Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1990, Qupperneq 3
FÖSTUDAGUR 9. FEBRUAR199o!
dv - Fréttir
Reykjavikurskákmót:
Tvær milljónir
í verðlaun
Á eftir stórveldaslagnum í skák í
mars verður haldið Reykjavíkur-
skákmót - það 14. í röðinni. Er gert
ráð fyrir að mikið af stórmeisturun-
um verði hér eftir og tefli á Reykja-
víkurmótinu en heildarverðlaun
verða tvær milljónir króna. 1. verð-
laun verða 600.000 krónur en þar að
auki fá stórmeistarar yfir 2600 elo-
stig 60.000 krónur í komuþóknun.
Sagði Þorsteinn Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri mótsins, að búist væri
við að mikið af skákmeisturunum
skrái sig á mótið þegar þeir koma til
landsins.
Þegar hafa nokkrir skákmenn til-
kynnt þátttöku og má þar nefna
Gulko, Seirawan, DeFirmian, Kudr-
in, Browne og Benjamin sem allir eru
stórmeistarar. Þá ætia Svíarnir Tom-
as Ernst, Tom Wedberg og Rikard
Winsnes aö vera með og Daninn Erl-
ing Mortensen. Hollendingarnir Ku-
ijf og Nyboer verða einnig með og
þá hafa ýmsir minni spámenn til-
kynnt komu sína. Þá er gert ráð fyr-
ir að íslensku stórmeistaramir verði
flestir með.
Erlendir skákmenn yfir 2300 stig
fá að vera með en íslendingum nægja
2200 stig. Mótið verður 11. umferðir
eftir svissnesku kerfi og verður dag-
ana 17. til 30. mars. -SMJ
Staðsetning álvers:
Skaðar málið að
gera ákveðna kröfu
- segir iðnaðarráðherra
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra
telur að það sé ekki álviðræðunum
til framdráttar að gera ákveðnar
kröfur um staðsetningu álvers. Þetta
kom fram á Alþingi í gær þegar iðn-
aðarráðherra var að svara fyrir-
spurn Inga Bjöms Albertssonar sem
spurði um það hvort unnið hefði ver-
ið aö því að nýtt álver risi á Grund-
artanga við Hvalfjörð.
Iðnaðarráðherra sagði að engin
ákvörðun hefði verið tekin um stað-
setningu álvers en margir kostir, þar
á meðal Hvalfjörður, heföu verið
kynntir fyrir álfyrirtækjunum. Vitn-
aði iðnaðarráðherra til athugunar
staðarvalsnefndar sem hefði komist
að því að Hvalfjöröur væri heppileg-
ur að mörgu leyti. Þá sagði ráðherra
að forstjóri Hoogovens fyrirtækisins
hefði fyrir skömmu farið upp á
Gmndartanga til að skoða staðinn.
-SMJ
A-Skaftafellssýsla:
Aftur sama fjölgun
og kynskipting
Júlía Imsland, DV, Hö£n:
Samkvæmt manntali 1. desember
sl. voru 1639 með lögheimili á Höfn.
íbúum haföi fjölgað um 42 frá fyrra
ári. í Austur-Skaftafellssýslu fædd-
ust 25 drengir og 24 stúlkur sl. ár og
svo skemmtilega vill til að það er
sama tala og sama skipting milli
kynja og var árið áður.
3’
SKIUÐ SKATTFRAMTAU
W w
ITÆKATIÐ
Skattframtali 1990 vegna tekna 1989 og eigna í árslok á að skila í síðasta
lagi 10. febrúar.
Fylgiblöð með skattframtali liggja frammi hjá
skattstjórum sem jafnframt veita frekari
upplýsingar ef óskað er.
Mikilvægt er að framteljendur varðveiti
launaseola áfram eftir að skattframtali hefur
verið skilað. Launaseðlar eiga að sanna, ef á
þarf að halda að staðgreiðsla hafi verið dregin af laununr
SÍÐASTISKILADAGUR SKATTFRAMTALS
ERIO FEBRÚAR.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
Fínnland i febrúar - Ferðaskrífstofan >4LÍS simí 652266
Eínstök ferð tíl Helsínki dagana 25. febrúar tíl 2. mars nk.
HELSINKI
Gístíng 5 nætur
frá kr. 28.200
STOKKHÓLMUR/HELSINKI
5 nætur (sigling)
frá kr. 42.500
Aðeins þessi eina ferð
LENINGRAD/HELSINKI HELSINKI/FLUG OG BÍLL
5 nætur
frá kr. 42.300
PANTIÐ STRAX
frá kr. 22.500
FERÐASKRIFSTOFA