Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1990, Page 25
FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1990.
33
DV
Ein tólfa
á teninginn
Fimm leikjum á síöasta getrauna-
seðli var frestaö vegna rigningar og
roks. Fjórir leikjanna voru í London
og nágrenni en einn á suðurströnd-
inni. Eftirlitsmaður íslenskra get-
rauna hóf teninginn fræga á loft og
fékk fram úrslit á leikina fimm. Ten-
ingurinn er með tólf flötum. Á fimm
flötunum er merkið 1, á íjórum
þeirra er merkið X og á þremur
þeirra er merkið 2. Úrslit teningsins
voru ekki mjög óvænt en þó kom það
mörgum tippurum á óvart aö hann
setti merkið 1, eða heimasigur, á leik
Charlton og Arsenal.
Einungis ein tólfa fannst af þeim
294.750 röðum sem seldust í síðustu
viku. Tólfan hlýtur allan fyrsta vinn-
ihginn, 784.071 krónur. Það var hóp-
urinn GRM sem átti tólfuna. 29 ellef-
ur fundust og skipta þær milli sfn
336.015 krónum þannig að 11.586
krónur koma í hlut hverrar raðar
með ellefu rétta. Potturinn var
1.120.086 krónur og virðist vera á
uppleið.
Hópkeppnin afar spennandi
Árangur hópanna er mjög góður,
betri nú en nokkru sinni fyrr í hóp-
keppni íslenskra getrauna. TVB16 er
kominn á toppinn ásamt B.P. Þessir
hópar eru með 52 stig. ÖSS, BIGGI
og 2 = 6 eru með 51 stig en HAPPA-
KEÐJA, 2x6, F/X, PEÐIN, SÆ-2,
ÖFUGALÍNAN, ÞRÓTTUR, FÁLK-
AR, BRD og DALVÍK eru mep 50 stig.
TVB16 hefur löngum verið við topp-
inn undanfarin misseri og drengirnir
í Sæbjörgu með hópinn SÆ-2 eru
greinilega farnir af stað á ný. Senni-
lega er hópurinn 2 = 6 með besta
stöðu því sá hópur hefur náð tólf
réttum tvisvar sinnum og ellefu rétt-
um einu sinni.
Framarar seldu mest allra félaga í
síðustu viku, 21.116 raðir. Fylkis-
menn seldu 17.830 raðir og Akurnes-
ingar seldu 15.138 raðir. Aðrir seldu
minna.
Framarar hafa verið duglegir að
veita getraunaseölaþjónustu gegnum
síma. Margir sjómenn hringja reglu-
lega í Framara. Til dæmis fékk sjó-
maður á togaranum Snorra Sturlu-
syni 12 rétta í janúar. Símanúmerin
hjá símaþjónustu Fram eru 680342
Og 680343.
Samkvæmt upplýsingum frá ís-
lenska sjónvarpinu verður leikur
Norwich og Liverpool sýndur beint
á laugardaginn kemur. En sam-
kvæmt upplýsingum úr danska get-
raunablaðinu Tipsbladet verður
leikur Chelsea og Tottenham sýndur
á Norðurlöndum. Starfsmenn Tips-
bladet hafa verið naskir að spá rétt
um beinar sýningar í vetur. Til dæm-
is voru þeir alltaf komnir með réttu
upplýsingarnar um þýsku leikina
sem sýndir voru í haust en íslensk-
um áhorfendum var sagt rangt til um
þá.
Bogdan spáir
íslendingum
jafntefli
íslenskar getraunir verða með
aukaseðil í tengslum við heimsmeist-
arakeppnina í handbolta sem hefst í
Tékkóslóvakíu í febrúarlok. Auka-
seðillinn verður með tólf leikjum,
leiknum frá 28. febrúar til 3. mars.
Leikir íslands við Kúbu, Spán og
Júgóslavíu verða á seðlinum.
Nokkrir valinkunnir áhugamenn
um handbolta voru fengnir til að spá
um leikina, þeirra á meðal Bogdan
landsliðsþjálfari og Jón Hjaltalín
Magnússon, formaður Handknatt-
leikssambands íslands.
