Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1990, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1990, Qupperneq 14
Hr Útgáfufélag: FRJÁLS FJOLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÖLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JONSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RVlK.SlMI (91 )27022 - FAX: (91 )27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1000 kr. Verð í lausasölu virka daga 95 kr. - Helgarblað 115 kr. Afstaða Alþýðubandalags Alþýðubandalagsfélag Reykjavíkur hafnaði í fyrra- kvöld óskum alþýðuflokksmanna um sameiginlegt framboð. Samþykkt var með 135 atkvæðum gegn 35, að strax skyldi hafmn undirbúningur að sérstöku fram- boði Alþýðubandalagsins í Reykjavík, framboði G-list- ans. Mikið gekk á, þegar alþýðubandalagsmenn komu saman. Áður en sjálfstætt framboð hafði verið sam- þykkt, hafði verið felld tillaga um, að gengið yrði til viðræðna við Alþýðuflokkinn um sameiginlegt framboð þessara flokka í Reykjavík. Sú tillaga var einungis felld með 125 atkvæðum gegn 96, svo að litlu munaði þar. Eftir er að sjá, hvort eitthvað verður til, sem kalla mætti sameiginlegt framboð. Áður höfðu Kvennalistinn og Framsókn hafnað sameiginlegu framboði. Þá væri eftir sá möguleiki, að Alþýðuflokkurinn og félagið Birt- ing standi að sameiginlegu framboði. Slíkt yrði svipur hjá sjón. En fundur alþýðubandalagsmanna sýndi rétt einu sinni, að þar eru raunar tveir flokkar, annars veg- ar stuðningsmenn flokkseigendafélagsins, hins vegar fylgismenn Birtingar. Birtingarmenn kallast oft lýðræð- iskynslóðin. Þeir hafa mikið komið við sögu, þegar rætt var um sameiginlegt framboð vinstri manna í Reykja- vík. Birtingarmenn eiga í raun ekki heima í Alþýðu- bandalaginu. Þeir eiga fremur samleið með öðrum kröt- um. Tvennt ber að athuga í þessu sambandi. Það væri akkur fyrir landsmenn, að þeir séu 1 sama flokki, sem samleið eiga, hvort sem það gerist nú eða síðar. En á hinn bóginn hefði sameiginlegt framboð ekki verið lík- legt til mikils fylgis. Reytzt hefði af flokkunum fylgi í aðrar áttir. Hugsum okkur til dæmis, að Alþýðubanda- lagið og Alþýðuflokkurinn hefðu boðið fram saman. FJöldi alþýðuflokksmanna og nokkur hluti alþýðu- bandalagsmanna hefðu hlaupizt undan merkjum. Við þekkjum til dæmis af reynslu svokallaðs hræðslubanda- lags, Framsóknarflokks og Alþýðuflokks, frá 1956, að kjósendur, einkum Alþýðuflokksins, gátu fjölmargir ekki sætt sig við að kjósa framsóknarmann. Hið sama hefði gerzt í Reykjavík, eftir að listi hefði komizt saman að loknu prófkjöri. Gamlir kjósendur flokkanna, sem byðu fram saman, hefðu í stórum hópum farið að kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Draumur sumra vinstri manna um að ná til óháðra kjósenda með sameiginlegu framboði, er einungis óskhyggja. Engar líkur eru til, að slíkt ger- izt. Kannski er vonlaust fyrir vinstri menn í Reykjavík að fella meirihluta sjálfstæðismanna, að minnsta kosti að þessu sinni. En sameiginlegt framboð vinstri flokka hefði einungis tryggt öllu frekar yfirburði Sjálfstæðis- flokksins í borginni. Sú er reynslan, og þetta segir skyn- samleg yfirvegun. Framansagt gildir, þótt æskilegt væri að fækka vinstri flokkum, þegar til lengdar lætur. En slík þróun þarf að gerast á lengri tíma. Sem stendur beitir stór hluti al- þýðuflokksmanna sér gegn tilburðum til að sameina Alþýðuflokk og Alþýðubandalag. Nú