóstum tökum.“ „Spurningin er hins vegar hvort Austur-Þjóðveijar eru fúsir til að taka þetta skref sem myndi þýða að þeir þyrftu að láta af hendi peninga- stjórn," sagði Pöhl. Hann sagði jafn- framt að þetta gæti kostað Austur- Þjóðveija störf þeirra. Hingað til heföu Austur-Þjóðveijar ekki undir- búið jarðveginn nægilega til að lokka til sín erlenda íjárfestingaraðila. Mörgum þeirra verksmiðja sem væru illa staddar gæti þurft að loka. En ný fyrirtæki myndu reyndar sjá dagsins ljós. Samkvæmt skoðanakönnun, sem gerð var í síðustu viku í Austur- Þýskalandi, vildu 76 prósent aö- spurðra að þýsku ríkin sameinuðust. Niðurstaða könnunarinnar var einn- ig sú að þeir flokkar sem hafa sam- einingu á stefnuskrá sinni myndu hljóta yfirburðasigur í kosningunum í næsta mánuði. Reuter uns hershöfðinja hafi látið Geagea í té hsta með þeim skilyrðum sem Aoun setur fyrir því að binda enda á blóðbaðið. Fulltrúar beggja aðila komu saman til fundar á þriðjudags- kvöld þegar óformlegt vopnahlé náð- ist. Segja heimildarmenn að í raun hafi Aoun farið fram á að Geagea láti af hendi völd sín og áhrif. Geagea hefur ekki brugðist við skilyrðum Aouns. Reuter Geysiharðir bardagar hafa staðið í Beirút i viku. Þrjú hundruð og fimmtíu hafa týnt lífi í þessum bardögum. Símamynd Reuter Snarsala! fimmtudag.föstudag og laugardag til kl.4 \j\de° Njefö'- 25°/' \®VSÓ»' \\QV^& ;\20 .407« s"a,v 30°/o . ^20.0°° \jetf^a \Q\W • 2.700 -^pUHKt JWVW" ,307os"a< c,e(S»W' s»We <jt BWV''0 ,hnQiiteW’ . eV^' t^"e'aU^e'v. Snarsala! fimmtudag,föstudag og laugardag til kl.4 Gunnar Ásgeirsson hf. Suðurlandsbraut 16 • Sími 680780

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.