Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1990, Page 16
16
FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1990.
íþróttir
Sport-
stúfar
Þórhallur Ásmundas., DV, Sauöárkroki
Flest 4. deíldar liðin í
knattspyrnu á Norður-
landi vestra hafa ráðið
sér þjálfara fyrir sura-
arið. Hermann Arason veröur
áfram með Hvöt á Blönduósi en
Öm Gunnarsson, leikmaður
Hvatar í fyrra, hefur hins vegar
verið ráðinn tii Kormáks á
Hvammstanga. Ingvar Magnús-
son, sem lék með Tindastóli í
fyrra, þjálfar Neista á Hofsósi, en
Alfreð Guðmundsson, sem var
með Neistann í fyrra, er tekinn
viö nýstofnuðu liði á Sauðárkróki
sem nefnist Þrymur. Fram á
Skagaströnd verður einnig í 4.
deild í fyrsta skipti í sumar og er
á höttunum á eftir þjálfara. Þessi
lið verða væntanlega i Norðvest-
urlandsriðlí 4. deildar í sumar
ásamt Geislanum á Hólmavík.
Garðar þjálfar Sindra
Sindri á Hornafirði hefur ráðið
til sín Garðar Jónsson sem mun
jafnframt leika meö liðinu 14,
deildinni í sumar. Garðar lék með
Leiftri í 2. deildinni í fyrra en var
áður leikmaður og þjálfari hjá
Dalvík og Hvöt og hefur jafnan
skorað mikið af mörktun.
ÍR-ingar i Lokeren
um páskana
ÍR-ingar, sem ætla sér stóra hluti
í 2. deildinni í sumar, fara i æfing-
arferð til Belgiu um páskana og
munu dvelja í Lokeren. Þeir
verða þar dagana 7.-17. apríl og
leika 3-4 leiki í ferðinni, auk þess
sero æft verður einu sinni til
tvisvar á dag. Mikið er um að
vera hjá ÍR-ingum, sem hafa end-
urvakið kvennaknattspymuna
innan félagsins, og einnig 2. flokk
karla, og munu jafnframt vígja í
sumar nýtt 23 þúsund fermetra
grassvæði í Suður-Mjódd, en
svæðið mun rúma þrjá vellL
Boston tapaði en
Spurs á sigurgöngu
Boston Celtics tapaöi á
heimavelh fyrir Mil-
waukee Bucks í banda-
ríska körfuknattleikn-
um i fyrrinótt. San AntonioSpurs
hélt hins vegar sigurgöngu sinni
áfram með því að sigra Atianta
Hawks öragglega á heimavelh.
Tvo leikí þurfti að íramlengja,
annars vegar leik Indiana Pacers
og Denver Nuggets og hins vegar
leik Los Angeles Lakers og Port-
land Traii Blazers. Úrsht leikj- ■
anna í fyrrinótt urðu annars sem
hér segir:
Boston-Milwaukee.......106-119
Orlando-New York.......110-117
Miami-Washington.......100-118
Detroit-Cleveland......105-96
Houston-Minnesota..........108-101
SA Spurs-Atlanta.......105-94
Denver-Indiana........130-138
Sacramento-Dallas......90-100
Portland-Lakers........110-121
Zico kvaddi að viðstöddum
100 þúsund áhorfendum
Brasilíski knatt-
spymusnihingurinn
Zico hefur lagt skóna á
hilluna. Zico iék
kveðjuleik sinn á Maracana leik-
vanginum í Rio De Janeiro í fyrr-
kvöld í'rammi fyrir 100 þúsund
áhorfendum. Margir af fyrrum
bestu knattspymumönnum
heimsins voru samankomnir 1
þessu ieik til að kveðja Zico þar
á me§al Karl Heinz Rummenigge,
Paul Breitner og Mario Kempes
svo einhverjir séu nefiidir.Zico
lék 89 landsleiki fyrir Brasihu og
skoraði 66 mörk.
• Alfreð Gíslason, Bidasoa.
• Kristján Arason, Teka.
Nú eru ekki nema um
þijár vikur þar til heims-
meistarakeppni a-þjóða í
handknattleik hefst í
Tékkóslóvakíu. Margir landshðs-
þjálfarar hafa þegar tilkynnt hvaða
leikmenn þeir æth að nota í a-keppn-
inni en enn bólar ekkert á vah Bog-
dans Kowalczyk, landshðsþjálfara
íslands. Eöa hvað? Hann hefur til-
kynnt 20 manna landsliðshóp hér
innanlands en samkvæmt upplýsing-
um sem DV hefur aflað sér hefur HSÍ
þegar tilkynnt nöfn 17 leikmanna
fyrir HM til alþjóða handknattleiks-
sambandsins, IHF.
Það var þann 29. janúar sl. sem HSÍ
tilkynnti 17 manna hópinn til IHF.
Þegar hefur verið ákveðið að landshð
íslands verði skipað 16 leikmönnum.