beitir flokkseig- endafélagið í Alþýðubandalaginu sér einnig gegn þess konar einingu - og sigrar. Þetta eru öfl, sem verður að taka tillit til. Hugmyndimar um sameiginlegt framboð, sem ein- hveiju skipti, em nú óskhyggjan ein. En komið gæti að því, að flokkakerfið hér breytist í grundvallaratriðum. Umræðurnar nú eru því hugsanlega nokkurs virði. Haukur Helgason FIMMTUDAGUJR 8. J-EBRÚAIj 1990- „Það er hins vegar kaldhæðnislegt að oftast eru opinberir starfsmenn hörðustu andstæðingar einkavæðing- ar,“ segir greinarhöfundur m.a. Eign handa öllum Þegar Sjálfstæðisflokkurinn tek- ur við landsmálum á ný að loknum næstu þingkosningum ætti það aö verða eitt af fyrstu verkefnum hans að hetjast handa um sölu ríkis- fyrirtækja í því skyni að dreifa valdi, auka hagkvæmni og bæta kjör almennings. Víöa erlendis hefur verið komið á fót sérstökum stofnunum eða ráðuneytum til aö undirbúa og annast sölu opinberra fyrirtækja. Þykir það hafa skilað góðum ár- angri. Skynsamlegt viröist að hafa þann hátt á hér á landi að sett verði á laggirnar htil stofnun er ráði til sín nokkra markaðs- og rekstrar- fræðinga og aðra sérfróða menn, og sjái hún um undirbúning, kynn- ingu og framkvæmd opinberrar áætlunar um sölu ríkisfyrirtækja eða einkavæðingu sem svo er nefnd. Fyrirtæki, sem selja ætti almenn- ingi, eru t.d. ríkisbankarnir, Póstur og sími, Fríhöfnin, Lyijaverslun ríkisins, Landsvirkjun, Síldarverk- smiðjurnar, Áburðarverksmiðjan og Sementsverksmiðjan. Hér er um svo mikilvægt verkefni að ræða að fásinna væri að fela það embættismönnum ráöuneyta sem þegar eru störfum hlaðnir eða kynnu jafnvel - hagsmuna sinna vegna - að reyna að bregða fæti fyrir áætlun af þessu tagi. Að skapa tiltrú almennings Um síðustu helgi efndi Lands- málafélagið Vörður í Reykjavík til málþings þar sem flutt voru nokk- ur athyglisverð erindi um hlutverk ríkisins og leiðir til að brjótast út úr vítahring síaukinna ríkisum- svifa. Greinargott yflrlit yfir um- ræðurnar á fundinum er að finna í Morgunblaðinu sl. þriðjudag. Mér þótti sérstaklega athyglis- vert að heyra þá Friðrik Sophusson alþingismann og Hrein Loftsson lögmann útlista hvemig standa ætti að baráttunni við bákniö. Frið- rik sagði að sjálfstæðismenn yrðu í fyrsta lagi að hafa undir höndum nákvæma áætlun í þessu efni áður en til stjórnarmyndunar kæmi. í öðm lagi þyrfti að skapa tiltrú al- mennings á slíka áætlun og það yrði best gert með því að draga fyrst saman seghn hjá æðstu stjórn ríkisins. Þar væri kannski ekki um stórar upphæðir að ræða en afstað- an til útgjalda á þeim vettvangi gæti hins vegar ráðið úrslitum uæm það hvort samdráttur á öör- um sviðum fengi almennan hljóm- grann og stuðning. Nákvæm áætlun um einkavæöingu Hreinn Loftsson taldi að einka- væðingin þyrfti að fara fram með skipulögðum hætti. Fyrst þyrftu menn að gera sér grein fyrir því hvaða ríkisfyrirtæki ástæða væri til að seljaog gera á þeim rekstrar- lega úttekt. Að svo búnu yrði skýrsla um niðurstöðu þessarar athugunar lögð fyrir viðkomandi KjaUariiui Guðmundur Magnússon sagnfræðingur ráðherra. Hann tæki ákvörðun um það hvaða fyrirtæki yrðu seld og með hvaöa hætti. Þegar það lægi fyrir kæmu utanaðkomandi ráð- gjafar til stjórnunarstarfa í fyrir- tækjunum og önnuðust undirbún- ing sölunnar. Jafnhliða yrði lögum breytt og fyrirtækin gerð að al- menningshlutafélögum. Loks þeg- ar árangur úttektar á fyrirtækjun- um