Jón Hjaltalín Magnússon spáir ís-
lendingum sigri í öllum þessum
þremur leikjum sínum, en Bogdan
er hógværari og spáir íslendingum
sigri gegn Kúbu og Júgóslavíu, en
jafntefli gegn Spáni.
Salan hefst mánudaginn 19. febrú-
ar næstkomandi og lýkur miðviku-
daginn 28. febrúar, skömmu fyrir
upphaf fyrsta leiksins á seðhnum.
Til að vera gjaldgengur í þessari
keppni þarf aö setja kross í reitinn
AUKASEÐILL á beinlinugetrauna-
seðlinum.
Allir leikir íslenska landsliösins
veröa sýndir beint í Ríkissjónvarp-
inu og er ekki að efa að mikil spenna
verður meðal áhugamanna um
handbolta þessar handboltaheims-
meistaravikur í febrúar og mars.
Getraunaspá
fjölmiðlanna
Q. «0
m ^
:=, c > -Q
Q2Hn.Qma:w<2
LEIKVIKA NR. 6
Aston Villa Sheff.Wed 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1
Chelsea Nott.Forest X X 1 1 X 2 X 2 1 X
Everton Charlton 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1
Manch.City Wimbledon 1 1 X 1 X 1 2 2 1 X
Millwall Manch.Utd 2 1 1 2 1 2 1 1 2 2
Norwich Liverpool 1 X X 2 1 2 2 X 2 2
Barnsley Swindon X X 2 X X 2 1 X X 2
Oxford W.B.A 1 1 X 1 2 1 1 1 X 1
Portsmouth Newcastle 2 1 1 X X X 1 1 X X
PortVale Watford 1 X 2 2 1 1 1 1 1 1
Sunderland Blackburn 1 1 1 1 2 1 1 2 1 1
Wolves Ipswich X 1 1 X 1 2 X 1 2 X
Hve margir réttir eftir vorleik 5.: 27 28 21 28 26 29 27 33 30 25
-ekkibaraheppni
Enska 1. deildin
HEIMALEIKIR ÚTILEIKIR
L U / T Mörk U J T Mörk S
25 6 4 1 23 -8 Liverpool 6 3 3 27 -18 49
23 8 2 1 27-12 Aston Villa 5 2 4 13 -9 46
23 9 2 0 29 -7 Arsenal 3 1 7 9-17 42
24 5 3 3 19-12 Nott.Forest 4 3 4 18-12 39
24 6 1 4 24 -17 Tottenham 3 5 4 12-13 36
23 5 5 1 24-16 Southampton 4 3 5 21 - 22 35
24 3 5 3 22 -20 Chelsea 5 3 4 17-16 35
24 7 2 2 21-10 Everton 2 3 7 11 -20 35
24 4 6 1 17-10 Norwich 4 1 7 11 -17 34
24 7 1 3 14-11 2 3 7 7-20 34
23 6 1 5 20 -11 Derby 3 4 4 9-10 32
23 3 4 4 12-14 Wimbledon 4 6 2 14-11 31
23 5 3 3 14-12 Q.P.R 2 6 4 12-14 30
24 6 1 4 19-14 Manch.City 0 5 7 7 -24 27
25 5 6 2 16 -9 Sheff.Wed 1 2 9 5 -26 26
24 5 3 4 16-17 2 2 8 11-32 26
24 4 4 4 15-11 Manch.Utd 2 3 7 13-23 25
24 4 5 3 17-12 Millwall 1 4 7 13-28 24
23 4 5 3 12-11 Luton 0 5 6 13-22 22
23 2 4 5 12-15 Charlton 1 3 8 6-19 16
Enska 2. deildin
HEIMALEIKIR ÚTILEIKIR
L U J T Mörk U J T Mörk S
28 10 3 0 27 -7 Leeds 4 4 5 21 -22 55
28 7 4 2 24 -16 Sheff.Utd 6 6 2 19-14 52
28 6 3 3 33 - 18 Swindon 5 4 5 19-22 46
28 8 6 0 26 -15 Oldham 3 5 6 14-19 44
28 7 6 1 27-17 Sunderland 4 5 5 19 -25 44
27 7 3 2 28 -21 Newcastle 3 6 5 20 -16 42
28 6 3 4 23 -14 Wolves 3 6 4 21-21 42
26 7 5 1 23-12 Ipswich 4 3 6 15-24 41