Einn af þessum 17 leikmönnum mun
því veröa eftir heima er landshðið
heldur til Tékkóslóvakíu síðar íþers-
um mánuði.
Samkvæmt þeim upplýsingum sem
IHF lét DV í té í gær hefur HSÍ til-
kynnt eftirtalda leikmenn til sam-
bandsins:
Markverðir
Einar Þorvarðarson...........Val
Guðmundur Hrafnkelsson........FH
Leifur Dagfinnsson......‘...KR
Línumenn
Þorgils Óttar Mathiesen......FH
Geir Sveinsson.......Granollers
Hornamenn
Guðmundur Guðmundsson, Víkingi
Jakob Sigurðsson............Val
Bjarki Sigurðsson.......Víkingi
Valdimar Grímsson...........Val
Bíll I verðlaun fyrir
að hitta frá miðlínu
Körfuknattleikssamband íslands í
samvinnu við Samtök íþróttafrétta-
manna standa fyrir körfuknattleiks-
hátíð í íþróttahúsi Keflavíkur á
fóstudaginn kemur. Hátíðin hefst kl.
19 með undankeppni í troðslu og
þriggja stiga skotum.
Leikurinn verður fjórir leikhlutar,
12 mínútur hver leikhluti. í leik-
hléum verður ýmislegt til skemmt-
unar. í fyrsta leikhléi leikur stjórn
KKÍ gegn íþróttafréttamönnum en
stjómarmenn KKI hafa samanlagt
193 landsleiki að baki. í öðra leikhléi
verða úrsht í troðslukeppni og
þriggja stiga skotkeppni. í þriðja leik-
hléi verður glæsileg uppákoma.
Tveir heppnir áhorfendur fá tæk-
ifæri til að vinna Nissan Micra bíl frá
Ingvari Helgasvni að verðmæti 700
þúsund krónur ef þeir hitta tveimur
skotum af þremur í körfuna frá miðl-
ínu vallarins.
Samtök íþróttafréttamanna hafa
vahð hð landsins og Suðurnesja og
veröa hðin skipuð eftirtöldum leik-
mönnum: Chris Behrends, Val,
Axel Nikulásson, KR, James Bow,
Haukum, Anatoh Kovtoun, KR,
Valur Ingimundarson, UMFT,
Guðni Guðnason, KR, Dan Kenn-
ard, Þór, Pálmar Sigurðsson,
Haukum, Páll Kolbeinsson, KR, og
Bjöm Steffensen, ÍR. Stjórnandi
hðsins verður Torfi Magnússon.
Lið Suðurnesja: Guðmundur Braga-
son, UMFG, Magnús Guðfinnsson,
ÍBK, David Grissom, Reyni, Sandy
Anderson, ÍBK, Teitur Örlygsson,
UMFN, Patrick Releford, UMFN,
Guðjón Skúlason, ÍBK, Friðrik Ragn-
arsson, UMFN, ísak Tómasson,
UMFN, og Hjálmar Hahgrímsson,
UMFG. Stjómandi hðsins verður
Dennis Matika.
-JKS
RUUd GullÍt sést hértaka við viði
ins AC Milan á dögunum en liðið var útr
er Rinus Michel, fyrrverandi landsliðsþjáll
in. Þess má geta að i gær fór fram einn
Milan tók þá á móti Verona sem er í nei
markalausu jafntefli. Það er mikil spenna
36 stig, AC Milan 34, Sampdoria og Inte
Ekki vill það batna
- Bryan Robson, fyrirliði Manchester United, 1 uppskurð
ið lengi yfir þegar Robson þurfti
að hætta vegna verkja í náranum
og er ljóst að hann verður frá knatt-
spymuiðkun næstu tvo mánuði.
Robson fór í vikunni til Lundúna
og fékk úr því skoriö hjá mjög fær-
um sérfræðingi að hann þyrfti að
gangast undir aðgerðina. Ekki vih
það batna, ástandið hjá Manchest-
er hðinu.
Alex Ferguson, framkvæmda-
stjóri Manchester United, sagði í
Nú er Ijóst aö Bryan Robson, fyr-
irhði enska landshðsins í knatt-
s lyrnu og fyrirhði Manchester
United, þarf að gangast undir aö-
gerð vegna langvarandi meiðsla í
nára.
Robson meiddist í leik með Manc-
hester United gegn Liverpool 23.
desember síðsthðinn og hefur ekk-
ert geta leikið síðan. Á þriðjudag
mætti hann á sína fyrstu æfingu
eftir meiðslin. Hún hafði ekki stað-
gær: „Þetta era mikil vonbrigði en
við vitum þó hvar við stöndum
núna og það er ljóst að hann verður
ekki meö hðinu fyrr en eftir minnst
6-7 vikur.“ Ferguson hefur verið
undir mikihi pressu undanfamar
vikur vegna slaks árangurs Manc-
hester United á keppnistímabilinu
og áhangendur hðsins vilja hann í
burtu hið fyrsta.
-GH