og breyttra vinnubragða við stjórn þeirra væri kominn í ljós (tapi t.d. snúið í hagnað) yrðu sjálf- stæðir aðilar fengnir til að sjá um söluna sjálfa. Ánægjulegt var svo að heyra Ólaf G. Einarsson, formann þingflokks sjálfstæðismanna, skýra frá því á ráöstefnunni að á vegum þing- flokksins væri þegar hafin úttekt á fjármálum ríkisins til að flýta fyrir nauðsynlegum ráðstöfunum þegar Sjálfstæðisflokkurinn tekur við stjórnartaumunum á næsta ári. Einkavæðing og stjórnmál Þegar hugmyndir um víðtæka sölu opinberra fyrirtækja og einka- væðingu voru fyrst viðraðar ollu þær miklum stjórnmáladeilum. Þær voru grein á meiði frjáls- hyggju og sem shkar vöktu þær andúð félagshyggjumanna og vinstri flokka. En framkvæmd einkavæðingar tókst vel þar sem hún var reynd á annað borð og rökin urðu ljósari og máttugri eftir því sem á leið. Svo fór að félagshyggjuflokkar víða erlendis (s.s. á Nýja-Sjálandi, Frakklandi, Spáni'og Svíþjóð) átt- uðu sig á því að sala ríkisfyrir- tækja, úboð almannaþjónustu og efling frjálsrar samkeppni var til þess falhn að bæta kjör cdmennings verulega. Þeir settu einkavæðingu á stefnuskrá sína og gengu í því efni stundum lengra en hægri flokkar voru tilbúnir til. Stjórn- málablærinn, sem var á einkavæð- ingarhugmyndinni, hefur því smám saman verið að fara af henni erlendis. Hér á landi halda vinstri flokk- amir dauðahaldi i úreltar þjóðnýt- ingarhugmyndir og stjómarstefn- an á undanfornum misserum hefur leitt til aukinnar miðstýringar og samþjöppunar fjármagns á vegum ríkisins. Ýmsir vinstri menn hafa þó kveikt á perunni. Félagshyggju- maðurinn Þorvaldur Gylfason, sem þykir skynsamur hagfræðing- ur, hefur t.d. að undanförnu verið öflugur málsvari einkavæðingar og aukins frjálsræðis í atvinnulífi. Rökin fyrir einkavæðingu Rökin fyrir einkavæðingu eru einkum af þrennu tagi (eins og ágætlega er rakið í ritinu Eign handa öllum sem Stofnun Jóns Þorlákssonar gaf út árið 1988): í fyrsta lagi er einkavæðing talin leiða til aukinnar hagkvæmni í at- vinnulífinu; hindra sóun eða slæm- a nýtingu fjármuna. í örðu lagi felur einkavæðing í sér aukið frelsi og víðtækari valddreif- ingu en ríkisrekstur. Loks leiðir af einkavæðingu þrennt: Ríkið (stjórnmálamenn) fær aukið ráðstöfunarfé. Það fé mætti t.d. nota til að greiða niöur erlendar skuldir okkar eða stofna sjóð til að hjálpa landbúnaðinum th að aðlagast frjálsu markað- skerfi. Fjármálamenn fengju líka aukin tækifæri til að hagnast ef ágóðafyrirtæki í opinberri eign kæmu á frjálsan markað. Hagnað- ur af viðleitni þeirra myndi síðan skila sér i hærri launum starfs- fólksins. Það er hins vegar kald- hæðnislegt að oftast eru opinberir starfsmenn hörðustu andstæðing- ar einkavæðingar. Reynslan sýnir hins vegar að þeir græða að jafnaði einna mest á henni. Það eru ennfremur rök fyrir víð- tækri einkavæðingu að hún skapar skilyrði fyrir virkum fjármagns- markaði, þar sem eignir skipta um hendur eftir því sem þörf gerist á. Slíkur markaður er forsenda fyrir því að allur almenningur verði eignamenn, þ.e. fjárhagslega sjálf- stæður, en það er eitt helsta keppi- kefli frjálshyggjumanna. Guðmundur Magnússon „Fyrirtæki sem selja ætti almenningi eru t.d. ríkisbankarnir, Póstur og sími, Fríhöfnin, LyQaverslun ríkisins, Lands virkj un, Síldar verksmiðj urnar, Aburðarverksmiðjan og Sementsverk- smiðjan.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.