28 3 7 3 29 -24 Blackburn 5 6 3 22 -20 40
28 5 7 1 22-12 Port Vale 2 4 7 17-22 38
27 6 5 3 24 -17 Oxford 3 2 7 14-20 37
28 6 3 4 23 -20 Bournemouth ;. 2 4 7 21-26 37
27 7 3 4 24 -15 West Ham 2 5 6 14 -19 . 35
27 7 1 5 23 -16 Watford 2 6 6 13-19 34
27 6 4 4 18-17 Leicester 3 3 7 20 -28 34
28 5 3 4 22 -16 Middlesbro 2 3 9 12 -24 33
28 4 5 5 28 -26 W.B.A 3 5 6 18 -22 31
27 5 5 4 20 -16 Plymouth 3 2 8 18-25 31
28 2 6 5 23 -24 Portsmouth 3 4 6 14-20 31
28 5 3 5 14 -13 Brighton 3 3 9 19-27 30
27 2 5 6 12-20 Hull 3 7 3 19-18 30
28 6 5 3 17-11 Bradford 0 6 8 13 -29 29
27 4 5 5 15-17 Barnsley 3 2 8 14-33 28
28 3 6 5 16-19 Stoke 1 5 8 7-26 23
Tippaðátólf
1 Aston Villa-Sheff. Wed. 1
Aston Villa hefur veriö á núkil]i siglingu í vetur. Liðiö er með
46 stig úr 23 leikjum sem er besta meðaltal i 1. deildinni
ensku. Sheffield-liðið er frekar slakt þó svo að leikmönnum
hafi tekist að hala inn stig á heimavelli sínum. Á útivelli er
Sheffield-liðið slakt, hefur unnið einn leik en tapað níu.
2 Chelsea - Tottenham X
Chelsea og Tottenham eru ofarlega en hafa brugðist aðdáend-
um sínum hvað eftir annað í vetur. Chelsea var við toppinn
framan af vetri en svo sprakk liðið gjörsamlega og hefúr
ekki unnið itema tvo leiki af ellefu þeim siðustu. Tottenham
er algjörlega óútreíknanlegt en vann góðan sigur á áunnudag-
irui var og ætti að hanga á jafiitefii.
3 Everíon - Charlton 1
Charlton er langslakasta lið 1. deildarinnar, enda langneðst.
Liðið hefur tapað sex siðustu leikjum sinum og hefur reyndar
ekki unnið nema þrjá leiki í vetur af 23 viðureignum. Everton
er frekar dauft liö. Það sást i leik liðsins gegn Liverpool um
síðustu helgi. En ef leikmönnum Everton tekst ekki að vinna
sigur á Charlton-liðinu nú þá vinnur það ekki marga lefld f vor.
4 Manch. City - Wimbledon 1
Manchester City hefur gengið vel í leikjum sínum gegn
Wimbledon hin síðari ár. City vann 3-1 1986/87 og 3-0
1984/85. Á útivelli gerði liðið jafntefli bæði keppnistímabilin.
Howard Kendall hefur komið á festu í liðinu sem virðist vera
að rétta úr kútnum. Wimbledon er óútreiknanlegt lið en er
þó ekki eins sterkt og síðustu þrjú keppnistímabil.
5 Millwall - Manch. Utd. 2
Hvort liðið er slakara mn þessar mundir? Um það snýst spáin
að þessu sinni. United-Iiðið sýnir töluverðan persónuleika en
Millwall er flatt og slakt. Manchester United hefúr ekki unnið
leik í deildakeppninni síðan 18. nóvember siðastliðinn en
Millwall hefúr unnið einn síðustu sautján leikja sinna’. MUlwall
náði ekki að bera sigurorð af Cambridge i bikarkeppninni
en hafði þó tvo leflri til þess. Það sýnir að liðið er í slæmu formi.
6 Norwich - Liverpool 1
Nú er komið að sigri Norwich gegn Liverpool. Liðin hafa
spilað tvo leflri á síðustu tíu dögum í bikarkeppninni og var
jafiitefli í Norwich en Liverpool sigraöi heima. Nú snýst dæm-
ið við því að leikraenn Norwich geta sýnt snilli ef þeir vilja.
Þeir eru hungraðir í sigur og berjast til hins hinsta blóðdropa.
7 Bamsiey - Swindon X
Swindon er með sitt besta lið í áratugi. Liðið er í þriðja efsta
sæti og hefur unnið marga glæsta sigra í vetur, siðast á Le-
eds heima á sunnudaginn var, 3-2. Bamsley er í næstneðsta
sæti og hefur ekki verið svo neöarlega í mörg ár. Leikmenn
Bamsley munu berjast á sínum heimavelli, hamast sem óðir
menn væm eða berserkir en munu ekki ná nema einu stigi
úr þessum leik.
8 Oxford-WBA 1
Oxford ætti að vinna ömggan sigur í þessum leflc ef teldð
er tillit til síöustu átta leikja liðanna í deildakeppninni. Oxford
hefur tapað einum af átta síðustu leikjum sínum en WBA hef-
ur unnið einn af átta síðustu leikjum sínum. Þar kemur ef tfl vill
á móti að liðin hafa gert jafntefli í tveimur síðustu leikjum lið-
anna á Manor Ground í Oxford og eins verður að geta glæsi-
legs árangurs WBA í bikarkeppninni ensku. Þar hefur WBA
lagt að velli 1. deildar liðin Wimbledon og Charlton.
9 Portsmouth - Newcastle 2
Portsmouth er við botn 2. deildar. Liðið hefur einungis urrnið
tvo leflri heima í vetur, gert sex jafntefli og tapað fimm leikj-
um. Newcastle er ofarlega í 2. defldinni. Liðið hefur að vlsu
eklri unnið nema þrjá leilri á útivelli til þessa en leikhópurinn
er sterkur og stjóm liðsins með ágætum. Newcastle hefur
unnið síöustu tvo deildarleflri liðanna á Fratton Park í Portsmo-
uth og á töluverða möguleika á sigri í þessum leik.
10 Port Vale - Watford 1
Port Vale hefúr heldur betur tekdð til fótanna í vetur. Liðið
komst í 2. deild í vor og var slakt framan af keppnistímabil-
inu. En 18. nóvember urðu kaflaskiptí. Liðið hóf að vinna leflri
og hefur síðan þá unnið sex leflri, gert þrjú jafiitefli'og tapað
tveimur leikjum í deildakeppninni. 1 bikarkeppninni stóð liðið
sig með prýði og meðal annars Derby en tapaði fyrir Aston
Villa. Ekki hefur borið miMð á Watford í vetur. Liðið er um
miðja deild án sigurs í fjórum siðustu leikjum sínum.
11 Snnderland - Blackbum 1
Sunderland er sterkt heima, hefur einungis tapað einum leik
á Roker Park í vetur. Blackbura er nokkuð traust lið en hefur
þó látið á sjá síðustu vikurnar. Blackbura væri meðal efstu
liða ef heimavöllurinn væri liðinu drýgri. Leikmenn Sunder-
land eru markheppnir heima, hafa skorað 27 mörk i 14 leikj-
um sem er tæplega 2 mörk í leik. Blackbura er að vísu með
betri árangur á útivelli en heimavelli en það er ekki sama
hvar er spilað.
12 Wolves - Ipswich X
Úlfarnir haía verið að þoka sér upp stigatöfluna undanfarið.
Eitt tap í níu siðustu leikjum liðsins vitna um það. Ipswich
hefur verið meðal sterkustu liða 2. deildar undanfama mán-
uöi en þrír síðustu leilrir liðsins eru án sigurs. Tveir þeir síð-
ustu á útivelli hafa reyndar tapast. Ipswich náði mjög góðum
árangri fiá 21. október til 30. desember en þá tapaöi liðið
ekki leik, vann átta leflri og gerði þrjú jafhtefli.